Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 24
32
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
Sviðsljós
Stallone vill
nýja ímynd
Vöövafjallið (vit?)granna Sylv-
ester Stallone vill að sín verði
minnst sem einhvers annars og
meira en bara Rocky og Rambo.
Þess vegna hefur leikarinn nú
fengið til liðs við sig umboðsfyr-
irtæki. Sly, eins og hann er kall-
aður, hafði þá ekki verið með
umba í mörg ár. Nú þykir ekki
veita af.
I>V
Sænskir ljósmyndarar:
Hneykslaðir á frekju
Kryddstelpnanna
Sænska pressan á ekki orð yfir
heimtufrekju Kryddstelpnanna.
Þær eru væntanlegar til Stokk-
hólms í dag þar sem þær munu
syngja í sænska sjónvarpinu í til-
efni söfnunar fyrir bágstödd böm
víðs vegar um heiminn. Kryddstelp-
umar hafa boðað til fundar með
fréttamönnum í Stokkhólmi en
heimta að fá aðgang að filmunum af
þeim myndum sem teknar verða.
Hljómsveitin fer einnig fram á að
nota myndir blaðaljósmyndaranna í
eigin tilgangi.
Þegar hljómsveitin Oasis kom til
Svíþjóðar í september setti hún
fram svipaðar kröfur. Piltamir í
Oasis vildu takmarka hversu oft
myndimar yröu notaðar og jafn-
framt takmarka sölu á myndunum.
Nokkur stærstu dagblaðanna i Sví-
þjóð ætla ekki að verða við kröfú
Kryddstelpnanna.
Ljósmyndaramir ætla ekki að láta
frá sér höfundarrétt sinn. Þeir ætla
ekki að mæta á fréttamannafund
Kryddstelpnanna en ráðgera að
taka eins margar myndir og þeir
geta þegar þær ganga inn og út af
fundinum.
Fullyrt er að Kryddstelpunum
verði bannað að fara út á lífið á
meðan þær dvelja í Stokkhólmi.
Umboðsmaðurinn sér til þess að
þær haldi sig inni á hótelherbergj-
unum. Hann segir þeim hvenær
tími er kominn til að fara í háttinn,
að því er sænska blaðið Aftonbladet
skrifar.
Ef píunum leiðist geta þær að
minnsta kosti pantað uppáhalds-
matinn sem sagður er vera
kjúklingur, hrisgrjón og grænmeti.
Og með þessu drekka þær mikið af
vatni eða kóladrykk.
Síðast þegar Kryddstelpumar voru
í Stokkhólmi fengu þær sér pitsu
þegar þær fóra út að borða. Það er
sem sé ekki erfitt að gera þeim til
hæfis þegar matur er annars vegar.
Frá Stokkhólmi halda Kryddstelp-
urnar til Kölnar i Þýskalandi. Þar
Kryddstelpurnar heimta að fá að nota myndir, sem teknar verða á fundi með ætla þær að halda tónleika á laugar-
fréttamönnum í Stokkhólmi, að eigin vild. Símamynd Reuter daginn.
DV birtir hann f Fjörkálfinum á föstudögum. Bylgjan spilar hann á fimmtudagskvöldum. Póra
Dungal kynnir hann á Stöð 2 á föstudagskvöldum og Coca Cola gefur tóninn!
Þu getur valið
Almenningur getur hringt í síma
550 0044 og tekið þátt í vali listans.
í tónlistargetraun íslenska listans í
síma 904 1111 (39,90 mín.)
vinna fimm heppnir plötuna
„Portishead" með Portishead.
www.topp40.is
Kvikmyndaleikarinn Richard Gere kemur hér ásamt vinkonu sinni, Carey
Lowell, á frumsýningu í New York á myndinni Red Corner. Gere leikur í
myndinni sem Jon Avnet leikstýrir. Sfmamynd Reuter
Elton John skrifar
æviminningar sínar
Árin era farin að færast yfír
breska skallapopparann Elton John.
Órækasti vitnisburðurinn um það
er að nú hefúr hann ákveðið að rita
æviminningar sínar.
„Ég hef oft verið spurður að þessu
en það hefur aldrei verið rétti tím-
inn,“ sagði Elton í vikunni.
Popparinn verður ekki einn við
skriftimar því hann mun fá dygga
aðstoð Ingrid Sischy. Hún er aðalrit-
stjóri tímaritsins Interview. Til
stendur að bókin komi á markaðinn
næsta haust.
„Ég varð fimmtugur í ár og ég
hélt einnig upp á þrjátíu ára sam-
starf við textahöfundinn Bemie
Taupin. Það og aðrir merkisáfang-
ar, bæði í starfinu og einkalífmu,
hafa hins vegar orðið til þess að ég
tel að rétti tíminn sé nú loksins
korninn," sagði Elton John.