Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 28
'itnmjialdur
i. vinniMur
sj'
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
Helgarblað DV:
Feðgarnir
^ í Bónusi
Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir,
feðgarnir í Bónusi, verða í opnuvið-
tali í helgarblaði DV á morgun. Rætt
er við þá um samkeppnina, samvinn-
una, framtíðarplönin og ýmislegt
fleira. í blaðinu er viðtal við Birnu
Helgadóttur, blaðamann á European,
sem er farin að koma fram á sjón-
varpsstöðinni Sky.
Talað er við leikarann Alan Alda og
íslenskan ljósamann sem hefur verið
1 ♦iið vinna með Skunk Anansie. Frétta-
ljósin eru um skálmöldma i Landeyj-
um og fylliríssögur af Jeltsín. Þáttur-
inn DV fyrir 15 árum hefur göngu
sína. Rætt er við forsprakka hljóm-
sveitarinnar Vínyl og margt fleira.
-sv/bjb
Æsumálið:
Gögn send til
Hollands
Rannsóknarnefnd sjóslysa er að
undirbúa að senda gögn varðandi
Æsumálið til Hollands.
Nefndin er að safna saman teikn-
ingum o.fl. af skipinu. Senda á gögn-
'^n til skipasmíðastöðvarinnar í
Hollandi sem smíðaði Æsu. Þar á að
kanna hvemig teikningar Siglinga-
stofnunar samræmast upphaflegum
teikningum af skipinu._-RR
Drengurinn
sem lést
Drengurinn sem lést
af slysförum í Heið-
mörk sl. þriðjudag hét
Svavar Árnason, til
heimilis að Jörfabakka
30 í Reykjavík.
Svavar var 5 ára
gamall. Hann var sonur Hildar Sig-
"%-urðardóttur og Árna Sigurðssonar.
Hann átti 4 hræður, þar af einn tví-
bm'abróður.
Syrtir í álinn hjá sjávarútvegsfyrirtækjum:
UA tapar enn
þrátt fyrir
hagræðingu
„Ekki hefur tekist að snúa tapi af
rekstri Útgerðarfélags Akureyringa
upp í hagnað það sem af er árinu.
Milliuppgjör vegna rekstrarins á
fyrra helmingi ársins verður birt í
næstu viku en framkvæmdastjór-
inn vill ekki nefna neinar tölur fyrr
en uppgjörið liggur fyrir. Hann
staðfestir aðeins að ekki sé um
hagnað að ræða. Að sögn Guð-
brands Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra ÚA í morgun, verð-
ur uppgjör fyrri hluta ársins birt í
næstu viku þegar lokið hefur verið
við að gera upp rekstur Tanga hf.
og setja tölurnar inn i rekstrartölur
ÚA.
Verulegt tap var á síðasta ári á
reglulegum rekstri Útgerðarfélags
Akureyringa, alls 266 milljónir, en
stóran hluta þess var að rekja til
vandamála í rekstri þýska dóttur-
fyrirtækisins Mecklenburger
Hochfischerei. Gripið var í fram-
haldinu til mikilla hagræðingarað-
gerða og endurskipulagningar.
Fækkað var stöðugildum um 18,
togara var lagt og landvinnslan var
endurskipulögð Þá var þýska dótt-
urfyrirtækið gert upp með 35 millj-
óna króna hagnaði eftir að einn
togari fyrirtækisins hafði verið
seldur.
„Það góða í þessu er að við sjá-
um fram á bjartari tíma og höfum
verið að gera róttækar aðgerðir á
fyrirtækinu," sagði Guðbrandur
Sigurðsson framkvæmdastjóri i
samtali við DV eftir að ársuppgjör
síðasta árs lá fyrir. Hann sagði þá
að aðgerðirnar myndu skOa sér í
rekstri á þessu ári.
Svo virðist sem þær vonir séu að
bregðast þar sem tölur um áfram-
haldandi stórtap heyrast nefhdar.
„Ég vil ekkert segja um það,“ sagði
Guðbrandur við DV í morgun.
Hann sagði að milliuppgjörs væri
að vænta í næstu viku og þá yrðu
þær lagðar fyrir Verðbréfaþing ís-
lands. Spurður um rekstrarárangur
ÚA sagði Guðbrandur: „Við erum
ekki með hagnað á þessu ári.“
-SÁ
Leikstjóri og aöalleikarar kvikmyndarinnar Blossa eftir forsýningu myndarinnar í gærkvöld. Mikil óánægja var meðal
aðstandenda myndarinnar eftir að Kvikmyndaeftirlit ríkisins setti 16 ára aldurstakmark á myndina í gær, nokkrum
klukkustundum fyrir forsýningu. Að sögn aðstandenda myndarinnar átti hún að höfða til 14-16 ára aldurshóps. Um
2 þúsund manns voru á forsýningunni í gærkvöld. DV-mynd JAK
.FULLIR I 3EINNI"
ÁX-INU MILLI KL
03 OG 05!
Veðrið á morgun:
Rigning
fyrir
sunnan
Á morgim verður austan- og
suðaustangola eða kaldi. Rign-
ing eða súld verður víða um
sunnanvert landið en úrkomu-
lítið um landið norðanvert. Hiti
verður á bilinu 8 til 18 stig,
hlýjast norðanlands og vestan-
lands.
Veörið í dag er á bls. 37
Unnið var við að hreinsa til í rústun-
um í gær.
DV-mynd JB
Upptök
rannsökuð
DV, Hvolsvelli:
Hesthús, hlaða og um 1800 baggar
af nýhirtu heyi eyðilögðust í bruna
sem varð á Hellishólum í Fljótshlíð í
gærmorgun. Húsið, 12 hesta hús, og
hlaðan brunnu til kaldra kola. í gær
var unnið að þvi að moka heyi úr
rústunum og athuga hvort einhverju
af því mætti bjarga.
Ekki er vitað með vissu um elds-
upptök en talið er líklegast að kvikn-
að hafi í út frá rafmagni, þar sem hey-
ið var vel þurrt þegar það var tekið í
hlöðu. Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli í morgun er enn unnið að rann-
sókn á upptökum eldsins. -JB
Útvarpsstöðin X-ið:
Brutust inn
og hófu út-
sendingar
„Þeir kunnu greinilega eitthvað
fyrir sér því það þarf kunnáttumenn
til að stöðva tónbandsútsendinguna
og koma sér í beina útsendingu bæði
með talað mál og tónlist en það gerðu
þeir. Ég hef séð nöfn þessara manna
en kannast ekki við að neinn þeirra sé
þekktur útvarpsmaður. Hvað þeir
voru lengi að skal ég ekki fullyrða en
alla vega náðu þeir að spila nokkur
lög og senda kveðjur," sagði Þorsteinn
Hreggviðsson, Þossi, dagskrárstjóri
útvarpsstöðvarinnar X- ið, en þar var
brotist inn í nótt er leið.
Það var á milli klukkan 4 og 5 að
hlustendur útvarpsstöðvarinnar X-ið
tóku eftir því að ný, ókunnug og dálít-
ið þvoglumælt rödd var komin í út-
sendingu á útvarpsstöðinni og sendi
út kveðjur til sjómanna og spilaði
þungarokk. Lögreglu var þegar í stað
gert viðvart og sótti hún þrjá menn
sem brotist höfðu inn á útvarpsstöð-
ina.
Það var starfsfólk 10-11 verslananna
sem fyrst tók eftir að ekki var allt
mneð felldu. Þossi segir að þremenn-
ingarnir hafi ekki skemmt neitt, að
því er best verður séð. Þeir munu
hafa sparkað upp hurðum í húsinu í
Aðalstræti 9 en það er orðið gamalt og
heldur lúið og því ekki erfitt að kom-
ast þar inn.
-S.dór