Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Síða 20
32
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
Iþróttir
Björn Þór Ólafsson:
Kristinn
harður
af sér
„Ég heyrði
ekkert í
Kristni sjálfum
en ég heyrði
frá kærustu
hans sem tal-
aði við hann í
dag (í gær) og
þá leið honum
betur. Ég veit
að Kristinn er
harður af sér og hann verður
vonandi alveg orðinn hress þeg-
ar svigkeppnin hefst,“ sagði
Bjöm Þór Ólafsson, faðir Krist-
ins Bjömssonar, sem verður i
eldlínunni í Nagano i nótt í svig-
Kristinn
Björnsson.
mu.
Kristinn hætti sem kunnugt er
við seinni ferðina í stórsviginu í
fyrrinótt vegna flensueinkenna.
Fyrri ferðin hefst klukkan
hálfeitt í nótt og sú síðari
klukkan fjögur.
Spenntur og kvíöinn
„Maður er auðvitað spenntur
og kvíðinn. Ég vona að hann nái
skila sér niður meðal 15 efstu í
fyrri ferðinni og verði það niður-
staðan er aldrei að vita hvað
gerist. Ég er ekkert búinn að láta
mig dreyma um eitthvert sæti en
ef Kristinn gerir sitt besta er ég
ánægður. Eitt er vist að keppnin
verður hörð en mér sýnist að að-
stæður í sviginu geti orðið góðar
fyrm Kristinn. Ég veit ekki rás-
númer Kristins en það kæmi
mér ekki á óvart að hann yrði í
'kringum 16-17 í röðinni," sagði
Björn Þór. -GH
NBA-deildin:
Keypt og
selt í nótt
Það gekk mikið á hjá NBA-
liðunum í nótt því þá rann út
frestur til að kaupa leikmenn á
þessu tímabili.
Jason Caffey fór frá Chicago
til Golden State, í skiptum fyrir
David Vaughn og tvo valrétti í
nýliðavali.
Brent Barry fór frá LA
Clippers til Miami, i skiptum
fyrir Isaac Austin, Charles
Smith og valrétt.
Terry Cummins fór frá
Philadelphia til New York í
skiptum fyrir Herb Williams og
Ronnie Grandison.
Rony Seikaly, sem neitaði að
fara frá Orlando til Utah í
vikunni, var í staðinn seldur til
New Jersey í nótt. Með honum
fór Brian Evans en Orlando fékk
í staðinn Kevin Edwards, Yinka
Dare, David Benoit og valrétt.
Cedric Ceballaos fór frá
Phoenix til Dallas í skiptum
fyrir Dennis Scott.
Úrslitin í NBA-deildinni í
nótt.
Indiana-Philadelphia....82-77
D. Davis 14, Miller 12, A. Davis 10 -
Thomas 16, Coleman 16, Ratliff 13.
Toronto-Chicago........86-123
Wallace 19, Christie 18, McGrady 14 -
Pippen 22, Longley 21, Burrell 20.
Dallas-San Antonio .....81-87
Wells 21, Bradley 13, Anstey 10 -
Duncan 26, Williams 14, Johnson 12.
Houston-Detroit........100-90
Drexler 29, Barkley 14, Oiajuwon 13 -
Dumars 19, Hill 16, Hunter 15.
LA CIippers-Miami.......80-89
Taylor 17, Piatkowski 16, Murray 15 -
Mouming 28, Hardaway 16, Lenard 12.
LA Lakers-Denver ......131-92
Fox 22, Bryant 21, Shaq 19, Bennett 17
- L. Ellis 19, Newman 19, Jackson 11.
-VS
Vetrarólympíuleikarnir i Nagano i nótt:
- Deborah Compagnoni sigraði glæsilega i stórsviginu
ítcdska skíðakonan Deborah Com-
pagnoni skráði nafn sitt rækilega á
spjöld skíðasögunnar í nótt þegar
hún vann glæsilegan sigur í stór-
svigi kvenna í Nagano.
Compagnoni varð með þessu fyrst
keppenda í alpagreinum til að hljóta
gullverðlaun á þrennum ólympíu-
leikum. Hún varð um leið fyrsta
konan sem ver ólympíutitil sinn í
stórsvigi.
Deborah Compagnoni er handhafi
heimsmeistaratitlanna í stórsvigi og
svigi. Hún missti naumlega af sigri
í sviginu í fyrrinótt en í stórsviginu
í nótt var hún í sérflokki. Com-
pagnoni náði besta tímanum í báð-
um ferðum á erfiðri brautinni í
Higashidate-fjalli og sigri hennar
var ekki ógnað á neinn hátt.
Frábær skíðakona
„Hún er frábær skiðakona. Ég er
mjög ánægð með að hún skyldi
hreppa gullið og að ég næði silfr-
inu,“ sagði Alexandra Meissnitzer
frá Austurríki, sem varð önnur.
Katja Seizinger frá Þýskalandi
stækkaði sitt verðlaunasafn með því
að krækja í bronsið.
„Ég held að þetta sé mitt besta
mót. Á milli ferðanna varð mér
hugsað til þess hvemig ég missti
niður gott forskot í sviginu. En nú
var ég í minni aðalgrein og réð ferð-
inni,“ sagði Deborah Compagnoni.
Nýliöinn sigraöi
Julia Chepalova, 21 árs Rússi,
sigraði í 30 km skíðagöngu kvenna í
nótt. Það kom verulega á óvart en
hún skaut hinum reyndu Stefaniu
Belmondo frá Ítalíu og Larissu
Lazutinu frá Rússlandi aftur fyrir
sig á endasprettinum.
Þar með hafa Rússar fagnað sigri
í öllum göngugreinum kvenna í
Nagano.
Norðmenn sigruðu í liðakeppni í
norrænni tvíkeppni. -VS
Deborah Compagnoni fagnar sigri sínum í stórsviginu í nótt.
Símamynd Reuter
Naqano aö ólympiuleikunum loknum
Áætlaöur kostnaöur Notkun eftir leikana
Skíöastökkpallurinn í Hakuba
5.700 millj. Skíöastökk alit áriö
Snæharpan Q
3.290 millj. Aðstaöá fyrir göngugreínar
Nozawa Onsen rj
1.820 millj. Aöstaöa fyrir göngugreinar
Karuizawa 53
Var til staðar Vetur: Ishokkí Sumar: Tennis o.fl. íþróttir
Spiral E2Q
5.670 millj. Vetur: Sleöabrautir Sumar: Ymsar tómstundir
Bustaöir tjölmiölamanna
490 millj. íbúöarhúsnæöi
Aqua Wlng Í3
5.110 millj. Sundlaug allt áriö
Miöstöð Ijósvakamiöla (IBC)
1.190 millj. Veröur rifin
Stóri hatturinn [3
12.390 millj. Fjölnota íþróttahöll
Fréttamannamiöstöö (MPC)
2.555 millj. Ráðstefnusalir/verslanir
MWave £2
20.510 millj. Fjölnota höll meö skautabraut
Ólympfuþorpiö
24.430 millj. rnLmjm Húsnæði á vegum borgarinnar og verstanir
Minami Nagano íþróttaleikvangurinn
5.782 millj. Hornabolti/ýmsar greinar
Hviti hringurinn I3E3
9.009 millj. Rmleikahöll
Aqua Wing
Þakinu má
M-Wave
fi Áhorfendapallar
sem veröa
fjarlægöir
Hviti
hring-
urinn
I>V
MAGAN
500 m skautahl. kvenna:
1. Annie Perreault, Kanada . . . 46,57
2. Yang Yang, Kina .........46,63
3. Chun Lee-kyung, S-Kóreu . . 46,34
(Sigraði í B-úrslitum og fékk bronsið
þar sem tvær luku ekki keppni í A-
úrslitum)
Stórsvig kvenna:
1. Deborah Compagnoni, ít. . . 2:50,59
2. Alexandra Meissnitzer, Au. 2:52,39
3. Katja Seizinger, Þýskal. . . . 2:52,61
Theodóra Mathiesen ..........féil
Brynja Þorsteinsdóttir.......féll
30 km skíöaganga kvenna:
1. Julia Chepalova, Rússl. . . 1:22:01,5
2. Stefania Belmondo, Ítalíu 1:22:11,7
3. Larissa Lazutina, Rússl. . 1:23:15,7
Norræn tvíkeppni karla:
1. Noregur...... 54:11,5 - 225,3
(Halldor Skard, Kenneth Bráten,
Bjarte Vik, Fred Lundberg)
2. Finnland..... 55:30,4 - 226,5
3. Frakkland.... 55:53,4 - 215,8
(Samanlagöur árangur i skíðagöngu
og skíðastökki ræður úrslitum)
5.000 m skautahl. kvenna:
1. Claudia Pechstein, Þýskal. . 6:59,61
(heimsmet)
2. Gunda Niemann, Þýskal. . 6:59,65
3. Ljudmila Prokasheva, Kas. 7:11,14
Skipting verölauna:
G S B
Þýskaland 10 9 8
Rússland 9 5 2
Noregur 8 8 5
Kanada 554
Holland 5 4 2
Bandaríkin 5 2 4
Japan 413
Austurríki 3 5 7
Ítalía 2 6 2
Finnland 2 4 5
Frakkland 2 14
Sviss 2 13
Suður-Kórea 2 0 1
Búlgaría 10 0
Kína 0 4 0
Tékkland 0 11
Svíþjóð 0 11
Danmörk 0 10
Úkraína 0 10
Hvíta-Rússland 0 0 2
Kasakstan 0 0 2
Ástralía 0 0 1
Belgía 0 0 1
Staðan klukkan 8 í morgun.
Chrisíian Mayer, silfurverðlauna-
hafi í stórsvigi, hótaði þvi i nótt að
hætta að keppa fyrir Austurríki eftir
að hann hafði verði settur úr úr
svigliði Austurríkismanna. Mario
Reiter, ólympiumeistarinn í alpatví-
keppni, fékk sæti hans.
En Mayer gat tekið gleði sína á ný í
morgimsárið. Þá kom í ljós að Sieg-
fried Voglreiter var meiddur og May-
er keppir í sviginu í hans stað.
Fréttastofa Reuters sagði í nótt að
ísland ætti möguleika á sínum fyrstu
verðlaunum á vetrarólympíuleikum.
Kristinn Bjömsson var þar talinn
upp í hópi þeirra sem gætu gert það
gott í sviginu næstu nótt.
-VS
Féllu báðar
Engin íslensk skíðakona lauk
keppni á þessum ólympíuleik-
um. Tvær þær síðustu kepptu i
stórsviginu í nótt, Brynja Þor-
steinsdóttir og Theodóra Mat-
hiesen. Hvorug lauk fyrri ferð-
inni en þannig fór fyrir 20 kepp-
endum af 56.
Theodóra var númer 48 í rás-
röðinni. Hún byrjaði vel en
keyrði út úr brautinni eftir 30
sekúndur.
Brynja virtist ætla að ná í
mark en féll eftir rúmar 70 sek-
úndur. Þá átti hún um 20 sek-
úndur eftir í markið. -VS