Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997 9 Utlönd Lögregl u morði ngja leitað í Finnlandi Áköf leit fór fram í Finnlandi í gær aö manninum sem aðfaranótt miö- vikudagsins skaut til bana tvo lög- reglumenn í miðborg Helsinki. Lög- reglan telur að morðinginn hafi ver- ið einn að verki. Hann er um þrí- tugt og talar reiprennandi finnsku og ensku. Ekki er talið útilokað að um útlending sé að ræða. í gærkvöld kom ábending til lög- reglunnar frá tjaldstæði norðan við Gállivare í Svíþjóð um að lögreglu- morðinginn væri þar um slóðir. Tveir menn höfðu leitað þar að gist- ingu. Eiganda tjaldstæðisins þótti annar þeirra líkjast teikningunni sem finnska lögreglan hafði birt af morðingjanum. Mennimir töluðu bæði finnsku og ensku. Viðbúnaður er hjá lögreglunni í norðurhluta Svíþjóðar eftir tilkynn- inguna frá Gallivare og hafa nær- liggjandi héruð fengið viðvörun. Lögreglumennimir, sem vora skotnir til bana, höfðu verið að leita að þjófi sem hafði rænt fé og bund- ið næturvörð á Palace hótelinu í Helsinki við stól án þess þó að meiða hann. Lögreglumennimir höfðu ekki farið inn á hótelið held- ur bmgðist við þegar kail kom frá öryggisgæslufyrirtæki um ránið á hótelinu. Tíu mínútum eftir að kall- ið kom fundust lögreglumennimir skotnir til bana fyrir utan bíl sinn skammt frá hótelinu. Engin vitni vom að morðinu en ibúi í nágrenn- inu vaknaði við þrjú skot. Hann þaut út að glugga og sá mann hlaupa frá staðnum þar sem lög- reglumennimir lágu í blóði sínu. Stórir hlutar í suðurhluta Helsinki vom lokaðir af og lögreglan notaði þyrlu með ljósköstumm við leitina að morðingjanum. Talsverð röskun varð á umferð í borginni vegna leitarinnar en um áttaleytið í gærmorgun var umferðin orðin eðlileg. Finnska lögreglan telur að moröinginn sé mjög hættulegur, að því er greint er frá í sænska blaðinu Dagens Nyheter. Gaddafí fagn- ar Mandela og kallar dýrling Muammar Gaddafi Líbýuleiö- togi kallaði Nelson Mandela, for- seta Suður-Afríku, dýrling eftir fyrstu viðræður þeirra í Tripoli, höfuðborg Líbýu. Heimsókn Mandela til Gadda- fls hefur farið mjög fyrir brjóstið á bandarískum stjórnvöldum þar sem Sameinuðu þjóðimar hafa lýst yfir samskiptabanni við Lí- býu. Leiðtogarnir ræddust lengi við og ætla að hittast aftur. Mandela fékk höfðinglegar móttökur þegar hann kom ak- andi til Libýu frá Túnis. Þar beið hans mikiil fjöldi námsmanna sem fagnaði honum vel og stráði rósablöðumyfir hann og unnustu hans, Gröcu Machal. Blaðasalar í Kosice í Slóvakíu með fyrsta tölublað nýs síðdegisblaðs. Þeir eru með andlitsgrímur Vaclavs Havels, forseta Tékklands, og Vladimirs Meciars, forsætisráðherra Slóvakíu. Havel og Meciar hafa ekki hist síðan Tékkóslóvakíu var skipt í Tékkland og Slóvakíu árið 1993. Sfmamynd Reuter Aðalfundur Leigjendasamtakanna veröur haldinn í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10, Reykjavík, laugardaginn 25. okt. nk. kl. 15.00. Venjuleg aöalfundarstörf, húsaleigubætur. Stjórn Leigjendasamtakanna ELEY HAGLASKOT Hámarksgæði Lágmarksverð Sportvörugerðin, Mávahlíð 41, s. 562-8383 Puað á Blair á verðbréfaþingi Púað var á Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, þegar hann hætti sér út á gólf á verðbréfaþing- inu í London í gær. Yfirmenn þar sögðu þó að lætin hefðu aðeins ver- ið græskulaust gaman. Óánægjan, sem sumir verðbréfa- salar létu þannig í Ijós, þykir endur- spegla vonþrigði þeirra í garð stjómar Verkamannaflokksins og stefiiu hennar gagnvart sameigin- legri mynt Evrópusambandsins. Gordon Brown fjármálaráðherra lét að því liggja í vikunni að Bretar yrðu ekki með frá upphafi. Þrátt fyrir púið skemmti Blair sér prýðilega í heimsókninni í kauphöllina, að sögn aðstoðar- manna hans, og stjómarformaður kauphallarinnar var hæstánægöur. Tony Blair, forsætisráöherra Bret- lands, ánægöur í kauphöllinni. Símamynd Reuter Belgíski morðpresturinn: Lokaði tvær systur inni Tvær ungverskar systur skýrðu frá því í gær að þær hefðu verið lok- aðar inni í heila viku hjá belgíska prestinum Andras Pandy, sem grun- aður er um að hafa myrt fyrrum eig- inkonur sínar tvær og fjórar dætur, aðeins nokkrum vikum áöur en hann var handtekinn. „Hann kom vel fram við okkur en okkur finnst samt sem við höfúm verið heimtar úr helju,“ sagði hin 49 ára gamla Eva Kincs. Presturinn, sem er af ungversk- um ættum, hafði gert hosur sínar grænar fyrir annarri systurinni í 18 mánuði og þáðu þær þoð hans um að heimsækja hann í Brussel. Belgíska lögreglan hefúr fúndið nokkur bein við leit í þremur hús- um klerks. Þá hefúr lögreglan fund- ið kjötstykki í ísskápum en ekki er vitað af hveiju kjötið er. Reuter Olafur F. Magnússoiiyf læknir Starfandi heimilislæknir í Reykjavík í 12 ár. Reynsla sem varaborgarfulltrúi í 7 ár. sætið Helstu baráttumái: ✓ UMFERÐARÖRYGGI ✓ UMHVERFISVERND ✓ VELFERÐ ALDRAÐRA ✓ FJÖLSKYLDAN í ÖNDVEGI Öflugur málsvari betra mannlífs Kosningaskrifstofa Ólafs F. Magnússonar er við Lækjartorg. Opið alla daga kl. 14-22. Símar 561 3160 og 561 3173. Prófkjör Sjálfstæðisfiokksins 24. og 25. október 1997

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.