Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1997, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997
Spurningin
Hvaö viltu fá
í jólagjöf?
Markús Guðbrandsson hótel-
starfsmaður: Mér er alveg sama.
Markús B. Leifsson, starfsmaður
Pósts og síma: Mig langar í Jagúar
XJ 220.
Davíð Gunnarsson verkfræðingur:
Mig langar mest í einhvern fatnað.
Halldór Högnason hetja: Batman-
búning.
Brynjar Brynjólfsson símamað-
ur: Frið á jörð.
Valgarð Magnús Gunnarsson at-
vinnulaus: Það er nú ýmislegt sem
mig langar í í jólagjöf.
Lesendur
Lok lok og læs
Björgvin Ó. Björnss. skrifar:
Eins og margir vita var byggð
glæsileg útisundlaug á íþróttasvæð-
inu hér í Borgamesi í tengslum við
landsmót U.M.F.Í. sem haldið var
hér. Fjöldi manns á staðnum var á
móti þeirri ákvörðun bæjaryfir-
valda og taldi að framkvæmdin yrði
of dýr fyrir bæjarfélagið. Auk þess
var hér fullgerð keppnisaðstáða í
frjálsum íþróttum sem á sér fáa líka
hérlendis.
Nú þegar þessi útilaug er komin
eru þó flestir ánægðir með hvemig
til hefur tekist. Aðsókn hefur verið
stöðug og langt umfram björtustu
vonir allt frá því í júlí sl. en þá var
útisundlaugarsvæðið (laug, vað-
laug, pottar og rennibrautir) opnað.
Margir, sem ekki létu sjá sig í
„gömlu innilauginni", eru orðnir
fastagestir og aðsókn bama og ung-
linga hefur verið mjög mikil.
Nú hafa bæjaryfirvöld ákveðið að
loka útisundlauginni í 3 mánuði
vegna framkvæmda við eimbað og
vaktrými (varðturn). Útipottum hef-
ur þó ekki verið lokað og eiga gest-
ir að notast við litlu innilaugina og
útipottana. Með undirskriftalistum
(sem hátt í 200 manns skrifuðu á)
var reynt að fá bæjarstjórn Borgar-
byggðar til að breyta þeirri ákvörð-
un sinni að loka útilauginni. Ekki
var hlustað á raddir fólksins sem
greiðir gjöldin og var því lauginni
lokað fyrir nokkrum dögum.
Ráðamenn hér í byggð tóku svo
þá ákvörðun að girða þvert yfir
svæðið með hárri netgirðingu svo
að óþekktarormarnir, sem stálust
Nýja útisundlaugin í Borgarnesi.
til að nota laugina (þetta á við eldri
sundgesti sem mæta í bítið á morgn-
ana), kæmust ekki í útilaugina held-
ur skyldu gjöra svo vel að nota litlu
innilaugina eins og í gamla daga.
Það er margt sem mælir gegn því
að loka útilauginni. Sundæfmgar
unglinga eru nú í fullum gangi alla
daga og er því litla innilaugin lokuð
þangað til þeim lýkur (kl. 18.30) en í
útilauginni voru 2 brautir ávallt
opnar fyrir almenning.
Þetta þýðir að sú nýliðun sem
varð í aðsókn að útilauginni síðustu
mánuði hefur horfið að mestu. Það
hefur og komið á daginn að eftir að-
eins hálfan mánuð hefur aðsókn
barna og unglinga einnig dregist
stórlega saman. Það er álit margra
(jafnvel úr röðum þeirra er vinna
við íþróttamiðstöðina) að það verði
erfitt að ná upp aðsókn aftur. Ég
vona að svo verði ekki. En margir
spyrja til hvers áhættan var tekin
þegar ástæðulaust var að loka úti-
lauginni.
Útbrunninn útvarpsþáttur
H.S. skrifar:
Á útvarpstöðinni Bylgjunni hef-
ur tíðkast sá siður í allnokkur ár að
hafa hressa morgunhana viö stjórn-
völinn milli 9 og 12. Þeirra á meðal
er hinn dæmigerði plötusnúður sem
hefur lítið fram að færa annað en
flflaskap og lélega brandara. Hlust-
endur eru keyptir með ódýrum
pitsum, bíómiðum og Karólu síma-
dóna, sem er sennilega það eina sem
einhver hugsun er lögð í, enda aug-
lýst strax við upphafskynningu og
fram imdir hádegi.
Einhverra hluta vegna segir heil-
brigð skynsemi manni það að eng-
inn með „fulla fmun“ nenni virki-
lega að hlusta. Þetta er bara enn ein
hlj óðmengunarmaskínan sem hverf-
ur í öllum hamagangi dagsins. Þeg-
ar þessi grein er skrifuð, glymur
þetta í útvarpinu. Að stjórnand-
anum ólöstuðum persónulega finnst
mér samt sem áður vegið ómaklega
að vitsmunum mínum með því að
hafa þessa svokölluðu dagskrárgerð
fyrir hádegi. En ég á völina, ég get
slökkt. Það getur hins vegar
þáttastjórnandinn ekki.
Sinfónían - stolt okkar
Örn Bjarnason skrifar:
fslenska þjóðin ákvað fyrir
nokkrum áratugum að koma sér
upp sinfóníuhljómsveit og einnig
að annast rekstur hennar með
öllu því sem tU þess þarf, hljó-
færaleikurum, aðstöðu til æf-
inga, tónUstarskóla, stjórnend-
um, samböndum erlendis, fram-
kvæmdastjóra og öðru tUheyr-
andi.
Þetta var mikið ævintýri sem
kostaði mikla vinnu í mörg ár.
Margt gott fólk lagði fram krafta
sína endurgjaldslaust í þá daga, í
fuUvissu um betri tíð síðar. Það
var í þá daga. Svo er aUt í einu
kominn dagurinn í dag og við átt-
um okkur skyndUega á því að öU
þessi vinna og aUt þetta erfiði
hefur borið ríkulegan ávöxt. Við
getum hrósað okkur af mjög
Aðelns 39,90 mímitan
- eða hringið í síma
IL^íflÍSÖ 5000
milli kl. 14 og 16
Viö viljum hafa hana góöa áfram, segir bréfritari.
góðri sinfónískri hljómsveit.
Menn heyrast hvísla því í alvöru
að nú sé hún að gæðum jafnvel á
heimsmælikvarða, Sinfóníu-
hljómsveit íslands. - TU ham-
ingju aUir íslendingar!
Sannspurst hefur að hljóðfæra-
leikararnir séu iUa launaðir og
treysti sér nú ekki lengur tU að
vinna upp á þau býti sem í boði
hafa verið hingað tU. Vinnuveit-
endur Ustamannanna virðast til
þessa ekki hafa haft skilning á
máUnu. Þetta er bagalegt. Það
fólk sem geym-
ir fjöregg ís-
lands í tónUst-
rænum efnum
og viU varð-
veita það á
meðan það get-
ur er á allt of
lágum launum
og nýtur ekki
skilnings ráða-
manna á ís-
landi.
„Ágætur hátt-
virtur kjós-
andi“ skorar
nú á viðkom-
andi ráðamenn
á íslandi að
ganga til samn-
inga við hljóð-
færaleikara í
Sinfóníuhljómsveit íslands, með
opnum huga og samstarfsvUja,
og leysa þar með þessa kjaradeilu
hið allra fyrsta.
Við getum rifist um ýmislegt í
skammdeginu en við skulum
ekki rífast um þetta. Við erum öU
að rifna af stolti yfir því hvað
hljómsveitin er orðin góð, það
leynir sér ekki á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands í Há-
skólabíói þegar henni er klappað
lof í lófa. Og við viljum hafa hana
góða áfram.
DV
Forðum stöðu-
mælavörðum
frá refsingu
EUnborg skrifar:
í þágu borgarstjórnar er stöðu-
mælavörðum gert að hafa fé af
meðborgurum sínum og þiggja að
launum eina klukkustund í yfir-
vinnu milli kl. 17 og 18 hvem
virkan dag. Allir stöðumælar í
miðborginni ganga nú fyrir 50 kr.
peningi fyrir klukkustundina. Ég
vil leggja til að borgarstjórn
gangist fyrir því að forða vesl-
ings stöðumælavörðunum af
þessari ólánsbraut með því að af-
nema þennan yfirvinnutíma eftir
kl. 17. Með því sparast lika launa-
kostnaður sem við höfum öll
heyrt að sé svo mikill rð ekki sé
hægt að kosta almennilegan
þrifnað á götum borgarinnar.
Morgunútvarp
Eiríks
Bjarni Ólafsson skrifar:
Mér finnst Aðalstöðin (út-
varpsstöðin) hafa náð sér aftur á
verulegt skrið síðustu vikumar.
Ekki er vafi á því að hinn góð-
kunni útvarpsmaður Eiríkur
Jónsson á þar stóran hlut að
máli. Hann er þarna með Önnu
Gullu frá kl. 7 til 10 og spjallar
við hana eða gesti þeirra. Ég er
alveg búinn að afskrifa aðrar
stöðvar á morgnana virka daga
með sína vandamálaþætti og
þrýstihópa. Og Eirikur leikur
líka lög sem em öðruvísi. Hann
kann þar ýmislegt fyrir sér.
Dæmi: sl. mánudagsmorgun lék
hann lag með Edith Piaf, ekki
lögin sem útjöskuð eru á öllum
stöðvum heldur lag sem er sjald-
an leikið (En Hamburg). Hann
þekkti líka Charles Azanavour,
þann frábæra söngvara. Sjald-
gæft hér. Já, Aðalstöðin skarar
fram úr á morgnana.
Hjón ársins?
Hreggviður skrifar:
Ég vildi óska að í hóp valinna
Islendinga ár hvert bættust „hjón
ársins“. Rétt eins og „maður árs-
ins“ og „kona ársins". Og þá er
ég ekki að tala um hjón sem em
áberandi, hvorki í skemmtana-
eða athafnalífinu. Einfaldlega
„hjón" sem eru lítt áberandi en
hafa sannanlega verið til fyrir-
myndar vegna eðlilegs heimilis-
lifs, konan sem sinnir heimili og
börnum af kostgæfni á meðan
maðurinn aflar teknanna. Hjón
sem eiga eðlilegt heimili, án
stress og streitu, hjón sem tala
mannamál, hjón sem vinna til að
lifa en lifa ekki til að vinna. - Þið
vitið hvað ég á við, ekki satt?
Hækkun fast-
eignagjaldanna
Ólafur Kristjánss. hringdi:
Nú er að koma fram það sem
ég sendi til ykkar á DV fyrir
nokkru. Þetta með söluna á
Húsatryggingum ríkisins til Sjó-
vár- Almennra, sem sögð var
nauðsynleg vegna þrýstings í
EES-reglunum. Skyldubruna-
tryggingar voru áður á fasteigna-
gjaldaseðli. Nú kemur rukkun frá
tryggingafélögunum beint og þá
grípa sveitarfélögin tækifærið og
hækka fasteignamatið og þar
með fasteignaskattinn! Hér er á
ferðinni pólitískt plott sem bygg-
ist á þvi að friðþægja trygingarfé-
lögunum og fá pening í kassa
sveitarfélaganna.
Hálfur kjúkling-
ur á 1100 kr.
Daníel hringdi:
Ég skrapp á skyndibitastað ný-
lega tU að borða kjúkling með
frönskum og sósu. Hann hefur nú
hækkað í verði upp í tæpar 1100
kr. (1090 kr.). Slíkar verðhækkan-
ir eru orðnar næsta óþolandi,
vegna þess að í svona tilvikum er
um beina álagningu að ræða eins
og víðar.