Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Side 33
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
45
Gleðigjafinn André Bachmann.
André Bach-
mann á
Sir Oliver
Gleðigjafinn André Bac-
hmann syngur og skemmtir
gestum Sir Oliver í kvöld og
annað kvöld. Hann mun syngja
dægurperlur áranna 1950 til 1980
með hljómsveitinni Gleðigjöfum.
Einnig verður brandara- og bjór-
keppni haldin á staðnum og því
um að gera að koma með einn
eöa tvo brandara eða standandi
grín upp á vasann. Von er á góð-
um gestum frá bræörum Ladda
en fram undan er árstíð bræðra-
lagsins. Aðgangur er ókeypis.
Hunang á írlandi
í kvöld og annað kvöld mun
hljómsveitin Hunang leika fyrir
dansi á skemmtistaönum írlandi
í Kringlunni. Hljómsveitin er
þekkt fyrir líflega sviösfram-
komu og skemmtOega dans- og
stuðtónlist við allra hæfi.
Tónlist
Dead Sea Apple
í Rósenberg
Hljómsveitin Dead Sea Apple
spilar í Rósenbergkjallaranum í
kvöld. Hún mun spila frumsam-
in lög ásamt vel völdum rokklög-
um úr öllum áttum.
Eftir Ameríkufor hefur hljóm-
sveitin veriö iðin við að semja
nýtt efhi og leggja grunn að
næstu utanferð.
Sóldögg í Óperu-
kjallaranum
Hljómsveitin Sóldögg leikur í
kvöld í fyrsta sinn á dansleik í
Óperukjcdlaranum. Annaö kvöld
verður hún í Sjallanum á Akur-
eyri.
Saktmóðigur á
Geysi kakóbar
í kvöld mun hljómsveitin
Saktmóðigur spila á síðdegistón-
leikum Hins hússins á Geysi
kakóbar. Tónleikarnir hefjast
stundvíslega klukkan 17.
Stelpurnar f hljómsveitinni 8-
villt.
8-villt á Kaffi
Reykjavík
Loksins mun hljómsveitin 8-
villt spila fyrir borgarbúa eftir
þeysireið um landiö. Hún mun
skemmta gestum Kaffi Reykja-
víkur í kvöld og annað kvöld.
Steingrímur
sýnir í Eden
Steingrímur St.Th. Sigurðsson listmálari opnar mál-
verkasýningu næstkomandi mánudag klukkan 20.30 í
Eden í Hveragerði. Þetta er 85. sýning Steingríms frá upp-
hafi ferils hans. Allar myndimar á sýningunni eru nýjar
og í þeim fæst listamaðurinn við birtuna og línumar í
landslaginu. Hann yrkir um sjóinn, landið og fantasiur.
Steingrímur dvaldi um vikuskeið á Vestfjörðum, nánar
tiltekið Amarfirði vestur, til að vinna stærsta verk sitt
frá upphafi (2x1,45). Verkið er af Dynjandisfossi, náttúm-
vætti Vestfjarða. Það er unnin með tækni miðaldamálar-
anna og þurfti meðal annars að nota tvo bakka af eggjum
í það. Til gamans má þess geta að rýma þurfti til í Dom-
ier-flugvélinni, sem flutti verkið, til að koma því suður.
Sýningin í Eden er tileinkuð Vestfjörðum enda er stað-
urinn listamanninum kær. Hún varir í hálfan mánuð.
Myndlist
Gunnar Kristinsson
í Hafnarborg
Nú stendur yfir í Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, sýning á nýjum verkum Gunnars Krist-
inssonar. Þar er um að ræða bæði olíumálverk og vatns-
litamyndir og er sýningin í öllum sölum Hafnarborgar.
Steingrfmur St.Th. Sigurösson listmálari
Kólnar með kvöldinu
Á Grænlandssundi er 978 mb
lægð sem hreyfist austnorðaustur.
Langt suöur í hafi er 1002 mb hæð.
í dag verður suðvestan- og vestan-
átt, stinningskaldi eða allhvasst og
smáskúrir vestan til en heldur hæg-
ari og skýjað með köflum um landið
austanvert. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast
austan til. Gengur i norðvestan-
kalda eða stinningskalda með
slyddu norðvestan til og kólnar
heldur í kvöld. Norðankaldi og
slydduél norðan til en hæg norðlæg
átt og léttskýjað um landið sunnan-
vert í nótt.
Veðrið í dag
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðvestankaldi eða allhvasst, hiti 4
til 8 stig og skúrir í dag. Gengur í
vestan- og norðvestankalda og kóln-
ar heldur í kvöld. Norðangola eða
kaldi og léttir til í nótt.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaó 7
Akurnes slydda á síó.kls . 7
Bergsstaðir skýjaö 5
Bolungarvík rigning 2
Egilsstaóir léttskýjaö 8
Keflavíkurflugv. skúr 6
Kirkjubkl. léttskýjaó 4
Raiifarhöfn hálfskýjaö 6
Reykjavík súld á síö.kls. 6
Stórhöfói skýjaö 6
Helsinki hálfskýjaö 4
Kaupmannah. lágþokublettir 6
Ósló hálfskýjaö 4
Stokkhólmur skýjaö 6
Þórshöfn rigning 11
Faro/Algarve
Amsterdam skýjaó 10
Barcelona heiöskirt 19
Chicago léttskýjaö 19
Dublin þokumóða 12
Frankfurt skýjaö 10
Glasgow rigning og súld 13
Halifax skýjaö 8
Hamborg skúr á síó.kls. 8
Las Palmas
London skýjað 12
Lúxemborg
Malaga léttskýjaö 18
Mallorca þoka 16
Montreal skýjaó 9
París léttskýjaö 8
New York skýjaö 14
Orlando heiöskírt 22
Nuuk -1
Róm
Vín hálfskýjaö 10
Washington
Winnipeg heiöskírt 19
Hálendið fært
fjallabflum
Þjóðvegir á landinu eru greiðfærir en nokkuð er
um að vegavinnuflokkar séu að störfum við lagfær-
ingu á vegum. Á hálendinu er fært fjallabílum um
Færð á vegum
Kjalveg og um fjallvegi á sunnanverðu landinu, en
ekki er vitað um færð á Sprengisandi og á hálendis-
vegum á Norðausturlandi. Vert er að athuga allan
búnað vel áður en lagt er á hálendið, allra veðra er
von á þessum árstíma.
Ástand vega rv CAi\ V
í|fÁ.-Á ■ y\ E®!"'
-y r® jsf
jjy
0 Steinkast Q Snjóþekja
0 Hálka E Vegavinna-aögét 0 Öxulþungatakmarkanir
Q} Lokaö □ Þungfært (g) Fært fjallabllum
Fyrsta barn Ásdísar
og Þórðar Inga
Litli drengurinn á
myndinni heitir Eiríkur
Ingi Þórðarson. Hann
fæddist 17. september,
Barn dagsins
klukkan 7.50. Við fæðingu
vó hann 2780 grömm og
var 47,5 sentímetra lang-
ur. Foreldrar Eiriks eru
þau Ásdís Erla Helgudótt-
ir og Þóröur Ingi Guðna-
son og er hann fyrsta
barn þeirra.
Brúð-
kaup
besta vin-
ar míns
Julia Roberts hefúr ekki átt
mikilli velgengni að fagna í síð-
ustu myndum sínum en þykir ná
sér vel á strik í My Best Friend’s
Wedding sem Stjörnubíó og
Kringlubíó sýna. í myndinni
leikur hún Julianne Potter sem
haföi á sínum tíma breytt ástar-
sambandi við Michael O’Neal í
vinasamband án þess þó að gefa
hann alveg upp á bátinn, hafði
hann í pokahorninu ef ekkert
annaö betra byðist. Þegar Mich-
ael tilkynnir henni að hann ætli
að fara að gifta sig, og það ekki
henni, fer að sjálfsögðu allt í háa-
loft og Julianne ákveður strax að
þetta brúðkaup verði að stöðva
og tekur til sinna ráða.
Kvikmyndir
Auk Juliu Roberts leika í
myndinni Dermot Mulroney,
sem leikur brúögumann, Camer-
on Diaz, sem leikur hina tilvon-
andi brúði, og Rupert Everett,
sem leikur vin Julianne sem hún
fær með sér í ráðabrugg. Leik-
stjóri er hinn ástralski P.J. Hog-
an sem gerði hina eftirminnilegu
Muriel’s Wedding.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Sjálfstæðar stelpur
Laugarásbíó: Money Talks
Kringlubíó: My Best Friend's
Wedding
Saga-bíó: Breakdown
Bíóhöllin: Contact
Bíóborgin: Contact
Regnboginn: María
Stjörnubíó: My Best Friend's
Wedding
Krossgátan
Lárétt: 1 blóð, 7 bams, 9 skel, 10
sterk, 11 ónefndur, 12 risana, 14
flagg, 16 kaun, 18 skrauti, 19 fljótið,
20 tegund.
Lóðrétt: 1 hugrökk, 2 hali, 3 skrið-
dýrið, 4 hræddast, 5 starf, 6 eggja, 8
árstíðar, 13 lík, 15 karlmannsnafii,
17 yfirlið, 18 dreifa.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 fól, 4 köst, 8 erill, 9 te, 10
seta, 11 nía, 13 tindra, 15 agi, 16
durg, 18 mana, 19 sóa, 20 árgalar.
Lóðrétt: 1 festa, 2 öreigar, 3 litning,
4 kladda, 5 öln, 6 stía, 7 te, 12 angar,
14 rusl, 17 róa, 18 má.
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
í SÍMA
550 5752