Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Qupperneq 4
Nú getur þú fengið góða sláttuvél sem passar bæði fyrir grasflötina og budduna! Á kynningarverði - Takmarkað magn Raser sláttuvélarnar eru hannaðar samkvæmt staðli Evrópusambandsins hvað öryggi ima og umhverfisáhrif varðar, með amerískan gæðamótor, samara - þú þarft ekki að raka- og stillingu fyrir grashæð. Þær fást bæði raf- og bensíndrifnar í mörgum stærðum, fyrir misstórar lóoir. RASER 390 Rafmótor, fyrir allt að 500 mz grasflöt. Kynningarverð 15.200 kr. RASER 350 Rafmótor, fyrir allt að 400 m2 grasflöt. Kynningarverð 11.600 kr. RASER 484B Bensínmótor, fyrir allt að 1200 m2 grasflöt. Kynningarverð 24.900 kr. RASER 534TRB Með drifi, bensínmótor, fyrir allt að 2000 m2'grasflöt. Kynningarverð 39.500 kr. RASER 484TRB Með drifi, bensínmótor, fyrir allt að 1400 m2 grasflöt. Kynningarverð 34.500 kr. RASER 430 Rafmótor, fyrir allt að 600 m2 grasflöt. Kynningarverð 22.800 kr. ryrsti gamurmn kom i dag! Fyrslir koma fyrstirfá! RASERPAN 504TRB Með drifi, bensínmótor, álhús, fyrir allt að 2000 m2 grasflöt. Kynningarverð 52.900 kr. garðsláttuvélar með amerískum mótor frá RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT wk GROÐURVORUR VERSLUN SÖLU FÉLAGS GARÐYRKJUMANNA Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 3211 t FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 Fréttir Tll skiptanna Utanríkisráðherra Svíþjóðar í heimsókn: Náin samskipti eru mikilvæg - sænska velferðarkerfið sterkara eftir niðurskurð Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is „Það er mjög gott og nauðsynlegt að koma hingað í heimsókn. Með því móti nær maður að kynnast landinu betur og fær tækifæri til að eiga innihaldsríkari samræður við ráðamenn en oftast er tækifæri til á alþjóðlegum fundum," sagði Lena Hjelm Wallen, utanríkisráðherra Svíþjóðar, við DV. Hún sagðist vera komin hingað til viðræðna við Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra og væru málefni NATO, Evrópu- sambandsins og norræn samvinna efst á dagskrá. Hún sagði norræna samvinnu mikilvæga nú, á dögum aukinna al- þjóðlegra samskipta, og samstaða norrænu þjóðanna yki möguleikana á að rödd þeirra og sjónarmið kæmust á framfæri og hlytu eftir- tekt. Það hefði m.a. annars komið í ljós þegar Norðurlöndin mótmæltu kjamorkusprengingum Indverja. Lena sagði aö þau Halldór hefðu rætt um samstarf þeirra Norður- landa sem eru innan Evrópusam- bandins og hvemig þau gætu að- stoðað ísland og Noreg, sem stæðu utan sambandsins, við samninga- gerð og annað. Aðspurð hvort sjálfstæði Svíþjóð- sömu leið og Bretar og bíða og sjá í nokkur ár.“ í haust verða kosning- cir í Svíþjóð og sagðist Lena vera bjartsýn fyrir hönd jafnaðarmanna. Vinsældir þeirra hefðu dalað fyrir nokkrum áram, þegar taka þurfti á vandamálum velferðarkerfisins með niðurskurði og aðhaldi. „Þriðja hver króna sem fór út var tekin að láni og það gekk ekki. Þessar að- gerðir vora sársaukafullar en nú er kerfið komið í jafnvægi og efnahags- líf Svíþjóðar líka. Við getum því ein- beitt okkur að uppbyggingu velferð- arkerfisins á nýjan leik, en það er skilvirkara keríi en var. Sveitarfé- lögin hafa fengið meira fé á milli handanna en bera á sama tíma meiri ábyrgð á meðferð þess og ákveðnum þáttum velferðarþjónust- unnar sem áður var í höndum ríkis- ins.“ Lena hefur komið alloft til ís- lands og minntist þess þegar hún heimsótti Vestmannaeyjar 1974, eft- ir gosið. „Ég man eftir glóandi hrauninu og svartri öskunni og í gær fórum við í vélsleðaferð á snjó- hvítan Vatnajökul. Andstæðumar hér eru dásamlegar," sagði Lena með bros á vör. -phh Nú stendur yfir kvikmyndahá- tíðin í Cannes. Meðal íslenskra þátttakenda voru hjónin Guðný Halldórsdóttir leikstjóri og Hall- dór Þorgeirsson framleiðandi. Ekki var utanförin með öllu áfallalaus því á Heathrow- flugvelli týndist allur farangur ís- lendinganna. Ferðafötin urðu því að nægja og , urðu víst nokkr- ir hinna alþjóð- legu gesta skrýtnir á svip þegar íslend- ingamir mættu í hin ýmsu boð á dreifbýlistúttum og í lopapeysu, eða þannig. Það var mikill léttir þegar farangurinn skilaði sér loks nokkrum dögum eftir að haldið var utan og fólk fékk föt til skipt- anna... Átthagarnir kalla í Reykjavík er haldið úti einu öflugasta átthagafé- lagi landsins, Ön- firöingafélaginu. Formaðurinn, Björn Ingi Bjarnason, er vakinn og sofinn yfir félagi sínu. Nýlega kynnti félagið þau áform sín að fjölmenna til Flateyrar og halda heOagan sjómannadag með þeim sem átthagana byggja. Málið vatt upp á sig og á endanum þótti heimamönnum sem þéttskipuð dagskrá hinna brottfluttu væri til þess fallin að ýta þeim út af svið- inu með sina dagskrárliði. Stjórn félagsins fann þann kulda sem af heimaslóðum lagði og brá skjótt við. Vesturförin vai- blásin af og allir hvattir til að halda sjó- mannadag hinna brottfluttu í Kópavogi með öllu tilheyrandi... Ut úr myndinni Nú er orðið einsýnt að Rolling Stones munu ekki kæta listahátíð- argesti í Reykjavík með söng sín- um og hljóðfæraslætti. Þær fregnir bárust um heimsbyggðina á dög- unum að hinn rómaði gítarleikari Rollinganna, Keith Richard, hefði farið sér að voða á heim- ili sínu í Connect- icut og rifbeins- brotnað. Öllu tón- leikahaldi i sum- ar mun því seinka sem rif- brotinu nemur. Ólafur Helgi Kjart- ansson, sýslumaður ísfirðinga, og einn þekktasti aðdáandi Stones hérlendis, er sagður fara með bæn- ir i því skyni að brotið grói þann- ig að Amsterdamhljómleikamir standi svo sem áætlað var en hann hefur sem kunnugt er bókað sig þar á feraa tónleika ... Lena Hjelm Wallen, utanríkisráðherra Svíþjóðar, kom í heimsókn hingað til lands í vikunni til viðræðna við Halldór Ásgrímsson. Hún hitti forseta íslands, Ólaf Ragnar Grimsson, á Bessastöðum á miðvikudag og augljóslega fór vel á með þeim. DV-mynd EÓI. ar hefði að einhverju leyti minnkað við inngönguna i Evrópusambandið sagði hún ljóst að í sameiginlegu ferli ákvarðana heföu viðkomandi lönd auðvitað áhrif hvert á annað. Hún teldi hins vegar inngönguna hafa orðið Svíþjóð til góðs. Hún sagði Svía hins vegar taka sjálf- stæða afstöðu til mála og það væri t.d. stefna stjómvalda varðandi evru-myntina að taka hana ekki upp að sinni. „Við ætlum að fara HM98* vísir ""J TorsíðaTTl www.visir.is Oflugur vefur um HM í Frakklandi í dag verður HM-vefur Vísis opnaður á slóðinni www.hm98.is. Á forsíðu HM-vefsins eru nýjustu fréttir af undirbúningi þáttttöku- liðanna á HM sem hefst í Frakklandi 10. júní. Á undirsíðum er hægt að nálgast upplýsingar um liðin, riðlana, leiki, leikdaga, leikmenn og ýmislegt fleira sem tengist keppninni. Á meðan á HM stendur verður fylgst grannt með gangi mála og möguleikar Netsins notaðir til að skýra frá því sem fram fer með nýjum og spennandi hætti. Notendum vefsins gefst kostur á margs konar þjónustu og geta tekið þátt í leikjum sem tengjast HM. íslenskar Getraunir eru aðalstyrktaraðili HM-vefsins www.hm98.is. Hægt er að fara inn á HM-vefinn af forsíðu Vísis á www.visir.is en einnig að fara beint inn á HM vefinn með því að slá inn www.hm98.is. -hlh Þungavigt Völd og áhrif einstakra manna liggja oft víða. Nýlegur samningur um smíði á hafrann- sóknaskipi varð til þess að kunningi sandkoma benti á tengsl sem liggja milli Hafró og Chile. Sami mað- ur er nefnilega ræðismaður Chile hérlendis og stjórnarfor- maður Hafró. Brynjólfur Bjarna- son, framkvæmdastjóri Granda, er umræddur áhrifamaður og skrítin tilviljim að nýtt skip Hafró er í smíðum í Chile og Kínverjar, sem einnig vildu verkið, voru ekki heimsóttir og komu ekki til álita...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.