Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 9 Utlönd Dodi A1 Faeyd, ástmaöur Díönu prinsessu: Kræfur kvennabósi Bandaríska fyrirsætan Kelly Fis- her hefur höfðaö mál gegn Dodi A1 Fayed, hinum nýja elskhuga Diönu prinsessu, fyrir samningsrof. Fisher, sem er 31 árs gömul, sagði að hún hefði verið unnusta Dodis og hún vissi ekki betur en að þau væru trúlofuð, allt þar til hún sá myndir af sínum heittelskaða kyssa Díönu prinsessu. Fisher þykir að mörgu leyti líkj- ast prinsessunni. Hún er ljóshærð og grannvaxin og hefur feimnislegt bros. Hún brotnaði saman á frétta- mannafundi í gær er lögfræðingur hennar, Gloria Allred, sagði frá því hvemig Dodi A1 Fayed hefði svikið hana og nánast yfírgefíð hana við altarið. Allred sagði að Dodi, sem er milljónamæringur og vel þekktur kvennamaður, hefði oft látið látið í ljós áhuga sinn á að giftast Fisher. „í staðinn sveik hann hana og niðurlægði. Ekki bætti úr skák að hún komst að þessum svikum hans þegar hún sá mynd af honum í faðmlögum við aðra konu. Mynd sem dreift var um alla heimsbyggð- ina og jók á kviða hennar og skömm,“ sagði Allred. Lögfræðingurinn fór fram á að Dodi greiddi Fisher 200 þúsund dali. Allred sagði að á meðan Dodi og Díana hefðu verið á siglingu á Miðjarðarhafinu hefði Fisher verið á annarri skútu í eigu A1 Fayed- fjölskyldunnar ekki langt undan. Fyrirsætan Kelly Fisher. „Svo virðist sem Dodi hafi eytt einhverjum hluta dagsins með Fis- her,“ sagði Allred. Hún sagði Dodi hafa sagt Fisher að hann hefði keypt handa þeim hús nærri Los Angeles og að hún ætti að huga að húsgagnakaupum. „Síðast en ekki síst ber hún enn trúlofunarhringinn sem Dodi gaf henni,“ sagði Allred. Hún sagði Fisher ekki vilja ræða við fjöl- miðla en fyrirsætan svaraði þó spumingu eins fréttamannsins. Hann spurði hana af hverju hún væri enn með trúlofunarhringinn. „Vegna þess að ég elskaði hann,“ sagði hún snöktandi. Reuter McVeigh dæmdur til dauða í gær Timothy McVeigh var form- lega dæmdur til dauða í gær fyr- ir sprengjutilræðið í alríkisbygg- ingunni í Oklahomaborg í apríl 1995 þar sem 168 týndu lífi. Sakbomingurinn rauf þögn sína við dómsuppkvaðninguna í gær þegar hann vitnaði í sérálit Louis Brandeis hæstaréttardóm- ara í máli gegn sprúttsala á 3. áratugnum. McVeigh gaf til kynna með því að sprengjutil- ræðið hefði verið hefnd gegn harðstjóm ríkisvaldsins. McVeigh var síðan fluttur til rammgerðs öryggisfangelsis í Florence í Coloradoríki. Fangels- ið hefur verið upnefnt „Alcatraz Klettafjallanna" sökum þess hve öryggisráðstafanir þar em strangar. Ættingjar ýmissa fórnarlamba sprengjutilræðisins voru von- sviknir yfir að McVeigh skyldi ekki segja eitthvað frá eigin brjósti. Reuter Elsta kona í heiminum er loks fundin Kanadiska konan Marie-Louise Meilleur er elst allra sem nú lifa á jörðinni, 116 ára. Heimsmetabók Guinness staðfesti það í gær. Marie-Louise, sem er bæði blind og heyrnarlaus, hefur enn mjög gaman af að syngja, að sögn stjúpdótturdóttur sinnar. Hún býr á elliheimili í bænum Corbeil í norðurhluta Ontariofylkis. Hún verður 117 ára 29. ágúst. Marie-Louise fæddist árið 1880 í Quebecfylki. Vitað er að hún á meira en þrjú hundrað afkomend- ur sem spanna 6 kynslóðir. Hún gifti sig fyrst árið 1900 en varð svo ekkja ellefu áram síðar, með 6 böm á framfæri. Hún giftist svo aftur og átti 6 böm til viðbótar. Átta af tólf bömum hennar eru látin. Reuter endisfi og endistog. ^enskírarnje'ösla úrU-FVC^ Gluggar Hurðir Sólstofur Svalahurðir án viðhalds! Kjarnagluggar Dalvegi 28 • 200 Kópavogi Sími 564 4714 • Fax 564 4713 Rússnesku geimfararnir Vasilí Tsiblíjev og Alexander Lazútín fá sér væna bita af svalandi vatnsmelónu á leiöinni aft- ur heim til Moskvu. Peir komu til jarðar í gær eftir sex mánaða dvöl í geimstöðinni Mir. Simamynd Reuter Tveir geimfarar úr Mir komnir heim: og kavíar á jörðu Rauðvín Tveir geimfarar úr rússnesku geimstöðinni Mir, þeir Vasilí Tsi- blíjev og Alexander Lazútín, eru nú komnir aftur í faðm fjölskyldunnar eftir margra mánaða erfiða dvöl úti í geimnum. Geimfaramir lentu á sléttum Kazakstan í gær og fóra þaðan i Stjömuborgaræflngamiðstöðina ut- an við Moskvu þar sem eiginkonur þeirra buðu þá velkomna með stór- um blómvöndum. Starfsfélagar þeirra gáfu þeim brauð og salt, eins og siður er í Rússlandi. í flugvélinni frá sléttunum til Moskvu gæddu þeir sér hins vegar á frönsku rauð- víni og kavíar. „Guði sé lof að við erum komnir heirn," sagði Tsiblíjev. Hann sagðist gera sér vonir um að skuldinni yrði skellt á þá Lazútín vegna tíðra óhappa í Mir að undan- fómu. Þeir væra þó engar hetjur. Félagar þeirra sem enn eru í Mir búa sig nú undir að gera við geim- stöðina sem er töluvert skemmd, m.a. eftir árekstur. Reuter JEPPADEKK Amerísk gæðaframleiðsla Courser Radial AWT Courser OTD Radial LT Courser Stee! Radial Mastercraft autca Staðgr.verft frá kr. 205/75R 15 8.560 215/75R15 9.210 225/75R 15 9.880 235/75R15 10.015 30x9,50R 15 10.775 31x10,50R 15 11.995 32x11,50R 15 14.395 33x12,50R 15 14.850 245/75R 16 13.120 265/75 R 16 13.500 33x12,50R 16,5 15.380 Smiöjuvegi 32-34 Hjólbarðar, nýir og sólaðir, send- SnJmJWUwb sími 544 5000 um gegn gírókröfu um land allt Vegna gífurlegrar sölu á nýjum bílum hjá Ingvari Helgasyni og Bílheimum seljum við fjölda notaðra bíla meö alvöru afslætti. Þú kemur og semur Opiö til kl. 20 í kvöld BÍL/4KÚSIÐ (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöfða 2 • Reykjavík Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf 587 7605 og umboösmenn um allt land á fjölda notaöra bíla Einnig ÚTSALA á ÚTILEIKFÖNGUM frá BJARKEY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.