Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 22
42
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
Messur
ÁrbæjarkirHja: Guðsþjónusta í
safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl.
11. Mánudagshópur AA aðstoðar við
guösþjónustuna. Valgeir Skagfjörð
leiðir safnaðarsöng. Ath. Guðsþjón-
ustan fer fram í safnaðarheimili
kirkjunnar vegna breytinga á kirkj-
unni. Prestamir.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Síð-
asta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi
starfsfólks. Árni Bergur Sigurbjöms-
son.
Breiöholtskirkja: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Sjómannamessa kl.
11. Pálmi Matthíasson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11.
Dómkirkjan: Sjómannaguðsþjón-
usta kl. 11. Biskup Islands, herra
Karl Sigurbjörnsson, prédikar og
minnist látinna sjómanna. Sr. Jakob
Á. Hjálmarsson dómkirkjuprestur
þjónar fyrir altari. Dómkórinn syng-
ur. Einsöngvari Loftur Erlingsson.
Kl. 16 prestsígsla. Biskup íslands,
herra Karl Sigurbjömsson, vígir
cand. theol. Bjöm Svein Bjömsson
tii prests í Útskálaprestakalli.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Kjartan Öm Sigur-
bjömsson.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14.
Felia- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
- helgistund kl„ 20.30. Ath. breyttan
messutíma. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Prestamir.
Glerárkirkja: Guðsþjónusta veröur
i kirkjunni kl. 11. Sjómenn taka þátt
í athöfninni og lesa ritningarlestra
og Haukur Ásgeirsson fiytur hugleið-
ingu.
Grafarvogskirkja: Hátiðarpuðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Þór Ama-
son þjónar fyrir altari. Ræðumaður:
Helgi Laxdal, form. Vélstjórafélags
Islands. Einsöngur: Sigrún Hjálmtýs-
dóttir. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Unglingakór kirkjunnar syngur.
Prestamir.
Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Sr.
Ólafur Jóhannsson.
Grindavíkurkirkja: Sjómanna-
messa kl. 13 með þátttöku sjómanna.
Skrúðganga að minnisvarðanum
„Von“ eftir messuna. Tónleikar i
kirkjunni kl. 20.30, Tjamarkvartett-
inn. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson.
Kór Grindavíkurkirkju syngur.
Hallgrímskirkja: Messa og bama-
samkoma kl. 11. Hamrahlíðarkórinn
syngur undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son.
Hrafnista: Guðsþjónusta kl. 13. Ámi
Bergur Sigurbjörnsson.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Fermd
verður Aldís Maria Valdimarsdóttir,
Lönguhlíð 25, R. Kór Háteigskirkju
leiðir söng. Sr. María Ágústsdóttir.
Sýning á textílverkum Heidi Krist-
iansen í tengigangi opin í tengslum
við messuna og þegar kirkjan er op-
in, 9-16 virka daga.
Hjallakirkja: Lagt verður upp í vor-
ferð Hjallasóknar á vegum Safnaðar-
félags Hjallakirkju kl. 11 frá kirkj-
unni. Farið verður Nesjavallaleiðina
áleiðis til Þingvalla. Sr. Heimir
Steinsson messar í ÞingvaUakirkju
kl. 14. Áætluð heimkoma um kl. 17.
ADir hjartanlega velkomnir. Prest-
amir.
Hveragerðiskirkja: Tónlistar-
vesper kl. 20. Jörg E. Sondermann
leikur verk eftir Buxtehude, Bach og
Rinck. Jón Ragnarsson.
Kópavogskirkja: Sjómannaguðs-
þjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju
syngur. Fjölskylduguðsþjónusta kl.
20 með þátttöku bama af sumarná-
mskeiði kirkjunnar. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups. Þrenningarhátíð, sjómanna-
dagurinn. Messa kl. 11. Prestur sr.
Tómas Guðmundsson. Kór Lang-
holtskirkju syngur.
Laugarneskirkja: Kvöldmessa með
altarisgöngu ki. 20.30. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prófastur setur sr.
Bjama Karlssonar inn i embætti
sóknarprests Laugarnesprestakalls.
Kór Laugameskirkju syngur. Djass-
kvartett, þeir Sigurður Flosason,
Tómas R. Einarsson, Matthías Hem-
stock og Gunnar Gunnarsson, flytur
tónlist frá kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Allir
velkomnir.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Halldór Reynisson.
Selfosskirkja: Messa kl. 10.30. Morg-
unbænir þriðjudaga-fóstudaga, kl.
10. Sóknarprestur.
Seljakirkja: Guðsþjónustur verða á
sunnudagskvöldum í sumar. Athug-
ið breyttan tíma. Guðsþjónusta verð-
ur því kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Seljur, kór Kvenfélags
Seljasóknar, syngur. Altarisganga.
Sóknarprestur.
Seltjarnameskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Sigurður Grétar Helga-
son.
Skálholtskirkja: Messa verður á
sunnudag, kl. 11. Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 11.
Afmæli
Reynir Sveinsson
Reynir Sveinsson raf-
verktaki, Bjarmalandi 5,
Sandgerði, varð fimmtug-
ur 2. júní.
Starfsferill
Reynir fæddist í Sand-
gerði og ólst þar upp.
Hann stundaði nám
við Bamaskóla Sandgerð-
is og síðar Iðnskóla
Keflavíkur, þaðan sem
hann lauk sveinsprófi í
rafvirkjun 1971, en einnig sótti
hann löggildingarnámskeið við
Tækniskóla íslands 1974.
Reynir hefúr starfað við eigið fyr-
irtæki, Rafverk ehf., í Sandgerði.
Reynir hefur verið virkur i fé-
lagsmálum í Sandgerði en hann hef-
ur m.a. verið í björgunarsveitinni
Sigurvon í 23 ár, í Lionsklúbbi
Sandgerðis í 9 ár og er núverandi
formaður, hann hefur verið formað-
ur Félags slökkviliðs-
manna í 7 ár, formaður
Sjálfstæðisfélags Sand-
gerðis í 10 ár og formaður
sóknarnefndar Hvalsnes-
sóknar sl. 8 ár. Reynir
hefúr setið í bæjarstjóm
Sandgerðis í 8 ár, í hafn-
arstjórn í 12 ár en auk
þess hefur hann átt sæti í
ýmsum starfsnefndum á
vegum Sandgerðisbæjar.
Reynir hefur einnig starf-
að mikið með Leikfélagi
Sandgerðis.
Fjölskylda
Eiginkona Reynis er Guðmund-
ína Þorbjörg Kristjándsóttir, f. 23.6.
1956, húsmóðir. Hún er dóttir Krist-
jáns Andréssonar verkstjóra og Sig-
ríðar Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Reynis og Guðmundínu era
Gísli, f. 25.8. 1975, vélfræðingur, en
unnusta hans er Eva Dögg Helga-
dóttir nemi; Sigríður, f. 14.7. 1980,
nemi, en unnusti hennar er Baldur
Kristmundsson; Guðbjörg, f. 15.10.
1985, nemi.
Systkini Reynis era Ásdís, f. 22.1.
1942, húsmóðir í Lúxemborg, Gísli,
f. 15.1. 1943, d. 16.5. 1970, rafvirki,
Guðmundur, f. 28.6. 1946, bifreiða-
stjóri í Sandgerði, Sigurður, f. 28.6.
1949, rafvélavirki í Sandgerði, Aðai-
steinn, f. 12.1. 1952, sjómaður á ísa-
firði, Sólveig, f. 29.4. 1955, skólarit-
ari í Sandgerði.
Foreldrar Reynis vora Sveinn Að-
alsteinn Gíslason, f. 22.8. 1914, d.
19.5.1982, rafveitustjóri í Sandgerði,
og Guðbjörg Hulda Guðmundsdótt-
ir, f. 22.9. 1914, d, 2.2. 1998, húsmóð-
ir.
Reynir og eiginkona hans, Guð-
mundína Þorbjörg, taka á móti gest-
um í Samkomuhúsinu í Sandgerði
frá kl. 19 í kvöld.
Reynir Sveinsson.
Ámi Elfar
Árni Elfar, tónlistar- og myndlist-
armaður, Móaflöt 7, Garðabæ, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Ámi fæddist á Akureyri en flutti
með foreldrum sínum til Reykjavík-
ur þegar hann var á þriðja árinu og
hefur hann búið á höfuðborgar-
svæðinu síðan.
Árni lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og
landsprófi frá MR. Hann stundaði
nám við Handíðaskólann 1939 og
Tónlistarskólann í Reykjavík 1954
en er sjálfmenntaður að öðru leyti.
Ámi spilaði með öllum helstu
danshljómsveitum i Reykjavík og
víðar, m.a. á Norðurlöndunum, í
Þýskalandi, Moskvu og New York
til 1972. Hann lék m.a. með Hljóm-
sveit Björns R. Einarssonar, KK-
sextettinum og Hljómsveit Ragnars
Bjamasonar. Hann var básúnuleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit íslands
1957-88, en starfar nú við
píanóleik og myndlist,
m.a. myndskreytingar á
bókum.
Meðal bóka sem Árni
hefur myndskeytt eru
Rauðamyrkur eftir Hann-
es Pétursson, þrjár bæk-
ur eftir Flosa Ólafsson og
tvær af bókum Ása í Bæ.
Einnig bók Stefáns Jóns-
sonar, Lífsgleði á tréfæti,
og bók Ellerts Schram,
Eins og fólk er flest.
Myndir eftir Árna hcifa birst í
Lesbók Morgunblaðsins en hann
hefur einnig sýnt myndverk á smá-
sýningum, bæði í Reykjavík og á
landsbyggðinni.
Fjölskylda
Kona Árna er Kristjana Magnús-
dóttir, f. 7.8.1940, starfsmaður Pósts
og síma. Hún er dóttir Zanny
Clausen, f. 28.10. 1920, d. 4.3. 1978,
húsmóður, og Magnúsar
Steingrímssonar, f. 20.1.
1920, fisksala.
Sonur Árna frá fyrra
hjónabandi er Árni Þór,
f. 6.7. 1958, en dóttir
Kristjönu er Zanny, f.
18.8. 1962. Árni og Krist-
jana eiga saman fjögur
böm. Þau eru Elísabet
Þórunn Elfar, f. 11.2.1966,
Benedikt, f. 29.11. 1967,
Agnes, f. 31.7. 1974 og
Örnólfur f. 31.7. 1974.
Systur Árna voru Björg Kristjana
Elfar Steeves, f. 16.11. 1920, d. 12.10.
1950, Áshildur Ólöf Elfar Frazer, f.
9.4. 1933, d. 1956.
Foreldrar Árna vora Benedikt
Elfar Árnason, f. 27.9. 1892, d. 24.4.
1960, guðfræðingur, söngvari og
leikfangasmiður, og Elísabet Þ.
Kristjánsdóttir, f. 18.4. 1895, d. 30.9.
1943, verslunarmaður. Árni er að
heiman í dag.
Guðrún Rögnvaldsdóttir
Guðrún Rögnvalds-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Staðlaráðs íslands,
til heimilis að Sporða-
grunni 16, Reykjavík, er
fertug í dag.
Starfsferill
Guðrún fæddist á
Sauðárkróki og ólst upp i
Djúpadal í Blönduhlíð og
á Sauðárkróki.
Guðrún lauk stúdents-
prófi frá MA 1978, og BS prófi í raf-
magnsverkfræði frá HÍ 1983. Hún
stundaði framhaldsnám við tækni-
háskólann i Karlsrahe í Þýskalandi
og lauk þaðan Diplom-Ingenieur
prófi 1986.
Guðrún starfaði hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaöarins 1978-79, hjá
Rafmagnsveitum ríkisins 1986, en
hóf störf hjá HÍ 1987 og gegndi stöðu
lektors í rafmagnsverkfræði
1988-1990. Frá 1991 hefur hún starf-
að hjá Staðlaráði íslands á Iðn-
tæknistofnun, að undanskildu einu
ári (1995-96) sem hún starfaði hjá
Evrópsku staðlasamtökunum (CEN)
í Brassel. Guðrún tók 'við starfi
framkvæmdastjóra Staðlaráðs um
síðustu áramót.
Guörún hefur setið í stjóm Stétt-
arfélags verkfræðinga um nokkurra
ára skeið, þar af eitt ár (1996-97)
sem formaður félagsins.
Guðrún
Rögnvaldsdóttir.
Fjölskylda
Guðrún giftist 25.6. 1983,
Bjarna Þór Bjömssyni, f.
3.11. 1959, stærðfræðingi,
sem er einn eigenda og
starfsmanna hugbúnaðar-
fyrirtækisins Stika ehf.
Bjami er sonur Björns
Tryggvasonar, fyrrv. að-
stoðarbankastjóra Seðla-
bankans, og konu hans,
Kristjönu Bjarnadóttur
húsmóður.
Dætur Guðrúnar og
Bjarna eru Helga Kristjana, f. 26.1.
1987, Ragna Sigríður, f. 13.4.1989, og
Svava Hildur, f. 12.6. 1993.
Systkini Guðrúnar eru Eiríkur, f.
1.6. 1955, prófessor í íslenskri mál-
fræði við Háskóla íslands, Nanna, f.
20.3.1957, ritstjóri hjá bókaforlaginu
Iðunni, og Sigríður, f. 4.1. 1964, bók-
menntafræðingur hjá bókaforlaginu
Iðunni.
Foreldrar Guðrúnar eru Rögn-
valdur Gislason, f. 16.12. 1923, fyrrv.
aðalbókari hjá sýslumannsembætt-
inu á Sauðárkróki, og Sigríður
Jónsdóttir, f. 30.11. 1928, húsmóðir.
Þau eru búsett á Sauðárkróki.
Ætt
Foreldrar Rögnvalds voru Gisli
Magnússon og Guðrún Sveinsdóttir
í Eyhildarholti í Hegranesi.
Foreldrar Sigríðar voru Jón
Eiríksson og Nanna Þorbergsdóttir
í Djúpadal í Blönduhlíð.
I tilefni af afmælinu tekur
Guðrún á móti gestum í Húnabúð,
Skeifunni 11, eftir kl. 20 í kvöld.
Gullbrúðkaup
í dag eiga gullbrúökaup þau
Guömundur Kr. Jóhannsson og
Ingibjörg Dan Kristjánsdóttir,
Háageröi 2, Akureyri.
Til hamingju
með afmælið
5* ^ /
• juni
85 ára
Baldvin Ólafsson,
Háteigsvegi 50, Reykjavík,
Guðrún Þorbjömsdóttir,
Hnjúkabyggð 4, Blönduósi.
75 ára
Inga D.
Bjamadóttir,
Háengi 4, Selfossi.
Hún tekur á móti
gestum í
Skíðaskálanum 7.
júní nk., frá
kl. 14 (kaffigjald). Gjafir og
blóm vinsamlega afþökkuð.
Loftur Guðbjartsson,
Asparfelli 6, Reykjavík.
Vilhjálmur Eyjólfsson,
Hnausum,
Kirkjubæjarklaustri.
70 ára
Halldóra Ólafsdóttir,
Furugrand 18, Kópavogi.
Maður hennar erJóhannes
Sigurðsson.
Þau taka á móti gestum á
heimili dóttur sinnar að
Ásgarði 14, eftir kl. 17 í dag.
Friðrik E. Ólafsson,
Bergstaðastræti 14, Reykjavík.
Eyþór Fannberg,
Aðallandi 7, Reykjavík.
Haukur Ólafsson,
Miðstræti 17, Bolungarvík.
Ragna Sigurðardóttir,
Austurvegi 44, Seyðisflrði.
60 ára
Marinó Þorsteinsson,
Vesturgötu 19, Reykjavík.
Svanhvít Ásmundsdóttir,
Blesugróf 22, Reykjavík.
Jón Illugason,
Helluhrauni 15, Reykjahlíð.
50 ára
Una Sigurðardóttir,
Háteigsvegi 10, Reykjavík.
Páll Amór Pálsson.
Safamýri 73, Reykjavík.
Ásthildur Sigurðardóttir,
Rjúpufelli 4, Reykjavík.
Gylfi Óskarsson,
Ugluhólum 10, Reykjavik.
Emilía Ólafsdóttir,
Barðaströnd 43,
Seltjarnarnesi.
Ingibjörg Ármannsdóttir,
Sléttahrauni 32, Hafnarfirði.
Guðlaug R. Jónsdóttir,
Austurvegi 22, Grindavik.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Efstahrauni 25, Grindavík.
Brynleifur Hallsson,
Þingvallastræti 44, Akureyri.
Pétur Óskar
Skarphéðinsson,
Baughóli 2, Húsavík.
40 ára
Sergia Margrét Leonar,
Fálkagötu 18, Reykjavík.
Jóhann Pétur Margeirsson,
Fjarðarási 24, Reykjavík.
Einar Atlason,
Vallarási 3, Reykjavík.
Finnbogi Baldur Óskarsson,
Björtuhlíð 19, Mosfellsbæ.
Sturlaugur Sturlaugsson,
Jörundarholti 119, Akranesi.
Ame Július Henriksen,
Eiðsvallagötu 1, Akureyri.
Stefán Friðleifsson,
Norðurgötu 53, Akureyri.
Wolfgang Frosti Sahr,
Marbakka, Akureyri.
Jurijs Semjonovs,
Karlsrauðatorgi 10, Dalvik.
Jóhanna Hallsdóttir,
Brúnagerði 14, Húsavík.
Ari Þórir Hallgrímsson,
Hólsvegi 7, Eskiflrði.
Rútur Pálsson,
Skíðbakka 1, Hvolsvelli.