Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 Spurmngin Hvorir hafa betur, ÍBV eöa Keflavík, í bikarúrslita- leiknum á sunnudag? Ingi Gunnar Jóhannsson: Ég spái því að ÍBV vinni leikinn með fjór- um mörkum gegn einu. Marian Krajacic málari: Leikur- inn fer 2-1 fyrir ÍBV. Sigurbjörg Steingrímsdóttir: ÍBV vinnur leikinn. Ætli úrslitin verði ekki 2-1. Þór Gunnlaugsson MR-ingur: Úr- slitin verða 2-1, ÍBV í vil. Ríkarður Ragnarsson MR-ingur: ÍBV vinnur leikinn, 2-1. Margrét Indriðadóttir, nemi í HÍ: ÍBV verður meistari, það er engin spurning. Lesendur Aðbúnaöur útigangshrossa Haustin eru oft erfiðasti tíminn fyrir útiganginn. - Hross í höm á haustdegi. Bóndi að austan skrifar: Með haustinu leitar hugurinn til hrossanna sem flest eru i haga fram undir áramótin og sum allan ársins hring. Hvernig er aðbúnaður þeirra? Eiga þau einhvern mál- svara? - Dýraverndunarfélögum ber lögum samkvæmt að hafa eftirlit með aðbúnaði dýra og hafa geysi- mikið vald ef tfl aðgerða þarf að grípa. En hafa þau staðiö sig í eftir- liti og umhyggju fyrir málleysingj- unum? Víða má sjá hross í beitarrýrum högum og þröngum girðingarhólf- um. Haustin eru oft erfiðasti árstím- inn fyrir útiganginn. Tíð veðra- skipti; vindar, regn og frostnætur tíðar. Útigangsrhross eru venjulega ekki tekin inn fyrr en snjóa tekur og jarðbönn verða. Skiptir því miklu að hross hafi næga beit og skjól í girðingum. Hross þola vel þurrakulda en mjög illa blautviðri. Miklu skiptir þvi að hausthagarnir séu þurrir, skjólgóðir og með góðri beit. Og ekki má gleyma að hrossin hcifi að- gang að góðum vatnsbólum. Á þessu er því miður oft misbrestur. Sjái maðurinn ekki um þessar grunn- þarfir hrossanna er voðinn vís. - Þau geta ekki kvartað. Hestaeigendur verða að taka sér tak í þessum málum. - I fagblöðum hestamanna hefur sl. tvö ár verið auglýst ný tegund brynningarkera, sem eru vatnssparandi og þannig hönnuð að ekki frýs í þeim, og ávallt þurrt og þrifalegt í kringum þau. Vatnsveitur, sveitarfélög, dýra- vemdunarfélög og umhverfisnefnd- ir ættu að sameinast um átak til að koma þessum málum í viðunandí ástand. Ekki má gleyma aðbúnaði hrossa í gerðum og aðhöldum, sem hróflað er upp úr afgangstimbri, eða trön- um með tilheyrandi slysahættu. Slík gerði má t.d. sjá í hólfum hjá dýrustu graðhestum landsins, sem hryssueigendum er selt undir dýr- um dómum. Oft era um 30 verðlaun- aðar hryssur í slíku hólfi og er því um gríðarleg verðmæti að ræða. Upphaf kryddblöndunnar - Guðmundur fer eldhúsvillt Selma Jónsdóttir í Vogum skrif- ar: Ég vil gera athugasemd vegna viðtals við Guðmund Guðmundsson í Vogabæ, Vogum, í DV 24. sept. sl. Kæri Guðmundur, mikið eruð þið orðin gleymin í Vogabæ. - Þú rekur í viðtalinu upphaf kryddblöndunnar sem verið hefur flaggskip fram- leiðslu fyrirtækisins frá byrjun. En mikið er ég hrædd um að þú farir eldhúsvillt þegar þú segir að móðir þín hafi byrjað að búa til blönduna. Forsaga málsins er sú að ég sem starfsmaður í versluninni Vogabæ, árin 1979-1985, mæti í vinnu einn mánudagsmorgun og fer að segja Sigrúnu í Vogabæ hvað ég hafi búið til góöa ídýfu um helgina. Hennar viðbrögð voru þau að spyrja hvort ég vildi ekki bara búa hana til í búð- inni á fóstudögum, svo hægt væri að bjóða viðskiptavinum snakk og ídýfu við kjötborðið. Svona gekk þetta til og vakti mikla ánægju viðskiptavina, og lét Sigrún óspart vita að ég ætti aflan heiðurinn af þessari ídýfu. - Sá heiður tók þeim skrýtnu breyting- um seinna meir að hann var skyndilega orðinn Sigrúnar! Varla þarf að taka fram að aldrei var ég spurð að því hvort hefja mætti framleiðslu á ídýfunni minni, sem tók þeim breytingum að í hana var bætt rotvarnarefnum. Ég hef þessi orð ekki öllu fleiri, en ástæða skrifa minna er sú að síð- ustu ár, en ekki síðustu daga, (þ.e. eftir að áðumefnt viðtal birtist) hef ég fengið fjölda áskorana frá fólki sem veit hið rétta í málinu, og vill að það komi fram. Einnig leiðist mér sjálfri er fólk eignar sér það sem aðrir hafa gert. - Með fullri virðingu fyrir því annars ágæta fólki í Vogabæ, sem mjög gott var að vinna hjá. Á röltinu um félagslega kerfið Jóhann Gíslason skrifar: Það þarf bæði sterkt hjarta og mikið andlegt og líkamlegt þrek leggi maður í rölt um velferðarkerf- ið í leit að aðstoð. - Ég er búinn að vera á slíku rölti í hartnær fjögur ár án nokkurs árangurs og er satt best að segja orðinn þreyttur, bæði and- lega og líkamlega, og mitt gamla verkamannshjarta er orðið ansi dapurt. Ég hef einmitt verið að leita mér aðstoöar hjá borginni gegnum fé- lagsmálakerfið eftir húsnæði. Slík leit er ekki neitt sem maður kýs sér, en að því geta legið margar og mis- jafnar aðstæður. Þeir sem þangað leita, líkt og ég, hafa af einhverri þeirri ástæðu orðið undir í lífsbar- þjónusta Enn á ný er ég farinn á röltið þvf ég hef ekki algjör- lega gefist upp enn, segir bréfritari m.a. af högum sfnum. áttunni, og því er kannski sú einust von eftir að snúa sér til hins opin- bera í von um að geta snúið þeirri þróun við. Það felst lítil lífsham- ingja í því að rápa á milli einhverra her- bergiskytra vítt og breitt um borgina með aleiguna í plast- poka og geta hvergi fundið öryggi né hafið mannsæmandi líf, þótt löngunin sé sterk. í nýlegri skoðana- könnun í Noregi með- al húsnæðislausra kom fram heldur slá- andi mynd og myndi mig ekki undra þótt hún ætti við einnig hér. Þar kom fram mikil aukning á t.d. sjálfsvígum, vaxandi óregla, þrúgandi ein- manaleiki og mikið þunglyndi. Þetta eru hinir ömurlegustu fylgifiskar þess sem sífellt hrekst á milli herbergiskytra og get- ur hvergi fundið sér öruggt skjól. Enn á ný er ég farinn á röltið því ég hef ekki algjörlega gefist upp enn, og eygi smávon. En ef til vill verður nú sem fyrr svarið: Það hlýtur að fara að koma að þér!! DV Ó, borg mín, borg Dagný Kristjánsd. skrifar: í öllum kvöldfréttum mánudags- ins var talað við Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, í tilefni af því að hann gefur aftur kost á sér í það sæti sem hann situr í núna. Þóttu þetta miklar fréttir fyrir borgar- búa. Vilhjálmur sagði að Flokkur- inn yrði að endurheimta borgina. En hvers vegna? Vilhjálmur sagði ekkert um það. Hann talaði eins og maður sem hefur týnt veskinu sínu eða páfagauknum. Þó lofaði hann ekki einu sinni fundarlaun- um! - Með svona málflutningi mun Sjálfstæðisflokkurinn vissu- lega tapa kosningum um borgina tvisvar í röð - er þaö ekki? Ekki bara Stein- grímur Ámi Einarsson hringdi: Það er löngu ljóst að Steingrím- ur Hermannsson er einhver víð- förlasti og drýgsti ferðalangur opinbera embættismannakerfisins. Fréttiraar um ferðir bankastjórans á umhverfisráðstefnur á peningum Seðlabankans er bara staðfesting á ósköpunum. En hér er ekki bara um Steingrím að ræða. Þetta geng- ur eins og rauður þráður í gegnum alla stjórnsýsluna og algengt að menn grenji út eina og aðra utan- ferðina á vegum hins opinbera eða í einkaerindum með þátttöku ríkis- ins í kostnaði. Jafnvel einnig í tengslum við sumarleyfin. Fjöl- miðlum ætti að vera kappsmál að upplýsa almenning um hverjir eru í ferðalögum erlendis á vegum hins opinbera á hverjum tíma. Þama er um opinbert fé okkar að ræða. - Gæti orðið líkt og á árum áður þegar listi yfir komu- og brottfararfarþega gamla Gullfoss voru birtir í blöðunum. Einokun Flugleiða Keflvíkingur hringdi: Okkur hér syðra blöskrar hvernig staðið er að útboðum sem snerta afgreiðslu og umsvif í Leifs- stöð. Nú siðast varðandi veitingar í flugstöðinni. Flugleiðir virðast hafa algjöra einokun á hverju því starfssviði sem þar skapast. Önnur fyrirtæki eru nánast sniðgengin þrátt fyrir mun hagstæðari tilboð sem ríkið hefur ekki efni á að sleppa. En svona er einokun í framkvæmd. Eiginkonurnar líka Oddur P. skrifar: Síðasta hneykslið varðandi dag- peninga og ferðir Steingríms seðla- bankastjóra vekur aftur upp frétt- irnar mn að konur bankastjóra Seðlabankans eru líka á dagpen- ingakerfi bankans. Þetta er náttúr- lega allt með svo miklum ólíkind- um að ekkert minna en opinbert uppgjör verður að framkvæma á ferðum þessarar yfirstéttar og láta hana skila illa fengnum fjármun- um. Bændasamtökin svara leiðara Sigurgeir Þorgeirsson: Vegna leiðara DV laugard. 27.9. sl. vilja Bændasamtök íslands taka eftirfarandi fram: Bændasamtökin koma á engan hátt að vottun líf- rænna landbúnaðarafurða og hafa aldrei gert. Þau hafa hvorki hags- muna- né persónutengsl við þær vottunarstofur sem að þessu starfa. Samtökin treysta báðum þessum stofum fyllilega til að ann- ast vottun lífrænna afurða, enda hafa báðar sams konar leyfi yfir- valda til að annast hana. Skætingi ritstjórans og rangfærslum hirði ég ekki um að svara að öðru 1 eyti, enda ekki svara vert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.