Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 40
52 MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998 DV onn Ummæli Ágreinings- málið „Ég vissi það ósköp vel þeg- ar við gengum til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis- , flokkinn að eitt af ágreinings- málunum gæti orðið rekstur RÚV. Mér sýn- ist að það hafi gengið eftir.“ Valgerður Sverrisdóttir, form. þingfiokks Framsókn- ar, í Degi. Hamfarir „Á endanum var hann þó farinn að berja slaghörpuna sundur og saman eins og harðfisk og Kristinn æpti þá og gólaði sem mest hann mátti." Jónas Sen, í tónlistargagn- ryni, í DV. Sumarið og Finnur „Ég verð að biðja lesendur margfaldlega af- sökunar á því að ég mun minnast örfáum orðum á Finn Ingólfsson, og það þótt ég geri mér fulla grein fyrir að nú þegar er sumar og sólin skín, þá vill í raun og veru enginn heyra neitt um Finn Ingólfs- son.“ lllugi Jökulsson, í Degi. Stones og eiginkonan „Reyndar hefur hann allt frá okkar fyrstu kynnum haft gríðarlegan áhuga á mér líka þannig að ég sætti mig ágæt- lega við hlutskipti mitt.“ Þórdís Jónsdóttir, eigin- kona Ólafs Helga Kjartans- sonar, sýslumanns og aðdá- anda Rolling Stones, í DV. Undrun Hannesar „Mér til undrun- ar hefur Dagur haldið áfram að koma út eftir kosningar, ólíkt öðrum kosning- ablöðum, sem ég hef séð til.“ Hannes Hólm- steinn Gissurar- son, í Degi. Lyftupoppsstofu- poppsæði „Hún er tekin upp í mjög ýktu stereói. Við erum svo glaðir með að vera búnir að ramma inn þetta lyftupopps- stofupoppsæði á þessu bless- aða landi.“ Páll Óskar Hjálmtýsson, um nýja plötu sína og Casino, i Ragnheiður Skúladóttir: Undirleikari í þrjátíu ár DV, Suðurnesjum: „Að vissu leyti er söknuður að hætta. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og hér hafa alltaf verið frábærir stjómendur. Hópur- inn hefur verið mjög skemmtilegur og það eru flnar konur í kórnum. Hann er geysilega góður," sagði Ragnheiður Skúladóttir sem hefur verið undirleikari Kvennakórs Suð- Maður dagsins umesja frá því hann var stofhaður fyrir 30 árum. Ragnheiður hefúr nú tekið ákvörðun um að hætta sem undirleikari. Hún hefur ferðast bæði innanlands og utan með kóm- um þegar hann hefur haldið tón- leika. „Nú er ég hætt. Þetta er orð- inn svo langur tími að ég ætla að hvíla mig á þessu." Ragnheiður hef- ur ekki einungis verið undirleikari hjá kvennakómum, hún byrjaði einnig 16 ára gömul að spila undir hjá Karlakór Keflavíkur og var þar í Qöldamörg ár. Hún ferðaðist einnig vítt og breitt um landið og er- lendis með karlakórnum. Ragnheið- ur var gerð að heiðursfélaga Karla- kórs Keflavíkur. „Æ, þeir voru svo elskulegir eitt árið að gera mig að heiðursfé- laga. Það var mjög Ragnheiöur Skúladóttir. skemmtilegt DV-mynd Ægir Már að vera und- irleikari hjá þeim.“ Ragnheiður byrjaði 10 ára gömul að læra á píanó. „Ég kem frá tónlist- arheimili, Birtingaholti í Hruna- mannahreppi. Móðir mín, Sigríður Ágústsdóttir, hafði mikla unun af tónlist." Ragnheiður er systir Helga heitins Skúlasonar leikara og Ólafs, fyrrum biskups íslands. Þá á Ragnheiður eina systur, Móeiði, sei býr í Keflavík og er kunn- asti öku- kennari Suðumesja. En Ragn- heiður er ekki hætt að spila á píanó. Hún hefur meira en nóg fyrir stafni. Hún er yfirkennari við Tónlistarskóla Keflavíkur og kennir á píanó eins og hún hefur gert i 20 ár. Ragnheiður er búsett í Keflavík. Eiginmaður hennar er Sævar Helgason skilta- málari. Þau eiga íjögur börn og eng- an þarf að undra að öll bömin eru í tónlistinni. Sigurður, 35 ára, er með masterspróf í söng og tónsmíðum, Jóhann Smári, 31 árs, er óperu- söngvari og fastráðinn við óperana í Köln í Þýskalandi og Sigrún, 24 ára, er við tónlistarnám í London. „Þau standa sig öll mjög vel og hafa verið í kringum tónlistina frá fæð- ingu þegar móðirin var að spila á heimilinu. Þau hafa greini- lega ekki ofnæmi fyrir tón- listinni,“ segir Ragnheiður og hlær. En Ragnheiður á sér áhugamál. „Fjöl- skyldan er númer eitt hjá mér og tónlistin númer tvö.“ -ÆMK Brúðubíllinn Brúðubíllinn er á ferð um Reykjavík með sýninguna Brúður, tröll og trúðar í far- angrinum. í dag verður leikritið sýnt í Hlaðhömr- um kl. 10, kl. 14 í Malraási og í fyrramálið kl. 10 verður Brúðubíllinn í Ljósheimum. Sumarhátíð Sólstöðuhópsins Sumarhátíð verður hald- in að Laugalandi í Holtum 19.-21. júní á vegum Sól- stöðuhópsins. Markmið há- tíðarinnar er að hvetja fólk til að rækta tilfinningar sín- ar, samband sitt við sína nánustu í leik, starfi, fræðslu og trúariðkun. Fjöl- breytt dagskrá er alla dag- ana. Skráning er hjá Sól- stöðuhópnum, Sporða- gmnni 17, sími og mynd- sími 5533001. Samkomur Námskeið í Breakdönsum Á morgun hefst námskeið í break fyrir byrjendur og lengra komna í Danssmiðj- unni, Skipholti 25. Um er að ræða þriggja vikna nám- skeið. Uppl. í síma 5619797. Segir íslendingasögur Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi. Árni Heimir Ingólfsson leikur á píanó í Digraneskirkju í dag. Einleiksverk eftir Schumann Árni Heimir Ingólfsson píanóleik- ari heldur einleikstónleika í Digra- neskirkju í kvöld kl. 20.30. Á efnis- skránni era þrjú einleiksverk eftir Robert Schumann, meðal annars Kreisleriana op. 16 sem er eitt af stærstu píanóverkum tónskáldsins. Ámi Heimir stundar nú doktorsnám í tónlist við Harvardháskólann í Bandaríkjunum. Hann hélt fyrstu opinberu tónleika sína i fyrrasumar og hlaut góða dóma fyrir leik sinn. Árni hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, meðal annars styrk úr Thor Thors-sjóðnum og verðlaun heiðurssamtaka bandarískra tónlist- armanna (Pi Kappa Lambda) fyrir framúrskarandi tónlistarhæfileika. Efnisskráin á tónleikunum í Hvera- gerðiskirkju er klukkustundar löng og er_aðgangur ókeypis. Tónleikar Sumartónleikar í Stykkishólmi Fyrstu sumartónleikar í Stykkis- hólmskirkju á þessu sumri verða í kvöld kl. 21. Þá munu söngkonurnar Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, sópran, og Þórann Guðmundsdóttir, sópran, halda tónleika ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. Á tón- leikaskránni eru íslensk verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Leifs og Sigvalda Kaldalóns. Bridge Franska parið Catherine d’Ovidio og Paul Chemla náðu öðru sætinu á Evrópumóti para í Aachen nú í vor. Hér er eitt spil úr mótinu þar sem d’Ovidio-Chemla fengu mjög góða skor. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og AV á hættu: * ÁK94 «4 K9 * K974 * G84 s * * ÁD109752 4 DG652 * 5 ♦ DG8652 4 3 Austur Suður Vestur Norður 14 14 2 »4 4 4 5 4 5 4 dobl p/h Eitt af Bols-heilræðunum frægu hljómar þannig: „Fimmta sagnstigið tilheyrir andstæðingunum". Suður ákvað að fara ekki eftir því heilræði og fékk að sjá eftir því. Fimm lauf eru alltaf einn niður en spurningin var hve vel franska par- inu tækist upp í vörn gegn 5 spöðum. Útspilið hjá Chemla var laufkóngurinn sem d’Ovidio yf- irdrap á ás óg lagði niður tígulás- inn. Að því loknu spilaði hún hjartatvistinum yfir á ásinn hjá Chemla. Chemla var að vonum hissa á þessari vöm sem benti til þess aö vestur vildi fá tígultrompun. Gat það virkilega verið svo að suð- ur ætti falinn 6 spila lit í tígli? Að lokum ákvað Chemla að treysta fé- laga sínum, spilaði tígli og tryggði þannig 300 fyrir tvo niður í spilinú. ísak Örn Sigurðsson 4 107 . «4 ÁDG8643 4 103 4 K6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.