Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Síða 18
26
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
Iþróttir
NBA-DEILDIN
Undirbúningur liða fyrir keppni
í NBA-deildinni stendur nú sem
hæst. Liðin hafa leikið drjúgt
innbyrðis að undanfömu en al-
varan í NBA hefst 31. október.
í fyrrinótt fóru fram sjö leikir og
urðu úrslit í þeim eftirfarandi.
Boston-Orlando ...........99-96
Walker 30, Mills 19, Mercher 13 -
Hardaway 25, Grant 16, Harper 10.
Indiana-Charlotte.........95-83
Hoiberg 18, Davis 16, Mullin 15 - Rice
19, Geiger 13, Williams 10.
Minnesota-Milwaukee . . . 90-101
Carr 18. Marburry 17, Mitchell 15 -
Brandon 17, Johnson 15, Hill 13.
Denver-LA Lakers ........101-91
Williams 18, Jackson 18, Newman 17
- Campbell 15, Bryant 15, Blount 11.
Dallas-Houston...........97-106
Bradley 27, Reeves 19, Green 16 - Ma-
brey 14, Rhodes 12, Johnson 12.
Atalanta- LA Clippers .... 79-90
Smith 18, Cobin 17, Leattner 11 -
Wright 16, Barry 15, Piatkowski 14.
Portland-Golden State .. . 88-107
Wallace 17, Grant 14, O’Neal 14 -
Sprewell 24. Marhsall 19.
Flestir hallast að því að Chicago
vinni titlinn þriðja árið í röð. Það er
þó hald manna að það verði aldrei
eins erfitt og núna að vetja titilinn.
Deildin verði sem sagt jafnari en hún
hefur verið oft áður.
Fréttir bárust frá Chicago í gær um
að óvist væri hvort Dennis Rodman
yrði áfram í herbúðum Chicago
Bulls. Það kemur i Ijós síðar i vik-
unni hvort hann endurnýjar samning
til eins árs.
INGLAND
Titringur er upp kominn i herbúð-
um Liverpool eftir slæmt gengi að
undanfómu. Á laugardaginn var tap-
aði liðið fyrir Everton og í fyrrakvöld
stórt fyrir Strassborg í Evrópukeppn-
inni. Vömin er mikill höfuðverkur
og hafa sumir úr henni fengið harða
gagnrýni.
í ensku pressunni í gær mátti lesa
að Roy Evans knattspymustjóri ætti
undir högg að sækja og hann væri í
raun orðinn valtur í sessi. Liðið er i
9. sæti í úrvalsdeildinni og em ráða-
menn ekki ánægöir
með þá stööu.
Sögusagnir voru á
kreiki i Englandi í
gær aö Newcastle
væri á höttunum á eft-
ir Paul Gasgoigne en
hann lék á sínum með iiðinu. Um-
boðsmaður hans kom fram og sagði
að engin fótur væri fyrir þessum
vangaveltum. Eftir allt saman verð-
ur hann líklega áfram hjá Glasgow
Rangers.
Ian Bishop er sagður á leiðinni tii
Bamsley. West Ham er tilbúiö að láta
„biskupinn" fara og er kaupverðið
400 þúsund fyrir þennan 32 ára leik-
mann.
Henry Redknapp, knattspymustjóri
West Ham, segist gera aUt til að halda
liðinu við toppinn. Hann hefur þegar
gengið frá kaupum á franska leik-
manninum Semassi Abou frá Cannes
fyrir 42 milljónir kr. Frakkinn gengst
undir læknisskoðun á morgun.
Lið Chelsea flaug úr sólinni 1 gær í
London en lenti síðan i Tromsö i
kulda. í vikunni snjóaði lítilega í
Tromsfylki og var gripið til þess ráðs
að breiða dúk yfir Alfheim-stadion til
til vamar fyrir snjó og kulda.
Leikmenn enska liðsins er flestir
ákveðnir í að leika i síöbuxum. Tore
Andre Flo, sem keyptur var til
Cheslea fyrir tímabilið frá Tromsö,
var búinn að segja félögum sínum að
allra veðra væri von svona
norðarlega.
Enn einn knattspyrnumaðurinn farinn utan:
Pétur Björn skrifar
undir hjá Hammarby
DV, Ólafsfirði:
Nú liggur þaö orðiö ljóst fyrir að Pétur Björn Jónsson
er á fórum frá Leiftri á Ólafsfirði til sænska
úrvalsdeildarliðsins Hammarby. Pétur Bjöm hélt utan
til Svíþjóðar strax eftir að íslandsmótinu lauk og æfði
með liðinu. Mönnum þar á bæ mun hafa litist svo vel á
leikmanninn að þeir gerði Leiftri tilboð um síðustu
helgi, tilboði sem Leiftur hefur þegar tekið. Pétur var
annars samningsbundinn Leiftri til aldamóta.
Hammarby endurheimti sæti í úrvalsdeildinni á
dögunum en liðið féll fyrir tveimur árum síðan.
Pétur Bjöm hefur spilað með Leiftri undanfarin sex
ár. Nú mun hann hins vegar leika við hlið gamals
æskufélaga síns, Péturs Hafliða Marteinssonar, en þeir
léku einmitt saman í Leiftri fyrir nokkram árum og þá
undir stjóm Marteins Geirssonar.
Þess má og geta að Auðun Helgason, vamarmaðurinn
sterki úr Leiftri, hefur líka dvalið hjá Hammarby á
síðustu dögum. Hann hefúr hins vegar ákveðið að leika
með Leiftri næsta sumar, enda samningsbundinn
félaginu.
Leiftursmaðurinn Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson
dvelur þessa dagana hjá Shefíield United. Ekki er víst að
hann verði áfram í herbúðum Leifturs á næsta tímabili
en félög hér innan lands hafa einnig verið að bera
víumar í þennan snjalla leikmann. -JKS/HJ
Pétur Björn Jónsson reynir fyrir sér í sænsku
knattspyrnunni á næsta tleikímabili.
Bréf frá handknattleiksdeild HK:
Þetta á ekki að sjást
Undirritaður sér sig knúinn til
að senda frá sér þessa grein vegna
umfjöllunnar um ólæti sem áttu
sér stað i HK-húsinu eftir leik HK
og KA 15. október sl. Til ryskinga
kom milli stuðningsmanna HK og
stuðningsmanna KA, sem betur fer
var þetta ekki alvarleg átök en
samt viðkomandi aðilum til
skammar, bæði stuðningsmönnum
HK þar sem um unglinga var.að
ræða og einnig stuðningsmönnum
KA þar sem um var að ræða full-
orðið fólk. Hver var kveikjan að
þessari uppákomu veit ég ekki
enda fer tvennum sögum af því, og
kannski ekki aðalatriöið, heldur
hitt að svona á ekki að sjást á leikj-
um. Ekki hvarflar að mér að taka
upp hanskann fyrir okkar stuðn-
ingsmenn í þessu máli, enda er
búið að taka á þessu máli hjá okk-
ur og refsa viðkomandi. Ekki má
heldur gleyma að í tilfellum sem
þessum þarf alltaf tvo til. Viðkom-
andi einstaklingar, þ.e.a.s. stuðn-
ingsmenn HK, era búnir að fylgja
liðinu á alla leiki undanfarin ár og
hefur aldrei neitt líkt þessu komið
upp á fyrr.
Varðandi fréttaflutning þann
sem orðið hefur af þessu máli var
mér farið að ofbjóða, þar sem bein-
línis var um rangfærslur að ræða.
Hvaðan þessar upplýsingar eru
komnar veit ég ekki, allavega hef-
ur ekki verið haft samband við HK
varðandi þetta mál. Ákaflega á ég
bágt með að trúa að viðkomandi
stuðningsmenn KA hafi látið hafa
þetta eftir sér. Staðreyndir í máli
þessu eru þessar: Eftir að búið var
að stilla til friðar á áhorfendapöU-
um fór einn okkar manna með
stuðningsmönnum KA út úr hús-
inu tU að ræða við viökomandi ein-
staklinga frá okkur vegna máls
þessa og héldum við að þar hefði
málið verið útkljáð með afsökunar-
beiðnum. Eftir það var viðkomandi
stuðningsmönnum KA boðið í kaffi
í félagsaðstöðu okkar sem þeir og
þáðu ásamt leikmönnum beggja
liða og stuðningsmönnum HK.
Ákaflega vel fór á með mönnum
þama eins og ætíð mUli þessara fé-
laga.
Ég vU fyrir hönd HK enn og eft-
ur biðjast afsökunar á atviki þessu
sem ekki á að sjást á kappleikjum,
en ítreka jafnframt að það þarf
aUtaf tvo tU.
Að lokum vonast ég tU að frétta-
flutningi af þessu máli sé lokið. Ég
óska KA aUs hins besta með von
um að mál þetta setji ekki mark
sitt á annars ánægjuleg samskipti
þessara félaga.
Rögnvaldur Guðmundsson,
formaður handknattleiksdeildar
HK.
HREiN URSLIT A SUNNUDAGINN
2 S 0 0 0 ■
S 2 0 Mfe 10 10 1
• 0 0 ArymmWm 30 10 1
2 e 14 arniMmM 30 0 ■
1 10 34 UðnM 20 0 ■
4 3 27 ^. . Æ . cpnv 30 10 1
1 10 37 Kmrnde 30 0 ■
1 10 47 namm 33 3 4
• 0 47 — ■ cnffmwj 43 10 1
2 0 03 Þfáaknd 43 0 •
4 3 00 ■■ —■ u#wpni S3 10 1
1 10 00 BtU* 66 2 6
6 1 07 He 67 2 6
6 1 00 AuUuMU 07 10 1
■ 0 00 Ubcmbag 77 10 1
1 10 78 19 2 6
Handknattleikur:
Ekkert lát á
sigurgöngu
St. Otmar
Júlíus Jónasson og félagar i
svissneska handknatUeiksliðinu
St. Otmar gefa
ekkert eftir i
toppbaráttunni
þar í landi. í
gærkvöld sigr-
aði St. Otmar lið
Zofingen á úti-
veUi, 26-33, eftir
að hafa verið með forustu í hálf-
leik, 17-13.
Júlíus Jónasson skoraði fimm
mörk í leiknum en markahæstur
var Daninn Rasmussen með tíu
mörk. Að loknum 6 umferðum er
St. Otmar í efsta sæti með 12,
sem sagt fuUt hús stiga.
-JKS
Borðtennis:
Guðmundur
gerir það gott
Danska borðtennisliðið OB
Odense, sem Guðmundur Steph-
ensen leikur með, sigraði Bröns-
höj í deUda-
keppninni, 8-2.
Guðmundur lék
að vanda vel fyr-
ir liðið sitt, sigr-
aði í tveimur
leikjum og í tví-
liðaleik. Þegar
sex umferðum
er lokið í deUdinni er OB Oden-
se í öðm sæti úrvalsdeUdar.
-JKS
EM kvennalandsliða:
HSÍ vill leika
í Reykjavik
Handknattleikssamband Evr-
ópu hefur ákveðið að leikimir
tveir mUli Búlgaríu og íslands í
forkeppni fyrir riðlakeppni Evr-
ópurúóts kvennalandsliða i
handknattleik fari báðir fram í
Búlgaríu. Fyrirhuguð forkeppni
átti að spUast í Soflu en fyrst As-
erbaídsjan dró þátttöku sína tU
baka finnst HSÍ sanngjamast að
leikimir við Búlgaríu fari fram
heima og heiman.
„Við höfum komið á fram mót-
mælum við evrópska handbolta-
sambandið og væntum svara við
þeim í lok vikunnar," sagði Öm
Magnússon, framkvæmdastjóri
HSÍ, í samtali við DV. Telja verð-
ur ólíklegt að Evrópusambandið
breyti ákvöröun sinni.
-JKS
Kínaleikarnir:
Heimsmetin
ekki rannsökuð
Alþjóða sundsambandið
(FINA) tók gær fyrir óskir frá
ýmsum aðilum að sambandið
hlutist tU um að rannsaka
heimsmetin sem sett hafa verið
á Kínaleikunum sem nú stand.
í tilkynningu frá alþjóðasam-
bandinu segir að það sé ekki æU-
un þess að rannsaka metin. Ár-
angur sundmanna sem og ann-
arra íþróttamanna á Kínaleikun-
um hefur þótt ótrúlegur. Kin-
verskir sundmenn voru afar
slakir á Ólympíuleikunum í
Atianta í fyrra en núna koma
þeir fram í sviðsljósið með tvö
heimsmet og stórbættan árangur
í mörgum greinum. TU marks
um það bætti Chen Yan 13 ára
gamalt heimsmet í 400 metra
fjórsundi um eina og hálfa sek-
úndu. -JKS