Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Page 28
Tvötaldur
i. vinnifígur
ivníOM
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FOSTUDAGUR 31. OKTOBER 1997
íslensk kona rekin fársjúk út af norsku sjúkrahúsi:
Hundur hefði
fengið betri
Helgarblað DV:
meðferö en ég
Emilíana á
- tímamótum
Uppsögn loðnusamnings:
Öngulsson
þögull
DV, Ósló:
„Eg hef reynt að ná í Peter Angel-
sen sjávarútvegsráðherra en hann
gefur ekkert færi á sér. Uppsögn
loðnusamningsins getur þýtt að flot-
inn verði verkefnalaus á næstu ver-
tíð,“ segir Audun Marák, formaður
Félags bátaútgerðarmanna í Noregi,
í samtali viö DV í morgun vegna
fyrirhugaðrar uppsagnar ísiendinga
á loðnusamningnum við Noreg og
Grænland.
„Þetta er mikið áfall tyrir okkur
en það getur líka farið svo að loðn-
an verði við Jan Mayen og þá erum
við óbundnir af öllum samningum
g getum veitt að vild,“ segir
Marák. -GK
ÞARF EKKI
TEPPAHREINSARA í
STJÓRNARRÁPIS?
- segir Kristín Jónsdóttir sem fékk læknishjálp með aðstoð leigubílstjóra
DV Ósló:
I helgarblaði DV á morgun er
opnuviðtal við söngkonuna Emilí-
önu Torrini sem segist vera á tíma-
mótum um þessar mundir. Hún hef-
ur fengið tilboð að utan en sér
marga slæma kosti í stöðunni. Á
meðan hún veltir hlutunum fyrir
sér hefur hún fengið sér vinnu í
snjóbrettabúð.
Silja Aðalsteinsdóttir ræðir við
Vigdísi Grímsdóttur og Margréti Vil-
hjálmsdóttur um leikritið Grandaveg
7 sem frumsýnt var sl. miðvikudag
' og hefur fengið frábæra dóma. Mar-
grét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri
er heimsótt i Hjalla og spurð um
Hjallastefhuna og nýleg jafnréttis-
verðlaun. Birtur er bókarkafli úr
æviminningum Salome Þorkelsdótt-
ur, Jón Baldvin skrifar um málefni
Kína, sagt er frá íslenskum ung-
mennum sem ætla að fljúga hringinn
í kringum Bandaríkin og ýmislegt
fleira fróðlegt og skemmtilegt efni er
í blaðinu. -sv/bjb
„Auðvitað var ég hrædd. Ég hef
aldrei á ævinni verið svona hrædd
og kvalirnar voru óskaplegar. Ég
hélt ég mundi í raun og veru
deyja,“ segir Kristín Jónsdóttir, ís-
lensk kona búsett í Noregi, í sam-
tali við DV um sérkennilega
sjúkrasögu sína.
Kristín veiktist skyndilega fyrir
skömmu og var flutt með sjúkrabíl
á Ullevál-sjúkrahúsið i Ósló. Þar
var hún spurð um heimilisfang og
þegar i ljós kom að hún bjó ekki í
sama hverfi og sjúkrahúsið sinnir
var henni umsvifalaust vísað út.
Kristínu tókst að finna leigubíl og
komst á næsta sjúkrahús. Þar var
hún skorin upp í hasti vegna
ígerðar i legi og mátti ekki tæpara
standa að hún héldi lífi.
„Ég kom í sjúkrabíl og fór í
leigubíl án þess að hafa verið svo
mikið sem skoðuð. Ég er viss um
að hundur hefði fengið betri með-
ferð en ég,“ segir Kristín, sem
flutti til Noregs fyrr á þessu ári
með tveimur bömum sínum.
Mál Kristínar hefur þegar vakið
mikla athygli hér i Noregi enda
þykir sýnt að lög hafi verið brotin
á henni. í Aftenposten, helsta blaði
Noregs, er haft eftir umboðsmanni
sjúklinga að grundvallarreglur um
læknisaðstoð við sjúkt fólk hafi
verið brotnar.
Á Ullevál-sjúkrahúsinu er sagt
að svo hafi virst sem konan væri
ferðafær og þvi þótt réttlætanlegt
að senda hana burt. Þó er viður-
kennt að í þessu tilfelli hafi regl-
unum verið fylgt óþarflega ná-
kvæmlega.
„Þetta var ótrúleg lífsreynsla og
ég hefði fyrirfram aldrei trúað þvi
að læknar gætu verið svona ríg-
bundnir af reglum. Heimilislækn-
irinn minn skoðaði mig fyrst og
hann sagði að ég yrði að fara í
uppskurð strax og kallaði á sjúkra-
bíl. Á sjúkrahúsinu höfðu lækn-
arnir bara áhuga á að vita í hvaöa
hverfi ég byggi en ekki hvort ég
væri veik,“ segir Kristín.
-GK
Dórótea, hundurinn Tótó og tinkarlinn, sem öll eru persónur úr leikritinu Galdrakarlinum í Oz, brugðu sér á Barna-
spítala Hringsins í gær og skemmtu þar litlum sjúklingum sem ekki eiga þess færi að skreppa í leikhús. Börnin
kunnu vel að meta þessar sögupersónur og voru undirtektir að vonum góðar. DV-mynd ÞÖK
Veðrið á morgun:
El norðan-
lands
Á morgun verður norðaustan-
gola eða kaldi, en hæg breytileg
átt suðaustan til. Dálítil él verða
norðanlands en smáskúrir syðra.
Hiti verður á bilinu 0-6 stig.
Veðriö í dag er á bls. 45.
Frá aðalfundi LÍÚ í gær. DV-mynd PS
Aðalfundur LÍÚ:
Kristján
hótar fast-
launakerfi
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, var harðorður á ársfundi
samtakanna í gær þar sem hann
taldi til greina koma að afnema
hlutaskiptakerfl sjómanna vegna ill-
vígra deilna um fiskverð og kvóta-
brask. Við blasir að samtök sjó-
manna munu fara í verkfall um ára-
mót að óbreyttu. Kristján gagnrýndi
einnig þá sem staðið hafa fyrir um-
ræðum um auðlindaskatt og öfund-
ast út í útgerðarmenn sem „yfirgefa
greinina með einhvern lífeyri".
Á aðalfundinum var Jakob Jak-
obsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunnar, sérstaklega heiðraður
fyrir framlag í þágu sjávarútvegs-
Halldór á teppið
Davíð Oddsson forsætisráoherra
hefur boðað Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra á sinn fund í dag til
að ræða samþykki Halldórs á
breyttri gjaldskrá Pósts og síma.
Auk þess mun
Halldór veita
móttöku undir-
skriftalistum
þeirra sem mót-
mælt hafa hækk-
ununum a mn-
anbæjarsímtöl-
um við Alþingis-
húsið í dag kl.
15. Eftir að mótmælin verða afhent
verður mótmælafundur á Ingólfs-
torgi þar sem Eyþór Amalds, Jó-
hannes Gunnarsson og fleiri munu
hafa framsögu.
Heimaslóð undirskriftalistanna
er http://www.aegis.is/simi/ og
verður opin tO kl. 14.50 í dag. -ST
Brotist var inn í íbúðarhús í höf-
uðborginni í gærdag og stolið þaðan
22 kalibera riflli og skotfærum.
Tveir menn voru grunaðir um
þjófnaðinn. Lögreglan náði öðrum
þeirra i gærkvöld en leitar hins
mannsins áfram. -RR
Veisluskipið Arnes
Þegar veislu skal halda
I
SIMI 581 1010
bíother.
tölvu-
límmiöa-
prentari
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443