Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Side 28
36
FMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
JíSfeönn
Afleiðingar
öfganna
„Öfgamenn um bindindi hafa
stjórnað opinberri áfengisstefnu
hér á landi alla öldina með þeim
árangri að íslenskt ölæði á al-
mannafæri er orðið heimsfrægt."
Guðmundur Andri Thorsson rit-
höfundur, í Degi.
Ég er ákaflega hissa...
„Ég er ákaflega hissa á því að
nokkur prestur skuli láta sér
koma til hugar að bera vitni í
máli um hluti sem hann verður
áskynja við skriftir."
Sr. Geir Waage, í Degi.
Gerði það sem
samviskan sagði mér
„Ég hefði getað þverskallast,
brotið lög og verið dæmdur fyrir
það. En samviska mín sagði mér
að mér bæri að bera vitni að und-
angengnum dómi þar um.“
Sr. Jón A. Baldvinsson, í Degi.
Ummæli
Áttalausir
stjórnmálamenn
„Menn tala í norður, hugsa í
suður og vinna í austur."
Konráð Eggertsson hrefnuveiði-
maður um hvalveiðistefnu ís-
lenskra stjórnvalda, í DV.
Reggae on lce skemmta á Gauki
á Stöng í kvöld.
Reggae á
Gauknum
Hin vinsæla hljómsveit Reggae
on Ice skemmtir á Gauki á Stöng
í kvöld. Annað kvöld mætir svo
til leiks Moonboots og verður á
Gauknum tvö kvöld.
Café Amsterdam
í kvöld mun trúbadorinn Ein-
ar Jónsson skemmta gestum á
Café Amsterdam. Papar munu
svo leika á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Kringlukráin
Hljómsveitin í hvitum sokkum
skemmtir í aðalsal Kringlukrár-
innar í kvöld frá kl. 22 til 1. í
hljómsveitinni eru Guðmundur
Rúnar Lúðvíksson og Hlöðver
Guðnason og Qytja þeir tónlist af
öllu tagi, einkum þó í anda síð-
asta áratugar.
Skemmtanir
Fógetinn
Tveir góðir saman, Maggi Ein-
ars og Tommi Tomm, skemmta á
Fógetanum í kvöld. Á morgun
mun trúbadorinn Bjami Tryggva
skemmta gestum.
írland
í kvöld verður á írlandi írsk
tónlist með Ken Hennigan. Á
morgun skemmtir svo
Eurovision- sigurvegarinn Paul
Harrington.
Stofnvísitala rjúpu á Norðausturlandi, í Hrísey og á Kvískerjum. Talningar á
Kvískerjum spanna tímabiliö 1963-1997, í Hrísey 1963- 1976 og 1983-1997
og á Noröausturlandi 1981-1997.
Ástand
rjúpna-
stofnsins
íslenski rjúpnastofninn sveiflast
mikið og um tíu ár hafa verið á
miUi toppa. Síðasta hámark var
1986, síðan fækkaði ár frá ári og lág-
Umhverfi
mark var á árunum 1991-1994.
Vortalningar hafa sýnt að stofn-
breytingar voru samstiga um aUt
land á 7. og 8. áratugnum en síðustu
15 ár hefur samsvörunin ekki verið
eins góð. Þannig hafa stofnbreyting-
ar á Kvískerjum á Suðausturlandi
verið tveimur árum á undan því
sem er á Norðurlandi og á tveimur
talningarsvæðum vestanlands hefur
verið fækkun síðustu ár meðan
aukning hefur verið annars staðar.
Jón M. Arason, formaður Samtaka um þjóðareign:
Ólgan í þjóð-
félaginu er mikil
„Þetta hefur gengið mjög vel. Við
höfum orðið að hægja aðeins á okk-
ur til að ná utan um þetta allt sam-
an. Samtökin uxu hraðar en við
reiknuðum með. Við erum á leið-
inni til isafjarðar þar sem við mun-
um kynna samtökin og halda fund
um málið,“ segir Jón M. Arason,
skipstjóri í Þorlákshöfn, sem er for-
maður Samtaka um þjóðareign,
samtök sem stofnuð voru fyrir
stuttu.
Jón segist hafa fundið mikinn
meðbyr: „Ólgan er búin að vera
lengi í þjóðfélaginu. Sjálfum fannst
mér sem óréttlætið hrópaði á mig.
Ég var farinn að velta því alvarlega
fyrir mér hver ætti í rauninni þjóö-
areignina, því ég fann mjög fyrir
því sem sjómaður hver þróunin var
að verða, þannig að það var aldrei
spuming um að taka þátt í stofnun
samtakanna."
Framundan er mikið starf segir
Jón: „Það er ætlunin að funda um
allt land og stofna til vinnuhópa
sem munu meðal annars koma með
nýjar tillögur því það hefur alltaf
verið sagt að ekki hafi verið bent á
neitt betra, við munum aftur á móti
koma með tillögur sem eru sann-
gjamari."
Jón sagði að ekki væri stefnt að
neinum heildarfjölda meðlima í
samtökunum: „Við vorum að láta
okkur detta í hug að félagar gætu
verið orðnir tíu þúsund fyrir vorið
og ég held að það ætti að geta geng-
ið eftir. En það
tekur tíma að
koma þessu til
fólksins, fjölmiðl-
ar eru orðnir svo
margir og mér
frnnst erfiðara að
ná til fólks nú en
áður, allar þessar
útverpsstöðvar,
gervihnattasjón-
varp með fjölda
rásum, allt þetta
tekur sinn toll af
athygli fólksins."
Jón var spurð-
ur um tillögur
um veiðileyfa-
gjald: „Þær era
ekki komnar úr
okkar herbúðum,
enda yrði gjaldið
til að festa kvót-
ann og áfram
væri það sjómað-
urinn á dekkinu
og fiskvinnslu-
konan sem borguðu. Samtökin sem
slik hafa ekki tekið neina afstöðu,
enda er það ekki okkar hlutverk,
heldur erum við að safna saman
fólki sem vill fá að vita hver á auð-
lindina. Það stendur skýrum stöfum
í lögum um stjóm fiskveiða að fisk-
urinn megi ekki safnast á fárra
manna hendur, síðan era það þing-
menn, sem eiga að gæta okkar hags-
muna, sem keyra þetta eins og þessi
klásúla sé ekki
til. Þetta er allt
með ólíkindum
þegar haft er í
huga að við
búum við lýð-
ræði.“
Jón er sjómaður
og starf hans fyr-
ir samtökin
hljóta að taka
hann frá sinni
vinnu: „Það vill
nú svo til að við
voram að stand-
setja bátinn og
voram í landi.
Nú erum við hins
vegar komnir á
sjó og famir að
róa þannig að
það verður erfið-
ara að losna, en
það koma alltaf
dagar og dagar
sem maður er í
landi."
Jón rekur sextíu tonna bát, Sæ-
ljós, og hefur verið með þann bát í
um eitt ár. Hann sagði að þegar
hann losnaði frá sjónum þá snerist
áhugi hans einkum að fjölskyld-
unni: „Þegar tími gefst til þá tek ég
dag og dag í veiði eða gríp hagla-
byssu og gái að rjúpu." Eiginkona
Jóns er Guðrún Sigurðardóttir og
eiga þau eitt bam saman. Jón á tvö
böm fyrir. -HK
Jón M. Arason.
Maður dagsins
Myndgátan
Græðir á tá og fingri Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn.
Ámi Pétur Guðjónsson og Pór-
hallur Gunnarsson í hlutverkum
leikaranna.
Ástarsaga 3
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins Ástarsögu 3 eftir Kristínu
Ómarsdóttur. Ástarsaga 3 er um
tvo vini, leikara, sem leika saman í
leikriti um tvo homma sem eiga
stefnumót í Öskjuhlíðinni. Milli
ástarfunda er brugðið upp mynd-
um úr búningsherbergjum leikar-
anna og skyggnst inn í einkalíf
þeirra og fórðunarmeistarans sem
er ekki allur þar sem hann er séð-
ur...
Þrír leikarar eru í verkinu: Árni
Pétur Guðjónsson, Þorsteinn Gunn-
arsson og Þórhallur Gimnarsson.
Leikstjóri er Auður Bjamadóttir.
Leikhús
Kómedía ópus 1
í kvöld verður í Möguleikhús-
inu sýning á gamanleiknum
Kómedía ópus 1 sem er fyrsta upp-
færsla nýstofhaðs leiklistardúós
sem nefnist Kómedíuleikhúsið.
Verkið er árangur samstarfs félag-
anna Elfars Loga Hannessonar og
Róberts Snorrasonar en þeir út-
skrifuðust frá leiklistarskóla í
Kaupmannahöfn í vor.
Bridge
Fjölmargir bridgespilarar kann-
ast orðið við OKBridge, sem hægt er
að spila á Netinu. Þeir sem spila
OKBridge geta sest niður við tölvu
sína (ef hún er nettengd) og efnt til
spilamennsku við aðra nettengda
spilara hvar sem er í heiminum.
OKBridge hefur náð mikilli út-
breiðslu og nýverið var hleypt af
stokkunum áskorendakeppni á OK-
Bridge, sem styrkt er af tímaritinu
Bridge Today og OKBridge. Áskor-
endakeppnin heitir Goldway Chal-
lenge og gengur út á það að spilarar
fá að skora á hina frægu spilara,
Paul Soloway og Bobby Goldman.
Hér er eitt spil úr fyrstu Goldway-
keppninni en áskorendurnir vora
þar Mike Passell og Michael
Seamon. Soloway var þar óheppinn
með spilamennskuna í 4 hjörtum.
Sagnir gengu þannig, austur gjafari
og enginn á hættu:
4 KG5
44 Á108532
♦ 2
4 G54
4 3
4* G964
4 K10976
4 832
4 Á1087
4» D7
♦ ÁD8
4 Á976
Austur Suður Vestur Norður
Passell Goldman Seamon Soloway
pass 1 grand pass 4 4
dobl 4 «4 p/h
Fjögurra tígla sögn Seamons var
yfirfærsla í hjarta og dobl Passells
var ábending um útspil. Vestur spU-
aði því út tígli í stað laufs í upphafi
og útlitið var bjart fyrir sagnhcifa.
Þar sem líklegt var að dobl austurs
lofaði lengd í tígli ákvað Soloway að
spUa vestur upp á lengd í hjarta.
Þess vegna spUaði hann hjarta-
drottningu í öðram slag og drap
kóng vesturs á ás. Hann hefði getað
unnið spUið ef hann hefði nú spUað
lágu trompi og fúndiö spaðadrottn-
inguna hjá vestri en hann spUaði
næst spaða á ás og síðan litlu hjarta
að blindum. PasseU spUaði laufi tU
baka og Soloway gat ekki komið í
veg fyrir að austur fengi síðar
stimgu í spaða. Soloman og Gold-
way unnu viðureignina við PasseU-
Seamon með litlum mun.
ísak Örn Sigurðsson
4 D9642
4* K
4 G543
4 KD10