Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Side 10
1
10
Spurningin
Segirðu einhvern
tímann ósatt?
Sjöfn Aðalsteinsdóttir húsmóðir:
Helst ekki. Ég læt sannleikann
vaða, hvort sem mér líkar betur eða
verr.
Emil Sigurðsson: Það getur alltaf
komið fyrir.
Þórunn Þórarinsdóttir ráðgjafl:
Já, það kemur fyrir.
Kristín Mikaelsdóttir starfs-
stúlka: Já, helst þegar bamið mitt
suðar um sælgæti.
Haukur Hilmarsson verkamaður:
Alveg örugglega. Hlýtur einhvern
tímann að hafa komið fyrir.
Einar Johnson nemi: Nei.
Lesendur
Áhrif stjórnvalda
á fjölmiðla
Ástþór Magnússon segist ítrekaö hafa oröiö var
viö hlutdrægan fréttafiutning hjá fréttastofu út-
varps og sjónvarps.
Ástþór Magnússon skrifar:
Ásakanir forsætisráðherra á
fréttastofu ríkissjónvarpsins í síð-
ustu viku hafa vakið athygli á nauð-
syn þess að kanna afskipti stjórn-
valda af fréttaflutningi á íslandi.
Það hefur löngum verið vitað að
stjórnvöld og einstakir ráðherrar
hér á landi hafa ætlast til þess að
fréttastofur ríkisfjölmiðlanna dragi
taum stjómvalda hér á landi enda
hefur þessum stofnunum löngum
verið stjórnað af hlutdrægu fufl-
trúaráði stjórnmálaflokkanna. Þetta
hefur verið mikilvægur hlekkur í
því að hylma yfir ýmsa pólitíska
spillingu á íslandi. T.d. er útvarps-
réttamefnd stjómað af fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.
Forsætisráðherra var alinn upp við
það fyrirkomulag af Sjálfstæðis-
flokknum að geta ráðið nokkuð um
hvað skuli sent út til almennings og
hvað ekki. Nú er ráðherrann að
vakna upp við þann vonda draum
að til fréttastofunnar era að komast
hæfir einstaklingar til starfa sem
telja sig hafa þær skyldur við al-
menning að flytja fréttir án þess að
slíkt sé litað einstökum stjómmála-
skoðunum Davíðs Oddssonar og fé-
laga.
Undirritaður hefur ítrekað orðið
var við hlutdrægan fréttaflutning
hjá fréttastofu útvarps og sjónvarps.
1. í forsetakosningunum 1996 var
ítrekað klippt úr útsendingum í við-
tölum mínum við fréttamenn, ádefl-
ur mínar á tvískinnungshátt ís-
lenskra stjórnvalda í kjarnorku-
vopnamálum og stuðning íslands
við kjamorkuvopn.
2. í eitt skiptið neitaði ég að mæta
í viðtal hjá ríkisútvarpinu nema
gegn því loforði að ádeilur mínar á
kjamorkuvopnastefnu Islenskra
stjómvalda yrðu ekki klipptar út
fyrir útsendingu. Fréttamaður
hringdi skömmu áður en viðtalið
átti að eiga sér stað og aflýsti viðtal-
inu.
3. Utanríkisráðuneytið sem hefúr
eins og varðhundur gætt þess að
varnarstefna íslands sé í samræmi
við óskir bandariskra vopnafram-
leiðenda, tók beinan þátt í ófræging-
arherferð gegn mér í forsetakosn-
ingunum þegar starfsmaður ráðu-
neytisins mætti í viðtal á Stöð 2
með upplognar sakir á mig. Ráðu-
neytið baðst afsökunar þegar lög-
maður minn hótaði málsókn vegna
þessa.
4. Síðastliðinn vetur,
eftir að menntamálaráð-
herra hafði úthlutað
skólahúsnæði að Reyk-
holti einum af vinum
Sj álfstæðisflokksins
undir hótelknæpu, tók
fréttastofa ríkissjón-
varpsins við mig viðtal
þar sem ég deildi á
þessa pólitísku spill-
ingu. Viðtalið var aldrei
birt. Stöð 2 fjallaði
margsinnis um þetta
mál en ríkissjónvarpið
þagði!
5. Á fundi sem ég átti
hjá utanríkisráðuneyt-
inu fyrr í þessum mán-
uði vegna umsóknar
Friðar 2000 um mann-
úðarflug til írak var ég
sérstaklega spurður
hvort gefnar yrðu yfir-
lýsingar í fjölmiðlum
sem deila á viðskipta-
bannið eða hvort frétta-
menn yrðu með í þess-
um ferðum. Það var lát-
ið að því liggja að áfram-
haldandi umfjöllun í
fiölmiðlum um skoðanir
minar á lögmæti og rétt-
mæti viðskiptabannsins á Irak gætu
haft áhrif á ákvörðun utanríkisráð-
herra um hvort ráðuneytið leyfir
frekari mannúðarflug til Baghdad.
Ég hef óskað eftir þvi við Um-
boösmann Alþingis að ofangreind-
um athugasemdum verði komið á
framfæri við rétta aðila innan
þingsins og/eða stjórnsýslunnar og
verði tekið með í þeirri athugun
sem fram fari á starfsemi ríkisfiöl-
miöla í kjölfar yfirlýsingar forsætis-
ráðherra.
Góðir gestir
Vistfólk á deild 6, dvalarheimili
aldraðra, Sauðárkróki, hringdi:
Áhugafólk um harmonikuleik
kom í heimsókn hingað á dvalar-
heimili aldraðra á Sauðárkróki nú
fyrir skömmu og spilaði á milli 20
og 30 lög af mikilli snilld og prýði.
Hingað hafa komið í heimsókn
kór aldraðra úr Kópavogi,
kirkjukór Akureyrar, kirkjukór
Sauðárkróks og söngfélag aldraðra
á Sauðárkróki. Karlakórinn Heim-
ir hefur einnig komið hér og hald-
ið fýrir okkur tónleika og Álfta-
gerðisbræðrum er ekki hægt að
gleyma.
Kvenfélagssysturnar koma hér
saman einu sinni í mánuði með
skemmtun og veitingar og einnig
er Lionsfólk hér reglulegir gestir.
Hafi allt þetta fólk heila þökk
fyrir og bestu óskir um alla fram-
tíð.
Lýðræöisflokkurinn
Kannski veröur næsti forsætisráöherra hvorki Davíö né
Halldór heldur Sverrir Hermannsson.
Vestarr Lúðvíksson skrifar:
Milli svefns og vöku kom upp
nafnið Lýðræðisflokkurinn sem
kjörið nafn á framboðslista Sverris
Hermannssonar og félaga á listana
um allt landið í komandi alþingis-
kosningum.
Undirritaður, sem gerðist félagi í
Samtökum um þjóðareign fyrir
nokkra síöan, á samleið meö Sverri
Hermannssyni, Matthíasi Bjama-
syni og félögum þegar skoðuð era
framvörp ríkisstjómarinnar í sjáv-
arútvegsmálum og hálendisfram-
varpið.
Sjálfur var bréfritari þinglýstur
eigandi að landi 1990 (1/3 hluta und-
ir heilu þorpi) sem virt fiármálafyr-
irtæki taldi svo
að hægt væri
að selja á að
minnsta kosti
15 milljónir
króna. Þá slys-
aðist bréfritari
til að taka lán
(innan við
milljón) til að
bjarga málum.
Verðlagsþróun-
in og launaþró-
unin á áratugn-
um 1980-1990
reyndist bréf-
ritara þannig
að snjóbolti byijaði að rúlla á þann
veg að 1990 missti bréfritari jörðina
og allt annað fyrir smáaura og stóð
eftir allsber frammmi fyrir vinum
og vandamönnum sem höfðu treyst
á hann.
Þeir sem bára aðalábyrgðina í
máli þessu era landsfeðumir sem
með stjómvaldsaðgerðum sínum
stálu lífsbjörginni úr höndum mín-
um.
Víst er Jóhanna Sigurðardóttir
kvenskörungur en ég ætla ekki að
gerast dómari í Landsbankamálinu
svokcdlaða. Sverrir geröi ekki ann-
að en að feta í fótspor fyrirrennara
sinna og leysa úr málum bankans á
besta veg.
Ég skora á alla sem vUja brjóta
niður fiskveiðistjóm Halldórs og
Þorsteins og hálendisfrumvarpið
þeirra að fylkja sér undir merkjum
og virkja lýðræöiö í komandi kosn-
ingum tfl Álþingis.
Kannski verður næsti forsætis-
ráöherra hvorki Davíð Oddsson né
HaUdór Ásgrímsson heldur Sverrir
Hermannsson ásamt sameiginlegu
framboði A-flokkanna og Kvenna-
lista!
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
~s^\\
réttið nú?
Helga hringdi:
í Fegurðarsamkeppni íslands
sem haldin var nú fyrir
skömmu gerðist það leiðindaat-
vik að einum keppandanum var
vikið úr keppninni. Ástæðan
var sú að nektarmyndir höföu |
birst af stúlkunni í karlatíma-
ritinu Playboy.
Ég verð að segja að mér þyk- )
ir sorglegt þegar ungar stúlkur
láta plata sig tU þess að sitja
fyrir á svona nektarmyndum
en engu að síður tel ég það vera
þeirra mál. Það sem mér þykir
þó allra verst í þessu máli er að
það er á allra vitorði að í feg-
urðarsamkeppni karla hefur
það verið látið viðgangast að .
keppendur hafi setið fyrir á
nektarmyndum.
Við tölum um jafnrétti kynj- |
anna en hvar er jafnréttið i
þessu máli?
Sjónvarp allra
landsmanna
Jónas skrifaði:
Ég hef fylgst töluvert með
þeirri gagnrýni sem komið hef-
ur fram á fréttamennskuna á
RÚV. Ég ætla ekki að kveöa ,
upp neinn dóm í því máli enda
er ég ekki í aðstöðu tU þess. Ég
vfl aðeins benda á að ríkissjón-
varpið er sjónvarp allra lands-
manna sem við borgum fyrir
hvort sem okkur líkar betur
eða verr.
Rökin fyrir því að halda uppi
ríkisreknum fiölmiðli eru þau
að þar hefur fólkið rétt tU þess )
að krefiast hlutlausrar frétta-
mennsku.
Það skiptir því ekki máli 1
hvort ríkissjónvarpið er sekt
eða ekki. Gagnrýnin er komin
fram og fólkið í landinu hefur
rétt til þess að þetta mál verði
kannað nánar.
Reykjavíkur-
flugvöllur
Steingrímur skrifar:
Menn hafa lengi lýst yfir
áhyggjum sínum vegna Reykja-
víkurflugvaUar. Nú liggja tvær
flugbrautir að flugveUinum,
önnur sem liggur norður, suður
og hin sem liggur austur, vest-
ur og er þá flogiö yfir sjóinn að
veUinum. Ég undra mig á því
hvers vegna seinni kosturinn
er ekki aUtaf notaður þegar
skflyrði tU þess er fyrir hendi
þar sem sú leið er mun hættu-
minni en sú fyrri. Það myndi
draga úr áhyggjum margra.
Reglur í blokk
J.P. hringdi: (
Ég er íbúi t blokk í Reykjavík
og þarf þar af leiðandi að gang-
ast undir reglur húsfélagsins.
Börnin mín geta hvorki feng-
ið að eignast hund né kött og
ekki má ég reykja frammi á
gangi eða niðri í þvottahúsi. i
Þetta kallast víst venjulegar
umgengnisreglur og ætla ég svo
sem ekkert að kvarta yfir þeim
en mér finnst aftur á móti ein-
um of langt gengið þegar farið
er að nöldra yfir því að maður
skuli reykja sígarettur á sínum
eigin svölum. Er ekki eitthvað
til sem heitir friðhelgi einka-
lífs?
Brosandi
starfsfólk
Katrín skrifar:
Ég fer mikið í sund og þá að-
aUega í Sundlaugina í Laugar-
dal. Ég vU lýsa yfir ánægju
minni með hvað viðmót starfs-
fólks þar og þjónustulund hefur
batnaö mikið. Ég er farin að
haUast að því að þau hafi öU
verið send á „brosnámskeið".