Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUÐAGUR 31. OKTOBER 1997 Fréttir Herbalife International í kröggum: Aulahópurinn takmarkaður - segir viöskiptatímaritiö Forbes um viöskiptavini Herbalife „Mark Hughes er meistari í list- inni að komast af. Píramídafyrir- tæki hans, Herbalife International í Los Angeles, sem selur vafasöm megrunar- og fæðubótarefni, hefur átt undir högg að sækja í Bandaríkj- unum vegna slæmrar útreiðar í fjöl- miðlum og reglugerðahindrana síð- an í lok níunda áratugarins," segir bandaríska viðskiptatímaritið Forbes þann 20. október sl. Forbes segir að þótt tekjur af sölu Herbalife í Bandaríkjunum hafi mjög dregist saman búi Hughes þó enn í 20 milljóna dollara glæsihúsi sínu ásamt þriðju eigin- konu sinni, Suzan, fyrrverandi feg- urðardrottningu, og ráði enn við að fjármagna dýran lífsstíl þeirra með forstjóralaunum sínum og kaupauka sem síðasta ár var 7,3 milljónir dollara. Forbes segir að Mark Hughes og fyrirtæki hans, Herbalife, hafi tek- ist að lifa af vandræðin heima fyrir með því að teygja starfsemina út fyrir Bandaríkin þar sem lög og reglur eru ekki jafn smámunasamar og neytendur jafnvel enn meiri ein- feldningar en þeir bandarísku, í það minnsta í fyrstu. Þessa stundina komi um 77% af sölutekjum Herbalife frá öðrum löndum en Bandaríkjunum og með- al nýrra markaðssvæða séu Asíu- lönd og Rússland. Herbalife Intemational er skráð á Nasdaq- verðbréfamarkaðinum og talið 790 milljóna virði. Þar af á Mark Hughes sjálfur 58% og eignarhlutur hans þvi metinn á 454 milljónir doll- ara. Maökur í mysunni En það er maðkur i mysunni hjá Mark Hughes, segir Forbes. „Út- lendingar eru ekki heimskingjar og þeir komast fyrr eða síðar að því að verið er að blekkja þá,“ segir Forbes. Tímaritið segir að í þessu sambandi megi benda á Frakkland: Þar vom Herbalife-vörur seldar fyr- ir 97 milljónir dollara árið 1993. Sal- an hefur hrapað síðan og var í fyrra aðeins 12 milljónir dollara. Árið 1994 var salan i Þýskalandi 196 milljónir dollara en er nú dottin niður í 54 milljónir dollara. Aulahópurinn ekki ótæmandi brunnur Forbes segir síðan að sennilega hafi Mark Hughes komist að því að í heiminum er ekki ótakmarkað íramboð af aulum og því hafi hann viljað losna við eitthvað af hluta- bréfum sínum í Herbalife. En í marsmánuði hafi verð bréfanna fall- ið mjög og hafi hann þá tekið það til bragðs að reyna að selja almenningi þriðjung af hlut sínum. A&P lögmenn: Fróði beðinn að hætta útgáfu á Séð og heyrt „Við emm búnir að senda Fróða hf. bréf þar sem fram kem- ur að þeir hætti þessari útgáfu á Séð og heyrt. Fyrirtækið úti fer fram á að Fróði láti af þessari út- gáfu. Við bíðum eftir svari frá Fróða. Meira get ég ekki tjáð mig á þessari stundu," sagði Ámi Vilhjálmsson, lögmaður hjá A&P lögmönnum sem reka mál fyrir fyrirtækið Alle Familie Journal gegn Fróða hf. vegna útgáfú á blaðinu Séð og heyrt. Fyrirtækið AUe Familie Jour- nal, sem á og rekur Se og Hör r Danmörku, Svíþjóð og Noregi, leitaði til A&P lögmanna um að ganga í málið. -RR En vandræði Hughes eru ekki þar með upptalin: Hjónaband hans og fegurðardrottningarinnar Suzan riðar til falls og loks hætti aðalráð- gjafi hans, lagaúlfurinn David Add- is, störfum í janúarmánuði. Hann er sagður hafa öskrað á Hughes áður en hann pakkaði saman á skrifstofu sinni að hann gæti ekki verndað Hughes lengur. Fyrrverandi sölumaður Herba- life, Daniel Fallow, stendur í mála- ferlum gegn Herbalife Intemational fyrir það að fyrirtækið svíkist um aö greiða sölumönnum þóknun og okri á framleiðsluvörunum með allt að sjöfcddri álagningu ofan á fram- leiðslukostnað. Það mál er nú fyrir hæstarétti Arizona en eftir að Fallow sendi málsgögnin út á Netið fylgdu fleiri mál svipaðs eðlis í kjöl- farið. Enn fremur hefur Hughes verið sakaður af fyrrum samstarfs- fólki sínu um að hafa viljað komast inn á Rússlandsmarkaðinn með Herbalife með aðstoð rússnesku mafiunnar. „Tekst Hughes að kom- ast af einu sinni enn? Ekki treysta á það,“ segir að lokum í grein Forbes. -SÁ Amerískur útivistarfatnaður ^i-e/u//ðg Cortina Sport Skólauörðustíg 20 - Sími 552 1555 Jákvæður sdmdriburður! Verð Á 3 Mínútna SÍMTALI Á DAGTAXTA FRÁ OG MEÐ 1. NÓVEMBEH 1997 70 kr 60 kr 50 kr 30 kr 20 kr 10 kr Gjaldskrárbreyting á innanlands- símtölum hjá Pósti og síma tekur gildi 1. nóvember 1997. Samanburður á verði innanlands- símtala í nokkrum Evrópulöndum leiðir í ljós þá ánægjulegu staðreynd að innanlandssímtöl eru einna ódýrust á íslandi. Danmöek Finniand Þýskaland Noregub Svíþióð Verðá 3 MÍNÚTNA INNANLANDS- SÍMTALI mm.i Danmörk r \ Finnland f ^ Þvskaland r \ Noregur r \ Svíþjóð C \ Bretland Staðartaxti 9,30 11,56 9.65 9,73 11,68 9,49 13,64 Hæsti LANGL.TAXTI 9.30 23,70 24,67 73,01 22,35 22,29 30,36 MIDAD VIÐ GENGI 6. OKTÓBER 1997 PÓSTUR OG SÍMI HF í s d m b a n d i v i ð þ i i>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.