Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1998
Neytendur
DV kannar verð á kjólaleigum og samkvæmisgreiðslum:
Síðir svartir kjólar og
einfaldar hárgreiðslur
Nú er tími árshátíöa og þorra-
blóta runninn upp. Það viröist vera
orðinn hluti hátíöarhaldanna hjá
konum að gera sér dagamun með
því að leigja sér kjól og fá sér hár-
greiðslu í stíl.
„Síðir kjólar viröast halda vin-
sældum sínum á meðal kvenna og
ég er ekki frá því að það sé að verða
aukning í þessu. Það sem er vinsæl-
ast hjá okkur eru einfaldir og lát-
lausir kjólar, sérstaklega þegar
yngri konur eiga í hlut,“ sagði eig-
andi einnar kjólaleigunnar í samtali
við DV. Þá virðist svarti liturinn
öðrum yfirsterkari og svartir kjólar
í mestu úrvali á leigunum.
Fyrir dömur
En hvað kostar að leigja sam-
kvæmiskjól eina kvöldstund?
Ódýrasta samkvæmiskjólinn var að
finna á Fataleigu Garðabæjar en hann
kostar 3000 krónur. í þessu tilfelli er
reyndar um að ræða stuttan sam-
kvæmiskjól en á sama stað kostar síð-
kjóllinn 5000 krónur.
Hjá Brúðarbæ er því aö finna ódýr-
asta síðkjólinn en þar er lægsta verð
3500 og fer hæst í 4500 krónur. Hjá
Brúðarkjólaleigu Dóru kosta kjólar á
bilinu 5000 til 6000 en á þeirri leigu
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
kr
Í~1 Þjóðbúningur □ Kjólföt
Smókingur
Fataleiga
3.800
4.500
6.500
3.500
4.500
6.500
3.200
4.200
6.500
3.500
4.500
6.500
Brúöarbær
Brúöarkjólaleiga Dóru
Brúðarkjólalelga
Fataleigu
Garöabæjar
Brúöarkjólaleiga
Katrínar
kostar þjóðbúningurinn aUs staðar
6.500 krónur og eins eru kjólfotin á
4500 krónur á öUum leigunum.
Þegar kemur að smókingnum má
greina verðmun þótt hann geti vart
Leiga á
samkvæmiskjólum
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
Lægsta verö QH
Hæsta verö [
4.500
kr
3.500
5.000
6.000 6.000
5.000
4.000
ra
3.000 ra 'C s © ra 'O ra
(Q WJ © (0 'O ? ra I ra «2 ra (D 3> ©
'S m £ 'S m
Hárgreiðslurnar á svipuðu
veröi
Til þess að kanna hvað sam-
kvæmishárgreiðsla kostar var haft
samband við Hár-Tískuna Kle-
ópötru, Hárgreiðslustofuna Hár-
nýju, Hárgreiðslustofuna Klappar-
stíg, Hárgreiðslustofuna hjá Guð-
rúnu Hrönn og Salon VEH.
Eigendum hárgreiðslustofanna
reyndist fremur erfitt að gefa upp
eitt ákveðið verð fyrir samkvæmis-
greiðslu. Þar kemur nefnilega
margt inn í, svo sem hversu langan
tíma greiðslan tekur, hvort þarf að
setja rúllur og svo framvegis. Allar
voru stofumar þó tilleiðanlegar að
gefa upp algengasta verð á sam-
kvæmisgreiðslu.
Lægsta verö í könnuninni var hjá
Hárgreiðslustofunni Hjá Guðrúnu
Hrönn en þar kostar ódýrasta
Samkvæmis-
greiðslur
2.500 --, ---.
var jafnframt tekið fram að um mjög
íburðarmikla kjóla væri að ræða.
Smókingurinn vinsælastur
Allar kjólaleigurnar í könnuninni
bjóöa upp á sparifatnað fyrir karlpen-
inginn. Undanfarið hefur íslenski
þjóðbúningurinn sótt mikið á en þrátt
fyrir það var það álit þeirra sem vit
hafa á að smókingurinn sé enn vin-
sælastur. Það er hins vegar áberandi
hversu lítill verðmunur er á fatnaði
karla og raunar miklu minni en á
samkvæmisfatnaði kvenna. Til dæmis
talist mikill. Ódýrastur er smókingur-
inn hjá Fataleigu Garðabæjar, kostar
3200 krónur, en dýrastur hjá Brúðar-
bæ á 3800 krónur.
Á Fataleigu Garðabæjar og Brúð-
arkjólaleigu Katrínar eru einnig til
leigu dökk jakkafót fyrir karlmenn.
Slík fót kosta á fyrrnefndu leigunni
2500 krónur en 3000 krónur með
skyrtu og bindi. Á síðamefndu leig-
unni kostar dökk jakkafót með vesti
4500 krónur. Á báðum stöðum fengust
þær upplýsingar að jakkafótin væru
mest tekin vegna jarðarfara.
2.000
1.500
1.000
500
s>
2
jS 'O
I 1
I I
I s £
a » g
'RS 'S* m
kr ------
greiðslan 2000 krónur en sú dýrasta
fer 13.335 krónur. Hárgreiðslustofan
Klapparstíg var næstódýrust með
2.195 krónur. Uppgefið verð eru í
lægri kantinum en svo virðist að
þau fari hæst í tæpar fjögur þúsund
krónur.
-aþ
42 40,62 0,6
41.5 A 0,59 '
0,58
41 ** \ 0,57
Affelgaður
Mikill darraðardans var á síð-
asta ári í kringum veitingastaðinn
Felguna á Patreksfirði. Sigurður
Ingi Pálsson veitingamaður deildi
við bæjarstjórnina og
sýslumanninn. Hann
gerðist hústökumað-
ur þegar bæjar-
stjórnin vildi rifta
leigusamningi við
hann. Þá átti hann í
hörkudeilum við
kvenfélagið á
staðnum og lyktaði
þeim átökmn með að hundur
hans beit gjaldkera kvenfélagsins.
Sigurður Ingi rekur nú pöbb
skammt frá Alicante á Spáni. Pöbb-
inn heitir ekki Felgan heldur
Restaurant Annies og þar var um
síðustu helgi haldið friðsælt þorra-
blót sumarhúsaeigenda á Spáni.
Sagan segir að Sigtu-ður Ingi og
Jónas Þór, meðeigandi hans, hafi
kynnt sér vandlega hvort nokkurt
kvenfélag væri I grenndinni áður
en þeir festu kaup á pöbbnum. Sig-
uröur Ingi og hundar hans eiga nú
friðsæla tíma í hinum suðræna
ranni...
Hræddir um Jón
Fyrrum samheijar Jóns Bald-
vins Hannibalssonar eru margir
sagðir eiga svefnlausar nætur af
áhyggjum. Áhyggjumar eru ekki
vegna Alþýðuflokks-
ins, ekki vegna sam-
einingar vinstri-
manna, ekki vegna
sveitarstjómakosn-
inganna í vor, held-
ur vegna þess fé-
lagsskapar sem
Jón Baldvin, hinn
öflugi og ástsæli
fyrrverandi foringi krata, er nú
kominn i vestur í Washington.
Kratarnir eru sagðir óttast það
mjög að hinn kvensami Bandaríkja-
forseti eigi eftir að spilla íslands-
manninum og aö það geti haft vara-
samar afleiðingar ef Jón Baldvin
fer nú að tileinka sér meint hátta-
lag forsetans í kvennamálum ...
Harður nagii
Helstu samningamenn í hópi sér-
fræðinga í deilunni við Trygginga-
stofnun hafa verið læknarnir Guð-
mundur Eyjólfsson, Víglundur
Þorsteinsson og
Stefán Matthíasson.
bróðir séra Pálma í
Bústaðakirkju. En
Stefán hefur verið
sá langharðasti í
samningunum.
Fyrir nokkru lét
Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðis-
ráðherra svo ummælt að hún
vænti þess að lausn kynni að nást
undir lok síðustu viku. Gárungam-
ir segja að það hafi verið vegna
þess að hún vissi að Stefán Matthí-
asson var þá einmitt á fóram til út-
landa...
Eplið og eikin
Allir fjórir bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanesbæ
hyggja á framhald. Ellert Eiríks-
son bæjarstjóri er óskoraður for-
ingi 1 hópnum og þarf
ekki að óttast um
efsta sætið í próf-
kjöri. Jónína Sand-
ers, sem er í öðru
sæti, er sömuleiðis
álitin hafa styrkt
sig. Hins vegar
kann að verða tek-
ist á um næstu sæti en í
þeim sitja Björk Guðjónsdóttir,
sem rekur heildverslun syðra, og
Þorsteinn Erlingsson útgerðar-
maður. Stuðningsmenn Böðvars
Jónssonar, sem var í fimmta sæti
við síðustu kosningar, vilja að list-
inn verði yngdur og stefna á þriðja
sætið. Böðvar er sonur hins nafn-
kunna fræðimanns Jóns Böðvars-
sonar sem einkum er frægur fyrir
Njálunámskeiö sín og hefm' áratug-
um saman verið langt til vinstri.
Stundum fellur ephð ekki hjá eik-
inni...
Umsjón: Stefán Ásgrímsson