Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Blaðsíða 22
30
MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 1997
Sameiningarnámskeið
í hársnyrtiiðn
Ákveðiö hefur verið að lokadagur umsóknarfrests vegna
sameiningarnámskeiða verði 31. ágúst 1997. Þeir sem ekki verða
búnir að fara á námskeið fyrir þann tíma en eru búnir að senda inn
umsókn verður boðið að fara á námskeið veturinn 97 - 98.
Sameiningarnefnd í hársnyrtiiön
Ðlaðbera vantar á skrá í:
Reykjauík
Kópauogi
Garðabæ
Hafnarfirði
Uppiýsingar í síma
460 6100
4Dagur-®tmmn
-besti tími dagsins!
Athugið
Spartan School of Aeronautics
Spartán flugskólinn býöur nemendum
sínum til samfagnabar í Hótel Keflavík
5. september 1997 kl. 18.00.
Komið og rifjið upp gömul kynni eða kynnist nýju fólki.
Fulltrúi frá Spartan flugskólanum Mr. Stan Gardner
verður á staðnum.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda okkur fax
001-1-918-831-5287, E-mail: spartanaero@mail.webtek.com
eða í síma 001-1-918-836-6886
8820 East Pine Street Tulsa, Oklahoma 74115 USA
Heimsækið okkur á veraldarvefnum: www.spartanaero.com
Vinningshafar
Fréttir
Hvalfjarðargöng:
Ferðir Akraborg-
ar leggjast af
DV, Akranesi:
Þjóðveginum fyrir Hvalfjörð
verður haldið við eftir að göngin
verða tekin í notkun seint á árinu
1998 eða í byrjun árs 1999. Ríkið
hættir á hinn bóginn að styrkja
ferðir Akraborgar og munu þær
leggjast af.
Athyglisverðan kafla um þessar
fyrirhuguðu breytingar og fram-
tíðarsýn er að flnna í Svæðis-
skipulagi sveitarfélaganna sunnan
Skarðsheiðar 1992-2012, sem Sam-
vinnunefnd um það skipulag svo
og Skipulag ríkisins gáfu út á ár-
inu 1994. Þar segir orðrétt:
„Ekki verður framhjá því horft
að með tilkomu vegtengingar um
utanverðan Hvalfjörð munu ferðir
Akraborgar leggjast af og umferð-
arþunginn flytjast úr Hvalfírði og
yfir á svæðið umhverfis Akrafjall.
Sú aðstaða sem þegar er fyrir
hendi í Hvalfjarðarstrandarhreppi
og tengd er þjónustu við akandi
vegfarendur þarf því að aðlaga sig
breyttum aðstæðum. Búast má við
að umferð um Hvalfiörð verði eft-
ir breytinguna hægari en nú er og
tengist fremur ferðum fólks, sem
ekki er á hraðferð eða fólki, sem
beinlínis ætlar að hafa þar við-
dvöl. í því sambandi mætti leggja
áherslu á góð tjaldstæði og hrein-
lætisaðstöðu, bæta og merkja
göngu- og reiðleiðir, koma á fót
sérhæfðum úrvals matsölustöðum
og bjóða upp á skoðunarferðir af
ýmsu tagi um Hvalfiörð svo dæmi
séu nefnd.“
-DVÓ
Um 200 manns tóku þátt í skoðunarferð um staöinn og hlýddu á fróðlega frásögn Georgs Jóns Jónssonar, bónda á
Kjörseyri. DV-mynd Guöfinnur
Borðeyri:
Minnast 150 ára
verslunarafmælis
.1
I. verðlaun: Leðurblökukastalinn
Alma Björk Ragnarsdóttir nr. 6825
2. - 10. verðlaun
Nornin í drekakörfu
Sigurður Egill Harðarson nr. 8092
AntonValur Jónsson nr. 9095
Bjarki Þór Guðmundsson nr. 10992
Ragnar Daði nr. 6676
Haukur Ragnarsson nr. 2213
Ásta Ægisdóttir nr. 5311
Stefán Páll Þórðarson nr. 9069
Erlendur Hjartarson nr. 4713
Heba Katrín Sigþórsdóttir nr. 7998
Krakkaklúbbur DV og Lego þakka
öllum sem tóku þátt kaerlega fyrir
frábæra þátttöku.
Vinningarnir verða sendir
vinningshöfum í pósti næstu daga.
DV, Hólmavík:
Um síðustu helgi var þess minnst
að 150 ár eru liðin frá því að Borð-
eyri varð löggiltur verslunarstaður.
í veglegum húsakynnum grunnskól-
ans hafði fyrr í þessum mánuði ver-
ið sett upp yfirgripsmikil sögusýn-
ing þar sem gaf að líta muni og
minjar merkrar og allsérstæðrar
verslunarsögu. Myndir af frumherj-
unum, þær er varðveist hafa,
prýddu þar veggi og æviþátta þeirra
að nokkru getið.
Einnig mátti þar líta yfirlitssýn-
ingu á verkum Þorvalds Skúlasonar
listmálara sem var borinn og barn-
fæddur Borðeyringur.
í gönguferð um svæðið á laugar-
deginum, sem í tóku nær 200
manns, rakti Georg Jón Jónsson,
bóndi á Kjörseyri, sögu allra bygg-
inga sem þar nú eru sem og hinna
sem tímans tönn hefur eytt eða orð-
ið eldi að bráð. Atvinnu- og mann-
lífsþætti þessa staða gerði hann svo
góð skil á tveggja tima skoðunarferð
að undruðust þeir er ekki til þekktu
að þessi maður hefði verið önnum
kafinn bóndi alla tíð og auk þess
bætt við sig miklu starfi að félags-
málum bænda síðustu áratugina
eða svo.
Um kvöldið var slegið upp mikilli
grillveislu í sláturhúsinu þar sem
stemningin var eins og best verður
á kosið. Hátíðahöldunum lauk svo á
sunnudeginum 17. ágúst með guðs-
þjónustu í Prestbakkakirkju. Af-
mælisnefndina skipuðu sveitar-
sfiórn Bæjarhrepps og stjórn Kaup-
félags Hrútflrðinga. Við undirbún-
ing allan naut hún faglegrar færni
þjóðfræðinganna Rakelar Pálsdótt-
ur og Jóns Jónssonar. -GF
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar:
Stjórnstöðin mun
flytja í nýtt húsnæði
DV, Vesturlandi:
Á síöasta fundi sfiómar Hitaveitu
Akraness og Borgarfiarðar var
ákveðið að flytja stjórnstöð Hitaveit-
unnar frá Borgarbraut í Borgarnesi
að Sólbakka, fyrir ofan Borgames.
Er áætlað að veitan verði komin í
nýtt húsnæði í júlí á næsta ári.
Við þennan flutning verður tekið í
notkun nýtt sfiómkerfi HAB og bár-
ust 9 tilboð í það verk. Reyndist tilboð
Tæknivals hf. lægst, eða upp á 7,7
milljónir án vsk. Næstlægsta tilboð
var frá Vista ehf. upp á 8,7 milljónir
án vsk. Stjórn HAB samþykkti að
gengið yrði til samninga við Tækni-
val hf. á grundvelli tilboðs þess.
Áætlaður heildarkostnaður við
sfiórnkerfisbreytinguna er um 10
milljónir og var samþykkt að hefia
framkvæmdir á þessu ári í samræmi
við fiárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir
að ljúka verkinu á næsta ári. Sam-
þykktin var háð því að Borgarbyggð
féllist á að fresta flutningi stöðvar-
innar úr núverandi húsnæði að
Borgarbraut að Sólbakka fram i júlí
á næsta ári. Féllst bæjarsfiórn Borg-
arbyggðar á það. -DVÓ