Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 Afmæli________________ Bjarni Jónsson Bjarni Jónsson verslunarskóla- kennari, Hvassaleiti 40, Reykjavík, verður sjötugur í dag. Starfsferill Bjami fæddist á KleppjámsreyHj- um í Borgarfirði. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1948, stundaði síð- an frönskunám við háskólann í Grenoble í Frakklandi 1949-50, spönskunám við háskólann í Ma- drid 1950-51 og lauk BA-prófi (franska og enska) við HÍ 1957. Fyrstu starfsár sín kenndi Bjami við ffamhaldsdeildir Vogaskóla en 1966 hóf hann kennslu viö Verslun- arskóla íslands þar sem hann hefur kennt síöan. Fjölskylda Eiginkona Bjama er Hólmfríður Ámadóttir, f. 7.10.1930 í Reykjavík, prófessor við KHÍ. Hún er dóttir hjónanna Áma Jónasson- ar, f. 9.10. 1897, d. 30.10. 1983, húsasmíðameistara í Reykjavík, og k.h., Þor- bjargar Agnarsdóttur, f. 1.12. 1905, húsmóður. Synir Bjama og Hólm- fríðar eru Brjánn Árni Bjamason, f. 8.7. 1954, læknir í Reykjavík, kvæntur Steinunni Gunn- laugsdóttur hjúkrunar- fræðingi og eru dætur þeirra Unnur Hólmfríður, f. 27.11.1990 og Elva Berg- þóra, f. 26.4. 1992; Bolli Bjamason, f. 10.11. 1957, læknir í Svíþjóð, kvænt- ur Ellen Flosadóttur tannlækni og er sonur þeirra Fannar, f. 10.1.1996. Sonur Bolla er Gunnlaugur, f. 24.6. 1982. Systkini Bjama eru Ingibjörg Bima, f. 2.12. 1918, húsmóðir í Reykjavík, gift Pétri Pét- urssyni útvarpsþul; Stef- án Jónsson, f. 30.12. 1920, d. 8.8. 1971, skrifstofu- stjóri SÍF í Reykjavík, var kvæntur Önnu Krist- jánsdóttur húsmóður; Jó- hanna Jónsdóttir, f. 2.4. 1922, húsmóðir i Reykja- vík, ekkja Lámsar Ósk- arssonar stórkaup- manns; Guðrún Jónsdótt- ir, f. 22.9. 1923, d. 25.7. 1997, húsmóðir aö Kópareykjum í Borgarfirði, eiginkona Jónasar Árnasonar, rithöfundar og fyrrv. alþm.; Þorgrímur Jónsson, f. 2.1. 1926, fyrrv. tryggingayfirtannlæknir í Reykjavík, kvæntur Huldu Jósefs- dóttur veflistarkonu; Jóna Anna Jónsdóttir, f. 23.4. 1929, d. 3.11. 1930. Foreldrar Bjama vom hjónin Jón Bjamason, f. 7.10. 1892 í Steinnesi í Húnavatnssýslu, d. 2.1.1929, héraðs- læknir í Borgarfirði, og k.h., Anna Þorgrímsdóttir, f. 5.12. 1894 í Borg- um í Horaafirði, d. 13.2. 1994, hús- móðir. Ætt Jón var sonur Bjama Pálssonar, prófasts í Steinnesi í Húna- vatnssýslu, og k.h., Ingibjargar Guð- mundsdóttur, frá Fagranesi, Reykja- strönd, húsmóður. Anna var dóttir Þorgríms Þórðar- sonar, héraðslæknis og alþm. í Homafirði, síðar í Keflavík, og k.h., Jóhönnu Andreu Knudsen, úr Reykjavík, húsmóður. Bjami og Hólmfríður em að heiman á afmælisdaginn. Bjarni Jónsson. Pétur R. Siguroddsson Pétur R. Siguroddsson húsasmið- ur, Blöndubakka 9, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Pétur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Þingholtunum viö Nönnugötu. Hann lauk gagnfræöaprófi 1963, stundaöi nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi í húsasmíöi 1968. Pétur starfaði við húsasmíðar hjá Tómasi Vigfússyni og Gissuri Sig- urðssyni til 1974. Þá hóf hann störf hjá Trésmíðafélagi Reykjavíkur og stundaði þar mælingar til 1987. Hann starfaði síðan hjá Einari Pét- urssyni og Kristni Sveinssyni en hóf störf hjá Húsnæöisnefnd Reykja- víkur 1989 og hefúr starfað þar síð- an. Pétur hefur alla tíð átt heima í Reykjavík. Hann er virkur félagi í Trésmíðafélagi Reykjavíkur, Hesta- mannafélaginu Gusti í Kópavogi og Iönaðarmannafélagi Reykjavíkur og hefúr setið í stjóm þeirra allra. Hann er nú vararitari í Iðnaöar- mannafélagi Reykjavíkur. Fjölskylda Pétm- kvæntist 6.7. 1968 Guönýju Margréti Magnúsdóttur, f. 22.2.1948, organista og skrifstofumanni. Hún er dóttir Magnúsar Jónssonar, fyrrv. kórstjóra frá Kollafjarðamesi, og Ágústu Eiríksdóttur húsmóður. Böm Péturs og Guönýjar Mar- grétar em Siguroddur Pétursson, f. 5.10. 1969, tamningarmaður i Reykjavík, í sambúö með Ásdísi Ólöfu Sigurðardóttur og er dóttir þeirra Guöný Margrét Sigurodds- dóttir, f. 6.3. 1997; Anna Sólveig Pét- ursdóttir, f. 11.12. 1972, skrifstofu- maður í Reykjavík en maöur henn- ar er Amar Geir Kortsson. Systkini Péturs: Magnús Georg Siguroddsson, f. 1.12. 1941, raf- magnstæknifræðingur í Reykjavík; Einar Long Siguroddsson, f. 2.11. 1944, kennari í Kópavogi; Sólrún Ólína Siguroddsdóttir, f. 6.9. 1953,1 fótaaðgerðarfræðingur í Reykjavík; Bogi Þór Siguroddsson, f. 19.11.1959, hagfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Péturs era Siguroddur Magnússon, f. 27.8.1918, rafverktaki í Reykjavík, og Fanney Long Ein- arsdóttir, f. 4.7.1922, kjólameistari. Ætt Siguroddur er sonur Magnúsar, iðnverka- manns í Reykjavík, bróð- ur Kristbjargar, móður Marteins Björnssonar verkfræðings, föður Bjöms verkfræðings og Guðrúnar fiskifræðings, og móður Erlends Bjöms- sonar, sýslumanns og bæjarfógeta, fóður, lög- fræðings hjá sakadómi og Hákonar skólastjóra. Magnús var sonur Péturs, b. í Miðdal Ámasonar, b. í Hagakoti Ámasonar, b. á Vatns- enda Péturssonar, vefara á Vatns- enda Jónssonar, b. á Rauðará Ólafs- sonar. Móðir Péturs í Miðdal var Guðný Magnúsdóttir, b. í Stærribæ í Grímsnesi Bjamasonar, b. í Efsta- dal Jónssonar, á Laugardalshólum Jónssonar. Móðir Magnúsar var Margrét Benjamínsdóttir, b. í Mið- dal og Flóakoti Jónssonar, og Krist- ínar Þorkelsdóttur. Móðir Sigurodds var Pálína Þor- finnsdóttir, b. í Þúfukoti Jónssonar, b. að Hurðarbaki Guðlaugssonar. Móðir Þorfinns var Guð- finna Gísladóttir. Móðir Pálínu var Sigríður Páls- dóttir, b. í Saltvík Jóns- sonar, b. I Norðurkoti á Kjalamesi Jónssonar. Móðir Páls var Danhildur Teitsdóttir. Móðir Sigríð- ar var Valgerður Gísladóttir, b. á Möðm- völlum Guðmundssonar. Móðir Valgeröar var Guð- leif Björnsdóttir, b. á Fremra-Hálsi og írafelli Stefánssonar. Móðir Guð- leifar var Úrsúla Jóns- dóttir, ættfoður Fremra-Hálsættar- innar Ámasonar. Fanney er dóttir Einars Páls J. Long og Sólrúnar Guðmundsdóttur, b. á Jökulsá Jónssonar, b. í Geitavík í Borgarfirði eystra Magnússonar. Móðir Guðmimdar var Sólveig Jó- hannesdóttir frá Fjallsseli. Móðir Sólrúnar var Guðný Stefánsdóttir, b. á Jökulsá Pálssonar, b. i Gilsár- vallahjáleigu Ólafssonar. Móðir Guðnýjar var Sólrún Jónsdóttir frá Geitavíkurhjáleigu. Pétur R. Siguroddsson. 7///////////I Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl, 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið erámóti smáaugiýsingum til kl, 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblað DV þarfþó að berast okkurfyrirkl. 17 á föstudag 7p Smáauglýsingar 550 5000 Brúökaupsafmæli Páll og Ólafía Páll Þorleifsson, fyrrv. umsjónar- Heimili þeirra er nú að Hrafnistu maður Flensborgarskóla, og Ólafia í Hafnarfirði. Einarsdóttir húsmóðir, eiga sextíu Þau eyða kvöldinu með fjölskyldu ára hjúskaparafmæli í dag. sinni. DV Til hamingju með afmælið 23. október 80 ára Jóhannes Kristjánsson, Helgamagra- stræti 44, Akureyri. Eiginkona hans er Ingibjörg Jónsdóttir. Þau bjóða í kaffi í Húsi aldraðra, laugard. 25.10. frá kl. 19.30. 75 ára Jóhannes Guðmundsson, Barónsstíg 11, Reykjavík. 70 ára Guðmundur Bjömsson, Vallargerði 27, Kópavogi. Kona hans er Sigurrós Gísla- dóttir. Þau era að heiman. Áróra Oddsdóttir, Gullsmára 11, Kópavogi. Brynjólfur Jónsson, Byggðavegi 147, Akureyri. 60 ára Marta Þ. Sigurðardóttir, Skipholti 53, Reykjavík. Birgitta Puff, Öldugötu 27, Hafnarfirði. Ármann Halldórsson, Klapparstíg 5, Sandgerði. 50 ára Reynir Jens Ólafsson rafvirkjameistari, Norðurgarði 2, Keflavík. Eiginkona hans er Helga Ragnarsdóttir. Þau em að heiman í dag. Borgar Benediktsson, Eyrarbraut 14, Stokkseyri. Guðrún Magnúsdóttir, Hlaðbrekku 22, Kópavogi. Sigríður Ásgeirsdóttir, Grenigmnd 12, Akranesi. Páll Jakob Breiðaskarð, Austurvegi 13, ísafirði. Ketill Leósson, Hraimtjöm 4, Selfossi. Haukur Sigurðsson, Borgarh.braut 46, Kópavogi. 40 ára Gunnar Hafþór Eymarsson, Spóahólum 18, Reykjavík. Gunnar Hróðmarsson, Rekagranda 4, Reykjavík. Kristinn Eiðsson, Gyðufelli 6, Reykjavík. Jónas Clausen Axelsson, Rauðmýri 11, Akureyri. Jón Rúnar Halldórsson, Birkibergi 8, Hafiiarfirði. Kristín Kjartansdóttir, Goðahrauni 24, Vestm.eyjum. Hermann Sigurðsson, Hraunkoti II, Aðaldælahreppi. Auður Eiðsdóttir, Laugartúni 9, Svalb.str.hr. Haraldur Helgason, Múlalandi 14, ísafirði. Smáauglýsingar PV 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.