Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Qupperneq 20
.40
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
Fréttir
Tollvörðurinn sem er ákærður fyrir að stela 6 milljónum í gjaldeyri:
Rangt að ég hafi
stolið peningunum
„Þetta er rangt að því leyti að ég
hafl stolið þessum peningum."
„Nú? Kannastu ekki við að hafa
haft þá undir höndum?"
„Jú, að sjálfsögðu," sagði reyk-
víski tollvörðurinn sem er ákærður
fyrir að hafa stolið 52 þúsund sterl-
ingspundum, að andvirði rúmlega 6
miiijónir króna, þegar Sverrir Ein-
arsson héraðsdómari spurði hann
út í efni ákærunnar á hendur hon-
um í réttarhaldi í Héraðsdómi
Reykjavíkur gær.
Tollvörðurinn kvaðst í gær hafa
fúndið peningana - ekki stolið þeim.
Eins og fram kom í DV í gær við-
urkenndi tollvörðurinn í fyrstu hjá
lögreglu að hafa stolið peningunum
úr gjaldeyrissendingu Den Jyske
Bank til Landsbankans. Sendingin
kom í umslagi á tollpóststofuna í
Ármúla í nóvember 1996 þegar toll-
vörðurinn starfaði þar.
Maðurinn féll síðan frá þeim
framburði og kvaðst þá hafa fundið
peningana í gjótu í Hafnarfjarðar-
hrauni þegar hann var þar á ferð
með fíkniefnahund.
Ég er saklaus
„Ég er saklaus," sagði sambýlis-
kona tollvarðarins þegar hún var
spurð um afstöðu sína til ákæru á
hendur henni fyrir hylmingu. Kon-
an var að öðru leyti ekki spurð út í
hennar þátt mádsins í gær.
Peningamir fundust á heimili
hennar og tollvarðarins, í tollgæslu-
bifreið mannsins, á heimili vina-
fólks þeirra og í fórum annarrar
konunnar þegar hún var að reyna
að skipta peningunum í banka.
Lögreglan notaöi
tálbeituaðferð
Vinafólkið blandast í málið með
þeim hætti að vinkona þeirrar
konu, sem býr með tollverðinum,
hafði áður verið gjaldkeri í banka.
Henni er m.a. gefið að sök að hafa
notfært sér bankasambönd sín við
skipulagningu þess að skipta gjald-
eyrinum.
í dómsalnum
Úttar Sveinsson
Hún hafði samið við gjaldkera,
konu, tun að skipta sterlingspundum
og afhent henni rúmlega þrjú hundr-
uð þúsund króna þóknun. Þegar til
kastanna kom færðist gjaldkerinn,
sem einnig er kona, undan því að
skipta peningunum. Sú sem ætlaði
að skipta peningunum sagðist þá
ætla að hætta við
allt saman - líka að
skipta peningunum.
Konurnar ákváðu
síðan að hittast.
í millitíðinni hafði
verið haft samband
við lögreglu og grun-
semdir vaknað um að
féð væri illa fengið.
Þegar gjaldkerinn
hafði afhent um-
ræddri konu þóknun-
ina til baka var hún
handtekin.
Vissi ekki að
þetta væri
stolið
Sú sem reyndi að
skipta peningunum
er ákærð fyrir hylm-
ingu. Hún sagðist
viðurkenna ákæru-
atriði sem hana
snerti um slíkt en tók fram að henni
hefði ekki verið kunnugt um að féð
væri stolið. Reyndar hefði henni
ekki verið kunnugt um nema hluta
af því fé sem ákært er fyrir.
„Ég vissi ekki að þetta væri stolið
fé,“ sagði annar karlmaður, sambýl-
ismaður fyrrum gjaldkeráns. Hon-
um er einnig gefln að sök hylming.
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Tollvöröurinn sem
sakaöur er um aö hafa stolið 52 þúsund punda send-
ingu Den Jyske Bank til Landsbankans er lengst til
hægri á myndinni. Honum á vinstri hönd er kona hans
sem er ákærb fyrir hylmingu. Skyggði maðurinn
lengst til vinstri er annar maður sem einnig er ákærð-
ur fyrir hylmingu. DV-mynd E.ÓI.
Sakbomingamir fjórir komu að-
eins fyrir dóm í gær til að gera i
stórum dráttum grein fyrir afstöðu
sinni til ákænmnar. Aðalréttarhöld
í málinu fara fram þann 5. nóvem-
ber. Þá munu fjórmenningarnir
verða spurðir út í öll smáatriði auk
þess sem fjöldi vitna ákæruvaldsins
verður leiddur fram.
DV
Tónleikar á Flateyri:
Safnað
fýrir skrúð-
garði
- þekktir listamenn
„Við erum búin að vinna mark-
visst að okkar hlutverki frá stofn-
un. Við höfúm þegar hafist handa
og jarðvegsvinna er hafln. Þá er
búið aö semja við Pétur Jónsson
landslagsarkitekt um að hann
teikni skrúðgarðinn. Pétur hefur
einnig með uppgræðslu vamar-
garðanna að gera þannig að við
fáum með þessu skemmtilega
heildarmynd," segir Sigrún Gerða
Gísladóttir, einn þátttakenda
Minningarsjóðs Flateyrar. Sjóður-
inn hefur þann tilgang að byggja
upp, varðveita og annast skrúð-
garð þar sem verður minning-
arreitur um þá sem fórust I snjó-
flóðinu mannskæða 26. október
1995. Minningarsjóðurinn mun
standa fyrir tónleikum í íþrótta-
húsinu á Flateyri mánudaginn 3.
nóvember klukkan 20.30. Þar koma
fram landsþekktir listamenn: Þóra
Einarsdóttir sópransöngkona,
Bjöm Jónsson tenórsöngvari og
undirleikari er Jónas Ingimundar-
son píanóleikari. Á dagskrá em ís-
lenskar og erlendar sönglagaperl-
ur. Sigrún segir að sjóðurinn
standi aðeins einu sinni á ári fyrir
opinberri fláröflun.
„Þetta er eina skiptið sem við
gerum okkur sýnileg með fláröfl-
un. Að öðru leyti fer fláröflun
fram eftir öðrum leiðum. Mark-
mið okkar er fyrst og fremst að
auðga tilveruna með list af
hæsta gæðaflokki," segir Sigrún.
-rt
Vöðvabólga
LLlLLl ÚLVliLfeLULtol
r?
rJ rJ n nTj' Tj
-SV'
TRIM /\FORM