Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Page 15
JL>"\T FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 15 I í > I > > 5 ► I I > > > > > > > menning Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Krossfesting ísland hið nýja Ný bók eftir Trausta Valsson skipulagsfræðing og Birgi Jóns- son jarðverkfræðing, fsland hið nýja - Aldamótin 2000, hefur ver- ið mikið til umræðu síðan hún kom út fyrir tveimur vikum. Bók- in fjallar um stöðu íslands í heimi framtíðarinnar, en að mati höfunda og útgefenda er brýnt viðfangefni að búa okkur undir komandi öld. „Á 21. öldinni verð- ur nýtt landnám íslendinga inn á við - inn til landsins", eins og segir í kynningu, „til hins víð- feðma Miðhálendis sem getur tryggt þjóðinni meiri hagsæld en nokkru sinni, sé skipulega haldið á hlutunum." í bókinni er varað sérstaklega við mistökum sem nú er verið að gera í skipulagningu Miðhálendis ís- lands með laga- setningu og stjórnun. Höf- undarnir hvetja til varfærni skipulagningu hálend- isins, ekki má spilla því með skammsýnum framkvæmdum. En, eins og Sveinbjöm Björnsson fyrmm Háskólarektor segir í for- mála, „sú vernd má þó ekki ganga svo langt að hún girði fyr- ir þá nýtingu orkulinda sem ákjósanleg reynist." Nýtt allsherj- arskipulag þarf að gera sem tek- ur tillit til sdlra þátta, og í íslandi hinu nýja er gerð tillaga aö því. Bókin er gefin út af Fjölva og skiptist í þrjá hluta: Nýtt heims- mynstur - ný tækifæri, Lands- skipulag og Skipulag á Miðhá- lendi. í hverjum hluta era margir undirkaílar og öll er bókin ætluð sem grundvöllur undir umræður um þetta mikilsverða málefni. Staða grafíklistarinnar Richai-d Valtingojer myndlist- armaður heldur fyrirlestur um grafik á mánudaginn kl. 12.30 í Málstofu, fyrirlestrarsal Mynd- lista- og handíðaskóla íslands i Laugarnesi. Richard ætlar að fjalla um grafik í víð- asta skilningi, sögu- lega þróun hennar og stööu hennar nú á dögum, möguleika hennar og hlutverk innan myndlistarinnar. Á eftir verða umræður. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Allt ura börn Skjaldborg var að gefa út Bók- ina um bamið - meðgöngu, fæð- ingu og fyrstu sex ár barnsins - eftir Vibeke Manniche. Þetta er efnismikið og aðgengilegt upp- sláttarrit fyrir foreldra sem hefur verið staðfært og lagað alveg að íslenskum aðstæðum. í bókinni er fjallað ítarlega um þungun og fæðingu, fyrstu daga nýburans, fyrstu ár barnsins, bamasjúkdóma, réttindi bamsins og fjölskyldunnar og skyldur hins opinbera. „Heilsuvemd eru gerð mjög góð skil,“ segir Ólafur Ólafsson landlæknir í for- mála: „Allir geta haft góð not af lestri þessarar bókar því að hún er vel sam- in og dagleg vandamál skýrð á ítar- legan hátt.“ í bókinni era 240 ljós- myndir og skýringarteikningar. Jóhanna G. Erlingsson þýddi hana og staðfærði. Þrír heimar í einum heitir nýr hljómdiskur með raftónlist eftir Kjartan Ólafsson. Á honum eru þrjú nýstárleg verk, samin á síðustu árum í Finnlandi og heima á íslandi. „Titillinn kemur frá fyrsta verkinu sem heitir „Samantekt. Þrír heimar í einum“ og er byggt á tíu ára tímabili á starfsferli mínum sem tónskáld í þremur löndum," segir Kjartan. „Á þessu tímabili gekk ég gegnum þrjú ólík skeið í tónsköpun - það er eðli- legt að fólk gangi í gegnum slík þroska- eða misþroska-skeið. Svo speglar það lika einkalífið og þetta huglæga líf sem við eigum.“ Fannst hún algert rugl - Hefur raftónlist alltaf höfðað til þín? „Mín kynslóð ólst upp bæði við sterka rokk- og popp-menningu og sterka arfleifð frá klassískri tónlist, auk nútímatónlistar. Allt samtímis. En raftónlistin kom seinna. Ég man að þegar ég var um tvítugt þá hét ég því opinberlega að ég myndi aldrei koma nálægt raftónlist, hún væri al- gert rugl. Þremur árum seinna var ég kominn í sérnám til Hollands í henni.“ - Hvað gerðist? „Ja, líf manns heldur bara áfram! Raftónlist kom inn í íslenskt tón- listarlíf með Magnúsi Blöndal Jó- hannssyni um 1960. Hann hlaut mikla og langvarandi gagnrýni fyrir sínar tónsmíðar sem ég tel með þeim merkari í íslenskri tónlistarsögu. Hann var alger einfari og fékk að kenna á því, bæði hjá gagnrýnendum og almenningi. En svo var farið að kenna þetta í tónlistarskólum á átt- unda áratugnum og menn eins og Þorkell Sigurbjörnsson og Atli Heim- ir Sveinsson tóku hana upp á sína arma. Það sem rak mig út í raftónlist var fyrst og fremst þessi nýi hljóðheimur sem kom með henni. Raftónlistin blandast dálítið poppinu sem hefur tekið við tækninni og notar þennan nýja hljóðheim lika. - Þó að þetta sé nú ekki poppdiskur þá era poppjaxlar og djassgeggjarar með mér á honum." - Er kannski tímanna tákn hvað poppið og nú- timamúsíkin eru farin að skarast? áheyrendur." - Hvernig holl? „Oft hreinsar hún úr eyrunum! Og svo er hún praktísk að því leyti að hún fælir ketti úr görðum hjá fólki! En fyrst og fremst er hún framandi og þeir sem hafa áhuga á framandi tónlist þeir laðast að henni. Braut- ryðjendur í tónlist, bæði popptónlist og alvarlegri tónlist, hafa allir til- einkað sér þessa tækni. Hún er orðin hluti af nútímatónlistinni, viðbót við hana.“ - Hefur hún marga áhangendur? „Ég hugsa að þeir séu svona tveir! Og þá era báðir með taldir. í alvöru hef ég á tilfinningunni að þessi hópur fari ört vaxandi en það er erfitt að mæla hann í prósentum því hann skarast við önnur svið. Þeir sem hafa hlustað á nýja tónlist hafa nú aldrei verið átakanlega margir miðað við af- þreyingartónlist, og það á við allt frá tímum Mozarts og þeirra. Ný tónlist er alltaf ný. í síðasta verkinu á diskinum, Skammdegi, reynum við að blanda áhrifum frá djassi og jafnvel poppi inn i þessa ströngu og erfiðu nútima- raftónlist. Slík blöndun er kannski einmitt einkenni á okkar tíma - og menn stökkva hæð sína í loft upp og æpa póst-módemismi! En það er vandamál annarra að skilgreina hvað þetta er.“ - Mun tónlist eins og Björk er að spila núna hjálpa fólki inn i þína tón- list? „Já, ég held það. Björk leitar inn í þennan nýja hljóðheim og er alveg óhrædd við að tefla fram nýjum hljóð- um og vinna þau eftir sínum persónu- lega smekk, sem er auðvitað hennar aðaleinkenni og styrkur. Þama skar- ast þessar tónlistarstefnur. Ég vil ekki bera þær beint saman, en Björk getur áreiðanlega opnað glufu inn í enn þá meira framandi hljóðheim. Hún er svona millilending. En tónlistin mín kemst seint inn á sölulista, trúi ég. Maður þarf að vinna að því að tileinka sér hvem hljóðheim fyrir sig. Sumir þola ekki fiðlugarg, öðrum finnst það hreint hunang! En ég vil ekki segja að tónlist Bjarkar sé skref í áttina því allt er þetta áttalaust.“ Kjartan og félagar áætla útgáfutónleika um mánaðamótin október og nóvember. Kjartan Ólafsson og Sunneva dóttir hans: Raftónlist er holl og góð. DV-mynd BG „Já, og það gerist einmitt gegnum þennan hljóðheim. Hliðstæður samruni alvarlegrar tón- listar og popps varð á 7. áratugnum þegar Bítl- amir fóru að nota strengjakvartetta og kóra á plötunum sínum, arfleifð frá klassiska tímabilinu tveimur öldum áður. Tónlist eins og er á Þremur heimum er mun samsettari og flóknari og erfið- ari áheyrnar en popp, en hún er holl og góð fyrir viddir þar sem samleikur birtu og myrkurs er megininntakið. Áhrifamestu augnablikin voru skemmtilega dæmigerð fyrir verkið. Annars vegar vora tutti þar sem margar línur ultu fram með sígildum hætti, harmur í dökkum lúðrum móti klingjandi bjölluhljómi sakleysis og svo þétt áköll í fiðlunum. Hins vegar fingerður vefhaður sem undirleikur við eintal sálar í sellói, frábærlega túlkað af Bryndísi Höllu Gylfadóttur. Þessi nútímalega listræna túlkun á trúarþörf mannsins hefur klassískt yfirbragð og býr yfir fegurð. Fegurð sem hljómsveitinni tókst að koma til skila með óeigingjömum og áköfum leik sínum undir góðri stjórn Petri Sakari. Hitt verkið á efiiisskránni var sin- fónía nr. 5 í Es-dúr op. 82 eftir Jean Sibelius. Eftir á að hyggja var þessi samstæða verka ekki eins samhengis- laus og manni hefði getað virst við fyrstu athugun. í báðum tilfellum notar tónskáldið að miklu leyti við- tekið tónmál síns tíma, en báðir nýta það með sérstæðum og persónulegum hætti. Báðir skapa eins og síspennu í löngum köflum verka sinna, ferðast um í óleystum en tæram gátum. Báðir þora að vera bamslega ein- faldir á köflum og báðir þora þeir að gefa því við- tekna rými. Sinfónían nr. 5 er hins vegar bam síns tíma og frelsar því ekki hugann með sama hætti og ferskleiki hins nýja verks. En túlkun hennar var kröftug og litrík, þökk sé tónsprota stjómandans, Petri Sakari. Gul tónleikaröð Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í ár hefur nokkuð sér- stætt yfirbragð. Áhersla er þar lögð á stór hljómsveitarverk, svo stór að oft- ar en ekki era tvö og jafnvel eitt verk á dagskrá hverra tónleika. Það þýðir að ef tvö verk eru á efnisskránni þá tekur hvort um sig að meðaltali 45 mínútur í flutningi. Við eram því að tala um stór verk, tónbálka eða stór- smíðar sem mikils krefjast bæði af hljóðfæraleikurum og hlustendum. Tónlist Sigfríður Bjömsdóttir Hafliöi Hallgrímsson - hefur skapaö magnaö verk. Og þannig var með tónleikana sem haldnir vora í Háskólabíói í gær- kvöldi, fyrstu tónleika vetrarins í umræddri röð. Tvö verk vora leikin. Til tíðinda hlýtur að teljast að í öðru tilfellinu var um framflutning að ræða á verki eftir íslenskt tónskáld, tónskáld vetrarins, Hafliða Hall- grímsson. Vonandi var það bara til- viljun að verk Hafliða, Krossfesting op. 24, var frumflutt á sama tíma og yfir stóð flutningur ann- ars verks - stefnuræðu forsætisráðherra. Ein- hverjir aðrir verða að segja til um hversu frarn- leg, innblásin eða hrífandi sú ræða var, en líklegt er að skoðanir þeirra sem fylgdust með henni verði skiptari en þeirra sem sal Háskólabíós sátu og hlýddu á tónaljóð Hafliða. Ef marka má við- brögðin í lok verksins þá voru áheyrendur ánægðir og ekki að ástæðulausu. Krossfesting er magnaö verk, sérstaklega fyrri hlutinn. Innblásturinn sækir tónskáldið í mál- verk sem salurinn fékk að sjá á tjaldi. Sterkar andstæður, fínleg blæbrigði og tilfinningaleg dýpt einkenna marga hluta verksins. Hafliði vinnur mik ð með mismunandi birtustig samhljómsins. Sérstæð hljóðfæranotkun eða samsetning hljóð- færahópa á hverju augnabliki tryggir sýn inn í Nýr hljóðheimur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.