Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Side 13
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
13
Umhverfisógn
að austan
Frá Murmansk. í greininni segir m.a. frá hinni ólýsanlegu mengun sem
þar er aö finna.
I sumar átti ég þess
kost að heimsækja Rúss-
land. Nánar tÚ tekið
borgina Murmansk og
nágrenni á Kolaskaga.
Var ég á ferð með Nær-
svæðanefhd Norður-
landaráðs sem hélt sum-
arfund þar og kynnti sér
stöðu umhverfísmála á
svæðinu. Af mörgu var
að taka. Þar standa
menn í því að breyta
þessu magnaða þjóðfé-
lagi. Það ber enn merki
þess mikla valds sem sat
yfir þjóðinni innan
veggja Kremlar og stjóm-
aði í nafni þeirrar hug-
myndafræði kommún-
isma sem boðuð var um
víða veröld. Þegar farið
var um borgirnar Murm-
ansk, Kirovsk og Apatite minntist ég
þess þess sem Steinn Steinarr orti
um Kreml og það harðneskjulega
kerfi sem þar ríkti og réð lögum og
lofum jafnt á Kolaskaga sem í Síber-
íu.
Skáldið sagði:
Sjálfur dauðinn,
sjálfur djöfullinn
hefur byggt þessa bergmálslausu
múra.
Dimmir, kaldir og óræðir
umlykja þeir
eld hatursins,
upphaf lyginnar,
ímynd glæpsins.
Dimmir, kaldir og óræðir
eins og Graal
- Graal hins illa.
Land í sárum
Frá því Steinn Steinarr orti um
Kreml hefur veröldin tekið miklum
breytingum. Allt hefur breyst.
Einnig í Rússlandi. Eftir stendur
þetta auðuga land í sárum. Það hef-
ur dregist aftur úr öðrum þjóðum á
flestum sviðum og upplausn ríkir í
þjóðlífmu. Eftir fall múrsins hefur
gefist tækifæri til þess fyrir Vestur-
landabúa, og þá ekki síst íbúa Norð-
urlanda, að skyggnast inn í fyrrum
Sovétríki og kynnast
því sem þar er og
hefur verið að ger-
ast. Tiígangur Nær-
svæðanefndarinnar
var að kynna sér
stöðu umhverfis-
mála, ekki síst vegna
þeirrar hættu sem
stafar af mengandi
starfsemi, frá kjarn-
orkuúrgangi og þeim
efnum sem sleppt
hefur verið í hafið.
Skelfilegt ástand
Ástand umhverfis-
mála á þessu svæði
er í einu orði sagt
skelfilegt. Mengunin
er ólýsanleg hvert
sem litið er. Höfnin í
Múrmansk er löðr-
andi í olíu. Þar er olíu sleppt i sjóinn
í miklu magni og viðurkenndu hafn-
aryfirvöld það kinnroðalaust. Kjam-
orkuúrgangur er geymdur á hafnar-
svæðinu fyrir utan það sem áður
var losað í hafið. Úrgangurinn er frá
kjarnorkuverum, kjarnorkukafbát-
um og kjarnorkuknúnum ísbrjótum
sem eru í fórum þegar ís leggst að og
yfir sumarið eru
þeir á ferð með
túrista inn í ís-
breiðuna!!
Ekki er um það
vitað hvort kostn-
aður við að eyða
kjamorkuúrgangi
skipanna er innifal-
inn í verði fyrir
siglinguna.
Mikil hætta er
talin stafa frá þeim
kjamorkuúrgangi
sem var á sínum tíma sökkt í hafið
við Novaja Zemlja og enginn veit
hvort eða hvenær hann muni menga
hafið og berast með hafstraumum og
ógna fiskstofnum í úthafinu og við
strendur.
Mengun frá verksmiðjum er mik-
il. I næsta nágrenni verksmiðju við
Monchegorsk er mengunin slík að
skógurinn er dauður á stóru svæði
og upplýst var að þar væri meðalald-
ur fólks verulega lægri en gerist í
Rússlandi. Ekki virtist vera gert ráð
fyrir breytingum á þeirri starfsemi.
í samtölum við vísindamenn á
sviði umhverfismála kom fram að
þeir hafa miklar áhyggjur af ástand-
inu og eru í samstarfi m.a. við Norð-
menn um úrbætur. Fram kom að
ýmsir stjórnmálamenn virtust ekki
tilbúnir til þess að viðurkenna vand-
ann og töldu ástandið harla gott.
Virtust þeir fastir í blekkingu fortíð-
arinnar og lýstu hinu stóra landi
þar sem allt gengi eðlilega. Efa-
semdamenn og úrtölulið væri sett
af. Sú leiðsögn var lítt trúverðug, en
engu að síður var hún hiklaust veitt.
I viðræðum sem Nærsvæða-
nefndin átti við forsvarsmenn í
Murmansk kom fram að ríkur vilji
er til samstarfs á ýmsum sviðum í
þeim tilgangi að bæta umhverfið og
ná fram úrbótum í atvinnulífi jafnt
sem í samfélagsþjónustunni. En til
þess að svo megi verða og árangur
náist tel ég að skipuleggja þurfi all-
an stuðning mjög vel. Æskilegast
væri að stuðningur gæti verið með
óbeinum hætti, t.d. ráðgjöf, en þó
einkum á forsendum viðskipta þar
sem heimamenn beri ábyrgð til
jafns við þá sem ganga til samstarfs
og leggja fram fjármuni og þekk-
ingu. Það skiptir miklu máli að
allra leiða verði leitað svo árangur
náist í því að draga úr mengun,
ekki síst í Barentshafmu og innan
Nærsvæða Norðurlanda. Það verk
sem þar þarf að vinna er einkum að
stöðva hina ógnvekjandi mengun
og hreinsa og eyða kjarnorkuúr-
gangi sem komið hefur verið fyrir í
hafinu. Á Nærsvæðum Norður-
landa eins og á öðrum svæðum
verður að tryggja að framvinda
hagsældar raski ekki því umhverfi
sem við viljum verja og varðveita
og skila til komandi kynslóða. En
umhverfmu stendur mesta ógnin af
hernaði og styrjöldum. Ástandið á
Kolaskaga ber þess vott að þar hef-
ur skort virðingu fyrir umhverfmu
og þar hefur ráðið fór sú hugsun
sem íslenska skáldið lýsti svo átak-
anlega í kvæði sínu og fyrr er vitn-
að til.
Sturla Böðvarsson
Kjallarinn
Sturla
Böövarsson
alþingismaöur fyrir
Sjálfstæðisflokk í Vest-
urlandskjördæmi
„Ástand umhverfísmála á þessu
svæði er í einu orði sagt skelfílegt.
Mengunin er ólýsanleg hvert sem
litið er. Höfnin í Múrmansk er löðr■
andi í olíu. Þar er olíu sleppt í sjó-
inn í miklu magni og viðurkenndu
hafnaryfírvöld það kinnroðalaust
Útlánatöp í nýja húsnæðislánakerfinu
Nýjar hugmyndir um félagslegt
húsnæðislánakerfi gera ráð fyrir
hagstæðum lánum fyrir 90% kaup-
verðs. Núverandi félagsleg lán eru
annuitetslán veitt til 40 ára. Verði
þau notuð í nýja kerfinu munu
verða mikil útlánatöp. Tímabært
er að menn kanni ítarlega hvernig
gömlu lánin muni koma út í nýja
kerfinu. Athugun mun sýna mikil-
vægi þess að nýjar gerðir húsnæð-
islána verði teknar upp.
Öryggi lánveitanda
Við lánveitingar er reynt að
tryggja lánveitendur
gegn útlánatöpum.
Stundum taka einstak-
lingar eða aðrir á sig
persónulegar ábyrgðir.
Algengara er þó að tek-
in séu veð í tilteknum
eignum. Veðin eru ör-
yggi lánveitenda ef
greiðslufall verður.
Hann getur þá að upp-
fylltum ákveðnum skil-
yrðum látið selja hina
veðsettu eign til að end-
urheimta fé sitt. Lang-
tímalán til húsnæðiskaupa taka
veð í eignum sem lánað er til. Ör-
yggi fasteignaveða fer meðal ann-
ars eftir öðrum kröfum sem hvíla
á hinum veðsettu eignum, verð-
mæti þeirra og hversu auðseljan-
legar þær eru. Kröfum er raðað á
veðrétti. Þeir sem eiga kröfur á 1.
veðrétti fá þær greiddar að fullu
áður en kemur að 2. veðrétti og
svo framvegis. Ef söluverð er lágt
tapa þeir sem eiga síðustu veðrétt-
ina. Lánastofnanir lána almennt
ekki upp fyrir ákveðinn hundraðs-
hluta af verðmæti eigna, svonefnd
veðmörk. Viö ákvörðun veðmarka
hafa menn í huga að oftast fæst
innan við 70% af markaðsverði í
nauðungarsölum. Ef kröfur með
áfóllnum kostnaði eru hærri tapa
lánveitendur. Eftirstöðvar lána
verða þess vegna innan fárra ára
frá kaupum að fara niður í 60-70%
af markaðsverði. Erlendis þekkj-
ast allt að 95% veðmörk. Veðmörk
í húsbréfakerfinu eru 70%.
Geröir lána
Frá sjónarhóli lánveitenda
skiptir miklu máli
hversu hratt lán end-
urgreiðast. Veðmörk
geta verið há þegar
endurgreiðsla er
hröð en lægri að öðr-
um kosti. Erlendis
eru veitt óverðtryggð
húsnæðislán, oftast
til 25 ára. Vextir eru
fastir út lánstímann
eða breytast eftir
markaðsaðstæðum.
Lánin greiðast hratt
upp. I okkar efna-
hagsumhverfi
mundi á sjö
árum höfuðstóll
þeirra lækka um
40% að raun-
virði. Hérlendis
eru öll húsnæðislán verð-
tryggð. Verðtryggð lán með
jöfnum afborgunum sem
margir lifeyrissjóðir hafa veitt
bera almennt fasta eða breyti-
lega vexti. Endurgreiðsla
þeirra er hægari en óverð-
tryggðu lánanna. Höfuðstóll 25
ára láns lækkar um 28% á sjö
árum. Jafngreiðslulán, annuitets-
lán, eru algengust hérlendis. Sam-
anlagðar greiðslur afborgana og
vaxta eru þá alltaf jafnháar. Þau
greiðast langhægast. Höfuðstóll 25
ára húsbréfaláns lækkar um 17%
á sjö árum, 40 ára láns aðeins um
7% á sama tíma og
höfuðstóll lána í fé-
lagslega kerfinu um
11%. Hraði endur-
greiðslu ræður veð-
mörkum ríki skyn-
semi í lánveitingum.
Miðað við sama ör-
yggi útlána geta veð-
mörk ólíkra lánsgerða
verið eins og hér seg-
ir: Óverðtryggt lán til
25 ára má veita fyrir
95% kaupverðs. Verð-
tryggð lán með jöfn-
um afborgunum með
20-25 ára lánstíma má
veita fyrir 85-90%
kaupverðs. 25 ára
húsbréf geta mest orð-
ið 80% af kaupverði.
40 ára húsbréf mega ekki fara upp
fyrir 75% af kaupverði. Félagsleg
lán til 40 ára með 2-3% vöxtum
geta mest orðið 80% af kaupverði.
Allt er þetta miðað við að fast-
eignaverð sé sæmilega stöðugt. Að
öðrum kosti lækka veðmörkin. Nú
eru uppi hugmyndir um að veita
félagsleg lán fyrir 90% kaupverðs
á almennum markaði. Annuitets-
lánin eru allt of áhættusöm fyrir
svo há veðmörk. Koma verða til
nýjar gerðir lána. Tímabært er að
horfa út fyrir landsteinana við val
nýrra lána.
Stefán Ingólfsson
„Frá sjónarhóli lánveitenda skipt-
ir miklu máli hversu hratt lán end-
urgreiðast. Veðmörk geta verið
há þegar endurgreiðsla er hröð en
lægri að öðrum kosti. Erlendis eru
veitt óverðtryggð húsnæðislán,
oftast til 25 ára.“
Kjallarinn
Stefán Ingólfsson
verkfræöingur
Með og
á móti
Gengishækkun
Víglundur Þor-
stcinsson fram-
kvæmdastjóri.
Skaðar útflutn-
ingsgreinar
„íslenskir útflutningsvegir
hafa undanfarna 12 mánuði þurft
að búa við tvívirka hækkun á
gengi íslensku krónunnar. Ann-
ars vegar er um að ræða alþjóð-
lega hækkun sem leiðir af því að
íslenska krón
an hefur hækk-
að með hækk-
andi dollar
gagnvart Evr-
ópumyntum.
Hins vegar hef-
ur komið til
sérstök hækk-
un krónunnar
til viðbótar við
þá fyrrnefndu
sem Seðlabanki
íslands hefur stuðlað að og beitt
sér fyrir með því að halda uppi
háum vöxtum á óverðtryggðum
ríkispappírum. Samanlagt er
þessi gengishækkun að verða upp
undir 15% þar sem mest lætur.
Nú er alveg ljóst aö útflutn-
ingsgreinarnar þurfa aö þola hin-
ar alþjóðlegu sveiflur og við því
er ekkert að segja. Menn geta
kannski rætt heildargengisstefhu
þjóðarinnar til langtíma, hvaða
ráðstafanir séu skynsamlegar og
hverjar ekki. Þaö er þó fullkom-
lega ljóst að útflutningsgreinarn-
ar geta hvorki þolað né staðið
undir sérstakri hækkun Seðla-
bankans ofan á aðra. Auk þess
gerir þessi gengishækkun ekkert
annað en að auka á viðskipta-
halla og þar með hættuna á óstöð-
ugleika til lengri tima litið. Ég tel
því að þessi hækkun krónunnar
eigi að ganga til baka.“
Heldur stöðug-
leikanum
Gengi krónunnar hefur styrkst
frá áramótum um 2,27%. Sú
breyting sem átt hefur sér stað á
gengi krónunnar á þessu ári er
sáralítil miðað við breytingar á
gengi ýmissa gjaldmiðla á fjár-
magnsmörkuð-
um og má
nefna að
Bandaríkjadal-
ur hefur
styrkst um
20,5% gagnvart
þýsku marki.
Gengi íslensku ________
krónunnar Yngvi Örn Kristins-
ákvarðast nú á son hagfræðingur.
markaði og
meginástæða þess að krónan hef-
ur styrkst að undanfórnu er hag-
stæð framvinda efnahagsmála,
aukin tiltrú á íslenskt efnahags-
líf, stöðugleiki og aðhaldssöm
peningamálastjórn sem miðar að
því að viðhalda stöðugleikanum.
Það hefur verið mat Seðlabank-
ans að I þeirri uppsveiflu sem nú
einkennir íslenskt efnahagslíf sé
nauðsynlegt að fylgja aðhalds-
samri stefnu í peningamálum í
þvi skyni að koma í veg fyrir of-
þenslu og verðbólgu. Styrking
krónunnar, þótt lítil sé, dregur úr
þensluhættu og stuðlar jafnframt
að lægri verðbólgu á komandi
misserum.
Þeir búhnykkir sem hagkerfið
hefur fengið hafa og munu leiða
til þess að framleiðslugeta út-
flutningsvega vex og þar með að
jafnvægisraungengi krónunnar
hækkar. Raungengið getur lagað
sig að nýju jafnvægisraungengi
með tvennum hætti: Annars veg-
ar með launaverðbólgu og al-
mennri verðbólgu í kjölfar henn-
ar eða með því að gengi krónunn-
ar hækkar. Sú stefna sem Seðla-
bankinn fylgir nú í vaxtamálum
stuðlar að því að seinni leiðin
verði farin. Slíkt er æskilegt í
ljósi þess meginmarkmiðs sem
bankinn og stjómvöld hafa í pen-
ingamálum sem er stefna stöðugs
verðlags. -kbb