Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 5 Fréttir AUsheijarstöðvun blasir við fiskiskipaflotanum: Vélstjórafélagið gæti klofnað - pattstaða um áramót, segir formaður LÍÚ „Vélstjórafélagið er að fara fram á breytingar á hefðbundnum hluta- skiptum sem gilt hafa hér í áratugi. Þeir kljúfa veiðiílotann og einstök fyrirtæki með þessari kröfugerð sinni. Það er algjörlega ljóst að við þessum kröfum verður ekki orðið og það veit formaður vélstjóra mjög vel,“ segir Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ís- lenskra útgerðarmanna, um verk- fallsboðun Vélstjórafélags íslands á hluta fiskiskipaflotans. Um er að ræða 79 fiskiskip með vélar af stærðinni 1500 kW og yfir. Talið er að kröfur vélstjóranna um hærri hlutaskipti leggi sig á 500 til 700 milljónir króna. Ef samsvarandi hækkanir gengju yfir alla í áhöfn- irni skipanna má reikna með að um sé að ræða launahækkanir á þriðja milljarð króna. Eins og DV greindi frá í gær er mikill vilji meðal út- gerðarmanna til að grípa til verk- banns á allan fiskiskipaflotann um áramót þegar verkfall vélstjóra skellur á. Heimildarmenn DV segja nánast formsatriði hjá útgerðar- mönnum að taka ákvörðun um verkbann. Kristján Ragnarsson vildi hvorki játa því né neita að LÍÚ ætlaði að grípa til slíkra að- gerða í fyrsta sinn i sögunni en sagðist vilja undirstrika alvöru verkfallsboðunar vélstjóra fyrir alla sjómannastéttina. „Þessari verkfallsboðun er allt eins beint gegn öðrum félögum um borð í sömu skipum. Forystumenn hinna sjómannasamtakanna segja mér að þeir ætli ekki að fylgja vél- stjórum í þetta verkfall þar sem þeir telja þessa aðgerð með ein- dæmum,“ segir hann. Kristján segist hafa heimildir fyrir því innan Vélstjórafélagsins að klofningur gæti orðið vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. „Komi til þessa verkfalls tekju- hæstu sjómanna á íslandi þá telja þeir vélstjórar sem ég hef rætt við að mjög nærri verði gengið Vél- stjórafélaginu varðandi klofning þess,“ segir Kristján. Hann segir málið vera óleysan- legt af hálfu útgerðarmanna sem ekki eigi neina kosti til að fyrir- byggja verkfall. -rt Þú verður að heyra B|..og þá heyrir hiil IJ g Ásamtþví að skila frábærum hljómgæðum er útlitshönnun hátalaranna framúrskarandi. Það er til lítils að vera með geislaspilara og flottar græjur ef hátalararnir skila ekki því hlutverki sem þeim er ætlað. Komdu við hjá okkur í Japis og við leyfum þér að heyra - það sem þú ættir að heyra. Gefðu gömlu græjunum þínum sjéns - verð á góðum hátölurum kemur á óvart! JAPISS -hljómar betur CELESTIOn BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 562 5200 Tilboð fyrir tvo 4 réttir á 990 kr. á mann Djúpsteiktar rækjur m/súrsætri sósu og val um þrjá af réttum dagsins. Hrísgrjón, soyasósa og prjónar fylgja. Þú getur borðað á staðnum eða tekið með heim. Opið alla daga frá kl. 11:30-22:00 Við notum ekki Þriðja kryddið -heilsunnar vegna. Gildir ekki í heimsendingu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.