Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Page 23
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
Afmæli
Finnur Ingi Finnsson
Finnur Ingi Finnsson, bóndi á
Skerðingsstöðum I í Reykhóla-
hreppi og bílasmiður, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Finnurfæddist að Skerðingsstöð-
um og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við Iðnskólann í Reykjavík og
lauk þaðan prófum sem bílsmiður
1983.
Finnur starfaði við sina iðn í
Bílaskálanum hf. til 1984, vann í
Blikksmiðjunni Höfða til 1986, hóf
þá störf hjá KK Blikk og vann þar
til 1993.
Jafhframt þessum störfum var
Finnur barþjónn og dyravörður í
veitingahúsinu Þórscafé á árunum
1983-93. Hann starfaði hjá Marel hf.
á árunum 1993-96 en flutti þá að
Skerðingsstöðum að þar sem hann
tók við fjárbúi fóðurbróð-
ur síns.
Fjölskylda
Eiginkona Finns er Ás-
dís Ámý Sigurdórsdóttir,
f. 24.4. 1966, starfsstúlka
við Dvalar- og hjúkrunar-
heimili aldraðra, f. 24.4.
1966. Þau hófú sambúð
1988 en giftu sig 18.5.1991.
Ásdís Ámý er dóttir Sig-
urdórs Friðjónssonar,
bátsmanns á rannsóknar-
skipinu Árna Friðriks-
syni, búsettum í Reykjavík, og Ása
Árnadóttir ræstitæknir.
Sonur Finns og Nönnu Jónsdótt-
ur er Steindór Finnsson, f. 10.10.
1980.
Börn Finns og Ásdísar Ámýjar
eru Ása Guðrún Finnsdóttir, f.
26.10. 1989; Hafldór
Finnsson, f. 1.10. 1995.
Systkini Finns eru Jón
Árni Sigurðsson, f. 13.3.
1954, sjómaður á Reyk-
hólum; Kristján Finns-
son, f. 8.5. 1956, stjómar-
formaður KK Bliks hf. í
Reykjavík; Karlotta Jóna
Finnsdóttir, f. 1.5. 1957,
húsmóðir í Reykjavík;
Agnes Finnsdóttir, f. 22.5.
1965, húsmóðir og verka-
kona í Hafnarfirði.
Foreldrar Finns: Finnur
Kristjánsson, bóndi að Skerðings-
stöðum H, og k.h., Guðný Sæbjörg
Jónsdóttir, húsfreyja þar.
Finnur verður að heiman.
Finnur Ingi
Finnsson.
Jónbjörn Björnsson
Jónbjöm Björnsson
verktaki, Álfabyggð 2,
Súðavík, varð fimmtugur
á miðvikudaginn var.
Starfsferill
Jónbjörn fæddist að
Svarthamri í Álftafirði en
ólst upp að Seljalandi í
sömu sveit.
Jónbjöm hefur stund-
að ýmis störf um dagana
til sjós og lands. Hann og
fjölskylda hans hafa búið
í Súðavík frá 1967.
Fjölskylda
Jónbjöm kvæntist 28.3. 1968 Ást-
hildi Jónasdóttur, f. 27.6. 1950, hús-
móður og verkakonu.
Hún er dóttir Jónasar H.
Einarssonar, sem er lát-
inn, og Elínar Á. Jóns-
dóttur.
Böm Jónbjarnar og
Ásthildar eru Jónas
Haukur, f. 20.7.1968, véla-
maður í Súðavík, en sam-
býliskona hans er Sigur-
dís Samúelsdóttir og er
dóttir þeima Herdís
Mjöll; Elín Svana, f. 17.4.
1971, húsmóðir í Svíþjóð,
í sambúð með Jóhanni Péturssyni
og em synir þeirra Aron Þór, Amar
Freyr, Jóhann Atli og Alex Már;
Halldór Rúnar, f. 5.7. 1973, verka-
maður í Neskaupstað; Sigríður
Fanndís, f. 19.4. 1983, nemi; Jón
Hilmar, f. 8.8.1984.
Systkini Jónbjöms: Guðbjörg
Bjömsdóttir, nú látin, húsmóðir í
Reykjavík; Margrét Matthildur
Bjömsdóttir, húsmóðir í Kópavogi;
Jón G. Bjömsson, lagermaður í
Hafnarfirði; Kristín Björnsdóttir,
verslunarmaður á ísafirði; Sigriður
Björnsdóttir, verslunarmaður á
Djúpavogi; Hafsteinn Björnsson,
fórst í snjóflóðinu í Súðavík, verka-
maður í Súðavík; Steinunn Kolbrún
Björnsdóttir, verslunarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Jónbjöms: Bjöm
Jónsson, nú látinn, bóndi í Súðavik,
og Stella Guðmundsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík.
Jónbjörn Björnsson.
James Daniel Ellis
James Daniel Ellis veðurfræðing-
ur, búsettur í Florida í Bandaríkj-
unum, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
James fæddist í Chicago og ólst
þar upp. Hann nam veðurfræði við
háskólann í Chicago og lauk síðan
fjögurra ára herskyldu í Englandi,
Wales, Frakklandi, á Ítalíu og á Fil-
ippseyjum.
Á meðan á herskyldunni stóð
lærði James flugumferðarstjórn og
aðflugstækni og starfaði eftir það
við flugveðurfræði. Hann tók við
stööu veðurfræðings á Keflavíkur-
flugvelli að lokinni herskyldu og bjó
því á íslandi frá 1949-62. Þá fluttist
fjölskyldan til Washington DC þar
sem James hóf störf hjá aðalveöur-
stofu Bandaríkjanna í Suit-land,
Maryland, þar sem hann starfaði í
samtals átján ár. Hann sérhæfði sig
í flugradartækni hjá Bendix, einum
stærsta radarframleiðanda heims.
Árið 1980 hætti James
störfum á veðurstofunni
og starfaði eftir það um
skeið við rannsóknir við
sjálfvirkar skyggnis- og
skýjahæðarmælingar hjá
NASA.
Loks flutti hann ásamt
fjölskyldu sinni til
Florida þar sem þau búa í
dag. Þar syngur James
með kirkjukórnum í
Dunedin og ekur skóla-
bílmrni í bænum.
Fjölskylda
Fyrri kona James var Ingibjörg
Lýðsdóttir en þau slitu samvistum.
Seinni kona James er Ragnhildur
Guðrún Finnbjörnsdóttir frá ísa-
firði.
Ættleidd dóttir James og Ingi-
bjargar er Kristín, hjúkrunarfræö-
ingur í St. Petersburg á Florída.
Dætur James og Ragnhildar eru:
Ruth Dora, læknir i
Chicago; Marta Ann, upp-
eldisfræðingur i Clearwa-
ter; og Jenny Lynn
stjómmálafræðingur.
Fyrir átti Ragnhildur
þrjú böm með Gísla ís-
leifssyni, þau ísleif, flug-
virkja hjá Flugleiðum,
Finnbjöm, tölvufræðing
hjá Reiknistofú bank-
anna, og Sigríði, einkarit-
ara í Washington DC.
Bamaböm James era
orðin fjórtán talsins í tveimur
heimsálfum.
Foreldrar James vora James Ell-
is, deildarstjóri hjá póstþjónustunni
í Chicago, og Pauline (fædd Wolg-
ast), húsmóðir. Pauline var dóttir
þýskra innflytjenda. Foreldrar
hennar voru ættaðir úr nágrenni
Hamborgar. James eldri var af rót-
grónum skosk-írskum Kentucky-
ættum.
James Daniel Ellis.
Sjá einnig ættfræði á bls. 42
3^
Gull-úrið
Gilbert úrsmiður
✓ Klossar ✓ Festingasett ✓ Borðar
✓ Diskar ✓ Handbr barkar ✓ Skálar
✓ Slöngur ✓ Dælur
skálar og diska, allar stærðir. Allar álímingar.
©
ÁLÍMINGAR Smiðjuvegi 20 (græn gata)
Sími 567 0505
Flottir tímaniælar Veríi frá -í.ll 4.5011
Laugavegi 62,
Reykjavík, s. 5514100
Víkurbraut 60, Grlndavík
Axel Eiriksson
úrsmiður
Álfabakka 16, Mjóddinni,
sími 587 0706.
Aðalstræti 22,
ísafirði. sími 456 3023
72CS-05
. 28“ Super Black Líne • 2x20w
- Surround - Nicam víðóma magnari
- Menu- allar aðgerðir á skjá
-2x Scart tengi .Textavarp 16:9 breiötjal
70CS-06
I/eríláður79.900,-
2800
- 29“ Super Black Line • 2x20w
• Nicam víðóma magnari
• Menu- allar aðgerðir á skjá • 2x Scart
tengi -Textavarp 16:9 breiðtjald
SReykjavík: Byggt og Búið Veaturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfirðlnga, Borgamesl.Blómsturvelllr, Helllssandi.
uðni Hallgrlmsson, Grundarfiröi. Ásubúð.Búðardal Vestflrðlr: Geirseyrarbúðln, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvfk. Straumur,
afirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauðárkrókl. Hijómver, Akureyri.
Kf. Þingeyinga, Húsavfk. Austurland: Kf. Héraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Suðurland: Árvirkinn, Selfossl.
Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboglnn.Keflavík. Raiborg, Grindavfk.
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
5505000