Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 16
16
mtal
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Ævintýraþrá og leiklistaráhugi
réðu mestu um að ég ákvað að
sækja um hlutverkið," segir
Sara Dögg Ásgeirsdóttir, tvítug há-
skólamær, í samtali við helgarblað
DV. Hún hefur verið ráðin til þess að
leika Þuríði, aðalkvenhlutverkið í
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Myrkrahöfðingjanum, sem er innblás-
in af Píslarsögu síra Jóns Magnússon-
ar, prests á Eyri við Skutulsfjörð. Þar
leikur hún á móti Hilmi Snæ Guðna-
syni sem leikur síra Jón. Tökur hefj-
ast í lok janúar á næsta ári.
„Ég hef brennandi áhuga á leiklist
og sá þaö strax að þarna væri verk-
efni sem myndi reyna verulega á mig.
Ég var í raun að skora sjálfa mig á
hólm þar sem þetta er mjög krefjandi
verkefni," segir Sara Dögg og bætir
við að hún sé bjartsýnismanneskja og
að hún hafi þvi gengið út frá því frá
byrjun að hún fengi hlutverkið. Hún
hlær og segir aö ef hún hefði svo ekki
fengið hlutverkið myndi hún kannski
ekki vilja kannast við að hafa verið
svona bjartsýn.
Aldrei
Sara Dögg segir leikkonudrauminn
hafa blundað lengi í sér þó hún hafi
aldrei stigið á svið, ef undan eru skild-
ar einhverjar uppákomur í barna-
skóla. Því er þaö enn skemmtilegra að
hún skyldi verða fyrir valinu. Um 150
stúlkur sóttust eftir þessu hlutverki
og í þeim hópi voru m.a. reyndar
leikkonur. Valið tók langan tíma og
eftir mikla yfirlegu þótti Sara henta
best fyrir hlutverkið. Þess má geta að
Maria Bonnevie, Alda Sigurðardóttir
og María Ellingsen eru meðal þeirra
leikkvenna sem hafa byrjað leikferil
sinn í myndum Hrafns Gunnlaugsson-
ar.
„Ég vissi ekkert út í hvað ég var að
fara, hellti mér bara út í óvissuna. Ég
Sara Dögg Ásgeirsdóttir, sálfræöinemi viö HÍ, segist alls óhrædd aö takast á við þetta nýja og spennandi verkefni.
Ung, óþekkt háskólamær ráðin í aðalkvenhlutverkið í Myrkrahöfðingjanum:
DV-myndir BG
Var í ævintýraleit
r
- segir Sara Dögg Asgeirsdóttir sem valin var úr 150 umsækjendum
!^bsbb& i
fór í nokkuð margar prufur og tók
strax þá ákvörðun að vera ekkert að
velta mér upp úr því hvernig þeir
vildu að ég væri. Ég vissi ekkert
hverju þeir leituðu aö en þóttist jafn-
framt viss um að ef ég ætlaði að reyna
að fara að búa eitthvað til ætti ég ekki
möguleika. Ég reyndi bara að vera
blátt áfram og ég sjáif og það skilaði
mér í þá stöðu sem ég er í dag.“
Þessi tilvonandi stjama hvíta
tjaldsins er á fyrsta ári í sálfræði viö
HÍ. Hún er fædd og uppalin í Gnúp-
verjahreppi Árnessýslu, tók stúdents-
próf á þremur árum frá Fjölbraut í
Breiðholti og fór þá til Frakklands í
hálft ár til að læra frönsku. Hún seg-
ist hafa fylgt rödd ævintýrakonunnar
í sér þegar hún fór út og og er greini-
lega ekki búin að fá nóg af ævintýrum
enn. Hún á unnusta sem hún segir
styðja vel við bakið á sér.
Enginn beygur
„Ég hef ekki tekið neinar ákvarð-
anir varðandi skólann. Ég ætla að
sjá hvemig mér gengur í prófunum
nú og hvort ég fæ yfir höfuö að
halda áfram. Tökur á myndinni
heíjast í janúar og ég geri mér alveg
grein fyrir að þar þarf ég á öllu
mínu að halda. Meðalmennskan
mun ekki duga mér, hvorki í skól-
anum né þegar tökur hefjast og því
getur verið að ég þurfi að minnka
við mig í sálfræðinni. Ég get alltaf
tekið upp þráðinn þar en það er
ekki gefið að svona tækifæri bjóðist
aftur.“
Æfingar ,á Myrkrahöfðingjanum
em rétt hafhar og þar hitti Sara
Dögg eingöngu fyrir atvinnufólk í
greininni. Hún vill samt ekki kann-
ast við að beygur hafi verið í henni.
Hún sé staðráðin í að standa sig í
þessu og þá dugi ekkert að verða
hrædd. Þá geti hún alveg eins hætt
við strax. En hvað með hlutverk
Þuríðar? Hvemig líst henni á það?
Nektin truflar ekki
„Mjög vel. Ég vissi ekkert um
hana áður en hef verið að forvitnast
og lesa mér til. Þuríður er vinnu-
kona á bæ séra Jóns og ég held að
við eigum ýmislegt sameiginlegt.
Það er kvenskörangur í okkur báð-
um. Þuríður er ung og saklaus í
upphafi en fólk sér hana þroskast í
sögunni. Þetta er spennandi ferli
sem gaman verður að takast á við.“
Eins og bíógestir eiga eftir aö
sannfærast um er Sara Dögg falleg,
ung stúlka. Minnugur fyrri mynda
Hrafns þótti undirrituðum ekki
ótrúlegt að þessi nýja leikkona
þyrfti að fækka fötum í Myrkrahöfð-
ingjanum.
„Jú, það er nekt í myndinni en
það truflar mig alls ekki. Á meðan
nektin er eðlileg og ekki afskræmd
finnst mér hún í lagi. Ég er ekki
feimin að eðlisfari og mér finnst
þetta bara hinn eðlilegasti hlutur. -
Aðspurð hvað taki við eftir að
tökum lýkur segir Sara Dögg það al-
gerlega óráðið. Það fari allt eftir því
hvemig gangi.
„Ég hef mikinn áhuga á því sem
ég er að læra núna og reyndar ýmsu
öðra, hönnun og vitaskuld leiklist-
inni. Ég er viss um að ég á eftir að
prófa mjög margt og síðan legg ég
það í púkk og sé hvað kemur út úr
því áður en ég ákveð hvað ég ætla
að verða þegar ég verð stór,“ segir
Sara Dögg Ásgeirsdóttir, ákveðin og
kraftmikil ung kona sem greinilega
lætur sér ekki aOt fyrir brjósti
brenna. -sv
Myrkrahöföinginn veröur, að minnsta kosti aB hluta til, tekinn viö Reykjanesvita. Leikmyndin hefur verið að veðrast
og nú biðja menn bara um snjó og vont veður í janúar til þess aö tökur geti farið fram.
DV-mynd Pjetur