Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Side 32
Fjölai
Vinningar vinninga Vinningsupphœð
32.130.000
2.s aþ6
99.810
62.740
4 aí 6
1.820
273
3 qg 1.210
170
Heildarvinningsupphœð
97.805.500
Á í&landi
> o
Q
Q<=
so
'Q
2 Ln
<
C/3 o
H<=
w
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Gagntilboð kennara:
Okkar
' ýtrasta
Kennarasamtökin settu í gær-
kvöldi fram gagntilboð við launatil-
boð sveitarfélaganna. Kennarar
slaka nokkuð á kröfum sínum og er
tilboð þeirra metið til um 40% launa-
hækkunar í stað 57% áður. Þar hef-
ur því heldur gengið saman með
deiluaðilum því tilboð sveitarfélag-
anna hljóðaði upp á 27,7% hækkun.
Þeir fara fram á að byrjunarlaun
hækki frá og með 1. ágúst sl. í 91.202
krónur og verði við lok samninga-
tímahilsins, 1. október árið 2000,
komin upp í 114.281 krónur.
„Þetta er lagt fram undir þeim for-
' Ámerkjum að það sé verið að afstýra
verkfalli og að þetta sé okkar ýtrasta
teygja," segir Eiríkur Jónsson.
Tilboð kennara fellur niður semj-
ist ekki fyrir verkfall og þeir munu
þá halda fast við fyrri kröfugerð
sína. Tilboði sveitarfélaga eru gerð
skil á bls.4. -Sól
Forstjóri ÍS:
> Höldum
okkar striki
- í Gelmersmálinu
„Við erum bara að vinna í kaup-
unum á Gelmer eins og vera ber.
Við látum ekkert trttfla okkar
vinnu," sagði Benedikt Sveinsson,
forstjóri íslenskra sjávarafurða,
þegar DV ræddi við hann í morgun
þar sem hann var á leið frá Bou-
logne til Parísar ásamt Höskuldi
Ásgeirssyni fjármálastjóra. Þeir fé-
lagar eru ytra til að ganga frá kaup-
um á franska fyrirtækinu Gelmer.
SH hefur nú stefnt eigendum
^i^franska fyrirtækisins fyrir samn-
ingsrofs og tvísölu. Morgunblaðið
segir frá því í dag að frönsku selj-.
endurnir verði kallaðir fyrir Versl-
unarréttinn í París eftir viku. Bene-
dikt segir þetta ekki valda sér
áhyggjum.
„Við höldum bara okkar striki,“
segir Benedikt. -rt
Tveir í haldi
Tveir menn gista fangageymslur
lögreglunnar í Reykjavik eftir að
þeir voru staðnir að innbroti í Aust-
urstræti í morgun. Þeir höfðu
i i»i»spennt upp hurð að ferðaskrifstofu
en höfðu ekki náð að stela neinu
þegar þeir voru gómaðir. -sv
Herbalife á íslandi:
„safhaðarti]flnningu“ meðal sam-
komugesta.
„Menn hafa vitanlega haft
áhyggjur af skruminu og því að
verið sé að hafa fólk að féþúfu og
það hlýtur að teljast slæmt þegar
menntaöir einstaklingar eru i far-
arbroddi. Við höfum til þessa átt
erfitt með að fjalla um þetta að ein-
hverju viti, vegna þess að vörurn-
ar eru fluttar inn og seldar neðan-
jarðar og koma hvorki fyrir augu
tollyfirvalda né annarra yfirvalda,
eins og kemur fram í DV.
Okkar viðbrögð við umfjöllun
Dagblaðsins eru þau að leita eftir
því viö bæði toflyfirvöld og lög-
regluyfirvöld að þessi innflutning-
ur og sala verði hvort tveggja
rannsakað," sagði Einar Magnús-
son, skrifstofustjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu. -SÁ
Opinber rannsókn á innflutn-
ingi og sölu á Herbalife-vörum er
hafin. Rannsóknin nær til bæði til
innflutnings vamingsins, sem að
mestu virðist koma inn í landið
fram hjá tollyflrvöldum og til sölu
hans sem fer fram neðanjarðar og
kemur því aldrei til neins konar
skattaskila. Einar Magnússon,
skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu, staðfesti þetta í samtali
við DV í gær og að rannsóknin
hefði hafist fyrir frumkvæði DV.
„Það er mat heilbrigðisráðu-
neytisins að úttekt Dagblaðsins sé
mjög góð og þörf. Blaðið hefur
kannað þetta mál mjög vel og
ráðuneytið er þakklátt fyrir um-
fjöllun þess,“ sagði Einar Magnús-
son við DV.
Einar segir að ráðuneytið hafi
að undanförnu fylgst vel með
markaðssetn-
ingu Herhali-
fe í öðrum
löndum og
hafi lengi
vitað um þær
áhyggjur sem
heilbrigðisyf-
irvöld við-
komandi
landa hafi af
útbreiðslu þess-
ara vara, sem
markaðssettar
eru hvarvetna
utan hefðbundins
verslunar- og vöru-
dreifingarkerfis.
Hann segir að er-
lend heilbrigðisyfirvöld
hafi sérstaklega varað
íslendinga við þvi hvem-
ig Herbalife vörur em mark-
aðssettar, en það sé í höfuð-
dráttum þannig gert að
reynt sé að skapa eins
konar trúarvissu um
stórkostlega, ómælan-
lega kosti efnanna og
yflr seljendum og
neytendum er
hamrað á þessu
eins og verið sé
að boða sjálft
fagnaðarerind-
ið. Þessar sam-
komur beri
mjög keim af
samkomum
heittrúar-
manna og
mikið lagt
upp úr hópefli
og því að skapa
v
Loðnuveiðarnar hafa farið rólega af stað og sjómönnum hefur gengið
erfiðlega að ná henni. Strákarnir á Guðmundi náðu þó að fylla dallinn af
þessu silfri hafsins með nokkurri fyrirhöfn. Myndin er tekin þegar þeir
lönduðu í Reykjavík. DV-mynd E.ÓI.
Laumufarþegarnir vegabréfslausir:
Segjast vera
frá Búrúndí
- eru í gæslu um borö í skipinu
Tveir laumufarþegar komu með
egypska flutningaskipinu Wadi A1
Natroon til Straumsvík-
ur í gær.
Skipið var að koma
með súrál frá Ástralíu til
Straumsvíkur. Mennirnir
voru yflrheyrðir um borð
í skipinu við komuna til
Straumsvíkur. Þeir sögð-
ust vera frá Afríkuríkinu
Búrúndi. Mennirnir eru
vegabréfslausir. Ekki er ljóst hvar
þeir komust um borð.
„Þeim var synjað um landvistar-
leyfi á grundvelli laga um eftirlit á
útlendingum. Það er ekkert sem
bendir til að þeir séu pólitískir
flóttamenn. Mennirnir
eru i gæslu um borð i
skipinu og verða þar með-
an það er í höfn hér á
landi. Skipstjórinn hefur
verið gerður ábyrgur fyr-
ir þeim,“ sagði
Guðmundur Sophusson,
sýslumaðuf í Hafnarfirði.
Upp komst um laumu-
farþegana um síðustu helgi. Var
sýslumanni í Hafnarfirði tilkynnt
sl. mánudag að von væri á þeim um
borð í skipið. -RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Víða súld
eða rigning
Á morgun verður fremur hæg
suðlæg átt og víða litils háttar
súld eða rigning, einkum sunnan-
og vestanlands. Hiti verður á bil-
inu 2 til 7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Veisluskipið Árnes!
Þegar veislu skal halda
SÍMI 581 1010
brother
tölvu-
límmiöa-
prentari
d =!•!
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443