Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Side 24
36
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998
Bill Gates-
„aðdáendur"
Sumu fólkier ekki viö
bjargandi. Þaðeru virkilega til
menn og komr úti i hinum
stóra heimi sen hafa ekkert
betra við tímasinn að gera en
að hata Bill Gates. Á einni
slóðinni er hsegt að sjá hið
vægast sagt vaidræðalega at-
vik þegar Winiows 98 var
kynnt - og hnindi: http:
//www.ihatebllgates.com
Anti-Miciosoft
Samtök anditæðinga stórfyr-
irtækisins, í fílustu alvöru.
Þessi félagsskípur teygir anga
sína út í stjórrmál. Hér er að
finna allan grcfasta og stærsta
skítinn á Bill íates og Mi-
crosoft en samleiksgildið er
hvergi nærri staðfest:
http://i-want-i-webs-
ite.com/about-microsoft/amsn.
html
Skóreimar
Mörgum firnst leiðinlegt að
reima skóna sina. Mörgum
finnst líka hallærislegt að
um. Þegar alltþetta fer saman
er fátt annað £ð gera en að
fletta upp á þessari heimasíðu:
http: //www.oilers.com./
Veggfóður
Það hefur reynst mörgum
þrautin þyngr: að fjarlægja
veggfóður. Línklessur og slitur
loðir við veggha og það finnst
snyrtipinnum lítt fýsilegt. Á
þessari heimasíðu er að finna
hjálplegar ráðieggingar fyrir
heimilsfeður s:m ekki eru
handlagnir: hfp:// www.wall-
bear.com/PapcrStripping.html
Ljót borg
Glasgow á ær sína snöggu
bletti eins og festar borgir og
hafa nokkrir \el meinandi aðil-
ar með fegurðirskynið í lagi
tekið saman digott safn mynda
og texta um ljotustu byggingar
borgarinnar. /ð þeirra sögn er
af nógu að taka en það allra
helsta, eða ölii heldur það
sísta, er á slóðinni http:
//www.dcs.glaac.uk./gallachm
/glasgow/maii.html
Ljótir lampar
Lampar eru líka ljótir, en
hver er ljótastir? Á þessari
síðu er hægt ai skoða nokkra
forljóta lampaog kjósa þann
ljótasta. Það ei til mikils að
vinna: Einn hepp-
hin gestur fær að
Isunum stutterma-
bil meö mynd af
sigurvegaranum,
þe. ljótasta lamp-
aaum. Allir þang-
aö! Slóðin er: lttp://findgr-
eatstuff.simple
net.com/uglykmp.html
Félag dauðarokkara
Félag um vóxt og viðgang
dauðarokksins, opið öilum vel-
unnurum góðtar tónlistar! Fé-
lagar fá sérstact skírteini með
mynd af tveimor hauskúpum
og merki félagúns. Sitt hár er
ekki skilyrði. ilóðin er
http://blackplagu-
e.org/dmma.dnma2.html
Kynlíf á Netinu orðin tóm
- Bandaríkjamenn stunda netkynlíf sem einfalda afþreyingu en ekki af alvöru
w File Edit Uieui Go Bookmarks Options Oirectory Help
í könnun, sem gerð var í Banda-
ríkjunum nýveriö um kynlíf á Net-
inu, eða svokallað „cybersex", kom
fram að hið æsispennandi, dul-
arfulla og, hingað til talið, mikið
stundaða fyrirbæri er í raun bara
hálfgert frat.
Þeir sem töldu framtíð mannkyns
í hættu vegna útbreiðslu Netsins
geta nú andað léttar. Hinir svart-
sýnustu sáu fyrir sér draugaleg,
svitastorkin andlit í daufri skímu
litaskjáa, horfandi á dýrðina í stað
þess að handleika hana. En sem bet-
ur fer virðist sem fólk taki enn þá
gömlu góðu aðferðina fram yfir há-
tæknina. Að minnsta kosti bendir
bandaríska könnunin eindregið til
þess að fólk líti frekar á þetta
tölvutjútt sem afþreyingu - saklaust
gaman og skemmtilega tilbreytingu
við hið venjulega kráardaður. Að
sögn höfundar könnunarinnar, A1
Cooper: „líkt og aö horfa á Strand-
verði. Frekar einfóld skemmtun en
virk kynlífshegðun."
í könnuninni svöruðu tæplega 14
þúsund manns og voru um 9 þúsund
svaranna talin nothæf. Þetta er því
stærsta könnun sem gerð hefur ver-
ið á þessum umdeilda fylgifiski ai-
netsins. Samkvæmt tölum frá fyrir-
tæki, sem kannar umferð um Netið,
komu 9,6 milljón notendur við á 10
vinsælustu kynlífsstöðunum í apríl.
Það eru u.þ.b. 15% notenda Netsins
þannig að vinsældir þessarar af-
þreyingar eru gífurlegar. Hlutfall
kynjanna er fimm karlmenn á móti
hverri einni konu sem heimsækir
staðina, en konum fer fjölgandi þó
þær leiti ekki eftir því sama og karl-
amir. Karlmenn eru grófari í sínum
netráfi, vilja sjá klámmyndir og
annað þess háttar en konur vilja,
eins og konum er tamt (!), frekar
tala. Þær sækja meira í dónatal eða
erótík og daður en karlarnir og hef-
ur orðið mikil aukning í þeim geira.
í þessari könnun, sem aðstand-
endur segja hafa mest verið gerða
til gamans en ekki til söfhunar vís-
indalegra staðreynda, sýndi það sig
að einn af hverjum fimm stundar
netkynlíf í vinnunni og fólk fer al-
mennt frjálslega með sannleikann
þegar það skráir sig til leiks. Þannig
ljúga 60% til um aldur og 40% um
kynþátt. Meira að segja áttu sumir
erfitt með að viðurkenna kyn sitt en
5% lugu til um það. Þetta væri hægt
að flokka annars vegar sem nettan
öfuguggahátt en svo er aftur á móti
augljóst að það er miklu auðveldara
að koma út úr skápnum með pikki
á lyklaborð heldur en að segja sín-
um nánustu í eigin persónu. Það
skyldi þó aldrei vera að „baldna
unglingsstúlkan sem sæti einmana
við tölvuna á efnislitlum nærföt-
um“, og forstjóri stórfyrirtækisins
léti sig dreyma um uppi á skrifstofu
sinni á fimmtándu hæð, væri í raun
framkvæmdastjórinn á skrifstof-
unni við hliðina? -fin
Fljúgandi furðuhlutur staðfestur af
breska hernum
- Uri Geller kannar hið yfirskilvitlega á Netinu
Litlir grænir karlar - hver veit?
í Interface, tölvublaði dagblaðs-
ins Times, hefur Uri Geller umsjón
með dálki sem fjallar um hið yfir-
náttúrulega á Netinu. Maðurinn
sem áður beygði skeiðar og gaffla í
gríð og erg leitar nú uppi slóðir á
Netinu sem tileinkaðar eru fljúg-
andi furðuhlutum og þess háttar
fyrirbærum.
Nýverið sagði Uri frá fljúgandi
furðuhlut sem jafnvel varnarmála-
ráðuneytið breska
kunni engar eðlileg-
ar skýringar á.
Möppudýrin sem
venjulega afgreiða
slíkar fregnir sem
veðurathugunarloft-
belgi eða plánetuna
Venus hafa nefni-
lega alltaf haft
tröllatrú á mjög
fullkomnum píra-
mídaradar í eigu
flughersins og hafa
sagt óhjákvæmilegt
að það sem á annað
borð væri á lofti í námunda við
Bretlandseyjar sæist á þessum rad-
ar. Og hvað gerðist? Jú, þetta ann-
ars óútskýrða fyrirbæri sást nefni-
lega skýrt og greinilega á téðum
radar.
Furðuhlutavari: herðatré,
segull og dyrabjalla
Að sögn ráðuneytisins var greini-
leg stjórn á ferðum hlutarins af loft-
fimleikum hans að dæma. Hann var
þríhyrndur í laginu og á stærð við
orrustuskip, eða um
300 metra langur. Uri
segir ekki frekari
sannana þurfa við og
bendir um leið á
netslóð þar sem hægt
er að læra að búa til
sinn eigin „furðu-
hlutavara“ úr gömlu
herðatré, segli og
dyrabjöllu. Hug-
myndin byggist á
breytingum í segul-
sviöinu - öruggt
merki þess að fljúg-
andi furðuhlutir séu
í grenndinni, segir Uri. Slóðin er:
www.thealienz.com/parazone
/pageunderscorl.htm -fin
Uri Geller beygöí áöur
skeiðar en beygir nú breska
varnarmálaráöuneytiö.
Beygir hann líka sannleik-
ann?
Timi
!SE A I?
mrn
'mm
* w&m
mi* m
■ : " .
te oðaat.
:»S8I
zmasrn.
l mm