Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 Spurningin Hvaö finnst þér skemmti- legast í sjónvarpi? Sölvi Gylfason Flugleiðastarfs- maður: Ég horfi nú ekki mikið á sjónvarp. Það er helst að ég horfi á X-Files. Steinar Axelsson ellilífeyrisþegi: Fréttimar, af þeim missi ég aldrei. Annars horfi ég jöfnum höndum á Ríkissjónvarpið og Stöð 2. Hafþór Oddur Jóhannesson: íþróttir. Guðmundur Rúnar Kristjánsson nemi: Það eru Vinir á Stöð 2 og svo X-Files í Ríkissjónvarpinu. Haukur Sigurðsson nemi: X-Files. Ámi Leósson forstöðumaður: Ég horfi talsvert á sjónvarp og kvik- myndir eru í mestu uppáhaldi hjá mér. Lesendur Soldáninn þiggur veitingar Atlanta - íslenska ríkiö afþakkar Þorsteinn Einarsson skrifar: í viðskiptalífinu eru menn al- mennt þrumu lostnir yfir vinnu- brögðum Ríkiskaupa í sambandi við útboð á veitingarekstri í Leifsstöð. Flugleiðir áttu lægsta tilboðið og hrepptu hnossið en fyrirtækið sem átti hæsta gilda tilboðið og nefnist Flugeldhús Atlanta mátti éta það sem úti frýs. Með þessum ógeöfelldu viðskipta- háttum fær hin íjárvana Leifsstöð á næstu fimm árum í það minnsta 40 milljónum króna lægri tekjur frá Flugleiðum en hún hefði fengiö frá Flugeldhúsi Atlanta. Eftir að hafa hent 40 milijónum út um gluggann þýðir lítið fyrir yfirmenn Leifs- stöðvar að kveinka sér á opinberum vettvangi undan peningaskorti og rekstrarerfiðleikum. Ýmsar spurn- ingar vakna i þessu máli. Og þessar helstar: Er þetta enn einn óbeinn ríkisstyrkurinn til Flugleiða? Má ekkert annað fyrirtæki hasla sér vöil þama? Eiga skattborgarar Keflavíkurflugvöll eða eiga Flug- leiðir hann? Ég þarf að ferðast mikið starfsins vegna og hef því átt ófáar stundim- ar á hinum og þessum flugvöllum. Á undanfomum árum hefur orðið gjörbreyting á flestum völlum hvað varðar verslun og veitingasölu. Sumir flugvellir em hreinlega orðn- ir að litlum verslunarmiðstöðvum þar sem boðið er upp á glæsilega veitingastaði af ýmsum gerðum. - Þetta hefúr leitt tO lægra verðs og betri þjónustu. Á Keflavíkurflugvelli hefur ná- kvæmlega ekkert þessu líkt gerst. í kaffiteríuna á neðri hæð kemur helst enginn maður og uppi í brott- fararsalnum er verðlagið óheyri- legt. Þama, á sjálfu fríhafharsvæð- inu þar sem allt er tollfrjálst og skattfrjálst, kostar t.d. ein 33 cl. bjórflaska hvorki meira né minna en 290 krónur en aðeins 126 krónur hjá ÁTVR, einni illræmdustu okur- stofnun í viðri veröld. Matarkyns em boðnar veitingar í ætt við það sem fékkst í þjóðvegasjoppum hér fýrir nokkrum árum. Þama hefúr sem sé ríkt stöðnun og áhugaleysi. Kannski eðlilegt þar sem slíkur einokunarandi svífúr yfir vötn- unum. Vonameistinn sem kveiktur var með útboðum í Leifsstöð var slökktur með vinnubrögðum Ríkis- kaupa. í það minnsta varðandi veit- ingareksturinn. Ömurlegt hefúr verið að heyra forstjóra Ríkiskaupa afsaka vinnubrögðin og er helst að heyra að hann hafi smíðað einhver - bara ein- hver - rök til að geta réttlætt fýrir al- menningiáframhaldandi viðskipti við Flugleiðir. Það tapa allir á þessum viðskiptagjömingi. - Leifstöð fær minni tekjur, farþegar fá dýrari og verri þjónustu og Flugleiðir tapa al- menningsáhti. Stóriðja, umhverfi og ráðstefnur ráðamanna Sigurgeir Árnason skrifar: Núverandi umhverfisráðherra virðist þurfa að breyta lögum svo að hann geti réttlætt útgefið starfsleyfi sitt vegna álversins í Hvalfirði. Ein- hvem veginn finnst manni gjörðir hans vera þannig að hann sé andsnúinn umhverfismálunum. Umhverfisráðherra er því kominn í hina verstu klípu sem slíkur. Litlir fjármunir eru látnir af höndum rakna af ríkinu til að sækja ráðstefnur um umhverfismál erlendis. Virðist þurfa að fara krókaleiðir til þess. Steingrímur, flokksbróðir umhverfisráðherra, hefur sótt slíkar ráðstefnur. Hann á heiður skilið fyrir að hafa reynt að fýlgjast með umhverfismálum á al- þjóðlegum vettvangi. Og aðferð Steingrims er ekki frekar ámælis- verð en margar utanlandsferðir stjórnmálamanna almennt. - Ég vona að Steingrímur Hermannsson sjái sér fært að sækja áfram ráð- stefnur vegna umhverfismála og sé reiðubúinn til að greiða í sjóð þeim til styrktar ef stjómvöld hins auð- uga lands okkar vilja ekki sjá af fjármagni því til vemdar. Stal Mossad vegabréfunum? Ingvar skrifar: Bæði DV og Morgunblaðið hafa skýrt frá hinni misheppnuðu morð- árás ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad á einn forystumanna Palest- ínu, búsettan í Sýrlandi. Til þess að komast ljúflega yfir landamærin höfðu leyniþjónustumennimir kanadísk vegabréf sem leyniþjón- usta þeirra hafði falsað. Málið komst upp, varð ísraelsmönnum til skammar og Kanadamenn bmgðust að vonum ókvæða við. Gamall bragðarefúr í ísrael og sjálfur fyrrverandi hryðjuverka- maður og forsætisráðherra, Jassid Shamir, skýrði svo frá að hann hefði fyrir löngu bent ísraelsku leyniþjónustunni á að nota ekki vegabréf stórþjóða heldur ættu leyniþjónustumenn erlendis að starfa í skjóli smáþjóða og nota vegabréf þeirra. Ef illa til tækist gæti smáþjóðin ekki gert eins mik- inn alþjóðahvell úr málinu eins og stórþjóðin, enda minna mark tekiö á smáþjóðum. En umfram allt þarf leyniþjónustan helst (en það nefndi Shamir ekki) að útvega sér óútfýllt og ófölsuð vegabréf frá einhverri smáþjóð. Þótt þaö sé þrautin þyngri mætti nú samt alltaf reyna. Þetta leiðir hugann að því að í fyrra skýrðu blöð hér frá því að vega- bréfum hefði verið stolið frá íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og í ágúst sl. var sagt frá stuldi vegabréfa frá sendiráðinu í París. Þannig virð- ast sendiráðin ekki geyma óútfyllt vegabréf á tryggum stöðum. Það er ekki nóg með að alþjóðlegt glæpa- hyski gæti notað ófölsuð íslensk vega- bréf heldur gætu leyniþjónustur kom- ist yfir þessi vegabréf. Þaö myndi a.m.k. gleðja Shamir. Launakjörin ekki leyndarmál Alfreð skrifar: Margir fúrða sig á þeirri ósvíöii formanna nýju hlutafélagabank- anna að segjast ekki ætla að gefa upp launakjör bankastjóra sinna. Vita þessir menn ekki að banka- stjórar þessara nýstofiiuðu hluta- félagabanka eru enn á launum hjá mér og þér? Þetta eru enn ekkert annað en rikisbankar, hvað sem síðar verður. Eða hvaðan skyldu peningamir koma til rekstrarins? Frá mér og þér. Og því eru laun viðkomandi bankastjóra ekkert leyndarmál. Breiðafjarðar- ferjan Baldur Magnús hringdi: Maður heyrir að iagt sé að þing- mönnum Vesturlands og Vestfjarða að stuðla að því að leggja Breiða- fjarðarfeijunni Baldri og okkur hér vestra, t.d. á Patreksfirði og einnig í Hólminum og víðar, verði gert að nota bara vegina. Þessa líka „veg- ina“. En ætli hér búi bara ekki bingó að baki? Kannski risamir í sjóflutningunum sem vilja nú eyða síðustu möguleikum okkar til að komast sjóleiðina sem farþegar og með bílana okkar? Þetta er slæmt mál sem þarf að fýlgjast vel með. Mettekjur hjá sjómönnum Þórunn hringdi: Það þarf enginn að segja manni að sjómenn em með tekjuhæstu einstaklingum hinna vinnandi stétta hér á landi. Oft hefur verið í þetta vitnað með dæmum um bein- ar tekjur, sjómannaafsláttinn og önnur fríðindi. Nú les maður enn um mettekjur hásetanna á Mána- berginu frá Ólafsfirði. 800 þúsund krónur era það í þetta sinn eftir mánaðartúrinn. Gott það! Ég er ekki að öfundast út í mennina, bara að endurtaka og benda á þessa staðreynd með mettekjur sjómanna almennt. Minn maður hefúr há- skólapróf og nær ekki einum þriðja þessara tekna, þótt hann vinni hvem virkan dag langt fram á kvöld. - Og svo hyggjast sjómenn fara í hart vegna launanna!! Frábær dagur í álverinu Sjöfii skrifar: Ég átti þess kost sl. laugardag að fara boðin í álverið í Straumsvík í tilefni opnunar nýja kerskálans. Þessi uppákoma sýndist mér ein- kennast af stakri umhyggju og stjómunarhst forstjórans, Rann- veigar Rist. Allt var með eindæm- um fágað og einstaklega vel skipu- lagt. Allir gestimir, 1500 talsins, gátu t.d. setið á stólum sem hafði verið komið fýrir í salnum. Blóm- um og gjöfum sem fýrirtækinu bár- ust var raðað snyrtilega á borð til sýnis gestunum. Mér fannst allt bera þess vitni að þama heföi kona um höndlað. - Ég þakka fýrir frá- bæra dagstund í álverinu. Einkavæðum Ríkisútvarpið Bjami Valdimarsson skrifar: Fáum Elínu Hirst til að taka til í stofnuninni. Fréttir RÚV em eindæma lélegar. Sjónvarpið virð- ist undirlagt kvimyndagerðar- fólki sem fær vart vatni haldið út af dönskum bruggurum. Aldrei standast tímaáætlanir Sjónvarps. Þótt komið sé langt fram yfir timaáætlun má ekki sleppa sjálfs- hólinu eins og áðurtöldum dönsk- um gambragerðarmönnum. Rás eitt er lítið skámi; lélegar fféttir og þvoglumæli algengt, t.d. hjá Ævari Kjartanssyni, og óeðlileg þögn á eftir hvetju orði. - Háskóh íslands stendur engan veginn undir smjaðrinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.