Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 Spurningin Lesendur Hvert ferð þú helst til að skemmta þér? Elín Þóra Böðvarsdóttir leik- skólakennari: Á Astro og Skugga- bar. Pálína Austfjörð húsmóðir: Kaffi Akureyri. Þóra Jónsdóttir, starfsm. Japis: Á Skuggabarinn. Marjón Sigmundsson verslunar- stjóri: Á Skuggabarinn. Erla Ragnarsdóttir nemi: Á Glaumbar eða Astro. Fangelsismálin á íslandi - stefna íslenskra stjórnvalda Er ekki betra að leita fíkniefnanna áður en þau koma inn í fangelsin? spyr bréfritari m.a. - Hundur nýttur við fíkniefnaleit. Aðstandandi fanga skrifar: Ég hef reynt að kryfja til mergjar hvað liggur að baki stefnu stjóm- valda í fangelsismálum hér á landi. Enn þá hef ég ekki fundið viðhlít- andi svör. Ég hefi spurt marga og heldur ekki fengið nein svör hjá þeim. Ég held því áfram að spyrja og nú með nokkram línum til les- endasiðu DV ef vera kynni aö augu einhverra kynnu að opnast fyrir því að breyting þarf að verða á málum. Er stefnan sú að hafa aðeins lág- marks læknis-, sálfræði- og geðheil- brigðisþjónustu til staðar í fangels- unum? Ér hún sú að halda áfram að leita að fíkniefnum eftir að þau koma í fangelsin og refsa síðan þeim sem era þeim háðir og neyta þeirra í fangelsunum? Er hún fólgin í því að halda áfram að bæta á ábyrgð fangavarða, auka álag þeirra og krefjast aukinnar menntunar, en halda samt áfram að borga sömu lágu launin? Ætla stjómvöld að halda því fram að ástæðan fyrir því hve fáir era í íslenskum fangelsum, miðað við aðrar þjóðir, sé þeirri góðu stefnu að þakka, sem rekin hefur verið undanfarin ár, en ekki sú, að ástandið í íslenska þjóöfélaginu sé um margt mun betra en annars staðar, og ekki „eins mikil þörf ‘ að brjóta af sér til að lifa? - Og ætla fjölmiðlar að láta þetta fram hjá sér fara? , Er ekki kominn tími til að breyta, viðurkenna að þessi stefna er röng? Því til sönnunar eru tvö sjálfsmorð og ótal tilraunir til slíks í íslenskum fangelsum. Er það ekki vænlegri stefna að reyna að hjálpa þeim ólán- sömu einstaklingum sem lenda í fangelsi með því að sjá til þess að öll nauösynleg þjónusta sé til staðar? Er ekki betra aö leita fíkniefnanna áður en þau koma inn í fangelsin og hjálpa þeim sem eiga við fíkniefna- vanda að stríða? Er ekki kominn tími til að skipta um stefnu, viðurkenna mistökin? Halda þeirri reynslu sem komin er í stétt fangavarða með því aö borga mannsæmandi laun (eftir 20 ára starf nær fastakaupið ekki 100 þús. kr.), auka aöstoð við fanga með það að markmiöi að vistin verði þeim til góðs og geta þá sagt við alla sem vilja vita: „Við rekum góða fangels- isstefnu á íslandi". Sjónvarpið og hin mörgu andlit þess Kristján H. skrifar: Ástæðan fyrir því að ég sendi þessar línur er sú að mig langar til að fagna komu Elínar Hirst að Sjónvarpinu. Mér er ekki fært að kaupa áhorf að Stöð 2, en er ákaflega þakklátur fyrir að geta horft á fréttir óruglað- ar. Mér hafa alltaf fundist fréttir á Stöð 2 vera léttari og líílegri og bet- ur fluttar en á Sjónvarpinu sem hefur einkennst af einhvers konar þyngslum. Ég held að Elín eigi eft- ir að framkalla meiri léttleika þar. En ekki má gleyma þeim stöllum Jóhönnu, Katrínu og Emu, sem era að mínu mati mjög frambæri- legar á skjánum. Ég get ekki skOið við fréttafólkið án þess að minnast á Samúel Öm í íþróttunum, en hann er hreint frá- bær maðurinn sá, hraðmæltur en skýrmæltur um leið. Ég sakna Spaugstofumanna og vO fá þá aftur, t.d. tvisvar í mán- uði. Ekki sé ég eftir Dagsljósi. Sumt var að vísu gott en meira lé- legt. Síðasti þátturinn var t.d. öm- urlegur. Hefði mátt feUa aUt niður utan hlaup Ómars. í staðinn kysi ég fréttaskýringaþætti og umræðu- þátt í viku hverri. - Ég slæ botninn í þetta með kveðju til „kvölddrottn- ingar“ Sjónvarpsins, Ragnheiðar Clausen. KEA-veldið á fallanda fæti Áml Ólafsson hringdi: Ég las viðtal í Degi við nýjan kaupfélagsstjóra hjá KEA á Akur- eyri. í Degi daginn áður rakst ég á opnuauglýsingu frá KEA. Það var eiginlega hún sem kveikti í mér að hringja. Auglýsingin var viðamikO og kynnti helstu vöramerki KEA- veldisins. Góð auglýsing svo langt sem hún náði. En hún náði bara ekki tU neytenda þvi það var ekkert verð í henni að sjá. Þetta er úrelt viðskiptaaðferð. Það er kannski engin furða þótt KEA-veldið sé á faUanda fæti ef svona hefur verið hugsunarhátturinn hjá forráða- mönnunum. Það er því miður liðin sú tíð þeg- ________________________________ Sárt að sjá Kaupfélag Eyfiröinga á Akureyri fara sífellt niður á við, segir hér m.a. ílí^MÆv þjónusta allan í síma 14 og 16 ar hinn vinsæli Jakob Frímannsson var við stjómvölinn. Hann var einn sá mesti og besti stjómandi stórfyr- irtækis sem ég hef kynnst. Sann- kaUaður „diplomat11 og hefði sómt sér í hvaða stjómunarstöðu sem er. Þetta er fortíðin. En það er okkur sem búum hér norðaustanlands sárt að sjá fyrirtæki eins og Kaupfélag Eyfirðinga vera sífeUt að fara niður hin síðari ár. Já, aUt frá því að Jak- ob heitinn lét af störfum. Síðasti kaupfélagsstjóri orðaði það svo að starfið hefði verið krefjandi og virt- ist hann feginn að losna úr stólnum. - Það era breyttir tímar og kannski ekki á færi nema sérstakra harð- jaxla að axla ábyrgð forstjóra stórra framleiðslu- og verslanakeðja. Og ekki tekiö út meö sældinni. Þeir era á feröinni nótt sem nýtan dag í þess orðs fyllstu merkingu. Það sannast hjá stóra verslunarmörkuðunum syðra. DV Útlendinga til hliðar Hjörleifur hringdi: Manni er farið að blöskra hvemig íslenska stjórnkerfið er niðurnjörvað í reglugerðum þannig að engu verður hnikað tO þegar og þótt nauðsyn sé á. Ég las um mexíkósku konuna sem vOdi fá starf við sitt hæfí hér á landi, gift íslendingi og hvaðeina. Hún er nú flúin af landi brott. Þetta er ekki einstakt dæmi, þau eru orðin fjölmörg. Mér finnst að taka eigi tiUit til þess hvort fólk hefur góða menntun eða ekki. Við getum vel bætt við fólki hér, og eigum að flytja inn fólk. En þaö má alls ekki setja útlendinga tU hliðar, vegna vansmíða á reglugerðum. ( Sterk og virt lögregla Sveinbjöm hringdi: AUtaf eru að koma fréttir um eitt og annað í embætti lögreglu- stjórans í Peykjavík. í einn tíma era það vanhöld á fikniefnum i vörslu lögreglunnar, eða þá meint samvinna við lögbrjóta eins og títtnefndan Steiner í fíkniefnamálinu stóra. Og núna er það einhver svört skýrsla sem sögð er upplýsa harða áfeUis- dóma um störf lögregluembættis- ins. Og svo er sjálfur lögreglu- stjóri i veikindafríi fram á haust, samkvæmt fréttum, en samt á i hann að kynna sér skýrslu þessa. Fyrr verður ekkert upplýst. Við verðum að hafa sterka og virta lögreglu, en svo virðist ekki vera, því miður. Vita menn ekki um skatt- | skylduna? Ó.P.L. skrifar: Það er eins og íslendingar komi aUtaf af fjöllum þegar skattamál koma tO umræðu. Þá spyrja menn eins og kjánar: Nú, er þetta skatt- skylt? Vita menn ekki um skatt- skylduna? Þetta les maöur um sí og æ og dæmi tekin hingað og i1 þangað um þjóðfélagið. Nú er rætt | um að greiðslur úr verkfallssjóði séu skattskyldar. Var einhver * spurning um það? Og Kamtsjatka- liðið segist eiga að fá undanþágu frá skatti af dagpeningum. AUir koma af fjöUum, nema skatturinn sem segir að skatt eigi að greiða af öUum tekjum. Dagpeningar og verkfaUsbætur eru líka tekjur. Nema hvað? - „ < Isolfur og pillan Margrét hringdi: ( Fóstureyðingar eru dauöans alvara, segir ísólfúr Gylfi Pálma- son í grein í DV í dag (19. maí). Ég er þessu fuUkomlega sam- , mála. Fóstureyðingar valda við- varandi sáram, segir hann líka. Hárrétt hjá honum. Þetta mál er tímabært að ræða. Þökk sé ísólfi. Hins vegar er ég ekki sammála ( því að dreifa eigi piUunni end- urgjaldslaust tU kvenna á aldrin- um 16 tU 20 ára. Enda er ísólfur ( því ekki hlynntur heldur. Kerfið er nógu misnotað samt. Eigin ábyrgð á lífi, limum og kynlifi er lausnin. Hærri vextir eöa verðbætur? íbúðarkaupandi hringdi: Nú hefur OECD verið að benda okkur íslendingum á aö hækka í bara vextina tU að forðast verð- | bólguhækkun. Þeir háu herrar átta sig víst ekki á því að hér era bæði háir vextir og verðbótaþátt- ur, sem hvergi tíðkast í nálægum löndum. Af tvennu Olu vOdi ég þó fremur hærri vexti í bUi eöa breytUega en þennan viður- styggUega verðbótaþátt. - Ráða- menn, takið nú verðbótaþáttinn , úr sambandi, í verðbólgulausu landinu. Og jafiivel þótt verð- ( bólga væri einhver. I i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.