Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 36
48
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998
íþróttir unglinga
i>v
Pæjumótið í Ve s t m a n n a e y j u m
Frábær
viðburður
„Þetta er svo
frábær viðburð-
ur að þetta er í
fjóröa skiptið
sem ég kem,“
sagði Smári
Þórarinsson,
fararstjóri
Valsstúlkna.
„Yfir heildina er ég mjög
ánægður með skipulagningu
mótsins og framkvæmd. Einnig
gerði veðrið gæfumuninn nú í
ár,“ sagði Smári ánægður að
loknu móti.
„Að mínu mati finnst mér að
það eigi ekki að útkljá úrslit í
vítaspymukeppni fyrr en í
fyrsta lagi í 3. flokki því að þetta
er bara allt of mikil pressa á
stelpurnar," sagði Smári, en
Valsstúlkur töpuðu leik í undan-
úrslitum á móti KS í bráðabana
vítaspyrnukeppni.
„Æðislega
gaman“
„Þetta er í
þriðja sinn sem
ég kem á Pæju-
mót,“ sagði
Sandra Ás-
geirsdóttir,
leikmaður 5.
flokks Breiða-
bliks.
Hún var ánægð með velgengni
liðsins. „Við spiluðum um 5.-6.
sætið.“
„Það var frábært að fara á
skemmtunina á Stakkagerðis-
túni og tónleikarnir í íþrótta-
miðstöðinni voru lika góðir,“
sagði Sandra, enda nóg um að
vera annað en fótbolti á Pæju-
mótinu.
Aðspurð hvort hún ætlaði að
koma aftur sagði Sandra:
„Jahá sko, þetta er svo æðis-
lega gaman."
Yndislegt
veður
„Þetta er mitt
annað skipti á
Pæjumóti,"
sagði Bryndís
Þorsteinsdóttir,
leikmaður 4.
flokks KS frá
Siglufirði.
Henni fannst
skemmtilegast að keppa. „Svo
var líka æðislegt að fara í báts-
ferð og í sund.“
Hana langar að koma aftur á
næsta ári. „Það er svo gaman
héma, sérstaklega þegar veðrið
er svona gott.“
„Frábært“
Ema Þorleifsdóttir er að þjálfa 6.
flokk og er hún að ljúka sínu sjötta
Pæjumóti. Ema hefur verið einstak-
lega sigursæll þjálfari í gegnum
tíðina og náð einmitt mjög góðum
árangri á Pæjumótinu í Eyjum.
Hvemig hefur þér þótt til takast
nú í ár?
„Alveg frábærlega og nú hefur
veðrið loksins leikið við okkur.
Þetta hefur verið öðmvísi fyrir mig
núna þar sem ég er að þjálfa mun
yngri stelpur en ég er vön að gera.
Mér finnst allt hafa farið mjög vel
fram, en hvað varðar leikina þá
finnst mér að allar þær stelpur, sem
taka þátt í mótinu, það er að segja
yngstu stelpurnar, ættu að fá
verðlaun."
Breiöabliki gekk vel á Pæjumótinu, eins og svo oft áður.
sjsSS
Erna Þorleifsdóttir, þjálfari 6. flokks ÍBV, ásamt tveimur lærisveinum
sínum f 6. flokki.
Stúlkurnar f 6. flokki ÍBV voru sigursælar á mótinu. Þær
sigruðu í keppni B-liöa og uröu f þriöja sæti í keppni A-liða.
Hér ganga þær brosandi til leiks.
Umsjón: Texti: Myndir:
íris B. Eysteinsdóttir Rútur Snorrason Ómar Garðarsson
Pæjumótið fór vel fram að vanda:
Leikgleðin
í fyrirrúmi
hrein unun að fylgjast með stúlkunum
í gær lauk Pepsí-pæjumótinu í
knattspymu í Vestmannaeyjum en
síðan á fimmtudag hafa 830 stelpur
á aldrinum 6 til 15 ára att kappi í
fótbolta í þessu móti sem ÍBV stend-
ur fyrir. Alls tóku 15 félög þátt í
mótinu með samtals 82 lið. Keppt
var í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta
aldursflokki.
Mótið heppnaðist í alla staði mjög
vel enda lék veðrið við þátttakendur
alla dagana. Úrslitaleikimir fóru
fram í gær en í gærkvöldi var mik-
ið lokahóf þar sem verðlaun vora af-
hent og tilkynnt var um bestu menn
í hverjum flokki. Heiðursgestir á
lokahófmu voru Ragna Lóa Stefáns-
dóttir knattspymukona og Arnar
Ottesen.
Eyjamenn hafa orðið mikla
reynslu i að halda mót fyrir yngri
flokka í knattspyrnu og það sannað-
ist þama. Allt gekk eins og vel
smurð vél.
Fótbolti var leikinn frá morgni til
kvölds. En lífið er ekki bara fótbolti
og á kvöldin var boðið upp á úti-
dansleik og kvöldvöku.
Það var hrein unun að fylgjast
með leikjum í Pæjumótinu. Sama
leikgleðin var hjá öllum aldurs-
flokkum en þegcir kom að úrslita-
leikjunum magnaðist spennan og
áður en yfir lauk höfðu mörg tár
fallið en allir fóra heim með minn-
ingar um skemmtilegt mót.
Breiðablik var sigursælasta fé-
lagið á mótinu og vann í fjórum
flokkum. ÍBV sigraði í tveimur og
Valur og FH i einum hvort félag.
Nánar verður fjallað um mótið i
DV á morgun og farið yfir úrslit í
einstökum flokkum.