Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 13 í nútímasamfélagi leggur ungt fólk sifellt meiri áherslu á aðbúnað bama og áherslur sveit- arfélaga í þeim efnum geta ráðið úrslitum um það hvar fólk kýs að festa rætur. Reykjavík hefur kappkostað að búa vel að námsmönnum og nægir að nefna dagvist- armálin i þvi sambandi. Fleiri leikskólarými Uppbygging Reykja- vikurlistans í dagvistar- málum hefur að sjálf- sögðu komið sér vel fyrir alla hópa þjóðfélagsins sem eiga börn á leik- skólaaldri. Á valdatíma Sjálfstæðisflokksins áttu giftir foreldrar og sam- búðarfólk ekki kost á að sækja um heilsdagsvist fyrir sín böm en það var eitt af fyrstu verkum okkar í meirihluta Reykjavíkurlistans að breyta þeirri ósvinnu. En í stjórn Dagvistar barna höfum við líka lagt áherslu á samvinnu við samtök námsmanna í því skyni að tryggja vel hagsmuni þess hóps. Um nokkurt skeið hefur verið í gildi samningur milli Stúdentaráðs og Dagvistar barna sem lengst af kvað á um að stúdentar hefðu for- gang að tilteknum fjölda dagvistar- rýma hjá borginni. Núverandi meirihluti í stjóm Dagvistar barna beitti sér fyrir því fyrir um tveimur árum að námsmannarýmum var fjölgað um 30% og má segja að sú ráðstöfun hafi orðið til þess að koma að fullu á móts við eftirspurn meðal námsmanna eftir leikskólarýmum. Reykjavíkurborg tel- ur mikilvægt að búa vel að námsmönnum til að tryggja að þeim finnist Reykja- vík eftirsóknarvert sveitarfélag að búa í. Þannig er hugað að framtíðinni og ungu kynslóðinni því í henni býr orka og sköpunarmáttur sem við viljum gjaman virkja til góðra hluta. Rekstrarsam- vinna Á sama tíma og gert var samkomulag milli borgarinnar og Stúdentaráðs var einnig gerður samningur við Félagsstofnun stúd- enta um byggingu og rekstur leik- skóla á háskólasvæðinu. Meö þeim samningi var brotið blað í leikskóla- rekstri í Reykjavík. Félagsstofnun stúdenta tók þátt í byggingu leik- skólans Mánagarðs og er því eigandi að húsnæði hans ásamt borginni en tók jafnframt við rekstrinum. Með því móti sýndi borgin stúdentum traust til að taka við afar viðkvæm- um rekstri sem þar sem ekkert má út af bera og ekki er annað að sjá en þeir hafi leyst það verkefni vel af hendi. Nú eru að hefjast viðræður milli Dagvistar barna og Byggingafélags námsmanna um byggingu og rekstur á leikskóla við Háteigsveg í tengslum við Kennara- háskólann og nýskipulagt stúdenta- hverfi þar sem líklega gæti risið á næsta ári. Lægst námsmannagjöld Nýlega kannaði Dagvist barna leikskólagjöld i 12 sveitarfélögum. Þar kemur í ljós að Reykjavík býr Kjallarinn Arni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi og form. Dagvistar barna „Reykjavíkurborg telur mikilvægt að búa vel að námsmönnum til að tryggja að þeim fínnist Reykjavík eftirsóknarvert sveitarfélag að búa í. Þannig er hugað að fram• tíðinni og ungu kynslóðinni..." Námsmenn og Reykjavík í nútímasamfélagi leggur ungt fólk sífelit meiri áherslu á aöbúnaö barna, segir m.a í grein Árna Þórs. sérstaklega vel að námsmönnum því aðeins eitt annað sveitarfélag veitir námsmönnum þar sem maki er ekki í námi afslátt, og þar sem báðir for- eldrar eru í námi eru gjöldin lægst í Reykjavík. Ef báðir foreldrar eru í námi er gjald fyrir heilsdagsvistun 9500 kr./mán. i Reykjavík en er að með- altali tæpar 15 þúsund krónur eða tæpum 60% hærra en í Reykjavík. Hæst er gjaldið i Kópavogi, um 20 þúsund eða rúmlega 100% hærra en í Reykjavík. Sé annað foreldrið í námi er gjald fyrir heilsdagsvistun í Reykjavík 13.500 kr. en um 18 þús- und krónur að meðaltali. - Og enn er gjaldið hæst i Kópa- vogi, eða 50% hærra en í Reykjavík. Þá er Reykjavík eina sveitarfélag- ið fyrir utan Reykjanesbæ sem greiðir niður dagvistargjöld hjá dag- mæðrum en það er að sjálfsögðu mikil kjarabót fyrir námsmenn eins og aðra foreldra. Þannig fer ekkert á milli mála að Reykjavík og Dagvist barna hafa í verki sýnt námsmönn- um stuðning og skilning sem vert er að taka eftir. _ Árni Þór Sigurðsson Heilbrigðiskerfið og hag- fræði andskotans Lög um réttindi sjúklinga eru þverbrotin á þegnunum. í lögunum sem heilbrigðisráðherra undirritaði sjálfur segir m.a. i fyrstu grein: „Óheimilt er að mismuna sjúklingum á grundvelli kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, litarhátt- ar, efnahags, ættemis og stöðu að öðru leyti." Grein þessi er byggð á 65. gr. stjómarskrárinnar sem er sam- hljóða að öðra leyti en því að í stað orðanna „óheimilt er að mismuna sjúklingum“ er setningin svona „ All- ir skulu vera jaftiir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til... Lægra hlutfall þjóöartekna Er það ekki brot á þessari laga- grein að fjöldinn allur af fólki þurfi að bíða mánuðum og jafnvel árum saman á biðlistum sjúkrahúsa eftir aðgerð vegna fátæktar á meðan þeir sem efni hafa á geta gengið inn á einkastofu læknis úti í bæ án mikils fyrirvara og fengið bót meina sinna gegn greiðslu upp á tugi eða jafnvel hundruð þúsunda? Er það ekki brot á þessari grein að fjöldinn allur af fólki neyðist til að sleppa því að fara til læknis vegna þess að lyf- og lækn- ishjálp er orðin svo dýr að það hefur ekki efni á að greiða fyrir hana? Afleiðingin sem af þessu hlýst skilar sér í fleiri veikindadögum hjá vinnandi fólki og flýtir þannig á endanum fyrir þvi að viðkom- andi missi heils- una sem aftur leiðir til ómælds kostnaðar fyrir þjóðfélagið. Ráðu- neyti félagsmála, heilbrigðis- og tryggingamála era þannig i raun að sparka fólki á milli sín því að um annað hvort verður um að ræða ör- orkubætur, atvinnuleysisbætur, sjú- krabætur eða sjúkrahúsvist, allt eft- ir því hvort sjúklingurinn telst uppi- standandi eða ekki. Okkur er sagt að heilbrigðisþjón- ustan kosti þjóðfélagið of mikiö. En staðreyndin era sú að hlutfall þjóð- artekna sem fer í heilbrigðiskerfið hér er langtum lægra en hjá þeim velferðarþjóðfé- lögum sem við höfum í gegnum tíðina verið að að bera okkur saman við og sparnaður í heil- brigðiskerfinu leiðir ekk- ert annað af sér en til- flutning á vanda og fjár- munum sem þjóðfélagið blæðir hvort eð er fyrir á endanum með einu eða öðra móti. Stríö heilbrigðis- ráðuneytis Stríð heilbrigðisráðu- neytisins á hendur stjórnendum sjúkrahúsa og sérfræðilæknum eru að ganga að þjónustunni dauðri. Nú er boðaður 3% flatur niðurskurður á Landspítalanum sem samkvæmt hefðinni er sjálfsagt ætl- að að framkvæma þannig að hann byrji og endi á Sóknarfólki í ræst- ingum og mötuneytum en niður- skurður í þessum störfum hefur leitt til þess að fólk fæst ekki lengur í þau og flýr þau unnvörpum vegna þrældóms á sama tíma og um 3000 manns ganga atvinnulausir í Reykjavík! Á öldrunarlækningadeildum sjúkrahúsanna liggja tugir aldraðra mánuðum saman og teppa rándýr rúm i stað þess að nýta langtum ódýrari kosti sem heimilis- legt hjúkrunarheim- ili veitir öldruðum. Fyrir sama fjármagn sem þeir öldruðu kosta þjóðfélagið með legu sinni á deildunum er hægt að byggja 200 hjúkr- unarrými. Á biðlist- um í Reykjavík eru nú um 160 manns sem metnir eru í mjög brýna þörf og bíða þess að komast á hjúkrunarheimili og hópurinn stækk- ar stöðugt. Hagfræði sem þannig er ástunduð hefur stundum verið kennd við sjálf- an andskotann og skyldi engan undra. Við eigum heimtingu á því að sjálfur löggjafinn fari eftir gild- andi lögum og mismuni ekki þegn- unum eftir efnahag og stöðu og við eigum líka heimtingu á að vita hvert stefnir í velferðarmálum. Guðrún Kr. Óladóttir „Við eigum heimtingu á því að sjálfur löggjafínn fari eftir gild- andi lögum og mismuni ekki þegn- unum eftir efnahag og stöðu og við eigum líka heimtingu á að vita hvert stefnir í velferðarmálum. “ Kjallarinn Guörún Kr. Óladóttir varaform. Sóknar og tek- ur þátt í prófkjöri R-list- ans i Reykjavík Meö og á móti Á aó auka veg almennings- íþrótta á kostnað keppnis- íþrótta? Þorstoinn G. Gunnarsson, framkvæmdastjori íþrótta fyrir aila. er Avinningur fyrir samfé- lagið „Vitaskuld þarf að auka veg almenn- ingsíþrótta. Engum blöðum er um það að fletta að já- kvæð áhrif hreyfingar eru ansi mögnuð, bæði fyrir sál og líkama þeirra sem hreyfa sig reglulega. Ávinningurinn einnig mikill fyrir samfélagið því aukin hreyfing leiðir af sér hraustari einstaklinga sem síður þurfa á að halda fokdýrri þjón- ustu heilbrigðisstoftiana. Á þennan hátt eru almenn- ingsíþróttir forvöm og opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög, þurfa í auknum mæli aö opna augu sín fyrir þvi. Ekki síður að hinu að „fjárfesting" í almenningsíþrótt- um er, hvemig sem á það er lit- ið, arðbærari fyrir samfélagið. En hver er stefna sveitarfélag- anna? Hvert fer það fé sem sveit- arfélögin verja til íþróttamála? í langflestum tilvikum eru það keppnisíþróttirnar sem njóta góðs af þessum fjármunum sem merkilegt nokk er almannafé. Og það sem meira er, almenningur ber að stórum hluta uppi keppn- is- og afreksíþróttir hérlendis, alla vega eru það ekki eingöngu keppnis- og afreksfólk sem kaup- ir lottómiða í hverri viku! Hvað þetta varðar og í Ijósi þess að ÍSÍ ver einungis einni milljón á ári til almenningsí- þrótta má skipta kökunni á ann- an hátt almenningsíþróttunum í vil.“ Hvarf til með- almennsku „Að auka veg almenn- ingsíþrótta er að sjálfsögðu gott mál en eigi að gera það á kostnað keppnisíþrótt- anna er alveg út í hött. Að mínu mati yrði það hvarf til meðal- mennsku. Það er alveg vitað mál að almenning- ur hefur engan áhuga á að fylgj- ast með meðalmennskuíþróttum. Allir sækjast eftfr því að ná ár- angri og markmið okkar er fram- þróun. Ef við ætluðum að draga úr afreksíþróttum værum við þar með að neita okkur og okkar afreksfólki um að ná settum markmiðum. Að mínu mati eiga afreksíþróttir, íþróttir barna og unglinga og almenningsíþróttir að haldast í hendur. Ef hins veg- ar ætti að minnka veg afreksí- þróttanna væri það í raun hlið- stætt því til dæmis að setja þann kvóta í handbolta að ekki mætti skora meira en 10 mörk í leik eða þá að ákveða aö Kristinn Bjöms- son mætti aldrei lenda í fyrsta sæti. Með svona hugmyndum er þvi í raun verið að ráöast gegn framþróun. Ef ákvörðun í lík- ingu við þessa hefði verið tekin fyrir hundrað árum væram við enn stödd í moldarkofunum. Þetta er því með öðrum oröum alveg fáránleg hugmynd." -KJA Jónas Egilsson, for- maöur Frjálsí- þróttasambands ís- lands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.