Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Síða 9
MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 1997
9
DV
Utlönd
Tilboðsdagar
Husgogn .
Snyrtibor6/Skrifbor6.
97x46x74 cm.
Verð áður kr. 29.800,- Nú 19.900.-
&
Margar
gerðir,
meiriháttar
gott verð
Mikiö særöur kambódískur hermaöur úr rööum Ranariddhs prins nýtur hér aöstoöar taflenskra hermanna viö aö
komast yfir landamærin en yfir 30 þúsund Kambódíumenn hafa flúiö til Taílands. Hun Sen forsætisráðherra náöi f
gær völdum yfir borginni O’Smack sem var síöasta vfgi hermanna sem styöja Ranariddh prins. Sfmamynd Reuter
Fræöslumiöstöö
Reykjavíkur
Nemendur grunnskóla Reykjavíkur mæta í skólann mánudaginn
1. september sem hér segir:
10. bekkur
9. bekkur
8. bekkur
7. bekkur
6. bekkur
5. bekkur
4. bekkur
3. bekkur
2. bekkur
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
nem. f.
1982)
1983)
1984)
1985)
1986)
1987)
1988)
1989)
1990
kl. 9.00
kl. 10.00
kl. 11.00
kl. 13.00
kl. 13.30
kl. 14.00
kl. 14.30
kl. 15.00
kl. 15.30
Nemendur 1. bekkjar, börn fædd 1991, hefja skólagöngu sam-
kvæmt stundatöflu miðvikudaginn 3. september en veröa áður
boðaðir til viötals með foreldrum, hver í sinn skóla.
Zambía:
Fyrrum forseta
sýnt banatilræði
Fjarlægöi eggja-
leiðara í stað
botnlanga
Skurðlæknir á Queen Mary
sjúkrahúsinu í Hong Kong fjar-
lægði eggjaleiðara i ungri stúlku í
stað botnlanga hennar.
„Okkur verður öllum á mistök,"
sagði yfirmaður skurðdeildar
sjúkrahússins. Ekki er vitað hvort
foreldrar stúlkunnar ætla í mál
vegna mistakanna.
Fyrr í mánuðinum lést fórnar-
lamb umferðarslyss á þessu sama
sjúkrahúsi eftir að hafa verið gefið
blóð úr röngum blóðflokki. Einnig
er vitað um annað tilfelli á þessu
ári þar sem eggjaleiðari var fjar-
lægður í stað botnlanga. Reuter
Fyrrum forseti Zambíu, Kenneth
Kaunda, sagði í gær að eftirmaður
hans hefði reynt að láta ráða hann
af dögum.
Kaunda, sem gegndi embætti for-
seta Zambíu frá 1964-1991, særðist
er óeiröalögregla skaut á hann er
hann yfirgaf fjöldasamkomu í borg-
inni Kabwe. Farþegi i bíl Kaunda
særðist alvarlega er hann fékk skot
í höfuðið.
„Þetta var morðtilraun. Það leik-
ur enginn vafi á því í mínum huga,“
sagði hann í símaviðtali eftir að
hann kom heim af spítala í gær.
„Chiluba forseti er að reyna að
losna við mig og fleiri. Hann gerir
sér ljóst að við njótum mikils stuðn-
ings eins og hefur sýnt sig á fjölda-
fundum okkar. Fundimir hafa allir
verið friðsamlegir þar til lögreglan
kemur á vettvang," sagði Kaunda.
Lögreglan notaði táragas til að
leysa upp fundinn auk þess sem hún
skaut úr byssum sínum á mann-
fjöldann. Kaunda segir að skipanir
þess efhis að nota byssur séu komn-
ar beint frá forsetanum en þetta er í
Æ
Meiriháttar húsgögn
fyrir heimilið þitt
^KRISTALL
Faxafeni & Kringlunni • Sími568 4020
Kenneth Kaunda.
fyrsta skipti í langan tíma sem skot-
vopn eru notuð í þessum tilgangi.
Hann sagði aö þrátt fyrir þetta gæf-
ist hann ekki upp heldur héldi hann
áfram að berjast fyrir auknum rétti
handa íbúum Zambiu. Reuter
Náttbor6 - Hliðarborð.
48x40x70 cm.
Verð ábur kr. 19.900.- Nú 13.900.-
Kommóða 5 skúffur.
57x40x98 cm.
Verb ábur kr. 39.960,- Nú 26.900.-
Sjónvarpsstarfsmenn Bosniu-
Serba í Banja Luka rufu í gær ör-
bylgjusamband við sjónvarpsstúdío
harðlínumanna í þorpinu Pale en
stúdíóið nota þeir til að senda út
sinn eigin fréttatíma. Einnig rufu
þeir samband við útvarpsstöð
Bosníu-Serba sem þeir nota í sama
tilgangi.
Biljana Plavsic, forseti Bosníu-
Serba, fagnaði aðgerðum þessum á
fjöldafundi í Banja Luka sem einnig
var útvarpað. Hún fór fögrum orð-
um um aðgerðir sjónvarpsstarfs-
mannanna og sagði þær hjálpa tii
við að stöðva stríðsglæpamanninn
Radovan Karadzic og aðstoðarmann
hans, Momcilo Krajisnik. Sagði hún
eitt af síðustu vígum harðlínu-
manna þar með fallið en Plavsic hef-
ur síðustu vikur barist gegn harð-
línumönnum um yfirráð lögregl-
unnar í Bosníu og notið til þess að-
stoðar vestrænna ríkja.
„Heldur herra Krajisnik að
Serbar sé klikkaðir? Heldur hann
að 1,2 milljónir Serba þurfi að
hlusta á frumstæðar skoðanir
hans?“ sagði Plavsic og bætti því
við að næsta skref hennar væri að
funda með yfirmönnum í hemum.
Karadzic og hans menn hafa nú
aðsetur i þorpinu Pale sem er
nærri Sarajevó. Þeir senda enn út
sinn eigin fréttatíma þaðan og nást
sendingar þeirra í Pale og næsta
nágrenni.
Plavsic nýtur dyggrar aðstoðar
vestrænna ríkja þar sem hún virð-
ist ákveðin í að fylgja Dayton-frið-
arsamkomulaginu í hvítvetna.
Reuter
Rændi barni úr
örmum móður
Kona, klædd sem læknir,
rændi tveggja daga gömlu bami
úr örmum móður þess á sjúkra-
húsi í Lakewood í Bandaríkjun-
um á laugardaginn.
„Hún var mjög trúverðug og
hegðaði sér í alla staði eins og
læknir," sagði Diana Cage, tals-
maður St. Clare sjúkrahússins í
Lakewood.
Konan kynnti sig sem Hughes
kaptein í afgreiðslu sjúkrahúss-
ins og sagðist vera frá hersjúkra-
húsi í grenndinni. Hún sagðist
eiga að hitta hina nýbökuðu
móður, Melindu Cohen. Þegar
hún kom inn á fæðingardeildina
gekk hún beint að móðurinni og
spurði hvort hún ætti ekki að
taka bamið svo hún gæti hvílt
sig. Móðirin, sem hélt að konan
væri læknir, lét barnið í hendur
konunnar sem komst síðan óséð
með bamið út af sjúkrahúsinu.
Hjúkrunarkonur uppgötvuðu
stuldinn ekki fýrr en tæþum
tveimur klukkustundum síðar.
„Við vitum ekki hvemig kon-
an komst með bamið út af
sjúkrahúsinu án þess að nokkur
yrði þess var,“ sagði Diana Cage
og bætti því við að konan hefði
greinOega þekkt vel til aðstæðna
á sjúkrahúsinu. Reuter
Forseti Bosníu styrkir enn stööu sína:
Sjónvarpsútsending
harðlínumanna rofin