Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 Útlönd Stuttar fréttir dv Hugmynd nýrrar ríkisstjórnar í Noregi: Smugu lokað með stækkun landhelgi Landsbergis ber af sér ásak- anir um njósnir DV, Ósló: Vytautas Landsbergis, þing- forseti í Litháen, hefur borið til baka ásakanir fjögurra gamalla KGB-njósnara að hann hafi njósnað í þágu Sovétríkjanna á sjötta áratugnum. KGB-mennim- ir segja að Landsbergis hafi sem ung- ur maður verið Sovét- ríkjunum þægur ljár í þúfu. í yfirlýs- ingu sem for- maður sérstakrar rannsóknar- nefndar þingsins sendi frá sér í fyrradag segir að ekki hafi kom- ið neitt í ljós sem bendi til sam- vinnu Landsbergis við KGB. Landsbergis, sem var á íslandi vegna setningar Alþingis i vik- unni, hefur áður sætt svipaðri gagnrýni. Landsbergis leiddi sjálfstæðisbaráttu Litháa fyrir sjö árum við fall Sovétríkjanna og varð eftir það forseti landsins. Landsbergis er nú enn á ný í framboði til forseta lýðveldisins. Kosið verður 1 desember og segja stuöningsmenn hans að þessum upplýsingum sé dreift nú til að sverta hann. KGB-njósnari hafi hann aldrei verið. -GK Lífvörður Díönu fluttur heim til Bretlands Trevor Rees-Jones, lífvörður- inn sem einn slapp lifandi úr bílslysinu í París þegar Díana prinsessa fórst, verður fluttur af sjúkrahúsinu í París í dag til leynilegs staðar á Bretlandi. Hann verður áfram undir eftir- liti lækna. Franska lögreglan og dómar- inn sem fer með rannsóknina á slysinu yfirheyrðu Rees-Jones í annað sinn í gær. AP fréttastofan haföi það eftir heimildarmanni innan lögregl- unnar að lífvöröurinn hefði munað aðeins meira í gær en viö fyrstu yfirheyrsluna. Hann gat gefið betri lýsingu á því sem gerðist skömmu áður en Mercedesbifreiðin yfirgaf Ritz- hótelið í París. í frétt frá Reuters-fréttastof- unni segir að Rees-Jones hafi ekki getað munað neitt frá slys- inu sjáifu. Lífvörðurinn ítrekaði að hann hefði ekki séð neitt at- hugavert við bílstjórann. Rann- sóknir á líki hans sýndu þó að hann hafi verið undir áhrifum bæði áfengis og lyfja. Vildi vita hvern- ig það væri að drepa mann Táningspiltur í Connecticut í Bandaríkjunum sagði lögregl- unni frá því að hann hefði myrt þrettán ára gamlan dreng til þess eins að komast að því hvernig það væri að drepa mann. Morðinginn, hinn átján ára gamli Todd Rizzo, var í gær ákæröur fyrir morðið. Hann lamdi hinn piltinn, Stanley Ed- wards, til bana. Rizzo hefur ekki komist áður í kast við lögin. Edwards var úti að hjóla á þriðjudagskvöld þegar Rizzo narraði hann inn í húsagarö til að leita að snákum, að sögn lög- reglunnar í bænum Waterbury. „Hann langaði til að drepa ein- hvern og sjá hvort hann kæmist upp með það,“ sagði lögreglu- þjónninn Michael Ricci. Morðvopniö er ekki enn fund- ið en það var einhvers konar hamar, að sögn lögreglunnar. Reuter Dv.Ósló: „Við verðum að leysa Smugumál- ið á einhvem hátt og tryggja vernd- un fiskistofnanna þar. Einn mögu- leiki er að færa út landhelgina og það hefur verið rætt í okkar hópi. Við vitum hins vegar að það er laga- legur vandi á útfærslu," segir Einar Steensnæs, varaformaður Kristilega þjóðarflokksins og talsmaður hans í sjávarútvegsmálum, í samtali við DV í morgun. Væntanlegir stjómarflokkar í Noregi íhuga að færa efnahagslög- sögu Noregs úr 200 mílum í 250 og loka þannig Smugunni margfrægu í Kanadísk stjórnvöld hafa kallað heim sendiherra sinn i ísrael í mót- mælaskyni við að tveir menn sem em í haldi lögreglu í Jórdaníu not- uðu fölsuð kanadísk vegabréf. ísra- elsk stjómvöld eru grunuð um að eiga aðild að árásinni sem gerð var á pólitískan leiðtoga Hamas-samtak- anna. Lloyd Axworthy, utanríkisráð- hema Kanada, sagði í gærkvöld að sendiherrann hefði veriö kallaður heim til skrafs og ráðagerða og að kanadísk stjórnvöld andmæltu þvi harðlega að fólsuð kanadísk skilríki væru notuð. „Við andmælum auðvitað harð- lega að menn nýti sér orðspor kanadiskra vegabréfa í þess háttar tilgangi," sagði Axworthy við frétta- menn áður en hann hélt til fyrir- fram ákveðins fundar við Madeleine Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Barentshafí. Hugmyndin er gömul og hefur aldrei fengið stuðning stjórnvalda fyrr en þá nú ef ný stjórn kemst á koppinn þann 16. þessa mánaðar. Kristilegir, Mið- flokkurinn og Vinstri flokkurinn munu mynda stjórnina. Viðræður um stjórnarmyndun fara nú fram fyrir luktum dyram á Oxenaasenhótelinu norðan Óslóar. Allt frá því að útfærsla landhelginn- ar var fyrst rædd hefur norski Mið- flokkurinn, systurflokkur íslenska Framsóknarflokksins, verið henni hlynntur en flokksmenn vildu ekk- ert um málið segja í morgun. Hjá kristilegum er hins vegar verið að Hassan krónprins af Jórdaníu var í sambandi við kanadíska utanríkis- ráöherrann í gær. íhuga þennan möguleika en ekki með vitund áhrifamanna í norskum sjávarútvegi. „Við höfum ekki verið í sam- bandi við væntanlega stjórnar- flokka og ekki beðið þá að færa út landhelgina. Þegar Smugudeilan var hvað heitust árin 1993 til 1994 höfðum við hugmyndir um svona lausn en fengum ekki stuðning stjórnvalda. Eftir það hefur útfærsl- an ekki verið nefnd og er raunar óþörf því það er enginn fiskur i Smugunni," sagði Jan Skauge hjá Norges Fiskarlag 1 samtali við DV í morgun. GK Jórdönsk stjómvöld segja að ver- ið sé að yfirheyra tvo menn sem voru handteknir í kjölfar árásarinn- ar á Hamas-leiðtogann Khaled Mes- hal fyrir viku. Hamas-liðar segja að árásin hafi verið misheppnuð morð- tilraun að undirlagi ísraelsku leyni- þjónustunnar Mossad. Tilræðis- mennirnir báru kanadísk vegabréf. David Kilgour, aðstoðamtanrikis- ráðherra Kanada, sagði í Ottawa í gær að gengið hefði verið úr skugga um að vegabréfin væru folsuð. Axworthy ítrekaði það einnig. Axworthy sagðist hafa sett sig í samband við ónafngreindan aðstoð- arutanríkisráðherra ísraels og lýst yfir áhyggjum kanadískra stjóm- valda af málinu. Axworthy sagðist einnig hafa gert Hassani, krónprinsi í Jórdaníu, þaö Ijóst að Kanadamenn ættu alls eng- an þátt í árásinni. Reuter 'Átök milli andstæöra fylkinga brutust út í hafnarborginni Karachi í Pakistan í gær. Prír féllu og tólf særöust. Hóp- arnir beittu þungum sjálfvirkum vopnum í bardögunum. Kveikt var í að minnsta kosti sex farartækjum, þar á meöal langferöabifreiöinni á þessari mynd. Litli snáöinn sá þann kostinn vænstan aö hlaupa í skjól. Símamynd Reuter ísraelskir tilræðismenn með falsaða kanadíska passa: Kanadíski sendiherr- ann kallaður heim Hætta á stríði N-Kórea hefur tjáð Allsherjar- þingi SÞ að stríð geti brotist út á Kóreuskaganum hvenær sem er. Mikil sperrna rikir vegna vopna- flutninga Bandaríkjanna til skagans. Hindra eftirlit írösk yflrvöld hindruðu í gær störf vopnaeftirlitsmanna SÞ. Talið er að það geti leitt til hertra refsiaðgeröa gegn írak. Jeltsín óþolinmóður Borís Jeltsín Rússlandsforseti gagnrýndi í morgun neðri deild þingsins. Gaf forsetinn í skyn að hann myndi leysa hana upp þar sem þolin- mæði hans væri á þrot- um. Forsetinn er orðinn þreyttur á andstöðu þingmanna við áætlunum hans um endurbætur. 12 létust í bílslysi Tólf Marokkómenn létust og 31 slasaðist er rúta sem þeir ferð- uðust í fór út af brú nálægt Aix- en-Provence í Frakklandi. Mannrán í Þýskalandi Berlínarlögreglan leitar nú tvitugs pilts, sonar veitingahúss- eiganda, sem rænt var fyrir 20 dögum. Mannræningjarnir krefj- ast 40 milljóna íslenskra króna í lausnargjald. Setur skilyrði Utanríkisráðherra Kongó er ekki andvigur rannsókn SÞ á meintum fjöldamorðum á flótta- mönnum frá Rúanda. Hann set- ur hins vegar skilyrði um hvar rannsóknin megi hefjast. Stjórnarkreppa á Ítalíu Forsætisráðherra Ítalíu, Romano Prodi, reynir nú að bjarga stjórn sinni eftir að kommúnistar neituðu að styðja fjár- lagafrumvarp stjómarinnar. Prodi hefur lýst því yfir að hann muni ekki leiða aðra stjóm missi þessi meirihluta. Slys vegna reykskýs Fimm námsmenn drukknuðu og fjögurra er saknað eftir árekstur mótorbáts og flutninga- skips á fljóti á Súmötm. Reyk- skýi vegna skógarelda er kennt um áreksturinn. Bjóða aðstoð Bandaríkin hafa á ný boðið Indlandi og Pakistan aðstoð við að leysa deilur sfnar. 40 manns hafa látið líflð í átökum f Kasmír f þessari viku. Fagna sameiningu Þjóðverjar fagna því í dag að sjö ár eru liðin frá sameiningu þýsku ríkjanna. Ekki fleiri kveðjur Karl Bretaprins baðst í gær undan fleiri samúðarkveðjum vegna fráfalls Díönu prinsessu. Talsmaður Karls greindi frá því í gær að Karli og sonum hans heföi borist yf- ir hálf milljón samúðarbréfa, korta og pakka. 50 manns starfa nú við að opna bréfin og svara þeim. Sjálfsmorðstilraun Ástralski stjómmálamaðurinn Nick Shemy reyndi i gær að fyr- irfara sér vegna ásakana um að hafa krafist rúmlega 2 milljóna íslenskra króna í ferðakostnað á meðan hann dvaldi hjá móður sinni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.