Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Side 24
36
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
Vælu-
kjóar
„Eg held að dómarinn hafi haft
afrit af lista yflr gulu spjöldin hjá
okkur því hann spjaldaði alla
sem áttu á hættu að fara í leik-
bann. Ég lít á þetta sem hefndar-
aðgerð eftir bikarleikinn. Málið
er að ég og Gunnar Oddsson
erum ekki alltaf í húsakynnum
KSÍ að væla.“
Sigurður Björgvinsson, þjálfari
ÍBK, í DV, um dómgæslu í leik
gegn Leiftri.
Lafði
Díana
ósmekk-
leg?
„Hann er lítill, sköllóttur, feit-
ur og ljótur."
Hin 11 ára Emma Redford um
Dodi Al Fayed, elskhuga Díönu
prinsessu.
Ummæli
Þjóðremba
.Landkynningarárátta Islend-
inga getur orðið hræðilega hvim-
leið. Vissulega er landið hreint
og ómengað. En það er einnig
dýrasta land í Evrópu. Verðlagið
getur fælt flesta menn frá.“
James Proctor, útvarpsmaður á
BBC, i Morgunblaðinu.
Latasta dýr í heimi.
Silalegasta
landdýrið
Þrítæða letidýrið, sem liflr í
hitabelti Ameríku, fer með 1,83
til 2,44 metra meðalhraða á mín-
útu á jörðu niðri en uppi í trjám
getur dýrið hert ferðina upp í
4,57 metra á mínútu.
Stærsta
bókasafn
Stærsta bókasafn i heimi er
bókasafn bandaríska þingsins.
Það var stofnað árið 1800. Þar
eru skráðir titlar 88 milljónir, þ.
á m. 26 milljón bækur og bæk-
lingar.
Hillulengd er samtals 896 km.
Blessuð veröldin
Stærsta
eplabaka
Stærsta eplabaka sem um get-
ur var hökuð af Glynn Christian
á 12x7 metra stóru fati á Hewitts
Farm í Chelsfield í Kent á
Englandi í ágúst árið 1982. Rúm-
lega sex hundruð eplabitar fóru í
kökuna sem vó 13,66 tonn. Sir
John Woodward varaaðmíráll
skar kökuna.
Týndist í Gvatemala:
Hef gaman af
„Það sem ég var hræddastur við
fyrstu nóttina sem ég var týndur var
dýralifið í skógunum. Þess vegna
einbeitti ég mér að því að láta lítið
fara fyrir mér. Á mig leituðu líka
alls kyns praktískar hugsanir eins
og hvenær líklegt væri að það upp-
götvaðist að ég væri týndur og hve-
nær yrði farið að leita að mér,“ seg-
ir Einar Ágústsson sem nýlega villt-
ist i frumskógum Gvatemala þar
sem hann hafðist við í þrjá daga,
matarlaus og vatnslítill.
Einar segist hafa haldið ró sinni
allan tímann. „Við þessar aðstæður
veltir maður fyrir sér lífshlaupinu
því við þessar aðstæður er dauðinn
nær en í daglega lífinu. Ég fór að
velta því fyrir mér hvort ég vildi
hafa gert eitthvað öðruvísi eða
hvort ég ætti eitthvað ógert miðað
við aldur minn. Ég svaraði öllum
þessum vangaveltum fyrstu nóttina
og eftir það var ég bara rólegur og
hugsaði bara að ef dauðinn kæmi
þá kæmi hann bara.“
Einar sem nú er kominn heim til
íslands til að jafna sig hefur fullan
hug á að fara aftur til Gvatemala
þar sem hann dvaldi við spænsku-
nám. „Mér líkaði mjög vel í
Gvatemala og var í mjög góðum
skóla. Ég fór til Kostaríka og
Venesúela áður en ég fór þangað og
ég get sagt að
Gvatemala er
mjög þægilegiu-
staður til að læra
spænsku. Ég
mun fara þangað
aftur enda var ég
bara hálfnaður
með ferðina
mína.“
Einar er út-
skrifaður úr
raunvísindadeild
HÍ og því er for-
vitnilegt að vita
af hverju raun-
vísindamaðurinn
fór að læra
spænsku. „Ég hef
hug á að vinna
erlendis. Ég hef
líka bara áhuga á
að læra tungu-
mál og ætla líka
að læra frönsku
því þetta hefur
sínar hagkvæmu
hliðar."
Einar er víð-
Einar Ágústsson.
Maður dagsins
förull maður og hefur ferðast til
alls þrjátíu landa. Það liggur því í
augum uppi að ferðalög eru meðal
stærstu áhugamála Einars. „Ég hef
mjög mikinn áhuga á þvi að ferð-
ast. Mér var
þvælt í kringum
landið með for-
eldrum mínum
og yngri bræðr-
um þegar ég var
yngri en á síð-
ustu tíu árum
hef ég mest ferð-
ast til útlanda.
Annað áhuga-
mál mitt er að
vera með vinum
mínum. Það
skemmtilegasta
sem ég geri er að
vera í kringum
fólk. Ég var mjög
mikið i íþróttum
og fylgist þokka-
lega vel með fót-
boltanum. Hin
síðari ár hef ég
alltaf meira og
meira gaman af
tónlist. Þar er ég
þó bara algjör
neytandi því ég
spila ekki á neitt
hljóöfæri."
Einar er tuttugu og fjögurra ára
gamall og foreldrar hans eru Ágúst
Einarsson og Kolbrún S. Ingólfs-
dóttir. -glm
Myndgátan
Þróttur leikur á heimavelli
kvöld.
Fyrsta deild
karla
í kvöld eru fjórir leikir í fyrstu
deild karla. Þar eigast við lið KA
og FH á Akureyrarvelli kl. 19,
Fylkir og Reynir, Sandgerði, á
Fylkisvelli kl. 19, lið Dalvíkur og
Víkings á Dalvíkurvelli kl. 18.30
og Þróttur og Breiðablik á Val-
bjarnarvelli kl. 19.
Iþróttir
Þriðja deild
karla
I þriðju deild karla eru tveir
leikir. Þar leika Hvöt og Tinda-
stóll á Blönduósi kl. 19 og Magni
og KS á Grenivíkurvelli kl. 19.
í fyrstu deild kvenna eru þrír
leikir í kvöld. Þar leika FH og
Fjölnir á Kaplakrikavelli kl. 19,
KVA og Höttur á Reyðarfjarðar-
velli kl. 19 og Afturelding og Sel-
foss á Varmárvelli kl. 19.
Bridge
Vanderbilt útsláttarkeppni sveita
var háð nýverið í Bandaríkjunum
og í keppni i kvennaflokki kom
þetta spil fyrir í undanúrslitaleikn-
um. NS sögðu sig upp í metnaðar-
full fjögur hjörtu en þurftu hjálp frá
andstöðunni til að standa spilið.
Sagnir gengu þannig, austur gjafari
og AV á hættu:
4 Á5
4» 107
♦ G63
* ÁK9842
4 104
44 94
4 108652
* DG105
N
V A
S
4 KD873
«4 KD3
♦ ÁD4
4 73
4 G962
44 ÁG8652
4 K4
4 6
Austur Suður
14 2 44
pass 3 44
p/h
Vestur Norður
pass 3 4
paSS 4 44
Skera úr um mál
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Vestur hóf vörnina á þvi að spila
út spaðatíunni. Sagnhafi setti lítið
spil í blindum í þeirri von að tían
væri ekki einspil. Austur drap á
drottninguna og skipti yfir i lítið
hjarta til að reyna að koma í veg
fyrir trompanir í blindum. Sagnhafi
setti lítið spil og vestur setti níuna
(ónákvæmni). Tían í blindum átti
slaginn, næstu slagir voru spaðaás,
laufás og kóngur. Sagnhafi henti
spaða heima í laufkóng og spilaði
síðan laufi úr blindum. Austur
trompaði á drottningu, sagnhafi yf-
irtrompaði á ás, trompaði spaða
með sjöunni og spilaði tigli. Austur
rauk upp með ás og_sagnhafi gat
trompað spaðaáfrámhaldið með ör-
yggi á hjartafimmuna og fengið
þannig 10 slagi. Ef vestur hefði ekki
sett hjartaníuna hefði sagnhafi
þurft að hitta á að trompa spaða
með hjartagosa til að standa spilið.
Lesendur sjá að sjálfsögðu að austur
hefði hnekkt 4 hjörtum ef hann
hefði spilað háspili í trompi í stað
hjartaþristsins í öðrum slag (þó sú
spilamennska sé engan vegin sjálf-
sögð).
ísak Örn Sigurðsson
i
i
i
i
i
i