Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
Vanefndar-
uppboð
Jöklafold 39, 56,2 fm íbúð á 1. hæð t.v.
ásamt geymslu, merkt 0108 m.m., þingl.
eig. E. Jakobsson ehf., gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins, Húsfélagið
Kringlan, Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Lífeyrissjóðurinn Framsýn og sýslumað-
urinn í Hafnarfirði, þriðjudaginn 9. júní
1998 kl. 15.30._______
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 6,
Hvolsveili, þriðjudaginn 9. júní
1998, kl. 15.00, á eftirfarandi
____________eignum:____________
Ármót, Rangárvallahreppi. Þingl. eig.
Þorkell St. Ellertsson. Gerðarbeiðandi er
Rangárvallahreppur.
Berjanes, 1/8 hl., Vestur-Landeyjahreppi.
Þingl. eig. Elín Guðjónsdóttir. Gerðar-
beiðandi er tollstjórinn í Reykjavík.
Háfshjáleiga, Djúpárhreppi. Þingl. eig.
Þór Fannar Ólafsson. Gerðarbeiðandi er
Lánasjóður landbúnaðarins.
Háfur n, Djúpárhreppi. Þingl. eig. Þór
Fannar Ólafsson. Gerðarbeiðandi er
Lánasjóður landbúnaðarins.
Króktún 15, Hvolsvelli. Þingl. eig. Sig-
urður Rúnarsson. Gerðarbeiðandi er
Hvolhreppur.
SÝSLUMAÐUR
RANGÁRVALLASÝSLU
Aðalfundur SAA
Aðalfundur SAAverður
haldinn fimmtudaginn 11. júní
1998 í Síðumúla 3-5, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf
Stjórn SÁÁ
Samtök áhugafólks
um áfengis- og
vímuefnavandann
Kínverski andofsmaöurinn Wei Jingsheng kveikti á kerti í Washington í gær
til aö minnast þess aö 9 ár voru liðin frá því mótmæli lýöræðissinna voru
brotin á bak aftur á Torgi hins himneska friöar i Peking.
Útlönd
Brotiö hjól talin líkleg orsök lestarslyssins:
Ekki fleiri á lífi
- segir talsmaöur björgunarsveitanna
Ófögur sjón blasti í nótt við björg-
unarsveitamönnum þegar þeir
fundu fjölda limlestra líka í veit-
ingavagni þýsku hraðlestarinnar
sem fór út af sporinu á miðviku-
dagsmorgun með þeim afleiðingum
að meira en níutíu týndu lífi.
Sífellt fleiri vísbendingar hafa
fundist um að brotið hjól á afturöxli
eins lestarvagnsins hafi orsakað
slysið, versta lestarslys í Þýska-
landi frá lokum heimsstyrjaldarinn-
ar síðari. Hugsanlegt er að málm-
þreytu sé þar um að kenna en emb-
ættismenn útiloka þó ekki að um
skemmdarverk hafi verið að ræða.
„Svo virðist sem hjólið hafi rifn-
að af fimm til sex kílómetra frá
slysstaðnum," sagði Horst Stuchly,
formaður eftirlitsnefndar þýsku
járnbrautanna, i samtali við sjón-
varpsstöðina ARD.
Svo virðist sem lestin hafi haldið
áfram þar til hún kom að
skiptispori. Þá fór hún út af og ók á
200 km hraða á steinsteypta brú yf-
ir teinana. Brúin hrundi ofan á lest-
arvagnana við höggið.
Talsmaður björgunarsveitanna
sagði í samtali við Reuters-frétta-
stofuna að ekki væri búist við að
finna fleiri á lífi í braki hraðlestar-
innar sem var á leið frá Múnchen
til Hamborgar þegar slysið varð.
Björgunarsveitamenn unnu langt
fram á nótt við að lyfta rústum brú-
arinnar ofan af járnbrautarvögnun-
um. Stöðva átti aðgerðir þegar síð-
ustu líkin hefðu verið fjarlægð úr
veitingavagninum vegna hættu á að
það sem eftir væri brúarinnar
hryndi ofan á björgunarmenn.
Þýsku ríkisjárnbrautirnar hafa
stöðvað allar ferðir hraðlestanna
sem eru sjö ára gamlar tfi að hægt
verði að yfirfara þær. Búast má við
að lestarsamgöngur raskist töluvert
næstu daga af þeim sökum.
Neyðarfundur
um Kosovo
Nokkur helstu ríki heims hafa
boðað til neyðarfundar um
ástandið í Kosovohéraði í Serbíu í
næstu viku. Mikil spenna er nú í
héraðinu, sem að mestu leyti er
byggt fólki af albönskum ættum,
og hafa margir fallið í átökum við
serbneskar öryggissveitir undan-
farna daga.
Albönsk stjómvöld saka Serba
um að íremja þjóðarmorö á Al-
bönum í Kosovo og utanrikisráð-
herra Albaníu sagði að héraðið
væri á barmi styrjaldar. Albaníu-
stjórn krefst þess að þjóðir heims
grípi þegar í taumana.
11 ára drengur í Texas:
UPPBOÐ TIL SLITA
Á SAMEIGN
Uppboð til slita á sameign, skv. 2. mgr., 8. gr. laga, nr. 90/1991
á Dalseli 29, íbúð á 2. hæð t.h., ásamt 3,6 fm geymslu og stæði, merktu 0107, í bílskýli
að Dalseli 19-25, þingl. eig. Eydís Björg Hilmarsdóttir og Birgir Georgsson, mun byrja
á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, fimmtudaginn 9. júní 1998 ld.
13.30.________________________________________________
Gerðarbeiðandi er Eydís Björg Hilmarsdóttir.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Areitti 3 ára telpu
Ellefu ára drengur í Texas í Banda-
ríkjunum var í gær fundinn sekur
um kynferðislegt og líkamlegt ofbeldi
gagnvart þriggja ára stúlkubarni.
Drengurinn á á hættu að verða
dæmdur í 40 ára fangelsi. Tveir
bræður, 7 og 8 ára gamlir, tóku þátt í
ofbeldinu gagnvart telpunni. Þeir eru
of ungir til að verða ákærðir.
Elsti drengurinn viðurkenndi við
lögregluyfirheyrslu að hafa beitt
telpuna kynferðislegu ofbeldi. Hann
dró síðan þá játningu til baka. Hann
viðurkenndi hins vegar að hafa bar-
ið telpuna. Saksóknari byggði
ákæruna á vitnisburði hinna
drengjanna og játningu þess elsta
hjá lögreglu. Fjölskylda telpunnar
fann hana nakta og með sár eftir
árás drengjanna.
Stuttar fréttir i>v
Áfram verkfall
Fulltrúar franskra flugmanna
og viðsemjendur þeirra munu
funda á ný í dag eftir árangurs-
lausar maraþonviðræður liðna
nótt.
Engin flýtimeðferð
Hæstiréttur í Bandaríkjunum
hafnaöi í gær beiðni saksóknar-
ans Kenneths
Starrs um að
flýta úrskurði
um hvort líf-
vörðum Clint-
ons forseta beri
skylda til að
vitna gegn hon-
um í Lewinsky-
málinu. Þetta þykir áfangasigur
fyrir forsetann. í Hvíta húsinu
vilja menn tefja framgang máls-
ins þar til kjörtímabili Clintons
lýkur.
Geimfari sóttur
Bandaríska geimferjan
Discovery sótti í gærkvöld banda-
riska geimfarann Andrew Thom-
as sem verið hefur í rússnesku
geimstöðinni Mir í 4 mánuði.
Discovery á að lenda 12. júní.
Lífstíðarfangelsi
Terry Nichols var í gær dæmd-
ur í Denver í Bandaríkjunum í
lífstíöarfangelsi fyrir aðild að
sprengjutilræðinu í Oklahoma í
aprfi 1995.
Elsti maður heims látinn
Líbaninn Ali bin Mohammed
Hussein, sem talinn var elsti mað-
ur heims, er látinn. Hussein varð
136 ára. Hann var mikill reyk-
ingamaður og lést í reykmettuðu
herbergi.
Tíður gestur í ísrael
Indverskur kjarnorkuvopnasér-
fræðingur var tíður gestur í ísra-
el á árunum 1996 og 1997. Þetta
þykir renna stoðum undir grun
um samvinnu Indlands og ísraels
í kjamorkumálum.
Ekkert samsæri
Samkvæmt breskum heimildar-
þætti um andlát Diönu prinsessu,
sem sýndur var
í gærkvöld,
tengdist bílslys-
ið í París ekki
samsæri eins og
gefið var í skyn
í heimildarþætti
sem sýndur var
á miðvikudags-
kvöld. í þættinum í gær var A1
Fayed, faöir ástmanns Díönu, sak-
aður um að hafa ekki tryggt
prinsessu sams konar öryggi og
hann krefst fyrir sjálfan sig.
Helmingur of feitur
55 prósent fullorðinna Banda-
ríkjamanna eru of feit eða alltof
feit, samkvæmt mati bandarískra
heilbrigðisyfirvalda.
1,6 GLX 4x4: 1.495.000 kr.
SUZUKI
BALENO SEDAN
1,3 GL: 1.265.000 kr.
1,6 GLX: 1.340.000 kr.
Stílhreinn og glsesilegur
fgölskyldubíll
Baleno Sedan er hagkvæmur
í rekstri, sameinar mikið afl
og litla eyðslu. Loftpúðar,
kippibelti og krumpusvæði
að framan og aftan stórauka
árekstursöryggi. Farþega-
rýmið er óvenju mikið
og áhersla er lögð á þægilegan
og hljóðlátan akstur.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf.( Laufásgötu 9, sími 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,
Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00.
^suzuk'r
AFL OG
kÓKYGGI_