Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Qupperneq 28
40
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
Sviðsljós
Viltu flytja - eitthvað
Michael hugsar
til bágstaddra
Ameríski popparinn Michael
Jackson má ekkert aumt sjá.
Sérstaklega þegar börn eru ann-
ars vegar. Og er það lofsvert. Nú
hefur hann ákveðið að halda
heljarmikla tónleika í Suður-
Kóreu til styrktar vannærðum
börnum í Norður-Kóreu. Að
sögn fjölmiðla í Suður-Kóreu er
rætt um að tónleikamir verði
haldnir í október í haust. Fleiri
frægir munu væntanlega syngja
líka, Pavarotti og Whitney Hou-
ston, til dæmis.
Lengi er loft
í Zeppelin
Breska poppsveitin Led Zepp-
elin, sem kom á Listahátíð í
Reykjavík fyrir um 30 árum, er
ekki dauð úr öllum æðum enn.
Tveir forsprakkar sveitarinnar,
gítarleikarinn Jimmy Page og
söngvarinn Robert Plant, komu
til Zagreb, höfuðborgar Króatíu,
í vikunni til að spila fyrstu nýju
plötuna sina í tuttugu ár. Tveir
ungir músikantar eru gamling-
unum til halds og trausts.
Hvenær skiptir
þú um síur
síðast ?
FRAM abvrað
KLOPP
Vegmúla 4,108 R.vík.
Sími 553 0440
www.frameurope.nl
DV
Leikarahjónin úr Hollywood eiga núna átta heimili:
Tom og Nicole kaupa
þakíbúð í Lundúnum
Leikarahjónin hugljúfu, þau
Tom Cruise og Nicole Kidman, eru
svo hrifm af Lundúnum að þau eru
búin að kaupa glæsilega þakíbúð í
einhverju fallegasta húsinu í ná-
grenni borgarinnar, 19. aldar glæsi-
byggingunni Stanmore Hall. Þau
borguðu ekki nema tæp 900 þúsund
pund fyrir, eða um eitt hundrað
milljónir íslenskra króna. Tvö
svefnherbergi eru í íbúðinni og
marmaraklædd baðherbergi, arinn
og eikarinnréttingar í eldhúsi. Alit
hið smekklegasta.
Ekki nóg með það, heldur festu
þau hjónin kaup á stórglæsilegu
húsi í Richmond Park í fyrra fyrir
eina milljón pimda.
Tom og Nicole eiga því hvorki
meira né minna en átta heimili.
Sjálfsagt ekki vanþörf á fyrir fólk
sem ferðast jafn mikiö og þau og
leggur jafn mikið upp úr fjölskyldu-
Tom Cruise og Nicole Kidman, huggulegustu hjónin í Hollywood, kunna svo
vel aö meta höfuöborg Bretaveldis að þau eiga nú tvö heimili þar. Geri aðr-
ir betur sem ekki eru breskir.
lífinu og þau gera. Hin heimili
þeirra hjóna eru í New York, á
Flór'da, i Kalifomíu, Sydney í Ástr-
aliu og Monte Carlo, auk þess sem
þau eiga búgarð í Kóloradó.
Einhvem veginn verður maður
svo að komast milli allra heimil-
anna. Það veit Tom mætavel og því
hefur hann fest kaup á þotu fyrir
rúmar 200 milljónir króna til að
geta skroppið þangað sem hann
langar þegar honum hentar.
„Tom og Nicole eiga hús úti um
allan heim en þeim fmnst þetta ai-
veg æðislegt," segir vinur þeirra
og er þar að vísa í nýjustu viðbót-
ina.
Þau Tom og Nicole hafa haft góð-
an tíma til að kynnast Lundúnum
og nágrenni. Þau vom í nærri heilt
ár við kvikmyndatökur með þeim
fræga Stanley Kubrick og gerðu
ekkert annað á meðan.
Franska kvikmyndaleikkonan Catherine Deneuve geislaði af fegurð þegar hún ræddi við fréttamenn sem fylgjast með kvikmyndahátíðinni í Berlín sem
stendur yfir þessa dagana. Deneuve fær sérstakan gullbjörn fyrir ævistarf sitt. Hún er vel að honum komin, hefur enda unnið með öllum helstu leikstjórum
álfunnar undanfarna nokkra áratugi. Sfmamynd Reuter
Catherine Deneuve heiðruð á
kvikmyndahátíðinni í Berlín |
Franska kvikmyndaleikkonan
Catherine Deneuve er engri lík.
Öliu heldur kemst engin kona, að
minnsta kosti fáar, með tæmar þar
sem hún hefur hælana þegar fegurð
og yndisþokki em annars vegar.
Auk þess sem hún kann að leika.
Forráðamenn kvikmyndahátíðar-
innar í Berlín hafa áttaö sig á þess-
um mikilvægu staðreyndum lífsins
og heiðrað leikkonuna fyrir ára-
tugalangt framlag hennar til kvik-
myndalistarinnar. Catherine, sem
er ekki nema 54 ára, sagði við það
tækifæri að það væri kannski held-
ur snemmt að heiöra hana fyrir
ævistarfiö akkúrat nú.
„Ég vinn enn mjög mikið,“ sagði
leikkonan fallega áður en hún tók
við sérstökum gullbimi í viður-
kenningarskyni. „Ég er ekki hrædd
við tímann. Ég er miklu hræddari
við tímaskort."
Á kvikmyndahátíðinni var efnt
til sérstakrar sýningar á mynd
Romans Polanskis, Repuision, sem
nýlega var sýnd í íslenska sjónvarp-
inu og þar sem Deneuve leikur aðal-
hlutverkið. Fyrir þá mynd fékk Pol-
anski silfurbjöminn árið 1965.
Sjálf segist Catherine Deneuve
vera of upptekin tii að horfa aftur á
gömlu myndimar sínar. Um þessar
mundir er hún til dæmis að vinna
að kvikmynd með syni enn eins ris-
ans í franskri kvikmyndagerð, sjálfs
Gérards Depardieus. Guillaume
heitir stráksinn sá.
Catherine segist ekki hafa snúið
baki við Hollywood.
„Síðan ég lék í Indókína hefúr
mér ekki boðist neitt spennandi. Ég
vil miklu frekar vinna við frumleg-
ar myndir í Evrópu," segir
Catherine Deneuve.
Hún hefur líka hvatt evrópska
kvikmyndagerðarmenn að vera ekk-
ert að apa eftir starfsbræðrum sín- á
um í Hollywood. Þeim væri miklu
nær að gera myndir sem endur-
spegluöu fjölbreytta þjóðmenningu (
Evrópulanda.