Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
Fréttir
Georg Kr. Lárusson, settur lögreglustjóri í Reykjavík, í DV-yfirheyrslu:
Tökum harðar
á smámálum
Þú ert settur lögreglustjóri í Reykja-
vík. Er þörf á aó breyta löggœsl-
unni í höfuóborginni?
„Það er vissulega margt sem ég
vil breyta en ég geri mér grein fyrir
því að hjá embættinu þurfa allar
breytingar að eiga sér stað í sam-
starfi viö þá sem vinna við það. Hér
eigum við góðan kjama og fullt af
öflugu fólki. Það þarf að breyta
skipulaginu þannig að það skili
betri árangri í löggæslu.“
Veröa áherslubreytingar á
löggœslunni?
„Já, það verða ákveðnar áherslu-
breytingar og sumar eru þegar fam-
ar að líta dagsins ljós. Ég reikna
með því að þær verði enn sýnilegri
þegar líður á sumarið. Við höfum
nú lagt áherslu á breytingar hér
innanhúss sem búið var að undir-
búa mjög vel sl. vetur. Það gengur
út á breytt vinnufyrirkomulag og
vaktakerfi. Það á að skila mun skil-
virkari, sýnilegri og betri löggæslu
hér í borginni en verið hefur. Þetta
á líka að vera þægilegra og hag-
kvæmara fyrir lögreglumennina
sjálfa. Ég tel þetta vera nokkurra
ára áætlun en það þarf að huga vel
en jafnframt alvarlega að framtíð-
inni.“
Hvaö áttu viö meö betri
löggæslu en áöur?
„Það að lögreglan verði sýnilegri
og nær borgurunum en áður. Ég tel
aö fram undan séu ákveðnar áhersl-
ur sem ekki hafa verið áður í lög-
gæslu hér í borginni. Við emm þá
fyrst og fremst að horfa á rótina.
Við hyggjumst taka harðar á þeim
málum sem kölluð hafa verið smá-
mál. Þar á ég við t.d. útivistartíma
barna, almenn agamál unglinga og
fullorðinna, áfengisneyslu úti á göt-
um og fikniefnaneyslu á vínveit-
ingahúsum. Einnig á þetta við um
almenna háttvísi í umferðinni. Það
þarf að auka virðingu borgaranna
fyrir lögum og löggæslu. Það þarf að
taka smærri brotin alvarlega. Það
hefur viðgengist of lengi að menn
kæmust upp með ýmiss konar hátt-
semi sem varðar við lög. Nú verður
breyting þar á og menn verða hik-
laust teknir og kærðir ef þeir eru
staðnir að smærri lögbrotum sem
stærri. Þessar lögregluaðgerðir sem
beinast gegn smáafbrotum komu
fyrst fram í Ástralíu. Lögreglan í
New York tók þær síðan upp með
frábærum árangri. Borgin var ein
mesta glæpaborg heims en þar hef-
ur glæpum nú stórfækkað. Þessar
aðferðir hafa reyndar alls staðar
gefið góða raun þar sem þær hafa
verið reyndar."
Velkomin
ö
Alltaf fenkt... Select
an njóti velvilja og eigi
tiltrú almennings í land-
inu þrátt fyrir að þessi
mál hafi komið upp. Ég
tel að með því að efla
metnað okkar í að
vinna fyrir almenning
þá verði það létt verk að
endurheimta þá tiltrú
sem við kunnum að
hafa glatað."
Teluröu aö hœgt veröi
aö komast aö því hvaö
raunverulega geróist í
þessum málum?
„Þar sem ég er ný-
kominn hingað til emb-
ættisins þá þekki ég
þessi mál ekki nógu vel
til að tjá mig um þau.“
Hver eru aö þínu áliti
alvarlegustu vandamál-
in
í afbrotáheiminum í
dag?
„Fíkmefnm og glæpir
tengdir þeim eru líkleg-
ast stærsta vandamálið
sem við eigum við að
etja í dag. Því miður
sýna rannsóknir að sá
vandi er vaxandi frekar
en hitt. Við eygjum þó
von um að okkur takist
að snúa þessari þróun
við. Það er búið að
byggja hér upp öfluga
fíkniefnadeild. Hún er
orðin miklu ríkari og
stærri partur af lög-
gæslu í borginni en
áður var. Við bindum
enn fremur vonir við
áform ríkisstjómarinn-
Georg Kr. Lárusson, settur lögreglustjóri í Reykjavík. DV-mynd ÞÖK ar um vímuefnalaust ís-
Ofbeldi hefur veriö mikiö í miöborg-
inni og oftast tilefnislausar
líkamsárásir. Þarf ekki aö auka
löggœslu þar?
„Jú, alveg hiklaust. Þetta kerfi
okkar miðar að því að efla löggæsl-
una alls staðar í borginni. Miðborg-
in er vissulega i brennidepli hjá
okkur. Þar verður tekið fast og
ákveðið á þessum smámálum sem
ég minntist á. Það er algerlega ólíð-
andi að menn komist upp með það
aö míga á Alþingishúsið óáreittir.
Fyrir svoleiðis verða menn nú tekn-
ir og kærðir. Við ætlum okkur og
höfum reyndar þegar hafið hertar
lögregluaðgeröir í miðborginni,
m.a. með því aö nýta þann mann-
skap betur sem við eigum og breyta
um áherslur. Viö munum hugsan-
lega beita meiri hörku en áður.
Þetta eru aðgerðir sem verður beitt,
það er alveg klárt mál. Viö höfum
átt í viðræðum við borgaryfirvöld
um þessi mál og það er sameiginleg-
ur vilji að breyta þessu ástandi í
miðborginni."
Þarf aö breyta afgreiöslutíma vín-
veitingahúsa í miöborginni þannig
aö allur fjöldinn komi ekki út á
göturnar á sama tíma?
„Ég tel það vel koma til greina að
það verði gerðar breytingar á opn-
unartíma þessara vínveitingahúsa.
Ég hef ekki nægilega þekkingu á
þessari stundu um þessi mál. Þetta
er mál sem þarf að taka til gaum-
gæfilegrar skoðunar."
Nú hefur veriö tekin upp ný reglu-
gerö um sektarinnheimtu gegn um-
feröarlagabrotum. í kjölfariö hefur
lögregla sektaö og svipt fjölmarga
ökumenn ökuleyfi aó undanförnu.
Eru þetta kannski of haróar aögerð-
ir og áttu von á aö almenningsálitiö
vinni gegn ykkur í þeim efnum?
VHRHEVBSlft
Róbert Róbertsson
„Með þessu er auðveldað til muna
að innheimta sektir. Gamla viðhorf-
iö, að menn komist hugsanlega upp
með að komast hjá því aö greiða
sektir, á ekki lengur við. Almenn-
ingm- má ekki hugsa þetta sem svo
að ætlunin sé að koma á einhverju
lögregluriki. Það er alls ekki mein-
ingin heldur að framfylgja þeim lög-
um sem Alþingi hefur sett. Ég tel að
með aukinni löggæslu í umferðinni
verði öryggi borgaranna þar aukið.
Við höfúm ekki efni á því að tapa
mannslifum í umferðinni."
Nú hafa komiö upp aö undanförnu
hneykslismál hjá embœttinu. „Furu-
grundarmáliö" gufaöi upp og fikni-
efni og sektir hurfu. Teluröu aö
þessi mál hafi minnkaö trú og
traust almennings á lögreglunni?
„Því er ekki að neita að lögreglan
hefur beðið vissa álitshnekki vegna
þessara mála. Ég held þó að lögregl-
land 2002 og erum í við-
ræðum við forsvarsmenn þess
átaks. Fíkniefnamál verður aö líta
mjög alvarlegum augum. Það er
engin spurning að við verðum að
beita aukinni ákveðni og hörku í
þessum málum til að ná árangri.“
Þarf ekki að auka fjárframlög til
löggœslu ef árangur á aö nást?
„Embættið hefur átt við ákveðna
fjárhagsörðugleika að etja. Dóms-
málaráðuneytiö hefur hlaupið undir
bagga með okkur í þeim málum.
Viö horfum fram á betri og bjartari
framtíð í þeim efnum. Það er ljóst
að þessar breytingar sem við erum
að gera kosta peninga. Við erum að
auglýsa eftir auknum fjárframlög-
um til að koma af stað þessari
breyttu starfsemi lögreglunnar. Ég
er sannfærður um það að ef við
náum þessum breytingum í gegn þá
mun það koma margfalt til baka í
nánustu framtíð. Ég hef fulla trú á
að stjórnmálamenn okkar sjái mik-
ilvægi þess og geri sér grein fyrir
þörfinni."
Þú ert settur lögreglustjóri í sex
mánuöi. Hefuröu hug á því aö
veröa lögreglustjóri áfram aö þeim
tíma liönum?
„Ég hef hugsað þessar áætlanir
og aðgerðir til nokkurra ára. En ég
hef alveg haldið því aðgreindu frá
minni persónu. Ég hef ekki hugsað
um mína stöðu lengra en þessa sex
mánuði sem ég er settur hér. Að
þeim tíma loknum verður það tekið
til endurskoðunar.“
Stuttar fréttir i>v
Fertug virkjun
Grímsárvirkjun á Völlum er fer-
tug um þessar mundir. Fram-
kvæmdir hófust árið 1954 við virkj-
unina en hún var tekin í notkun
flórum árum síðar. Fréttabréf
RARIK sagði frá.
Verkstæöiö selt
Rafmagnsveitur ríkisins hafa
selt rafmagnsverkstæði stofnunar-
innar. Verkstæðið annast m.a. við-
hald og viðgerðir á spennum og
rafbúnaði RARK. Búið er að gera
kaupsamning við Tiltak hf. sem
átti hagstæðasta tilboðið og tók það
við rekstrinum 1. júní. Fréttabréf
RARJK sagði frá.
Ný raflína
Verið er að ljúka við að leggja
nýja 8,2 km langa háspennulínu til
Fáskrúðsfjarðar af Ups á Stuðla-
heiði. Verktaki er Þröstur Stefáns-
son og vinnur hann verkið fyrir
74% af kostnaðaráætlun að sögn
fréttabréfs RARIK.
Haukdal styöur Sverri
Eggert Hauk-
dal, fyrrum al-
þingismaður
Sjálfstæðisflokks
á Suðurlandi,
lýsti í gær yfir
stuðningi við
framboð Sverris
Hermannssonar í samtali við DV.
Hann vill ekki svara því að sinni
hvort hann verði sjálfur í framboði
í Suðurlandskjördæmi.
Ríkisbankarnir réðu
Kristján Pálsson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokks, sagði við eldhús-
dagsumræður á þingi í gærkvöld
aö þrýstingur frá ríkisviðskipta-
bönkunum hefði ráðiö miklu mn
að ekki tókst að stöðva afgreiðslu
laga um veðsetningu kvóta sem
treyst hafa kvótakerfið í sessi.
Fiskistofa sýknuö
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað Fiskistofú af 23 milljóna
króna endurgreiðslukröfu fisk-
verkanda. Fiskistofa hafði gert
fiskverkandanum aö greiöa sömu
upphæð vegna meðferðar á ólögleg-
um afla. RÚV sagði frá.
Leggja íslandi lið
Paavo
Lipponen, forsæt-
isráðherra Finn-
lands, heitir ís-
lendingum lið-
sinni Finna við að
ná samningum
við Evrópusam-
bandiö um Schengen-samkomulag-
ið um vegabréfafrelsi innan Evr-
ópu. RÚV sagði frá.
Engir íslendingar
Ekki er vitað til að neinn íslend-
ingur hafi verið meðal farþega í
hraölestinni sem fór út af sporinu í
Eschede í N-Þýskalandi með
hörmulegum afleiðingum. RÚV
sagði frá.
Stýrir Borgarbyggð
Óli Jón Gunnarsson, oddviti D-
listans, verður bæjarstjóri Borgar-
byggðar fyrst \im sinn ef sjálfstæð-
ismenn og framsóknarmenn ná
saman um meirihlutasamstarf.
Ætlunin er að auglýsa starfið síð-
ar. RÚV sagði frá.
Síðustu fundirnir
Fráfarandi
borgarstjóm held-
ur síðasta fúnd
sinn í dag. Jóna
Gróa Sigurðar-
dóttir boðar til
fyrsta fundar ný-
kjörinnar borgar-
stjómar, samkvæmt þeirri venju
að aldursforseti borgarfulltrúanna
geri það. Á honum verður kosið í
nefndir borgarinnar og ráð. Síöasti
fúndur fráfarandi borgarráðs var í
gær.
Dansflokkurinn 25 ára
íslenski dansflokkurinn er 25
ára um þessar mundir. Hann hélt
upp á afmæliö í gærkvöld með því
að frumsýna þrjú dansverk í Borg-
arleikhúsinu auk þess fjórða sem
var á dagskrá flokksins í vetur.
Katrín Hall er listdansstjóri flokks-
ins. -SÁ