Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1997, Page 28
Q
qO
so
s w
oo o
■>
S LO
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997
Ályktun NTF:
Afskaplega
ósmekklegt
- segir forseti Alþingis
__ „Mér frnnst afskaplega ósmekklegt
að draga embætti forseta íslands inn
í kjaradeilu með þessum hætti. Ég
skil ekki alveg að þeim skuli þykja
þetta tilefni til ályktunar af þessu
tagi,“ sagði Ólafur G. Einarsson for-
seti Alþingis við DV í morgun.
í gær barst ályktun frá Norræna
flutningamannasambandinu þar sem
enn eru hörmuð ársgömul ummæli
forseta íslands vegna 10 ára afmælis
flugfélagsins Atlanta. Sambandið
hafði áður sent frá sér ályktun þessa
efnis, sem hefur vakið mikil við-
brögð og menn lýst óánægju sinni
með að embætti forseta íslands væri
dregið inn í málið með þessum hætti.
Ólafur sagðist ekki þekkja hvort
rétt væri að þetta tiltekna félag væri
Cí~"* brotlegt í augum Norræna flutninga-
mannasambandsins. „En sé svo, þá er
það allt önnur hlið á málinu og for-
setaembættinu óviðkomandi." -JSS
Sjá bls. 4
Rjúpan á 399 kr.
Verð á rjúpu er óvenjuhagstætt
um þessar mundir. KEA Hrísalundi
mun selja frá og
með morgundegin-
um fúglinn á 399 kr.
:C&.á meðan birgðir
endast en á Akur-
eyri er verðið um
þessar mundir allt
niður í 300 kr.
manna á milli. Að
sögn Friðriks Sig-
þórssonar, kaupmanns í KEA Hrísa-
lundi, er mikið um rjúpu á Norður-
landi, einkum í Bárðardal.
Norðurál:
Deilt um Rúmena
Norðurál sæki á með að fá atvinnu-
leyfi fyrir hóp af tæknimönnum frá
Rúmeníu sem setja eiga upp tækni-
búnað fyrir hreinsitæki álversins.
W Þórður S. Óskarsson, starfsmanna-
stjóri Norðuráls, sagði í morgun að
verið væri að sækja um atvinnuleyfi
fyrir Rúmenana og samkvæmt samn-
ingi Norðuráls og rikisins bæri ríkis-
stjórninni að aðstoða við útvegun
nauðsynlegs mannafla við byggingu
álversins. Öm Friðriksson, formaður
Félags jámiðnaðarmanna, segir að ís-
lenskir málmiðnaðarmenn séu tiltæk-
ir til þessa verks.
Skandinavíska fjölþjóðafyrirtækið
ABB er ábyrgt fyrir smíði hreinsi-
búnaðarins en rúmenskir undirverk-
takar þess sem smíða hreinsibúnað-
inn vilja láta sinn eigin mannskap
setja upp búnaðinn á Grundartanga.
Búnaðurinn er ekki enn kominn til
' ^g^landsins en átti að vera tilbúinn til
uppsetningar fyrir um mánuði. -SÁ
ÞA VERÐUR MAÐUR
LOKSINS SADDUR Á
JÓLUNUM!
Dagný Helga Hafsteinsdóttir kærði málið til lögreglu í gær. Hér sést hún fyrir miðju ásamt móður sinni, Guðrúnu Steinþórsdóttur, og Aðalheiði Krist-
ínu Erlingsdóttur, vinkonu sinni, fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu. DV-mynd S
Leit Dagnýjar aö tjónvaldi bar árangur í gær:
Leigubíllinn og
ökumaður fundnir
Leit Dagnýjar Helgu Hafsteins-
dóttur að leigubíl og ökumanni
hans, sem olli tjóni á bíl hennar
aðfaranótt simnudagsins, bar ár-
angur í gær.
Eins og fram kom í DV í gær
lenti Dagný í árekstri við leigubíl
á Vatnsendavegi um nóttina. Dag-
ný var í fullum rétti. Kona, sem
ók leigubílnum, sagðist borga allt
tjónið sjálf en gaf Dagnýju upp
falsað nafn og símanúmer. Dagný
fór i gær ásamt móður sinni og
vinkonu, sem var með henni í
bílnum umrædda nótt, á leigubíla-
stöð sem Dagný tengdi leigubOinn
við.
„Forsvarsmenn leigubílastöðv-
arinnar voru okkim afskaplega
hjálplegir og vildu gera allt til að
finna bílinn og ökumanninn. Við
fórum yfir möppu með öllum leigu-
bilstjórum og bílum. Eftir tölu-
verða leit bar ég kennsl á bílinn.
Við fórum og skoðuðum hann og
það var beygla aftan á honum sem
passaði alveg viö áreksturinn. Síð-
an fúndum við út hver konan er
þannig að búið er að finna söku-
dólginn.
Ég hef lagt fram kæru hjá lög-
reglunni vegna þessa máls. Mér
finnst þetta afskaplega óheiðarlegt
hjá konunni aö ljúga svona til
nafhs og símanúmers eftir að hafa
valdiö þessu tjóni. Ég var voða-
lega græn að láta hana plata mig
svona og ég vil beina þeim tilmæl-
um til fólks að það passi sig ef það
lendir í því sama og ég lenti í. Það
borgar sig greinilega ekki að
treysta náunganum of vel,“ segir
Dagný.
Samkvæmt upplýsingum DV
hafði viðkomandi kona, sem er á
fimmtugsaldri, ekið leigubíl í 28
daga þegar atvikið átti sér stað.
Hún er þó ekki með réttindi sem
leigubílstjóri. Hún hefur aðeins
verið launþegi og ekið fyrir leigu-
bílstjóra í tímabundnum forfóll-
um. Forsvarsmenn leigubílastöðv-
arinnar sem um ræðir hafa tekið
hart á þessu máli. Samkvæmt
heimildum DV mun konan aldrei
keyra leigubíl fyrir viðkomandi
stöð aftur.
Dagný vissi að vitni voru að
árekstrinum og auglýsti eftir þeim
í DV í gær. Maður sem ók silfur-
grárri Toyota og varð vitni að slys-
inu hringdi í DV. „Ég sá þetta
mjög greinilega. Leigubíllinn ók
beint í veg fyrir stúlkurnar. Það er
engin spmning að Dagný er fullum
rétti í þessu slysi,“ sagði maðurinn
við DV.
-RR
Tveir átta ára drengir urðu fyrir strætisvagni á Laugavegi í gær. Þeir liggja báðir á Sjúkrahúsi Reykjavfkur eftir slysið.
DV-mynd S
Atta ára
á gjörgæslu
Tveir átta ára drengir liggja á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur eftir að
hafa hlaupið í veg fyrir strætisvagn
á Laugavegi í gær. Annar er minna
slasaður og liggur á bamadeild,
hinn er á gjörgæsludeild, höfuð-
kúpubrotinn og með aðra höfuðá-
verka. Samkvæmt upplýsingum frá
lækni í morgun var hann ekki tal-
inn úr allri hættu. Hann var ekki al-
veg kominn til meðvitundar en fer í
myndatökur í dag og þá verður
ástand hans kannað betur. -sv
Veðrið á morgun:
Hægt
hlýnandi
veður
Á morgun verður suðaustan-
kaldi og rigning eða slydda sunn-
an- og vestanlands en síðan hæg-
ari sunnanátt. Það þykknar upp
norðanlands og austan og hlýnar
hægt.
Veðrið í dag er á bls. 77.
SKIPTITASKA
ef keyptir eru
;pakkar