Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 3 JDV Fréttir Viöhorfskönnun innan lögreglunnar: Helmingur kvenna telur kynferð- islega áreitni eiga sér stað - mjög sláandi, segir formaöur hagsmunafélags lögreglukvenna „Það er mjög sláandi að helming- ur lögreglukvenna taldi að kynferð- isleg áreitni ætti sér stað innan lög- reglunnar. Annað sem mér fínnst lika mjög sláandi í þessu er að þrír af hverjum fjórum karlmönnum sem könnuðust við kynferðislega áreitni töldu að yfirmönnum þeirra væri kunnugt um það,“ segir Dóra Hlín Ingólfsdóttir, formaður hags- munafélgs lögreglukvenna, aðspurð um niðurstöður viðhorfskönnunar innan lögreglunnar. Skýrsla nefndar um bætta stöðu kvenna innan lögreglunnar er kom- in út og var m.a. lögð fyrir Alþingi í fyrradag. Dóra Hlín, sem einnig átti sæti í nefndinni, sagði að mikill munur kæmi fram á svörum kynj- anna þegar spurt var hvort viðkom- andi væri kunnugt um að kynferðis- leg áreitni ætti sér stað innan lög- reglunnar. Aðeins 18% karla töldu slíkt eiga sér stað innan lögreglunn- ar. Áramótin 1995-1996 voru alls 604 starfandi lögreglumenn á landinu. Þar af voru 26 konur eða 4,3%. í stöðum yflrmanna, þ.e. aðalvarð- stjóra, aðstoðaryfirlögregluþjóns og yfirlögregluþjóns var engin kona en ein kona gegndi starfi lögreglufull- trúa. Þarf jafnréttisfulltrúa „Það er líka mjög miður að eng- in kona er í yfirmannsstöðu innan lögreglunnar. Það virðist vera á brattann að sækja fyrir konur upp metorðastigann hjá lögreglunni. Því miður kom ekkert róttækt fram sem leitt getur til úrbóta. Það sem er hvað mikilvægast er að fá jafnréttisfulltrúa innan lögregl- unnar sem sinnt gæti kvörtunum vegna mismununar á grundvelli kynferðis, þar á meðal vegna kyn- ferðislegrar áreitni. Það þarf líka að kynna lögreglustarfið betur og á jákvæðan hátt þannig að áhersla verði lögð á að það henti jafnt kon- um sem körlum. Það sem er mjög jákvætt núna er að fjórðungur ný- liða í lögregluskólanum er konur,“ segir Dóra Hlín. -RR Elliheimiliö í Kaupmannahöfn þar sem voðaatburöirnir geröust. Atburðirnir á elliheimili í Danmörku: Náið fylgst með dánartölunni - segir forstöðumaöur vistheimilisins Hlíðar á Akureyri DV, Akureyri: I kjölfar þess að sjúkraliði á elli- heimill í Kaupmannahöfn hefúr verið ákærður fyrir morð á 22 vistmörinum hafa þær spumingar vaknað hvort sá möguleiki geti verið fyrir hendi að slíkur atburður gæti átt sér stað hér á landi. Danski sjúkraliðinn er sakaður um að hafa orðið fólkinu að bana með stórum skömmtum af lyfrnu Ketogan, og dæmi um slik mál eru fleiri. Sams konar mál hafa komið upp á síðustu árum í Austurríki, Svíþjóð og Noregi þar sem fólk úr heilbrigðisstéttum hefur ýmist verið ákært eða dæmt í slíkum málum þar sem grunur lék á að tugum aldraðs fólks hafi verið „hjálpað yflr móðuna miklu". Á vistheimilinu Hlíð á Akureyri eru starfandi þrír læknar sem ávísa á lyf handa vistmönnum, að sögn Bjöms Þórleifssonar forstöðumanns. „Við erum einnig með lyQafræðing sem sér um að lyfin séu rétt og við erum með hjúkrunarfræðinga sem eru ábyrgir fýrir því að taka lyfln til. Ef einhver hjúkrunarfræðingur tæki upp á því að vilja hjálpa fólki yflr móðuna miklu væri sjálfsagt erfltt að stoppa það, hefði hún aðgang að slík- um lyfjum," segir Bjöm Þórleifsson. Bjöm bendir á að lyf eins og danski sjúkraliðinn gaf gamla fólkinu sé skráningarskylt, og komi ekki fyrir- skipanir frá læknum um notkun á slíkum lyfjum eigi hjúkrunarfræðing- ar ekki að hafa aðgang að þeim. „Eft- irlit með hvemig þetta fólk vinnur er síðan í höndum Lyfjaeftirlitsins sem fylgist með hvað er notað af lyfium hjá okkur og málið í heild heyrir und- ir landlækni." Bjöm segir að á Hlíð sé fylgst mjög náið með dánártölunni. „Ef það kæmi upp að á einni deild dæi fólk meira en annars staðar myndu vakna grun- semdir um að eitthvað væri að,“ seg- ir Bjöm. Nánast útilokað „Það er nánast útilokað að slíkt geti gerst hjá okkur þótt auðvitað geti enginn verið 100% viss,“ segir Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri Elli- heimilisins Grundar i Reykjavík. „Aðgang að lyfjageymslu deilda hafa eingöngu deildarstjórar og þeir skrá á hverjum degi hvað hver einasti maður fær af lyflum. Lyfjafræðingur kemur daglega og fylgist með hreyf- ingu lyfla þannig að svona mál held ég að geti ekki gerst á neinu einasta elliheimili á íslandi. En þetta snýr auðvitað að þeim ein- staklingi sem hefúr lyklavöldin á hverjum tíma. Hjá okkur em öll dag- leg lyf tekin til af lyflatækni undir handleiðslu lyflafræðings, það kemur aldrei eirrn aðili að því að taka til lyf fyrir vistmenn," segir Júlíus. -gk ^dranhfij, mij dear. . . . . JJo cjiue a imni Sumum er alveg sama Það kveður við nýjan tón í fullkomnu 29“ PHILIPS heima- bíótæki sem býr yfir svo einstökum myndgæðum að þér stendur ekki á sama. PHILIPS heimabíötæki á „dramatískt“ lágu verði - og Þú sérð uppáhaldsbíómyndirnar í nýju Ijósi! PHILIPS 29“ PT6433 ___________ AðeínS ______________________ • Black Line Super myndlampi • 5 hátalarar 70W • íslenskt textavarp • Dolby Prologic heimabíókerfi • PHILIPS myndgæði 119.900 stgr. m ÁNÆGIUÁBYRGÐ Sé kaupandi ekki ánægður með vöruna má hann skila ^^^^^^JjvennMnnanJIÖ^aga^ Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO http.//www.ht.is umboðsmenn um land allt [1 T/L 36 MANAÐA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.