Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 15. AGUST 1997
Utlönd
Stuttar fréttir
Indiand fagnar 50 ára sjálfstæðisafmæli:
Barist gegn spillingu
og fátækt í landinu
Indverskir leiðtogar lýstu yfir
stríði gegn spillingu og hvöttu
landsmenn til þjóðarátaks gegn fá-
tækt í ávörpum sínum í tileftii 50
ára sjálfstæðisafmælis landsins.
Forseti landsins, Kocheril Raman
Narayanan, og forsætisráðherrann,
Inder Kumar Gujral, hvöttu lands-
menn í ræðum sínum til að stofna
til fjöldahreyfinga í anda Mahatma
Gandhis til að uppræta spillingu í
landinu.
Forsetinn sagði að allar götur síð-
an Gandhi var myrtur árið 1948
hefði ríkt hentistefna og pólitíkin í
landinu hefði byggst á ógnunum.
Hann sagði pólitíska kerfið gegnsýrt
af gegndarlausri spillingu sem væri
á góðri leið með að grafa undan lýð-
ræðinu í landinu.
„Stjómkerfið í dag á lítið skylt
viö hugsjónir Gandhis og hans
manna,“ sagði forsetinn í ræðu
sinni sem var sjónvarpað um allt
land.
Hann sagði að þótt ýmsar fram-
farir hefðu átt sér stað í landinu þá
hefði ekki enn tekist að útrýma fá-
tækt, sjúkdómum og fáfræði. Stjóm-
völd á Indlandi segja að 18 milljónir
bama í landinu vinni í stað þess að
ganga í skóla en mannréttinda-
hreyfingar segja að talan sé mun
hærri og að 55 milljónir séu nærri
lagi.
Öryggisgæsla var ötlug á svæðum
þar sem aðskilnaðarsinnar hafa
framið hermdarverk svo og í höfuð-
borginni Delhí, þar sem mikil há-
tíðahöld fóm fram.
Aðskilnaðarsinnar vörpuðu þó
skugga á hátíðahöldin með
sprengjutilræði í norðausturhluta
landsins. Sjö manns fórust og átta
aðrir særðust er sprengja sprakk á
járnbrautarteinum. Reuter
Táningur drepur
barnfóstru og
sjálfan sig líka
Fjórtán ára gamall bandarískur
piltur virðist hafa skotið til bana
bamfóstru sem talið var aö hann
hefði numið á brott. Hann stytti
sér síðan aldur eftir mikinn elt-
ingaleik nærri bænum Dryden í
norðvesturhluta Ontariofylkis í
Kanada í gær.
Pilturinn og hin 29 ára gamla
bamfóstra héldu frá Michigan í
síðustu viku eftir að piltinum
varð sunduroröa við móður sína,
aö sögn lögreglunnar. Reuter
Þúsundir Indverja söfnuöust saman til aö fagna þvi aö 50 ár eru liöin frá því aö landiö fékk sjálfstæöi. Forseti
landsins sagöi í ræöu, sem sjónvarpað var um ailt land, að ýmislegt heföi veriö afrekaö frá því landiö fékk sjálfstæði
þann 15. ágúst 1947 en þó hefði ekki tekist aö uppræta spillingu og útrýma fátækt. Símamynd Reuter
ísraelsmenn ánægðir
með hörku Netanyahus
Flestir ísraelskir gyðingar eru
ánægðir með þær aðgerðir sem
Benjamin Netanyahu forsætisráð-
herra greip til í kjölfar sprengjutil-
ræðisins á markaöstorginu í Jer-
úsalem í fyrra mánuði, að því er
kemur fram í nýrri skoðanakönnun
sem birtist í morgun.
Netanyahu lokaði m.a. Vestur-
bakkanum og Gaza og greip til efna-
hagslegra refsiaðgerða.
Samkvæmt könnuninni styðja 57
prósent aðspurðra viðbrögð Net-
anyahus en 39 prósent eru óánægð.
Aukin harka hefur nú aftur færst
í samskipti ísraela og Palestínu eft-
ir að sáttatilraunir Bandaríkja-
stjómar báru ekki nema litinn ár-
angur. ísraelar handtóku palest-
ínska löggu sem þeir sögðu hafa
skotið á hermenn og einnig tóku
þeir ísraelskar landamæralöggur
vegna gruns um að þær hefðu lamið
tvo Palestínumenn. Reuter
Astand versnandi fer
Bill Richardson, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, segir að
matarskorturinn í Norður-Kóreu
fari versnandi. Hann segir engar
sannanir fyrir sögum um að
Norður-Kóreumenn láti erlenda
aðstoð renna til hersins.
Kannski uppstokkun
Haft var eftir Helmut Kohl
Þýska- MEir------■««|
landskanslara ®
í gær að hann
sæi enga þörf
á uppstokkun
í ríkisstjórn
sinni núna en
hann útilokaði
ekki að það
yrði gert fyrir
kosningarnar í
næsta ári.
september
Mannrán í Jemen
Tíu ítölskum ferðamönnum,
þar á meðal tveimur börnum,
var rænt í Jemen.
Bardagar harðna
Bardagar í Kongó, sem til
þessa hafa einskorðast við höf-
uðborgina Brazzaville, hafa
breiðst út um landið.
Skatt á orkuna
Dominique Voynet, umhverf-
isráðherra Frakklands, sagði í
viðtali í gær að hún vildi setja
umhverfísskatt á orku til að
berjast gegn aukinni loftmengun
sem hefur víða farið yflr hættu-
mörk síðustu daga.
Eftirlitinu boðið
Utanrikisráðherra Júgóslavíu
bauð eftirlitsmönnum Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu
að fylgjast með kosningunum í
september.
Annað lík fundið
Björgunarmenn fundu í gær
lík enn eins fórnarlambs flóðsins
i Arizona. Níu er enn saknað.
Sæludögum lokið
Hveitibrauðsdögum Mo-
hammads
Khatamis, ný-
kjörins forseta
írans, og póli-
tískra and-
stæðinga hans
er nú lokið þar
sem ágrein-
ingsmál þeirra
koma sífellt
meira fram i
sviðsljósið. íhaldsöflin á þingi
eru tl dæmis mjög andvíg
nokkrum ráðherrum í nýrri
stjóm landsins. Reuter
Rýmingarsala
á notuðum
dráttarvélum,
gröfum og
heyvínnutældum
Frábær greiöslukjör:
Engin útborgun og lán til allt að 48 mánaba
Fyrsta afborgun getur verið eftir allt að 6 mánubi
Visa/Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaöa.
Þú kemur og semur
Ath! Við höfum opið lengur:
Föstudag 9-20 - Laugardag 10-17 - Sunnudag 13-17
Ingvar
Helgason hf.
Sími 525 8000
Beinti sími sölumanna 525 8070