Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Side 4
4
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998
Fréttir
Félagsbústaðir hf. flokka viðskiptavini sina:
„Félagslegur stimpill“ og
félagsleg íbúamengun
- viðmiðunarmörkin eru ein félagsleg íbúð af 10-15 íbúðum í sambýlishúsi
Félagsbústaöir hf. hafa óskað eft-
ir því við stjóm Húsnæðisstofnunar
að fá að selja aðra af tveimur félags-
legum íbúðum í fjölbýlishúsi í vest-
urbænum og flytja áhvílandi lán á
íbúðinni yfir á aðra eign sem keypt
verði í staðinn. Ástæðan sem upp er
gefin í bréfi Sigurðar Kr. Friðriks-
sonar, framkvæmdastjóra Félagsbú-
staöa hf., er sú að húsiö, sem íbúöin
er í, sé búið aö fá á sig félagslegan
stimpil, aðrir íbúar hússins telji sér
ekki lengur vært í návist íbúanna í
íbúðinni umræddu og verulegt verð-
fall sé orðið á íbúðum í einkaeign.
Þess hafi því jafnvel verið óskað að
Félagsbústaðir hf. kaupi allar hinar
íbúðimar í húsinu af þessum sök-
um.
„Mengunarmörk" 1:10-15
„í ljósi þessarar reynslu teljum
við hins vegar að ekki sé æskilegt,
að félagið eigi fleiri en eina íbúö í
stigagangi þar sem ekki era fleiri en
samtals 10-15 íbúðir," segir orörétt í
bréfi framkvæmdastjóra Félagsbú-
staða til stjómar Húsnæðisstofnun-
ar.
Hann segir síðan aö Félagsbú-
staðir eigi tvær íbúðir í sama stia-
gangi og um er að ræða þar sem
samtals séu átta íbúðir. I þessum
stigagangi hafi því miður komið
upp vandamál af því tagi sem áður
var lýst. Síðan segir:
„Það gefúr að skilja, aö auðvitað
á þetta ekki við, þar sem félagið á
allar íbúðimar í viðkomandi
stigagangi eða fjölbýlishúsi,
sbr. fjölbýlishús félagsins í
Breiðholti, við Kleppsveg,
Austurbrún, Skúlagötu og
Meistaravelli."
„Hvort ein eða örfáar eða
alla ibúðimar í fjölbýlishúsi
em á vegum húsnæöisnefndar
Reykjavíkurborgar ætti varla
að breyta kröfum um almenna
umgengnishætti og velsæmi,"
sagði Ámi Sigfússon, borgcir-
fúlltrúi D-listans, þegar DV bar
undir hann þá skoðun sem
fram kemur í bréfi fram-
kvæmdastjóra Félagsbústaða
um að umgengnisvandamál
séu ekki fyrir hendi þegar all-
ar íbúðimar í fjölbýlishúsi eða
stigagangi em félagslegar.
Hætta á ónæöi
Siguröur Helgi Guðjónsson,
hæstaréttarlögmaður og for-
maður Húseigendafélagsins,
sagði viö DV aö í fjölbýlishús-
um væri alltaf viss hætta á
ónæði og að ónæði fiá ein-
hverjum íbúanna færi út fyrir
öll mörk. „Sú hætta er almenn
og ekkert frekar bundin við íbúa í
félagslegu húsnæði en aðra. í lögum
um fjöleignahús em úrræði í mál-
um af þessu tagi. Ef menn brjóta
gróflega eða ítrekað af sér geta aðr-
ir íbúar krafist þess að viðkomandi
flytji út. Ég hef aldrei áöur heyrt
iSXt FÉLAGSBÚSTAÐIR HF
Reykjavlk. IS. mal 1991
HiuaKðUmiUstjirn
b.L formaniu, Hikonar Hikonarsonar,
Suðurlandibraat 24
10S Rtykjavík.
Varfiar iðlu 4 ftlagtltgrí Itigulbúð:
A þeirn tíma fri 1. aeptetnber al.. sem Félagsbústaðir hf. bafa itaríið hafa
komið upp marghittuð atvik. aem við teljum að fiera megi til bctri vegar 1 rcfcnri
félagilegra leiguibúða. Eitt þessaia atvfla er flaðsetning íbúða þar icm eiu 2-3 flakar
ibúðir 1 ttígagöngQm minni Öðlbýliibúsa. Eiai og fengur og gerifl við letgu 4
ibúðarhÚMKÖi geta komið upp meðal letgjeoda Clagileg vandamil, tan geta orðið
tilefiii alvariegra kvartaaa fri öðrum íbúumhúuini. Afþessu tiiefhihafajafnvel
komið fram krðfúr um að Félagsbústaðir hf. kaupi aðrar íbúðir í hiísinu. þar scm þar lé
ekid lecgur vatrt. oe eaofremur að um ygrulegt wðfajl té að xasða, þar sem húsið lé
búiðað fáiríg“félagileganitimpil” Ihveríinu. Þettaeru tembeturfer
undantekiiingartílvik, þar tcm leigjendur Félagsbúflaða eru upp til hðpa hið bctta fólk
og i engu fribrugðið öðrum leigjendum. f ljósi þetsarar reynilu teljum við hins vegar
ekki Kskilegt, að íélagið cigi fleiri en eina fbúð i fligagangi þar aem ddá cru fleiri cn
samtali 10-1$ (búðir.
Félagsbústaðir eiga tvxr (búðir (tama fligagangi að Hrisgbnut 10$, þar tem tamtali
ciu S (búðir. 1 þcasum stígagangi hafa þvi miður kotnið upp vaadamil af þvi tagi tcm
iður heftir verið lýst.
Það geftrr að tkiljt, að auðvitað i þetta ekki við, þar sem félagið á allar tbúötmar i
viðkomandi ttigagangi eða fjðlbýlishúsi tbr. fjölbýlishú; félagsins i Breiðholli, við
Klepptveg. Austurhrún, Skúiagötu og Meistaravelli.
Hér cr þvi fárið fram i, að leyíi fiist til þess að selja aðra (búðina að Hringbraut 105
og kaupa 1 staðinn tamhrrilega íbúö. Axtlað sðluverð (búðarinnar er 4.5 mkr. Á
(búðinni hvllir lin Byggingarsjóðs verkamanna fri nðv. 1986, upphaflega lcr. 920.265-
nú að eftiutöðvum kr. 1.49S.938. Farið er jafhfiamt fram 4, aö ihvilandi lán
B yggmgtrsj óðsins fiist yfirfxrt á þi ibúö sem kcypt verður 1 flaötnn. Hér verður þvi
ekki um að rxða nýtt lin né lengingu i linstima.
Meðvon
VirðingarfyUit,
Sigurður Kr. Friöriktson,
framkvmdastjóri.
Afril sent til Sigurðar C. Guömunduonar. framkvonndastjón Húsrueðisuofnunar
Bréfið til Húsnæðismálastofnunar þar sem því er
lýst að félagslegur stimpill á fjölbýlishúsi geti þýtt
verðfall.
um nein viðmiðunarmörk um hlut-
fall félagslegra íbúða í fjölbýlishús-
um og það er óneitanlega einkenni-
legt að fá hér eins konar óumbeöna
staðfestingu úr þessari átt á þeim
orörómi um að ónæöi sé meira af
völdum fólks sem býr í félagslegu
húsnæði en í öðru húsnæði,“
án þess að það hafi verið rann-
sakað sérstaklega,“ sagði Sig-
urður Helgi Guðjónsson. Hann
kvaðst ekki vita til þess að
þetta hefði nokkru sinni verið
rannsakað.
„Að sjálfsögðu ætti ekki að
vera hægt að flokka fólk eftir
eignarformi húsnæðis og þau
vandræði sem hér er verið að
lýsa eru síður en svo háð eign-
arformi húsnæðisins," sagði
Jón Kjartansson frá Pálm-
holti, formaður Leigjendasam-
takanna.
„Það er Félagsmálastofnun
sem úthlutar húsnæðinu. Það
er ekki Félagsbústaða að gera
það. Við höfum haft þá stefnu
að kaupa íbúðir hingað og
þangað, tvær til þrjár í stiga-
gangi eftir því sem hentar.
Ástæðan er sú að við teljum
það ekki góða stefnu að reka
heilu fjölbýlishúsin sem fé-
lagslegar leiguíbúðir. íbúar fé-
lagslegra leiguíbúða eru bara
venjulegt fólk, upp og ofan
eins og gengur. Það er því eðli-
legt að það sé innan um aðra
borgara, en ekki á einhverjum af-
mörkuðum svæðum," sagði Guðrún
Ögmundsdóttir, fráfarandi borgar-
fúiltrúi R-listans og formaður fé-
lagsmálaráðs Reykjavíkurborgar.
-SÁ
Frjálsir menn og saklausir
Þá hefur stóridómur i Landsbanka-
málinu verið kveðinn upp. Jón Steinar
Gunnlaugsson hefur sent frá sér
skýrslu sina og niðurstöður um meint
saknæmi bankastjóranna þriggja og i
framhaldi af þeirri skýrslu hefur
bankaráð Landsbankans ákveðið að
hafast ekki frekar að. Lætur allar kröf-
ur niður falla og telur ekki ástæðu til
frekari aðgerða.
Þar með eru bankastjóramir þrír
lausir allra mála og ekki nóg með það.
Skýrsla lögfræðingsins sýnir það svart
á hvítu að bankastjóramir hafa í engu
brotið af sér og vora látnir fara frá
bankanum á röngum forsendum. Voru
reknir fyrir misskilning!
Þeir veiddu kannske meira en góðu
hófi gegndi og þeir fóra oftar utan en
góðu hófi gegndi og þeir notuðu eitt-
hvert smáræði í risnu, umfram það
sem maklegt þótti. En þetta voru við-
teknar venjur og uppáskrifað af for-
manni bankaráðs og auðvitað þótti við
hæfi að bankastjórar Landsbankans
hefðu nokkuð umleikis og ferðuðust og
veiddu og drykkju eins og bankastjór-
um einum sæmir og Landsbankinn gat verið
stoltur af þessum bankstjórum sínum og það var
ekki fyrr en Alþingi og Ríkisendurskoðun og rík-
isstjórnin fóru að skipta sér af innri málum bank-
ans sem bankaráðið og ráðherrarnir fóru á taug-
um og hugsanlega bankastjóramir líka og þá
sögðu þeir upp vegna þess að annars hefðu þeir
verið reknir. Þannig að þeir voru eiginlega látn-
ir fara, gegn sínum eigin vilja og í trássi við hags-
muni bankans og án þess að þeir hefðu gert nokk-
uð það af sér sem réttlæti uppsagnirnar.
Niðurstaðan er sem sagt sú að bankinn lætur
kyrrt liggja. Nú er það hins vegar spumingin
hvort bankastjóramir láti kyrrt liggja. Hvers
vegna ættu þeir ekki að sækja bankann
til saka um að hafa bolað þeim ranglega
í burtu? Næst ætti Jón Steinar að taka
saman skýrslu fyrir bankastjórana þrjá
og athuga hvort þeir eigi ekki kröfur á
hendur bankanum fyrir ærumeiðandi
athafnir í þeirra garð og tilhæfulausar
aðgerðir sem leiddu til uppsagnanna.
Bankastjórarnir koma til með að missa
af veiðinni í sumar, þeir hafa glatað
rétti sínum til að ferðast frítt til útlanda
og þeir hafa ekki fengið nema átta mán-
uði greidda i laun eftir að þeir létu af
störfum.
Það er búið að fara illa með þá í aug-
um almennings og Sverrir hefur jafnvel
þurft að hóta framboði og bæði Sverrir
og Björgvin hafa þurft að borga til baka
einhverja peninga sem þeir höfðu tekið
úr bankanum en áttu í raun fullan rétt
á að taka ef ekki hefði komið til þessa
furðulega og fjarstæðukennda upp-
hlaups sem var alls ekki þeim að kenna.
Þeir meira segja reyndu að ljúga bank-
ann út úr þessum misskilningi.
Langsamlega skynsamlegasta sam-
komulagið sem gera má milli fyrrver-
andi bankastjóra og Landsbankans er að ráða þá
alla aftur því þetta mál allt og upphlaup er byggt
á hræðilegum og ómannúðlegum misskilningi.
Það var ekkert að, ekkert saknæmt, ekkert út á
framferði bankastjóranna að setja.
Það er lögfræðilega sannað.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Er Halim Al aö bogna?
í gærmorgun var réttað í saka-
dómi í Istanbul
yfir Halim A1
vegna brota
hans á um-
gengnisrétti
Sophiu Hansen
við dætur sín-
ar. Dómsupp-
kvaöningu var
frestað til 15. júlí en þá sagði
dómarinn að ljóst ætti að vera
orðið hvort Halim stæði við mn-
gengnisrétt Sophiu við dætumar
í sumar. Halim var ásamt föður
sínum og bróður látinn staðfesta
fyrir dómi að staðið yröi við um-
gengnisréttinn.
Lyf gegn alzheimer
Lyfið, Aricept, sem sýnt hefur
virkni gegn aizheimer hlýtur
skráningu Lyfjanefndar ríkisins
næsta haust. Virkni lyfsins kem-
ur fram í því að þaö bætir ástand
sjúklingsins og hægir á þróun
sjúkdómsins.
Ásbjöm forseti
Á fyrsta fundi bæjarstjómar í
SnæfeUsbæ, hinn 11. júní, var
Ásbjöm Óttarsson, D-lista, kos-
inn forseti bæjarstjómar. Ólína
B, Kristinsdóttir, D-lista, var kos-
in 1. varaforseti og Sveinn Þ. El-
ínbergsson, S- lista, 2. varafor-
seti. í bæjarráð vom kjörnir Jón
Þ. Lúðvíksson, D-lista, sem verð-
ur formaður bæjarráös, Ólafur
Rögnvaldsson, D-lista, og Sveinn
Þ. Elínbergsson, S-lista.
Reglugerö um hjöt
Umhverfisráðuneytið hefur gef-
ið út reglugerð
um kjöt og kjöt-
vömr þar sem
skilgreindar em
leyfilegar merk-
ingar á kjötvör-
um og settar
reglur um mark-
aössetningu
þeirra og um eftirlit og rannsókn-
ir. Reglur era settar um skilgrein-
ingu á vöruflokkum og gæðamerk-
ingum og einnig skulu innihalds-
lýsingar veita nákvæmar upplýs-
ingar um samsetningu vörunnar.
OZ í Finnlandi
OZ er um þessar mundir í
viöamiklu samstarfi við Helsinki
Telephone Company í Finnlandi.
Tækni frá OZ er notuð í verkefn-
inu Helsinki Arena 2000 sem er
eitt metnaöarfyllsta Internet-
verkefhið i Evrópu í dag og nem-
ur heildarkostnaður tugum miilj-
arða íslenskra króna.
Nýr konsertmeistari
Sigrúnu Eðvaldsdóttur var boð-
in staða 1.
konsertmeistara
Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands
eftir hæfnispróf
sem fór fram 12.
júní. Hún þáöi
boðið og mun
hún heija störf 1.
september. Guönýju Guömunds-
dóttur, sem áöur gegndi stöðunni,
hefur veriö veitt starfslaun lista-
manna í tvö ár.
Há skattgreiösla
Samkvæmt aðalsamningi milli
ríkisstjómar Islands og Alusuisse
Lonza Group Ltd greiðir Isal fram-
leiðslugjald í stað tekju- og eign-
arskatts og fasteignagjalda. 1997
greiddi Isal framleiðslugjald að
fjárhæð 640 milljónum króna. Þetta
er líklega hæsta skattgreiðsla sem
einkafyrirtæki hefur greitt vegna
eins rekstrarárs hér á landi. -me
Grillborgarar 4 stk. m/ brauði