Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998 I>1LF
Ummæli
Rökþrota dóms-
málaráðherra
„Ég hygg aö þessarar um-
ræðu verði helst
minnst fyrir dap-
urlegan málflutn-
ing rökþrota
dómsmálaráð-
herra, sem kaus
að beita útúr-
snúningum og
fjalla hvergi
málefnalega
um alvarlegar staðreyndir
þessa máls.“
Hrafn Jökulsson blaðamað-
ur, um umræður á alþingi
um Franklín Steiner, í Degi.
Vitleysisgangur sjó- og
útgerðarmanna
„Mér finnst nóg að þurfa að
fást við duttlunga loðnunnar,
þótt ekki komi líka til vitleys-
isgangurinn í þeim aöilum
sem eiga að sjá um að veiða
þetta."
Þórður Jónsson, rekstarstjóri
SR-mjöls, í DV.
Mannlíf - efnahagslegt
reiknisdæmi?
„Aö hætta að nota íslensku
er rökrétt fram-
hald af þeirri
römmu markaðs-
hyggju sem nú
ríður húsum og
telur allt mann-
líf einhvers
konar efna-
hagslegt reikn-
isdæmi.“
Árni Bergmann rithöf-
undur, í DV.
Rugluðu viðhorf
landsmanna
„Það er ömurlegt til þess að
vita að talsverður hópur í
verkfræðingageiranum og póli- J
tíkusar á atkvæðaveiðum skuli
hafa ruglað viðhorf fullmargra
landsmanna til þeirra verð-
mæta sem gera þetta land aö
sérstæðasta og ómengaðasta
svæði á Vesturlöndum."
Sigurlaugur Brynleifsson rit-
höfundur, í Morgunblaðinu.
Aldrei af okkur tekið
„Ég fagna því að nokkru
leyti að leikurinn
sé endurtekinn
vegna þess að
fyrir valsmenn
skiptir fjárhags-
hliðin
miklu meira
máli heldur en t
titillinn. Við
erumbúnirað
vinna hann, búnir að
fagna honum og það verður
aldrei af okkur tekið."
Brynjar Harðarson, fyrrver-
andi form. handknattleiks-
deildar Vals.
r»ro
Utbreiðsla lang- og miðbylgjustöðva að degi til
- miðað við góðan móttökustyrk, minni styrkur fjær -
A. Vatnsendi (207 kHz,
B. Skjaldarvík (738 kHz, 5
C. Eiðar (207 kHz, 20 kW)
D. Höfn (666 kHz, 1 kW)
E. Gufuskálar (189 kHz, 300 kW)
F. Eiðar ný stöð (207 kHz, 100 kW)
Stefán Hrafn Hagalín, umsjónarmaður Punktm.is.:
Yinnan er stóra áhugamálið
„Þetta er önnur þáttaröðin og
það er hugur í Stöð 2 að halda þessu
gangandi. Það voru 10 þættir í fyrri
röðinni og nú er stefnt á alla vega 10
í viðbót. Þættirnir nú eru með tals-
vert breyttu sniði en áður. Þeir
verða fréttatengdari og ítarlegri en
áður. Það eru færri viðtöl en þau
verða skarpari og ítarlegri," segir
Stefán Hrafn Hagalín, 26 ára um-
sjónarmður íslensku þáttaraðarinn-
ar Punktur.is., sem heldur áfram
göngu sinni á Stöð 2. Fyrsti þáttur-
inn í nýju þáttaröðinni verður nk.
mánudagskvöld klukkan 22.05.
„Ég beini sjónum að því sem helst
er á döfinni i síbreytileg-
um tölvuheiminum. Sér-
stök áhersla verður lögð
á fréttir af fólki, tölvum
og Netinu. í fyrsta þætti verður m.a.
fjallað um vafrastríðið mikla á milli
Microsoft og Netscape. Þá verður
sagt frá alls kyns verslun og við-
skiptum á Netinu sem hafa stórauk-
ist hér á landi undanfarin ár. Næg-
ir þar að nefna smáauglýsingavefi
og viðamikinn fasteignavef sem nýt-
ur mikillar athygli. Það verður fjall-
að um hvernig fólk getur á praktísk-
an hátt náð miklu út úr Netinu og
sparað sér sporin og tímann. Að
auki kemur óvæntur gestur í þenn-
an fyrsta þátt. í öðrum þætti ætla ég
að fjalla um fjármálastarfsemi fyrir
fólk, hvemig það getur notað sér
banka, tryggingafélög o.fl.
Það er að aukast mjög áhugi á
tölvum. Ég held að það séu tölvur á
helmingi heimila í landinu og um 70
prósent íslend-
inga hafa aðgang
að tölvum á heimili, skóla eða vinn-
unni. Skoðanakönnun Gallups sýnir
að 46 prósent íslendinga er með að-
gang að Netinu. Þetta er hætt að
vera einhver iðja fyrir sérvitringa
með kókbotnagleraugu. Það em all-
ir að nota þetta í dag. „Það var
ánægja með áhorfið á fyrri þáttun-
um. Nú er bjartsýni að auka það
enn enda þættirnir nú á mjög góð-
um tíma. Þeir verða nú á eftir X-
Files og á undan seinni fréttum
Stöðvar 2. Hver þáttur verð-
ur endursýndur tvisvar
í hverri viku,“ segir
Stefán Hrafn.
Hann er einnig rit-
stjóri tímaritsins
Tölvuheimur PC World
Island. Tímaritið
kemur út mánaðar-
lega. Stefán Hrafn
segir að það sé
rekið i sam-
starfi við fyrir-
tæki sem heit-
ir ITG og er
stærsta út-
gáfufyrir-
tæki
heims á
sviði upp-
lýsinga-
tækni.
Stefán Hrafn hefur unnið við
blaðamennsku undanfarin 8 ár.
Hann var fyrst á Alþýðublaðinu,
bæði sem blaðamaður og frétta-
stjóri. Síðar var hann ritstjóri á
Helgarpóstinum. Stefán Hrafn á tvö
börn, drengina Andra Má 8 ára og
Jökul Starra 2ja ára. Sambýliskona
Stefáns Hrafns er Arndís Kristjáns-
dóttir en hún er verkefna- og þró-
unarstjóri hjá netdeild Morgun-
blaðsins.
Aðspurður um áhugamálin segir
Stefán Hrafn þau vera vinnuna,
fjölskylduna og lestur góðra bóka.
Vinnan er stóra áhugamálið
auk fiölskyldunnar að sjálf-
sögðu. Ég les griðarlega mikið
og reyni að stela hluta nætur-
innar til þess. Ég vildi geta
komist oftar i bíó,“
segir Stefán
Hrafn að lok-
um.
-RR
Stefán Hrafn Hagalín.
Maður dagsins
Eggert Þorleifsson og Björn Ingi
Hilmarsson í hlutverkum feðga í
Feörum og sonum.
Feður og
synir
- kynning á undan sýningu
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld á stóra sviði Borgarleik-
hússim Feður og syni eftir ívan
Túrgenjev. Áður en sýningin hefst
mun Ingibjörg Hafstað bók-
menntafræðingur kynna höfund-
inn og sefia verkið í sögulegt sam-
hengi á Leynibar Borgarleikhúss-
ins. Kynningin hefst kl. 19 og er
aðgangur ókeypis.
Leikhús
Feður og synir gerist í Rúss-
landi um miðja nítjándu öld. Hinn
ungi Arkadi kemur með skólafé-
laga sinn, hinn bráðgáfaöa
Basarov, á óðal fóður síns.
Basarov gerir árangurslausar til-
raunir til að vekja þessa rótgrónu
og efnuðu fiölskyldu af óhaggan-
legu andvaraleysi. En hann er
kvalinn af togstreitu mikilla til-
finninga og grípur til örþrifaráöa
með skelfilegum afleiðingum.
í hlutverkum í Feðrum og son-
um eru Björn Ingi Hilmarsson,
Eggert Þorleifsson, Guðlaug Elísa-
bet Ólafsdóttir, Guðrún Ásmunds-
dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir,
Kristján Franklín Magnús, Pétur
Einarsson, Sóley Elíasdóttir og
Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjóri
er Alexsei Borodin og sá hann
einnig um leikgerð.
Bridge
Sabine Auken tók ákvörðun sem
reyndist ekki vel í viðureign henn-
ar við Þröst Ingimarsson og Þórð
Bjömsson, sigurvegara tvímenn-
ings Bridgehátiðar. Sagnir gengu
þannig, suður gjafari og enginn á
hættu:
4 Á109
4» ÁK653
•f DG
* 1084
4 DG8
«4 G
4 ÁK9754
* ÁD2
4 5432
* D72
* 6
* G9763
Suður Vestur Norður Austur
Þórður Jens Þröstur Sabine
pass pass 1 dobl
pass 1 4 p/h
4 K76
* 10984
* 10832
* K5
Stúlkur eru í miklum meiri-
hluta keppenda.
Úrslit í frístæl
Úrslit íslandsmeistara-
keppni unglinga í frjálsum
dönsum (freestyle) fer fram
í Tónabæ í kvöld kl. 20.
Keppendur á aldrinum
13-17 ára alls staðar af land-
inu munu berjast um ís-
landsmeistaratitilinn. Mik-
ill áhugi hefur verið fyrir
Dans
þessari keppni og era kepp-
endur 120 talsins sem er
metþátttaka. Til skemmtun-
ar verður ýmislegt, meðal
annars dansatriði frá Dans-
skóla Jóns Péturs og Köru,
mambókóngar frá Verslun-
arskóla íslands, unglingar
frá Aerobic Sport og sigur-
vegarar frá því í fyrra.
Danssýning
í Kringlunni
í dag verður þriðja hug-
myndin í 20,02 hugmyndir,
átaki ungs fólks gegn eitur-
lyfium, sýnd gestum og
gangandi í Kringlunni. Að
þessu sinni eru það nem-
endur úr Listdansskóla ís-
lands sem sýna Gravity eft-
ir Önnu Sigríði Guðnadótt-
ur. Verkið verður sýnt á
efri hæð Kringlunnar fyrir
framan Hagkaup kl. 17.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2037:
Sældarbrauð.
CVhoP
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Flestir spilarar hefðu eflaust kos-
ið að segja tvo tígla á hönd austurs
en Sabine Auken ákvað frekar að
dobla til úttektar. Jens Auken var i
vanda staddur og hafði val um að
segja tvo tígla eða einn spaða, sem
hann og gerði.
Dobl austurs lofar
alla jafha 4 spilum
í spaða og Jens
taldi sig vera að
segja sig inn í 4-3
samlegu í litnum.
Eins spaða sögn
austurs er tak-
mörkuð í punkt-
um (0-8 punktar)
og Sabine taldi því litla ástæðu til
að halda áfram í sögnum. Á þennan
dramatíska hátt misstu þau hjónin
af borðleggjandi fimm tígla samn-
ingi og lentu i 8-3 samlegu í stað
þess að spila á 6-4 samleguna. Þröst-
ur og Þórður fengu 132 stig af 134
mögulegum fyrir að verjast í einum
spaða. ísak Örn Sigurðsson
Sabine Auken.