Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 6
6 Fréttir Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins: Flokkarnir aldrei nær sameiningu „Þetta var góður fundur og í alla staði mjög málefnalegur og hvað varðar samfylkingarmálin á lands- vísu þá er það mín tilfinning að flokkarnir séu nær því að sameinast en nokkru sinni áður,“ segir Mar- grét Frímannsdóttir formaður um miðstjórnarfund Alþýðubandalags- ins sem haldinn var á laugardaginn. Þessi miðstjómarfundur er síðasti formlegi fundurinn fyrir landsfund Alþýðubandalagsins sem haldinn verður helgina 4.-5. júlí næstkom- andi. Á fundinum var farið rækilega yfrr niðurstöður sveitarstjórnar- kosninganna og síðan vom samfylk- ingarmálin til umræðu. Undanfarið hafa fimm hópar, skipaðir fulltrúum Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista, unnið málefnapakka vegna fyrirhugaðs sameiginlegs framboðs. Fjórir hópanna kynntu niðurstöður þeirrar vinnu á fundin- um, utanríkismálahópur mun ekki hafa lokið störfum enn. Málefnahóp- segir Margrét Frímannsdóttir formaður Margrét Frímannsdóttir var ánægð með störf miðstjórnarfundar sem haldinn var í Þinghóli á laugardaginn. Hér ræðir hún málin við Jón Gunnar Ottósson og Jóhann Geirdal, varaformann flokksins. DV- mynd Jói arnir munu halda áfram störfum en það verður landsfundar Alþýðu- bandalagsins að kveöa endanlega upp úr hvernig Alþýðubandalagið kemur að samvinnu flokkanna í næstu alþingiskosningum. Eðlilegur ágreiningur Nokkur ágreiningur hefur verið um sameiningarmálin innan Al- þýðubandalagsins og skiluðu með- al annars Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson hvor um sig greinargerð um málið. Margrét Frímannsdóttir segir ekki nema eðlilegt að menn greini á um svo stór mál. „Það kom skýrt fram á fundinum að það séu ekki skiptar skoðanir um aukna samvinnu flokkanna. Það er frekar að ágrein- ingurinn standi um hvemig form- ið á að vera en þessi mál verða rædd til hlítar á landsfundi flokks- ins í byrjun næsta mánaðar og ég er bjartsýn á að menn leysi þenn- an ágreining í rólegheitum. Ef fundurinn um helgina var sýnis- hom af því sem koma skal þá á ég ekki von á öðru en landsfundurinn verði vettvangur málefnalegrar umræðu," segir Margrét Frí- mannsdóttir. -aþ Síldarævintýrið fyrir austan: Menntaskólanemi á bankastjóralaunum Hin góða veiði íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum upp á síðkastið er athyglisverð og hefur vakið upp sælar minningar síldaráranna þegar þau vom og hétu og allt snerist um síld og aft- ur síld. Síldarskip Eskfirðinga, Hólmaborg og Guðrún Þorkelsdótt- ir, hafa mokað upp síldinni og komið drekkhlaðin til hafnar. Mik- il verðmætasköpun á sér stað og margir gera það gott, sjómenn, út- gerð og vinnslan í landi. 18 ára menntaskólanemi úr Reykjavík, Jón Trausti Reynisson, nýsloppinn úr vorprófum Mennta- skólans við Sund, hefur farið 3 veiðiferðir á Guðrúnu Þorkelsdótt- ur sem háseti og er í skýjunum með sín laun sem hann reiknar með að séu ekki undir 470-480 þús- und krónur. „Þetta er alveg ævintýralegt, ég hefði aldrei trúað þessu,“ sagði Jón Trausti í samtali við DV. „Ég fór um borð 28. maí og í dag, 13 dögum síöar, er ég búinn að hafa Erum flutt að Helluhrauni 10, Hafnarfirði Gínur, fataslár Mátunarspeglar - sokkastandur Barnagínur, framhengi í panil. Panilpinnar, plastherðatré. Sérsmíði á innréttingum. Verðtilboð. Sendum í póstkröfu. Rekki ehf. heildverslun Helluhrauni 10 - Sími 565 0980 meiri tekjur en ég hafði í allt fyrra- sumar á línubáti. Samt var stoppað í 3-4 daga í landi vegna sjómanna- dagsins. En þetta er rispuvinna og ég veit að nótaveiðamar gefa ekki alltaf svona vel af sér. Andinn er góður um borð, dugleg áhöfn og skipið klassaflnt og skipstjórinn fiskinn. Ég hef verið 3 sumur á sjó, þar af 2 á humri og eitt á linu. Nótaveiðamar eru mjög frá- bragðnar og skemmtilegri að minu mati, alla vega miðað við mlna reynslu." Jón Trausti er Vestfirðingur og flutti fyrir nokkrum áram til höf- uðborgarinnar frá Flateyri. Hann er með sjómannsblóð í æðum en hyggst þó ekki leggja sjómennsk- una fyrir sig, ætlar að vera áhuga- sjómaður íyrst um sinn. Aðspurður kvaðst Jón ekki vera búinn að ákveða hvað hann ætlaði að gera við launin en taldi öraggt að þau færu í eitthvað skynsam- legt. Skólanám er fram undan í vetur en e.t.v. .væri freistandi að verja einhverjum hluta launanna í hlutabréfakaup og freista gæfunn- ar. -Regína Hróarskelduleikur: Fjórir heppnir tii Hróarskeldu DV, Bylgjan og Feröaskrif- stofa stúdenta efndu í samein- ingu til verðlaunagetraunar um hina miklu Hróarskelduhátíð sem haldin er að þessu sinni 25. til 28. júní í Danmörku. Verð- launahafar í getrauninni urðu þessir: Kolbrún Ágústa Guðna- dóttir, Sætúni 1, Suðureyri, Kon- ráð Gísli Valsson, Túngötu 42, Reykjavík, Ragna Gestsdóttir, Flókagötu 8, Reykjavík, og Árný Hekla Marínósdóttir, Móatúni 23, Tálknafirði. Fjórmenningamir fara til Hróarskeldu í boði Ferðaskrif- stofu stúdenta en uppselt er í pakkaferð ferðaskrifstofunnar til Hróarskeldu en enn er hægt að fá staka miða á hátíðina sjálfa. fiUOROH ÞORKEiJ Jón Trausti Reynisson datt í lukkupottinn þegar hann brá sér á síldarbát hjá Alla ríka. Á aðeins hálfum mánuði hafði hann tæplega hálfa milljón í tekjur. DV-mynd Emil Slökkviðliðsmenn hjóla hringinn: Feröin gengur mjög vel - styrkja krabbameinssjúk börn „Ferðin hefur gengið mjög vel hjá strákunum. Þeir eru degi á undan áætlun. Þeir stefna að því að koma til Reykjavíkur klukkan 14 á þriðjudag. Það ætla einhverjir að hjóla með síð- asta spölinn. Ég vil hvetja fólk til að taka vel á móti þeim þegar þeir koma. Þeir hafa staðið sig mjög vel og gera þetta í þágu góðs málefnis," segir ívar Trausti Jósafatsson, upplýsingafull- trúi slökkviliðsmannanna sex sem eru að hjóla í kringum landið. Tilefni ferðar slökkviliðsmann- anna er aö styrkja krabbameinssjúk börn. Áheitasöfnun stendur yfir vegna ferðarinnar. Slökkviliös- mennirnir voru staddir í Vík í gær og gistu þar í nótt. Þeir lögðu af stað frá Reykjavík 5. júní sl. „Söfnun hefur gengið alveg ágæt- lega, þótt ekki komið mikil viðbrögð frá höfuðborgarsvæðinu en við von- um að það aukist nú þegar liður að lokum ferðarinnar," segir ívar Trausti. -RR Slökkvliðsmennirnir sjást hér við upphaf ferðarinnar. aoet !Mm sr unnim'fun MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998 Kjöt eins og af Keikó Sendinefhdin frá Ameríku, sem leitað hefur að framtiðarstað fyrir háhyminginn Keikó, var á Austur- landi um daginn og fékk sér að borða á hóteli austur á Héraði. Matseðill- inn var að sjálfsögðu á íslensku sem Kan- amir skildu ekki orð í og spurðu því þjóninn. Þjónninn var ekki allt of sleipur í enskunni og vafðist það nokkuð fyrir honum að útskýra einn réttinn, hrefnukjöt, og hvaða skepna þessi hrefna væri. Hann sagði því ..meat from an animal like Keikó“, eða ket af skepnu eins og Keikó, og brá hvalavinum nokk- uð við þessar upplýsingar. Eskfirð- ingar óttast nú að þessi réttur á mat- seðli hótelsins hafi eyðilagt mögu- leika þeirra á að fá Keikó í fjörðinn. Ómissandi Það hefur vakið nokkra athygli að nýkjörinn meirihluti í sveitar- stjóm í Skagafirði virðist ekki ætla að ráða Snorra Bjöm Sigurðsson bæjarstjóra á Sauðár- króki, sem sveitar- stjóra í nýju samein- uðu sveitarfelagi. Hins vegar hefur það reyndar vakið enn meiri athygli að farið hefur verið fram á það við Snorra Björn að hann starfi fyrir nýja sveitarfélagið í einhvern tíma og er helst að skilja að hann eigi að vinna að málum sem varða sameininguna og koma þeim áleiðis. Skýringin á þessu er hins vegar augljós þegar grannt er skoðaö. Snorri Bjöm var „heilinn" á bak við sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði og er talinn ómissandi varðandi það verk að þoka samein- ingunni í gott horf því nánast allt verkið er eftir þótt kjósendur hafi formlega samþykkt sameiningu. Prófkjörsskjálfti Tilburðir stjórnarandstöðunnar til að velta Finni Ingólfssyni úr sessi hafa orðiö æ veikari og nú þykir sýnt að ráðherrann muni standa þau pólitísku hretviðri af sér. Sam- herjar Finns í Fram- sóknarflokknum kynnu þó að reyn- ast honum ívið skeinuhættari. I Reykjavík fer óðum að styttast í prófkjör og margir telja Ólaf Öm Haraldsson koma þar firnasterkan í slaginn. Ólafur þykir hafa haft puttana á þjóð- arpúlsinum í helstu hitamálunum á Alþingi og þannig styrkt stöðu sína meðal kjósenda. Innan Framsóknar- flokksins er Ólafur ekki talinn ólík- legur til að skipa 1. sæti flokksins í næstu kosningum. Það stefnir því í harðan slag. Hagnaður aukinn Stöðumælasjóður Reykjavíkur viröist hafa komið sér upp árangurs- ríkri aðferð við að hafa sem mestan ágóða af aukastöðugjöldum eða sekt- um sem bíleigendum er gert að greiða borgi þeir ekki í stöðumæl- ana eða að tíminn rennur út. Starfsmað- ur DV, sem fékk í vikunni stöðugjalds- seðil á bíl sinn, dreif sig samstundis í bank- ann til að greiða hann þvi að á seðl- inum stendur að sé gjaldið greitt inn- an þriggja daga sleppi viðkomandi með að greiða 500 kall en annars 850 krónur. Þegar í bankann kom krafð- ist gjaldkerinn hærri upphæðarinn- ar þar sem stöðuvörðurinn hafði dag- sett greiðsluseðilinn þrjá daga aftur í timann. Umsjón Stefán Ásgrímsson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.