Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
Fréttir
Dreifibréf veldur usla:
Hatur ríkjandi
- segir Björn S. Pálsson
Sá hiti sem verið hefur í sjálf-
stæðismönnum í Hveragerði undan-
farin misseri vegna innbyrðisdeilna
og klofnings minnkaði ekki nú í
vikunni þegar nafnlaust dreifibréf
var sent inn á öll heimili í bænum.
Þar er staðhæft að samningar liggi
fyrir milli Sogns, þar sem ósakhæf-
ir einstaklingar hafa vistast, og
Dvalarheimilisins Áss um að „ósak-
hæfir afbrotamenn" eigi að vistast á
elliheimilinu til reynslu. Gísli Páll
Pálsson, forseti bæjarstjórnar og
oddviti Bæjarmálafélagsins, er jafn-
framt framkvæmdastjóri Dvalar-
heimilisins Áss og segir hann í við-
tali við DV að hann hafi rökstuddan
grun um að bréfið sé komið frá for-
svarsmönnum Sjálfstæðisfélagsins
Ingólfs. Tengir Gísli bréfið öðrrnn
nafnlausum bréfúm sem send hafa
verið fjölskyldu hans. En þessi bréf
eru ekki þau einu sinnar tegundar
því fyrir um ári var Áma Guðlaugs-
syni bæjarverkstjóra sent bréf þar
sem veist v£ir að Gísla Páli og Ein-
ari Mathiesen bæjarstjóra.
Glaðvakandi og Velvakandi
Bréfið til Áma var undirritað af
„Glaðvakanda" en undir bréfið nú
ritar „Velvakandi". Ámi tók við
starfi sem bæjarverkstjóri af Bimi
S. Pálssyni, formanni Sjáifstæðisfé-
lagsins Ingólfs, en Bimi var sagt
upp störfum bæjarverkstjóra
nokkm eftir að Gísli Páll og fyrrum
bæjarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins
höfðu gengið til meirihlutasam-
starfs viö H-listann undir merkjum
Bæjarmálafélagsins. Bjöm S. hefur
lýst uppsögn sinni sem „hefndaráð-
stöfun" fyrram félaga sinna en þeir
halda því hins vegar fram að þar
hafi verið um hagræðingarráðstöf-
un að ræða sem hafi verið löngu
ákveðin. Árni Guðlaugsson staðfesti
að honum hefði borist bréf af þessu
tagi en vildi að öðra leyti ekki tjá
sig um málið.
Bréfið frá samherjum Gísla?
Bjöm S. Pálsson neitaði því að
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur stæði að
baki því dreiflbréfi sem sent var í
Gfsli Páll Pálsson.
þessari viku. „Ég lít ekki á þetta
sem flokkspólitískt mál. Þessi ásök-
un Gísla að bréfiö sé frá Sjálfstæðis-
félaginu Ingólfi er afskaplega dapur-
leg og lýsir kannski best manninum
sjálfum. Hitt er Ijóst að þaö hefur
einhver skrifað það sem er mjög
mikiö niöri fyrir. Og Gísli á sér
fleiri andstæðinga en Sjálfstæðisfé-
lagið Ingólf. Þetta gæti allt eins ver-
ið komið frá einhverjum í sam-
starfsflokkum hans í bæjarstjóm.
En það vita hins vegar allir íbúar
hér í Hveragerði, ég sem aðrir, að
það sem stendur í fyrri hluta bréfs-
ins (þar sem segir að margir vist-
menn Dvalarheimilisins Áss eigi
við geðræn vandamál að stríða og
valsi um götur og hafl áreitt böm og
unglinga, innsk. blm.) er ekkert
annað en sannleikur. Þetta fólk er
búið að vera hér í 30 ár og þaö hef-
ur gengið á ýmsu. Þetta fólk, sem
haldið er niðri á lyfjum, kemur jafn-
vel hingaö inn á Hótel Örk og er að
fá sér í glas og er með raddaskap."
- Og hvað vilt þú gera við því sem
stjómmálamaður í Hverageröi?
„Mér finnst allt f lagi að það verði
skoðað á hvaða nótum þetta er.
Þetta er rekið sem dvalarheimili
fyrir aldraða og hvað er stór hluti
þar geðsjúklingar?"
Björn S. Pálsson.
- Og hvað vilt þú láta gera í því?
„Ja, ég er ekkert að ásaka þetta
dvalarheimili á neinn hátt og vil
ekki fara að ræða þetta mál á for-
sendum þessa bréfs,“ sagði Bjöm.
Hatur ríkjandi
- Þú sagðir, Bjöm, í samtali við
fréttaritara DV aö staðhæfmgar um
samkomulag milli Sogns og Áss,
sem fram koma í dreiflbréfinu,
væra komnar frá starfsmönnum
Sogns. Yfirlæknir þar hafl geflð í
skyn að samkomulag lægi fyrir.
Hvað áttu við?
„Ég sagði henni að ég hefði heyrt
þessa sögu í haust eða vetur eins og
margir Hvergerðingar, því þá fór
Dreiflbréf það sem sent var öllum
Hvergerðingum nú á miðvikudag
hefur valdið reiði meðal bæjarbúa.
Dreifibréfið hafði verið sent frá
Reykjavík svo engin hætta væri á
að sæist til þeirra sem vildu koma
þessi saga af stað. Annars vil ég
ekki ræða þetta frekar."
- En hvemig stendur á því að
pólitíkin hér í Hveragerði er svona
hatrömm?
„Ég vil ekki meina að þetta dreifi-
bréf hafl neitt með flokkspólitík að
gera. En pólitíkin er hatrömm að
því leytinu til að hér hefur verið
helvítis hatur. Hér er búið að vera
að stinga menn í bakið aftur og aft-
ur. Það var gerö stjómarbylting á
miðju kjörtímabilinu og hatrið á
rætur að rekja þangað."
Studdi Ingólfur meirihlu-
tann?
En það hafa verið aðrar hreyfmg-
ar í stjómmálum í Hveragerði ný-
verið. Alda Andrésdóttir, ein þeirra
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
sem myndaði nýjan meirihluta und-
ir merkjum Bæjarmálafélagsins,
gekk fyrir um þremur vikum aftur í
Sjálfsstæðisfélagið Ingólf. Hefur
Gísli Páll sagt að hann líti á hana
sem eina fulltrúa minnihlutans í
bæjarstjóm í dag. Björn tók undir
þaö og sagði að Alda væri nú full-
trúi Sjálfstæöisfélagsins Ingólfs í
bæjarstjóm. Alda samþykkti hins
vegar framlagða fjárhagsáætlun
meirihlutans á fnnmtudag í siðustu
viku.
- Má þá líta svo á, Björn, að Sjálf-
stæðisfélagið Ingólfur hafi verið að
samþykkja fjárhagsáætlun Bæjar-
málafélagsins og H-listans?
„Nei, þessi umskipti era nú svo
nýskeð.“
því í dreifingu. Þeir bæjarbúar sem
DV náði tali af í gær vora á einu
máli um efni þess og var m.a. haft á
orði aö þessi uppákoma væri hneisa
fyrir bæjarfélagið. Nú hafa „óháðir"
bæjarbúar hafið undirskriftasöfnun
Um endurkomu Öldu sagði Bjöm
„hún sér eftir að hafa farið út í þetta
og það hafa verið mistök."
- Mun Sjálfstæðisfélagið Ingólfur
fara þess á leit við Öldu að hún taki
sæti á lista?
„Ég vil ekki tjá mig um það,“
sagði Bjöm.
Framsókn úr H-lista
Aðrar fréttir úr háhitapólitíkinni
í Hveragerði era aö Framsóknar-
flokkurinn hefur ákveðið að standa
ekki að H-listanum í komandi kosn-
ingum heldur bjóða fram í eigin
nafni. Egill Gústafsson, formaður
Framsóknarfélagsins i Hveragerði,
sagði að ástæðan væri fyrst og
fremst sú að flokkurinn vildi láta
fara fram liðskönnun. „Við höfum
ekki boðið fram í nafni Framsókn-
arflokksins síðan 1982 og höfúm ver-
ið í H-listanum síðan 1986. Það sam-
starf hefur gengið vel og við erum
ekki að útiloka frekara samstarf við
sömu aðila þó það verði þá fulltrúar
Framsóknarflokksins sem koma að
því.“ Uppstillingamefnd er að störf-
um og það er ljóst að Runólfur Þór
Jónsson mun ekki verða efsti mað-
ur á lista. „Hann verður á listanum
en getur ekki af persónulegum
ástæöum verið þar í forystu. En við
vonumst eftir að fá tvo menn
kosna," sagði Egill.
Þá er ljóst að Hjörtur Már Bene-
diktsson, fúlltrúi óháðra á H-listan-
um, mun ekki gefa kost á sér í bæj-
arstjómarkosningunum. -phh
í bænum til að mótmæla vinnu-
brögðum af þessu tagi. Hér á eftir
fara viðbrögö nokkurra íbúa Hvera-
gerðis sem DV hitti á förnum vegi í
gær.
-phh
Sýður á Hvergerðingum
Fáránlegt
„Mér flnnst þetta
bréf fáránlegt og held
að öllum frnnist það.
Ég vildi ekki fá þetta
fólk í bæinn ef satt
væri. Annars er póli-
tíkin hér í Hveragerði
þannig að það er best
að vera ekkert að gefa
upp skoðanir sínar í
þeim efnurn," sagði
Þóra Gísladóttir, af-
greiðslustúlka í
Hveragerði.
Skítkast
og lygi
„Þetta dreifibréf
er fyrir neðan allar
hellur, skítkast,
uppspuni og lygi.
Það ríkir almenn
reiöi héma í bæn-
um út af þessu. Ég
veit ekki um neinn
sem ekki er reiður
út af þessu," sagði
Unnur Ingvadóttir i
Hveragerði.
Vitleysa
„Ég fleygði þessu
bara í ruslið undir-
eins. Ég ansa ekki
svona vitleysu,"
sagði Elín Kjartans-
dóttir í Hveragerði.
Lágkúru-
legt
„Það eina sem ég
vil segja um þetta
er að mér fmnst
þetta lágkúrulegt.
Ég efast um að
þetta eigi við nein
rök að styðjast,"
sagði Steinar Hilm-
arsson í Hvera-
gerði.
HVERGERÐINGAR - ÖLFUSINGAR
ER EKKI NÓG KO.MIÐ
Dvalarhcimilið Ás, sem á sínum tíma var sett á stofn sem heimili fyrir
aldraða hefur um margra ára skeiö hýst fólk á ölium aldri ekki
cingöngu gamalt fólk og hafa margir vistmenn sem hér hafa dvalið verið
með geðræn vandamál. Sumir af þcssu fólki hcfur valsað hér um götur
bæjarins og hafa íbúar Hveragerðis látið það óáfalið þrátt fyrir að vitað
sé að börn og ungllngar hafa orðið fyrir árciti frá þessu fólki.
Hins vcgar hcfur nú verið upplýst að fyrir lyggi samkomulag á milli
Dvalarheimilisins Ás og Sogns, sem er stofnun fyrirósakhæfa
afbrotamenn, um að Dvalarhcimilið Ás taki að sér að hýsa hér í
Hveragerði fólk sem útskrifaðist til reyns|u frá Sogni.
Hvað á þessi starfsemi skylt við dvalarheimili fyrir aldraða. Þykir
bæjarbúum það verjandi að hér verði vistaðir á Dvalarheimilinu Ás,
ósakhæfír afbrotamenn á reynslulausn.
Vclvakandi veit að nú þegar hafa nokkrar fjölskyldur ákveðið að flytja
burt úr Hveragerði vegna þessa undarlega máls.
Er ekki rétt að bæjarstjórn Ilveragerðis grípi nú þegar inn í þettað mál.
VELVAKANDI