Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Qupperneq 11
DV . FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 enning Menningartengsl hluti af ímyndinni Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis ver á ári hverju ijármunum í að styrkja íslenska listamenn. Það þykir ef til vill ekki tíðind- um sæta nema styrkfjárhæðin mun vera sérlega há og skipta verulegu máli fyrir þann sem styrkinn hlýtur. Ég grennslaðist fyrir um málið á Skólavörðustígnum hjá Guðmundi Haukssyni sparisjóðsstjóra. Guðmundur tók mér glaðlega. Ég byrjaði á því að spyrja hann hvenær virðuleg bankastofnun eins og SPRON hefði byrjað að púkka upp á listamenn. „Allt frá 1982 hefur Sparisjóður Reykja- víkur látið fé af hendi rakna til lista- og menningarmála," segir Guðmundur, „en ekki var formlega tekið á hlutunum fyrr en árið 1994 þegar Menningar- og styrktarsjóð- urinn var stofnaður. Síðan þá höfum við varið til þessara mála átta milljónum króna á ári og við fáum fjölda beiðna í hverri viku. Þessar beiðnir er reynt að vega og meta með tilliti til þeirrar steftiu sem sjóðurinn hefur. Fyrir skömmu var svo ákveðið að veita nokkrum listamönnunum á ári hverju hærri styrki þannig að þeir kæmu viðkom- andi listamanni eða málaflokki að verulegu gagni. Hæstu styrkimir eru ein milljón króna.“ - En umsóknarfresturinn? Hvemig sækir maður um? „Við höfum engan umsóknarfrest enda er það svo að við byggjum okkar styrkveiting- ar ekki einungis á umsóknum heldur eigum við líka frumkvæði að því að styrkja málefni sem okkur finnst ástæða til að njóti aðstoðar okkar. Stjómin heldur nokkra fundi á ári og ræðir sam- an, tekur ákvarðanir og veitir styrki." - Hverjir hafa verið að hljóta þessa styrki? Er einn hópur listamanna í meira uppáhaldi en ann- ar? Til dæmis tónlist á kostnað myndlistar? „Nei, það hefur verið reynt að skipta þessu nokkum veginn jafnt og við leitum ráða hjá ýms- um aðilum áður en endanlég ákvörðun er tekin. segja að við lítum á styrkina sem hluta af okkar ímynd og að þetta sé okkar aðferð til þess að þakka viðskiptavinunum vaxandi traust. Sparisjóðnum hefur vegnað mjög vel og við viljum láta eitthvað af hendi rakna til þess að hluti hagnaðarins fari beint aftur til fólksins. Núna veitir Sparisjóðurinn ellefu lista- mönnum styrk. Tveir fá eina milljón hvor, fjórir hálfa milljón og fimm fjögur hundruð þúsund. Sum þessara mála, sem við erum að styðja, styrkjum við jafnvel árlega. Við höf- um svo dæmi séu tekin styrkt Ópemna um nokkurra ára skeið, Kammersveit Reykjavík- ur og Sumartónleikana í Skálholti. “ Góður rekstur er grunnurinn - Þegar styrkir era veittir renna þeir oft til fólks sem hefur komið ár sinni vel fyrir borð og er jafnvel farið að græða svolítið á sinni list meðan nýliðarnir, hinir efnilegu sem engan pening eiga, sitja á hakanum. Finnst þér þetta ekkert öfugsnúið? „í okkar tilviki gerum við hvort tveggja. Annars vegar styðjum viö ungt fólk á upp- leið, fólk sem við höfum trú á og verkefni sem það er að leysa, og hins vegar þekktalistamenn sem þegar hafa náð miklum árangri. Það era engar fastar eða ósveigjan- legar reglur hjá okkur og með því móti telj- um við okkur einnig stuðla að nýsköpun." Ég held að þið hafið svo sannarlega sýnt að þiö hugsið um fleira en peninga. „Já, en grannurinn er engu að síður sá að reksturinn gangi vel. Ef það er ekki hagnaður og einhver afgangur þá er auðvitað ekki í neitt að grípa," segir Guðmundur. „Undanfarin ár hefur reksturinn gengið mjög vel, það hefur verið góð- ur hagnaður og þetta er eðlilegt framlag okkar til þess jarðvegs sem við erum sprottnir úr.“ -þhs Guömundur Hauksson sparisjóösstjóri - eölilegt að hluti hagn- aöarins gangi aftur til fólksins. DV-mynd ÞÖK Tónlist hefúr ævinlega haft sinn sess í þessum hópi líkt og myndlist. Einnig höfum við stutt við kvikmyndagerð og ýmsa leikhópa og leikfélög, til dæmis fékk Leikfélag Reykjavíkur styrk hjá okk- ur í fyrra. En auðvitað getur líka breyst frá ári til árs hvar áherslumar liggja." - Era aðrir bankar svona góðir við listamenn? „Það er fjöldi fyrirtækja sem styrkt hefur menningu og listir. Mér er hins vegar ekki kunn- ugt um að neitt þeirra verji til þess jafn háum fjárhæðum og við höfum gert. En það má kannski Opið á laugar- dögum Aðalsafn Borgarbókasafns Reykjavíkur er til húsa í einu fallegasta húsi Þingholtanna viö Þingholtsstræti 29a. Starfsmenn þess ætla að bjóða borgarbúum upp á sér- staka þjónustu í sumar, í júní og júlí. Safnið er að venju opið mánudaga til fimmtudaga frá 9-21 og fostudaga kl. 9-19 en í sum- ar verður bætt við af- greiðslu- tíma kl. 13-15 á laugar- dögum. Aðal- safnið er stein- snar frá Tjörn- inni og Laugaveginum og upplagt er að skreppa þangaö þegar búið er að gefa öndun- um og borða ísinn. Þar er boöið upp á margs konar efni fyrir alla aldurshópa, til út- láns eða til að skoða á staðn- um, bækur, tímarit, mynd- bönd, hljóðbækur og aðgang að Netinu. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir m „Karlmenn" eftir Finn Arnar Arnarson á sýningunni Flögð og fögur skinn. Listahátíð lýkur Nú um helgina lýkur Listahátíð í Reykjavík sem stað- ið hefur frá 16. maí. í kvöld era glæsilegir tónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands sem Yan Pascal Tortelier stjómar og siðari sýning íslenska dansflokksins. Um helgina er Seiður Indlands i Iðnó og stóreflis popphátíð með íslenskum dægurlistamönnum í Loftkastalanum - og þar með er sleginn botn í hátiðina að þessu sinni. Myndlistarsýningarnar standa þó margar lengur. Konur Errós verða til sýnis í Hafnarhúsinu til 23. ágúst en vasamyndasýningunni hans í Galleríi Sævars Karls lýkur 10. júní. Max Emst verður uppi í Listasafhinu til 28. júní; Odella og Maya-indíánamir verða í Gerðubergi til 20. júní; Grænmetisleikur Ingu Svölu Þórsdóttur í Ingólfsstræti 8 - þar sem hún er að gera þá uppgötvun að íslenskt grænmeti rotnar talsvert hraðar en samsvar- andi erlent, sem bendir til að færri rotvarnarefni séu í því heimaræktaða - stendur til 21. júní; Skjáir veraleik- ans, samsýning tíu evrópskra listmálara í Norræna hús- inu, stendur til 28. júni og mannamyndir Ágústs Peter- sens verða 1 Ásmundarsal til 5. júlí. Nokkrum sýningum lýkur nú um helgina og verða menn að hafa hraðann á sem ekki vilja missa af þeim. Flögð og fógur skinn er ein best sótta myndlistarsýning í Nýlistasafninu við Vatnsstíg frá upphafi enda forvitni- leg og spennandi. Á laugardagskvöldið verður tískusýn- ing þar kl. 21 og á sunnudagskvöldið á sama tíma verð- ur málþing - þar með lýkur Flögðunum. Sýningunni frá Mósambík, Hliði sunnanvindsins, í Ráðhúsinu lýkur á sunnudaginn, einnig sýningu á Akvarellum Hafsteins Austmanns í Stöðlakoti og kirkjuklæðum Margrétar Danadrottningar í Þjóðminja- safninu. Aftur á móti verður ein sýning á vegum Lista- hátíðar opnuð þann dag, 7. júní. Hún heitir Strandlengj- an og er á útilistaverkum eftir íslenska myndhöggvara sem sett era upp meðfram suðurströnd Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.