Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Qupperneq 22
34 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 Messur Árbæjarkirkja: Guösþjónusta kl. 11. Sönghópurinn Smávinir syngur í guðsþjónustunni. Prestamir. Áskirkja: Vegna sumarleyfa starfsfólks Áskirkju er bent á guðsþjónustu í Laugames- kirkju. Breiðholtskirkja: Engin guðs- þjónusta er í kirkjunni vegna sumarleyfa starfsfólks kirkj- unnar. Fólki er bent á helgi- hald og þjónustu í öðram kirkj- um í prófastdæminu. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Kirkjan verð- ur lokuð í ágústmánuði vegna sumarleyfa starfsfólks. Fólki er bent á helgihald í öðrum kirkj- um i Kópavogi. Dómkirkjan: Laugardagur: Menningarkvöld kl. 22.30 í Dómkirkjunni. Sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Jakob Á. Hjálm- arsson. Elliheimilið Grund: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Sr. Er- lendur Sigmundsson prédik- ar. Sr. Stefán Lárusson þjón- ar fyrir altari. Félag fyrrver- andi sóknarpresta. Fella- og Hólakirkja: Helgi- stund kl. 20.30 í umsjá Ragnars Schram. Prestamir. Grafarvogskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Sigurður Amarson. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Hall- dór S. Gröndal. Grindavíkurkirkja: Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Kór Grindavíkurkirkju syng- ur. Sóknarprestur. Hafnarfjarðarkirkja, Guðs- þjónusta kl. 11.00. Allur kórinn syngur í fyrsta sinn eftir sum- arfrí. Sr. Þórhallur Heimisson. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Kvennakórinn Vox Feminae syngur. Sr. Karl Sigurbjöms- son. Tónleikar kl. 20.30. James Parsons, organisti frá Oundle, Englandi. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Ferming. Fermd verður Amdís Sif Birgisdóttir, Miklubraut 76. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Hjallakirkja: Messa kl. 11. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson þjónar. Prestamir. Hveragerðiskirkja, Guðsþjón- usta kl. 11.00. Kirkjuhvammskirkja, V- Hún.: Aftanstund kl. 18.00. Al- mennur söngur, hugvekja, bæn og lofgjörð. Sr. Kristján Bjöms- son. Kópavogskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Ægir Fr. Sigurgeirs- son. Kotstrandarkirkja, Guðsþjón- usta kl. 14.00. Landspftalinn: Messa kl. 10. Ingileif Malmberg. Langholtskirkja, Kirkja Guð- brands biskups: Kvöldbænir kl. 20.30. Umsjón Svala Sigríð- ur Thomsen djákni. Laugarneskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Félagar úr Kór Laugameskirkju syngja. Jón Dalbú Hróbjartsson. Lágafellskirkja, Guðsþjón- usta kl. 11.00. Sr. Jón Þorsteins- son. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja: Vegna sumar- leyfa starfsfólks falla sunnu- dagsguðsþjónustur niður í ágústmánuði. Bænastundir era í kirkjunni alla miðvikudaga kl. 18. Sóknarprestur. Seltjarnameskirkja: Messa kl. 11. Prestur sr. Hildur Sig- urðardóttir. Ferming kl. 14. Fermdur verður Björgvin Th. Björgvinsson, Kaplaskjólsvegi 93. Prestur sr. Hildur Sigurðar- dóttir. Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmars- son. Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Afmæli Guðmundur Sophusson Guðmundur Sophusson, sýslu- maður í Hafnarfirði, Háholti 1, Garðabæ, er fimmtugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk kennara- prófi frá KÍ 1969, stúdentsprófi þaö- an 1970, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1975 og stundaði framhaldsnám í eignarrétti við Kaupmannahafnar- háskóla 1975-76 og öðlaðist hdl.-rétt- indi 1979. Guðmundur var fulltrúi og aðal- fulltrúi hjá bæjarfógetaembættinu i Hafnarfirði, Garðabæ og á Seltjam- amesi og sýslumanninum í Kjósar- sýslu og var skipaður sýslumaður 1992. Guðmundur sat i stjóm Vöku, í stjóm sjálfstæðisfélagsins í Garða- bæ, hefur sinnt nefndarstörfum fyr- ir bæjarstjórn Garðabæjar og setið í stjóm Golfklúbbs Garðabæjar, auk þess sem hann starfaði lengi með RT á íslandi og hefur setið í stjóm Sýslumannafélags íslands. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 1970 Mar- gréti Elínu Guðmundsdóttur, f. 15.6. 1949, kennara í Garðabæ. Hún er dóttir Guðmundar Jasonarsonar rafvirkjameistara í Reykjavík, og Bjameyjar Ólafsdóttur húsmóðm:. Böm Guðmundar og Margrétar era Áslaug Auður, f. 28.3. 1972, laga- nemi; Kristín Hrönn, f. 28.7. 1976, stúdent; Páll Amar, f. 17.6. 1986. Systkini Guðmundar: Friðrik, f. 18.10.1943, fjár- málaráðherra, búsettur í Reykjavík; Maria, f. 25.4. 1950, kennari i Reykja- vík; Kristín Auður, f. 22.3. 1952, hjúkranar- fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar era Sophus Auðunn Guð- mundsson, f. 6.4. 1918, fyrrv. skrifstofustjóri í Reykjavík, og k.h., Ás- laug Maria Friðriksdótt- ir, f. 13.7. 1921, fyrrv. skólastjóri. Ætt Faöir Sophusar er Guðmundur, b. á Auðunarstöðum í Víðidal, Jó- hannesson, b. á Auðunarstöðum, Guðmundssonar. Móðir Jóhannesar var Dýrunn Þórarinsdóttir, systir Þuriðar, langömmu Halldórs E. Sig- urðssonar, fv. ráðherra. Móðir Guð- mundar var Ingibjörg, systir Bjöms í Grímstungu, afa Bjöms Pálssonar, fv. alþingismanns á Löngumýri, og langafa Páls Péturssonar félags- málaráðherra. Móðir Sophusar var Kristín Gunnarsdóttir, b. i Valdarási í Viði- dal Kristóferssonar. Móðir Kristín- ar var Kristín Guðmundsdóttir, b. á Neðri-Fitjum Guðmundssonar. Móð- ir Guðmundar var Unnur Jónsdótt- ir. Móðir Unnar var Sigurlaug Jó- elsdóttir, systir Jóels, langafa Sig- urðar, afa Salome Þorkelsdóttur, fyrrv. alþingisforseta. Jó- el var einnig langafi Gunnlaugs, afa Guð- mundar Árna Stefánsson- ar alþm. Áslaug er dóttir Friðriks, kennara í Hafnarfirði Klemenssonar, b. á Vatns- leysu í Skagafirði Frið- rikssonar, b. á Ljótshól- um i Svínadal Bjömsson- ar, b. í Hvammi í Langadal Magnússonar, b. á Breiðavaði, bróður Sigríðar, langömmu Her- manns Jónassonar for- sætisráðherra, foður Steingríms, seðlabankastjóra. Móðir Friðriks var Guðrún Kráksdóttir, b. á Stafni í Svartárdal, bróður Páls, föður Sveins læknis. Móðir Friðriks var Áslaug Ásgrímsdóttir, b. í Hofs- staðaseli Ámasonar, prests á Tjöm, Snorrasonar. Móðir Áslaugar var María kenn- ari, systir Hallgríms skólastjóra og Stefáns, fóður Ólafs búnaðarráðu- nautar. María var dóttir Jóns, b. á Krossárbakka í Strandasýslu Jóns- sonar, og Jensínu ljósmóður Páls- dóttur, b. í Þrúðardal Einarssonar. Móðir Jensínu var Ingveldur Magn- úsdóttir Hrútfjörð, fræðimanns og b. i Steinadal Magnússonar, bróður Guðbjargar, ömmu Stefáns frá Hvítadal og Guðbjargar, ömmu Nínu Bjarkar Ámadóttur rithöfund- ar. Guðmundur Sophusson. Gunnar Eðvaldsson Gunnar Eðvaldsson, trésmiðameistari, Bakka- hlíð 29, Akureyri, verður sextugur á morgun, laug- ardag. Starfsferill Gunnar fæddist á Siglufirði, ólst þar upp og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Hann sfimdaði ým- is störf til sjós og lands í nokkur ár en haustið 1958 flutti hann til Akureyrar. Gunnar hóf nám í skipasmíði hjá Slippstöðinni á Akureyri og lauk sveinsprófi í þeirri grein árið 1962. Gunnar lauk sveinsprófi í húsa- smíði 1970 og öðlaðist meistararétt- indi í þeirri grein 1973. Gunnar hef- ur verið trésmíðameistari hjá Akur- eyrarbæ frá 1962, þá lengst af verkstjóri tré- smiða hjá viðhaldsdeild húseigna Akm'eyrarbæj- ar. Fjölskylda Gunnar kvæntist 7.6. 1959 Ingigerði Guð- mundsdóttur, f. 29.1. 1938 á Húsavík, húsmóður og skrifstofumanni. Hún er dóttir Guðmundar Aðal- steinssonar f. 31.5.1910, d. 8.1. 1988., og Unnar Sig- urðardóttur f. 29.9. 1912. Böm Gunnars og Ingigerðar era Sigmrður, f. 22.3. 1960, smiður á Ak- ureyri, kvæntur Elínu Önnu Guð- mundsdóttur, f. 13.8. 1965, og eiga þau tvö böm, Unni, f. 13.7. 1986, og Bjarka, f. 6.6. 1992; Lára, f. 31.12. 1967, bankastarfsmaður á Akureyri, gift Ágústi Jóni Aðalgeirssyni, f. 17.5. 1967; Axel, f. 4.4. 1971, prent- smíðanemi í Reykjavík, sambýlis- kona hans er Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, f. 24.3. 1973; Birgir, f. 27.9. 1975, háskólanemi á Akureyri. Systkini Gunnars eru Helga, f. 1931, búsett á Ólafsfirði; Rósa, f. 1934, í Hafnarfirði: Kári, f. 1939, á Akureyri; Ari, f. 1943, á Ólafsfirði; Kristbjörg, f. 1948, í Reykjavik; Sverrir, f. 1952, í Hafnarfirði. Foreldrar Gunnars vora Eðvald Eiríksson, f. 7.2.1908, d. 26.4.1977 og k.h. Lára Gunnarsdóttir, f. 14.9. 1909, d. 2.1. 1996. Þau vora búsett á Siglufirði. Á afmælisdaginn dvelur Gunnar ásamt fjölskyldu sinni í sumarbú- staö STAK að Efri-Reykjum í Bisk- upstungum. Gunnar Eövaldsson. Karl Jóhann Karlesson Karl Jóhann Karlesson, húsa- smiður og sjómaður, Heiðarlundi 1 G, Akureyri, er fimmtugur í dag. Starfsferill Karl fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar, stundaði nám við Iðnskólann á Ak- ureyri, lærði húsasmíði og lauk sveinsprófi í þeirri grein. Karl starfaði við húsasmíðar á Akureyri um árabil en hefur verið háseti á togaranum Sléttbak á Akur- eyri sl. átta ár. Fjölskylda Karl kvæntist 22.8. 1968 Margréti Elísabetu Svavarsdóttur, f. 22.11. 1944, sjúkraliða. Hún er dóttir Svav- ars Péturssonar, bónda á Lauga- bökkum í Skagafirði, sem er látinn, og k.h., Sigriðar Helga- dóttur húsfreyju sem nú er búsett hjá Karli og El- ísabetu. Böm Karls og Elísabet- ar eru Hrafnhildur Elín, f. 4.10. 1967, sagnfræðing- ur á Akureyri, en maður hennar er Daníel Snorra- son, yfirmaður rannsókn- arlögreglunnar á Akur- eyri; Katrín Elfa, f. 11.2. 1969, húsmóðir á Akur- eyri, en maður hennar er Sveinn Heiðar Sveinsson sjómaður og eiga þau soninn Karl Jóhann Sveinsson, f. 11.6. 1996; Álf- heiður, f. 25.9. 1972, nemi í Dan- mörku en maður hennar er Ingólfur Ásgeirsson smiður. Systkini Karls: Lilja Margrét, f. 29.8. 1943, húsmóðir í Hafnarfirði; Hreinn, f. 12.4. 1945, starfsmaður Vegagerðar ríkisins á Akureyri;Æv- ar, f. 25.7.1946, húsasmið- ur og sjómaður í Vest- mannaeyjum; Tryggvi, f. 31.12. 1949, bankaútibús- sfjóri á Fáskrúðsfirði; Jónas Vignir, f. 13.8.1951, verkfræðingur á Akur- eyri; Frímann, f. 21.4. 1954, starfsmaður við Mjólkursamlag KEA. Foreldrar Karls vora Karles Tryggvason, f. 15.10. 1919, d. 13.1. 1991, mjólkur- fræöingur á Akureyri, og k.h., Lilja Jónasdóttir, f. 22.9. 1917, d. 28.1. 1993, húsmóðir. Karl og Elísabet eru að heiman. Karl Jóhann Karlesson. Til hamingju með aímælið 15. ágúst 95 ára Ágúst Sigurjónsson, Sauðafelli, Dalabyggð. 85 ára Þórunn Egilsdóttir, Úthlíð 10, Reykjavík. Halldór Magnússon, Hringbraut 50, Reykjavík. 80 ára Laufey Valgeirsdóttir, Skólastíg 14 A, Stykkishólmi, verður áttræð nk. þriðjudag. Hún tekur á móti gestmn í félagsheimilinu Skildi, sunnudaginn 17.8., kl 15-19. 70 ára Lilja Kristinsdóttir, Austurströnd 8, Seltjarnamesi. Pálmi Ólafur Ingvarsson, Grænuhlíð 4, Reykjavík. Vilmundur Reimarsson, Hreggnasa, Bolungarvík. Þórunn Jóhannsdóttir, Þrastahrauni 1, Hafiiarfirði. Guðrún Guðjónsdóttir, Seljalandi 3, Reykjavik. 60 ára Hermann Sigurðsson, Tjamarbraut 5, Hafnarfirði. Marsibil Þórðardóttir, Hólavegi 9, Sauðárkróki. 50 ára Sigríður A. Þorgrímsdóttir, Báragötu 7, Reykjavík. Stefán Ólafsson, Silfúrbraut 13, Höfii í Homafirði. Friðgeir Jóhannesson, Kleppsvegi 126, Reykjavík. Jón J. Benediktsson, Sælingsdalstungu, Dalabyggð. 40 ára Hafsteinn Guðmundsson, Sogavegi 220, Reykjavík. Haukur Friðþjófsson, Nönnugötu 14, Reykjavík. Ásta P. Sigurbjömsdóttir, Fjósakambi 6 B, Vallahreppi. Valsteinn Stefánsson, Trönuhjalla 23, Kópavogi. Hannes Amar Svavarsson, Lyngbergi 2, Þorlákshöfn. Eygló Jónsdóttir, Hringbraut 51, Hafharfirði. Hörður Magnússon, Hlaðhömrum 20, Reykjavik. Tómas Walter Maríusson, Skipholti 16, Reykjavík. Kristbjörg Kristmundsdóttir, VaUanesi, Vallahreppi. Jóhann Ingvar Harðarson, Völvufelli 48, Reykjavík. Ágúst Þór Sigmarsson, Selnesi 38, Breiðdalshreppi. Leiðrétting í afmælisgrein um Guðrúnu Ingi- björgu Jónsdóttur, 11.8. sl. féll niður nafn á seinni manni hennar. Hann var Bárður Jakobsson, f. 29.3. 1913, d. 21.6. 1984, hæstaréttar- lögmaður. Hann var sonur Jakobs Elíasar Bárðarsonar, formanns og útvegsmanns í Bolungarvík, og Dórótheu Helgu Dyvikku Jónasdótt- ur húsmóður. Viðkomendur era beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.