Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1998, Blaðsíða 24
32
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998
Sviðsljós
Kærasti Karólínu
kærður fyrir árás
Lögreglan í Hannover hefur kært
Ernst August prins, kærasta Kar-
ólínu prinsessu af Mónakó, fyrir
árás á myndatökumann. Prinsinn á
á hættu aö verða dæmdur í 5 ára
óskilorðsbundið fangelsi, að því er
erlendir fjölmiðlar fullyrða. Og Kar-
ólína verður ef til vill kölluð til yf-
irheyrslu og látin bera vitni.
Líkamsárásin er sögð hafa átt sér
stað síðastliðið laugardagskvöld.
Ernst og Karólina höfðu verið við-
stödd góðgerðarsamkomu og var
þetta í fyrsta sinn sem þau sýndu
sig saman opinberlega. Brostu þau
bæöi breitt til pressunnar.
En þegar turtildúfumar sneru til
hallar prinsins fyrir utan Hannover
sýndi hann á sér aðra hlið. Þegar
Ernst sá myndatökumann með ljós-
kastara á myndavél sinni réðst
hann á ljósmyndarann með kylfu,
sparkaði í klofið á honum og beit
hann í höndina. Síðan greip hann í
hár myndatökumannsins og skellti
höfði hans í götuna. Á meðan á
þessum látum stóð var myndavélin,
sem myndatökumaðurinn hafði
misst, í gangi og árásin festist á
filmu.
Með þessari hegðun sinni þykir
Ernst August hafa svert nafn
Grimaldiættarinnar í Mónakó sem
hingað til hefur átt við nógu mörg
hneykslismál að stríða.
Emst og Karólína voru vinir þeg-
ar þau voru ung og þótti Grace
prinsessu, móður Karólínu, prins-
inn tilvalinn maki fyrir dóttur sína.
Ekkert varð þó úr því að þau gengju
i það heilaga. En ástir tókust með
þeim á ný ekki alls fyrir löngu.
Prinsinn skildi við eiginkonu sína
og hefur verið fastur fylgdarmaður
Karólinu undanfarna mánuði.
Ástmaður Karólínu
prinsessu gekk
berserksgang við
höll sína.
Paula fær
aðeins lítinn
hluta arfsins
Flestallar milljónirnar, sem
rokksöngvarinn Michael
Hutchence lét eftir sig, renna
til samtaka Grænfriðunga og
Vina jarðarinnar. Afganginn
fær 16 mánaða gömul dóttir
söngvarans og Paulu Yates.
Paula er sögð fá aðeins litinn
hluta af arfinum.
Fullyrt er að Michael hafi
látið eftir sig rúman hálfan
milljarð íslenskra króna og
þykir það ekki mikið. En hann
var iðinn við að gefa ýmsum
samtökum og líknarfélögum fé
þannig að upphæðin kemur
ekki á óvart.
Ljósi jakkinn á myndinni er verk tískuhönnuðarins Johns Richmonds. Jakk-
inn var sýndur á sýningu yfir næstu haust- og vetrartísku sem nú stendur
yfir í Mílanó. Símamynd Reuter
Kryddpíurnar verst
klæddu konurnar
Kryddpíumar eru efstar á lista
hönnuðarins Blackwells yfir verst
klæddu konur heims. Segir
tiskusérfræðingurinn þær eins og
fmun sælgætismola. í öðru sæti á
listanum er gamanleikkonan Ellen
DeGeneres. Henni ráðleggur
Blackwell að setja allan pokalega
tískufatnaðinn aftur inn í skáp.
Söngkonan Madonna var í þriðja
sæti og hún fær það einnig óþvegið.
Blackwell er ekki ýkja hrifinn af
Evituklæðnaði hennar.
Fyrrum strandvarðagellan Pamela
Anderson er í fjórða sæti.
Leikkonan Jennifer Tilly er í
fimmta sæti, Sigourney Weaver i
sjötta og Emma Thompson í
sjöunda. Alicia Silverstone er í
áttunda sæti, Francis Fisher í
níunda og tíunda sætið vermir
karlmaður, rokkarinn Marilyn
Manson
DV birtir hann í Fjörkálfinum á föstudögum. Bylgjan spilar hann á fimmtudagskvöldum. Póra
Dungal kynnir hann á Stöð 2 á föstudagskvöldum og Coca Cola gefuT tóninn!
Þú getur valið
Almenningur getur hringt í síma
550 0044 og tekið þátt í vali listans.
í tónlistargetraun íslenska listans í
síma 904 1111 (39,90 mín.)
vinna fimm heppnir plötuna
„Breyt’ um lit" með Sóldögg.
www.topp40.is