Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 1 hamingju með afmælið 7. desember 80 ára Guðrún S. Kristjánsdóttir, Austurbrún 2, hæð 9. íbúð 1, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í Áskirkju við Vesturbrún, laugard. 6.12. kl. 16.00-19.00. Júlíus Jóhannesson, Jakobshúsi, Svalbarðssthr. 75 ára Hulda Guðjónsdóttir, Kleppsvegi 72, Reykjavík.. Jón Júlíus Sigurðsson, Hæðargarði 29, Reykjavík. 70 ára Sigmundur R. Helgason, Álftamýri 14, Reykjavík. Valgerður Sigurðardóttir, Hafnarbraut 47, Höfn. 60 ára Friðrikka Emilsdóttir, Múlasíðu 5b, Akureyri. Hreinn Guðjónsson, Selá, Skefilsstaðahreppi. 50 ára Ásgeir Halldórsson, Unufelli 13, Reykjavík. Elísabet Ólafsdóttir, Suðurhólum 26, Reykjavík. Guðlaug Hjelm, Hrauntúni 30, Vestmeyjum. Ingunn Sigurjónsdóttir, Keilufelli 12, Reykjavík. Margrét Káradóttir, Orrahólum 7, Reykjavík. Ólafur Bjamason, Suðurgötu 24, Siglufirði. Ólöf Stefánsdóttir, Fannborg 5, Kópavogi. 40 ára Auður Ámadóttir, Jódísarstöðum, Eyjafjarðarsv. Björgvin Karl Harðarson, Hunkubökkum, Skaftárhreppi. Guðrún Gunnarsdóttir, Ásabraut 9, Sandgerði. Gxmnþórunn Birna Gísladóttir, Kveldúlfsgötu 14, Borgamesi. Inga Jakobína Amardóttir, Hólmgarði 18, Reykjavík. Jóhanna Úlfarsdóttir, Básenda 14, Reykjavík. Pétur Joseph Salmon, Þrastarhólum 8, Reykjavík. Steinunn Jónsdóttir, Leiðhömrum 3, Reykjavík. staögreiöslu- og greiðslukorta- afsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur afmæli „ <- ____________________________ i / Arni Kristinn Hansson J Árni Kristinn Hansson trésmíða- meistari, Hrafnistu, Reykjavík, varð níræður í gær. Starfsferill Ámi fæddist á Holti á Brimils- völlum í Fróðárhreppi og ólst þar upp. Hann fór ungur að stunda dag- róðra með föður sínum, sem var for- maður á Brimilsvöllum, en strax eftir fermingu fór hann á útilegu- báta sem voru gerðir út frá Vest- fjörðum, var m.a. á Þingeyri í þrjú sumur. Er Ámi kvæntist hóf hann bú- skap í Hjallabúð á Brimilsvöllum og bjuggu þau hjónin þar í sjö ár. í Hjallabúð voru þau með skepnur til heimilis en aðallifibrauðið var sjó- sókn sem þá var enn stunduð frá Brimilsvöllum. Árni var síðasti for- maðurinn á Brimilsvöllum og geröi út, ásamt fóður sínum, Sigurði Tómassyni, mági sínum, og Haraldi Sigurðssyni í Nýlendu, vélbátinn Þröst frá 1929-1937. Árni flutti með fiölskyldu sína til Reykjavíkur 1937 og stundaði sjó- mennsku ma. í siglinum með fisk til Fleetwood. Vorið 1940 fluttu þau aftur vestur og þá til Ólafsvíkur og byggðu þau sér þar hús er þau nefndu Sólvelli. Hann var þar til sjós og síðar við trésmíðar á Ólafsvíkurár- unum. Þau fluttu í Kópavog 1947 þar sem þau bjuggu næstu fjörutíu árin. Þar vann hann við trésmíðar, fór 1950 í Iðskólann í Hafn- arfirði, lauk prófi í tré- smíði og varð síðar meist- ari í greininni. Hann rak Trésmiðjuna Ask, ásamt Einari Óskarssyni og Þórólfi Beck Jónssyni tré- smíðameisturum, frá því um 1950-81 en þá seldi hann þeim sinn hlut. Eftir þaö vann hann að smíð- um heima þar til árið 1987 að þau hjónin fluttu á Hrafnistu, þar sem Árni hefur dvalið síðan. Fjölskylda Árni kvæntist, 14.6. 1930, Helgu Tómasdóttur, f. 24.9. 1908, d. 15.6. 1990, húsmóður. Hún var dóttir hjónanna Ragnheiðar Árnadóttur og Tómasar Sigurðssonar sem bjuggu lengst af í Bakkabúð á Brim- ilsvöllum. Helga stundaði garðrækt af áhuga allan þeirra búskap og átti fallegan garð sem þau fengu viður- kenningu fyrir frá Kópavogskaup- stað 1976. Dætur Árna og Helgu eru Björg Ragnheiður, f. 24.7.1931, fyrrv. verk- stjóri í Hjallbúð, gift Ár- manni J. Lárussyni verk- taka og fyrrv. glímukóngi íslands; Ingibjörg, f. 26.9. 1935, hjúkrunarfræðingur, var gift Jóni Ólafssyni inn- anhúsarkitekt en þau slit- um samvistum; Ragnheiður Dóróthea, f. 1.9. 1939, skrif- stofumaður í Reykjavík, gift Braga Sigurjónssyni vinnuvélaverktaka. Börn Bjargar og Ár- manns eru Sverrir Gaukur, f. 1952, skrifstofumaður og kunnur bridgespilari; Helga Ragna, f. 1955, íþróttakennari, gift Páli Eyvinds- syni flugstjóra og eru börn þeirra Björg Ragnheiður, Ármann Jakob og Sverrir Gaukur. Börn Ingibjargar og Jóns eru Guðný Sif, f. 1962, tækniteiknari, gift Halldóri Eyþórssyni kjötiðnað- armanni og er sonur þeirra Eyþór Jakob, en sonur Gyðnýjar, Snorri Freyr Ákason; Tómas Árni, f. 1963, rafmagnsverkfræðingur, kvæntur Maríu Jónsdóttur leikskólakennara og eru þeirra börn Jón Amar og Ingibjörg; Helga Aðalheiður, f. 1968, blokkflautukennari, sambýlismaður Guðmundur Vilhjálmsson tónlistar- kennari en dóttir þeirra er Ingibjörg Ásta. Böm Ragnheiðar og Braga eru Árni Brynjar, f. 1959, bóndi og kenn- ari við Bændaskólann á Hvanneyri, kvæntur Þuríði Ketilsdóttur, bónda og garðyrkjufræðingi, og eru börn þeirra Ketill Gauti, Bragi Heiöar og Ólafur Geir; Helga Björk, f. 1963, bankastarfsmaður, sambýlismaður Friðrik Örn Egilsson rafvirki; Sig- urjón Rúnar, f. 1972, vörubifreiðar- stjóri, sambýliskona Sigrún Svein- björnsdóttir hákskólanemi; Guðrún Hlín, f. 1979, framhaldsskólanemi. -v Systkini Árna voru Hansbjörg Kristrún, f. 15.7. 1906, d. 26.11. sama ár; Guðríður Margrét f. 10.5.1911, d. 5.6. 1995, húsmóðir og fiskverka- kona í Ólafsvík; Guðmundur, f. 11.5. 1913, vörubifreiðarstjóri í Reykja- vík; Hallgrímur f. 15.3. 1916, d. 1997, trésmíðameistari í Reykjavík; Þor- steinn, f. 18.3.1918, fyrrv. fiskverka- maður í Ólafsvík; Amór Lúðvík, f. 10.2. 1920, trésmíðameistari í Reykjavík. Foreldrar Árna voru hjónin Hans Bjarni Árnason, f. 27.6. 1883, d. 30.1. 1958, bóndi og formaður á Holti Brimilsvöllum og á Kaldalæk í Ólafsvík, og Þorbjörg Þórkatla Árnadóttir, f. 27.8. 1879, d. 23.10. - 1969, húsffeyja. Ámi verður að heiman á afmælis- daginn. Árni Kristinn Hansson. Hjalti Haraldsson Hjalti Haraldsson, bóndi í Ytra- Garðshorni, Dalvik, er áttræður í dag. Starfsferill Hjalti er fæddur á Þorleifsstöðum í Svarfaðardal. Hann var í barna- skóla og unglingaskóla í Svarfaðar- dal, innritaðist í Iðnskóla Akureyr- ar í húsasmíði 1936 en snemma árs 1937 veiktist hann af lungnaberkl- um og dvaldist á Kristneshæli á þriðja ár. Hjalti lauk síðar búfræði- prófi frá Bændaskólanum í Hjalta- dal 1944. Hjalti var kennari í Saubæjar- og Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði í tvo vetur og kennari við Húsabakka- skóla í Svarfaðarda 1960-73 aö tveim áram undanskildum. Hjalti var bóndi á Litla-Hamri í Eyjafirði 1945-50 en hefur síðan bú- ið í Ytra-Garðshomi. Hjalti starfaði í Ungmennafélags- hreyfingunni og gegndi formanns-, ritara- og gjaldkerastarfi í UMSE og hlaut fyrir það viðurkenningu á sl. ári. Hann sat í fræðslunefnd Svarf- aðardalsskólahverfis í átta ár, í stjóm Búnaðarfélags Svarfdæla í tólf ár, jafnlengi í stjóm Ræktunar- sambandi Svarfdæla, í stjóm Svarf- dæladeildar Kaupfélags Eyfirðinga í sex ár, og var oddviti Svarfaðardals- hrepps 1964-74. I oddvitatíð sinni beitti hann sér fyrir rannsóknarbor- un eftir heitu vatni í landi Hamars í Svarfaðardalshreppi árið 1966 sem leiddi til stofnun hitaveitu á Dalvík. Hann var varamaður 1966, 1968 og 1969 og er heiðursfélagi Kiwanis- klúbbsins Hrólfs á Dalvík og golf- klúbbsins Hamars. Fjölskylda Eiginkona Hjalta er Anna, f. 6.8. 1923 að Sviðningi í Kolbeinsdal. Hún er dóttir Sölva Kjartanssonar, bónda að Sviðningi, og k.h., Jónínu Jónsdóttur húsfreyju. Böm Hjalta og Önnu eru Harald- ur Gauti, f. 12.5.1946, verkamaður á Akranesi, kvæntur Hjördísi Lindal Guðnadóttur húsmóðir og við heimaaðhlynningu en þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn; Jónína, f. 4.4. 1948, umsjónarmaður með fötl- uðum á Akureyri, gift Grétari Geirssyni, umsjónarmanni skóla- húsnæðis í Varmahlið en þau eiga fjögur börn og þrjú barnabörn; Hall- dóra Kristín, f. 23.2. 1950, húsmóðir á Selfossi, gift Áma Guðfinnssyni húsasmið og eiga þau þijú böm; Sölvi Haukur, f. 20.4. 1952, bóndi á Hreiðarstöðum í Svarfaðardal, kvæntur Rósu Kristjánsdóttur hús- freyj og eiga þau fimm böm; Jón Ragnar, f. 28.4. 1955, bóndi í Ytra-Garðs- homi, kvæntur Dóra Krist- ínu Kristinsdóttur hús- freyju og eiga þau þrjú böm; Anna Sigríður f. 14.4. 1960, fisktæknir og kennari við VMA, gift Gunnari Aðalbjöms- syni frystihússtjóra hjá Snæfelli á Dalvík og eiga þau þrjú börn; Sól- veig María, f. 19.5.1964, verkakona á Dalvík og á hún tvær dætur; Hjalti Viðar f. 23.9. 1966, verkstjóri á Dal- vík, kvæntur Hildi Birnu Jónsdótt- ur en þau eiga tvo syni. Systkini Hjalta: Stefanía Kristín, f. 20.11.1912, nú látin, húsmóðir Ólafs- vík; Friðrika Vigdís, f. 2.1. 1915, nú látin, húsfreyja í Ytra-Hvarfi í Svarf- aðardal; Jóhannes, f. 13.8. 1916, bú- settur á Dalvík, fyrrv. bóndi í Lauga- hlíö í Svarfaðardal; Halldór Kristinn, f. 23.2. 1920, dó ungur, búfræðingur; Lárus Blómkvist, f. 10.12. 1925, lát- inn, pípulagningameistari á Akur- eyri; Fríða Hrönn, f. 5.5. 1938, hús- móðir i Kópavogi. Foreldrar Hjalta voru Jón Haraldur Stefánsson, f. 19.12. 1883, d. 21.6. 1958, og Anna Jóhannesdóttir, f. 9.6. 1890, d. 5.10. 1974, húsfreyja. Ætt Stefán var Hansson, á Upsum Baldvinssonar, pr. þar Þorsteinssonar Hall- grímssonar Eldjárnsson- ar, í beinan karlegg af séra Jóni Maríuskáldi, og f.k.h., Jórunnar Lárusdóttur Scheving b. á Urðum. Meðal systkina hans var Snjólaug, kona Þorvalds Gunnlaugssonar á Krossum en frá þeim er talin Krossætt en angi hennar er Laxa- M mýrarætt. Anna var dóttir Jóhannesar, bónda og smiðs á Hæringsstöðum, og k.h. Jónínu Jónsdóttur en hún var afasystir hins þekkta athafna- manns Arngríms Jóhannssonar, flugmanns og eiganda Atlanta-flug- félagsins. Hjalti verður staddur í Rimum, félagsheimili Svardæla, laugardag- inn 6.12. frá kl. 20.00-24.00 og þang- að eru vinir og kunningjar vel- komnir í kvöldsnarl. Hjalti Haraldsson. Jónína Björk Sveinsdóttir Jónína Björk Sveins- dóttir dagmóðir, Garða- vegi 6 c, Hafnarfirði, verð- ur fertug á morgun. Starfsferill Jónína fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún stund- aði nám við Húsmæðra- skólann á Varmalandi 1976-77. Jónína stundaði versl- unarstörf i Hafnarfirði og vann við sælgætisgerð þar. Hún hefur verið dagmóðir síðustu árin. Jónina er félagi í Vélprjónafélagi íslands. Þá er hún gjaldkeri Dag- mæðrafélags Hafnarfjarðar. Fjölskylda Jónína giftist 30.7. 1983 Sveini Vilhjálmssyni, f. 7.2. 1952, starfsmanni við Báta- smiðju Guðmundar í Hafii- arfirði. Hann er sonur Vil- hjáms Sveinssonar, f. 20.7. 1924, d. 23.8. 1986, Og Val- gerðar Kr. Árnadóttur hús- móður. Dóttir Jónínu og Sveins er Rebekka Helga Sveins- dóttir, f. 5.5. 1978; Vilhjálmur Árni Sveinson, f. 30.1. 1985; Ásta Björk Sveinsdóttir, f. 29.6. 1991. Dóttir Sveins frá fyrra hjóna- bandi er Elín Rós Sveinsdóttir, f. 4.2. 1974, starfsmaður á Stöð 2. Systkini Jónínu era Ólöf Brynja Sveinsdóttir, f. 8.11. 1949, bóndi að Svelgsá í Helgafellssveit, gift Bjarna R. Guðmundssyni, bónda þar og eiga þau þrjú börn; Aðalsteinn Sveinsson, f. 22.2.1951, dýralæknir í Skógum, kvæntur Stefaníu Skarp- héðinsdóttur, framkvæmdastjóra Bridgesambands Islands og eiga þau tvö böm; Gunnar Örn Sveinsson, f. 22.2.1956, verkamaður í Hafnarfirði; Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir, f. 7.9. 1959, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Heiðari B. Jónssyni, starfsmanni hjá Akraborginni, og eiga þau fimm börn. Foreldrar Jónínu eru Sveinn Ólafur Sveinsson, f. 24.6. 1924, húsa- smíðameistari í Hafnarfirði, og Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir, f. 10.7. 1926, húsmóðir í Hafnarfirði. Ætt Sveinn fæddist á Nýlendu undir Eyjafjöllum, sonur Sveins Guð- mundssonar og Jónínu Jónsdóttur sem bæði eru látin. Rebekka fæddist og ólst upp á Laugarbóli í Ögursveit, dóttir Aðal- steins Jónssonar bónda þar, og Ólafar ólafsdóttur, bæði látin. Jónína Björk Sveinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.