Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Blaðsíða 8
24
Fosshótel fellur að óskum þínum
Fosshótel er vaxandi hótelkeðja sem samanstendur af tfu hótelum
víós vegar um landið. Stefna hótelanna miðar að því að veita gestum
sínum bestu þjónustu sem völ er á.
VERIÐ VELKOMIN
Njótið gistingar og veitinga í notalegu umhverfi.
flkdiom
Afþreying þín - akkar ánægja
F0SSHÓTEL LIND, REYKJAVlK, Símí 562 3350 • F0SSHÓTEL CITY. REYKJAVÍK, sími 5111155 •
FOSSHÓTEL BIFRÖST, BORGARFIRÐI, sími435 0005 • FOSSHÓTEL ÁNING, SAUÐÁRKRÓKI, sfmi 453 6717 ■
FOSSHÓTEL ÁNING, VARMAHLÍÐ, sfmi 453 8130 • FOSSHÓTEL HARPA, KJARNALUNDI, sími 461 1014 •
FOSSHÓTEL HARPA, AKUREYRI. sfmi 461 1400 • FOSSHÓTEL KEA, AKUREYRI, sími460 200 •
FOSSHÓTEL HALLORMSSTAOUR, sfmi 471 1705 • FOSSHÓTEL VATNAJÖKULL, sími 478 2555
Gestakort Reykjavíkur er fáanlegt sem eins
dags, tveggja daga og þriggja daga kort. Það
gildir sem aðgöngumiði i strætisvagna, sjö
sundlaugar, Fjölskyldu-og Húsdýragarðinn og
Skautahöllina. Gestakortið gildir einnig að
söfnum borgarinnar (Árbæjarsafni, Safni
Ásmundar Sveinssonar, Hafnarhúsinu
og Kjarvalsstöðum).
Gestakortið fæst keypt í Upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur og Upplýsingamiðstöð
ferðamála, Bankastræti 2. Það kostar kr.
600/1 dagur, 800/2dagar og 1000/3 dagar.
LAUGARDAGUR 20. JUNI 1998
Dimmuborgir viö austanvert Mývatn eru óvenjulegar hraunborgir sem einkennast af hellum og kiettum. Kunnastur
er Kirkjan, háhvelfing sem opin er í báða enda. DV-mynd GK
Mývatn:
Sannkölluð ferðamannaparadís
Mývatn er sannkölluð ferða-
mannaparadís. Daglega koma þangað
um 3.000 ferðamenn til að njóta stór-
kostlegrar náttúru, skoða fuglalíflð
og annað það sem svæðið hefur að
bjóða. Mývatn er fjórða stærsta vatn
landsins og er það heimsfrægt fyrir
fuglalíf sitt en talið er að þar haldi
sig fleiri andategundir en á nokkrum
öðrum stað á jarðríki.
„í Reykjahlíðarskóla er starfrækt
upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
ásamt gestastofu sem rekin er af
Náttúruvemd ríkisins. Þar eru veitt-
ar upplýsingar um náttúru Mývatns,
sögu og mannlíf og gagnlegt er að
byrja heimsóknina með þvi að koma
við á þessum stöðum," segir Þórunn
Snæbjarnardóttir hjá upplýsingamið-
stöðinni við Mývatn. „Landverðir
hafa aðstöðu i upplýsingamiðstöð-
inni og bæði þar og út um sveitir get-
ur ferðafólk hitt þá og leitað upplýs-
inga t.d. um merktar gönguleiðir og
áhugaverða staði.“
Mývatnssveit er sannkölluð nátt-
úruperla og þar eru óteljandi fallegir
staðir til að skoða. „Hægt er að fara í
stuttar gönguferðir um nágrenni Mý-
vatns, leigja hjól eða fara um svæðið
á hestbaki en fjórar hjólaleigur og
tvær hestaleigur eru á staðnum. Eft-
ir 20. júlí verða í boði bátsferðir um
Mývatn á vélbát en fram að þeim
tíma er hluti vatnsins lokaður vegna
vatns- og ungatímans."
Ymsir aðilar við Mývatn eru með
skoðunarferðir. „Eldá fer með ferða-
manninn í hringferð umhverfis vatn-
ið og inn á Kröflusvæðið," segir Þór-
unn. „Boðið er upp á daglegar ferðir
að Dettifossi og í Ásbyrgi og eins inn
í Öskju. Tvisvar í viku er bíll sem fer
inn í Kverkfjöll í þriggja daga ferðir
með leiðsögumanni. í sumar munum
við einnig bjóða áætlunarferð, um 3
klst. ferð, í Kröflu, að Dettifossi og
aftur til baka.“
morgni og til baka að kvöldi. Frá Ak-
ureyri ganga þrjár rútur hingað á
dag, frá Húsavík tvær og rútan á
milli Egilsstaða og Mývatns gengur
daglega."
En það er ekki nóg að vera með fal-
legt landslag, skemmtilegar skoðun-
arferðir og góðar samgöngur. „Ferða-
maðurinn þarf að sofa og nærast og
hér við Mývatn eru fjölbreyttir gisti-
möguleikar í boði og prýðilegir veit-
ingastaðir. Við erum með þrjú hótel,
Viö Mývatn er margt sem gleður auga ferðamannsins. Fuglalífiö er fjöl-
skrúðugt og landslagiö hreint stórkostlegt. DV-mynd GK
Góðar samgöngur
„Við búum við mjög góðar sam-
göngur hér við Mývatn. Hingað eru
daglegar flugferðir úr Reykjavík að
REYKIAVlK
Leiðin yffir Kjöl
' *:
Varmahlíö #Akureyri
Svartá* •
• / r?
Reykj^ík
Hverageröiw* Selfos:
DV-graf IH
Kjölur:
A einum deai
landsvæðiö milli Landleiðir akaaagl
Kjölur er
Langjökuls og Hofsjökuls. Svæð-
ið liggur að mestu í 650 m hæð
yfir sjó og er fjallasýnin þaðan
afar tilkomumikil. Um Kjöl er
stysta leið milli Suður- og Norð-
urlands og var þar fyrrum tíð-
fbrult.
í júlí og ágúst mun Norðurleið-
aglega um Kjal-
veg og gefst mönnum því kostur
á að fara á einum degi þessa
gömlu þjóðleið sem áður tók
marga daga að fara fótgangandi
eða á hestbaki.
Lagt er af stað kl. 9 árdegis frá
BSÍ í Reykjavík og frá Umferðar-
miðstöðinni, Akureyri.
Hótel Reynihlíð, Hótel Reykjahlíð og
suður við Skútustaði er nú í sumar
verið að opna lykilhótel. Hér er
einnig rekin gistiþjónusta, hægt er
að fá bæði svefnpokapláss og uppbú-
in rúm auk þess sem hér er rekið
ágætis tjaldsvæði. Á hótelunum eru
veitingastaðir og í sumar verður í
fyrsta skipti opnaður pitsaustaður á
Hótel Reykjahlíð sem verður opinn
frá 16-21. í gamla bænum er rekið
kaffihús og bar og sérhæfa þeir sig í
því að vera með íslenska kjötsúpu.
Veitingastaðurinn Hverinn er einnig
með ýmislegt girnilegt í boði og í
Skútanum við Skútustaði er boðið
upp á létt hlaðborð í hádeginu.
Ýmislegt er hægt að gera til af-
þreyingar hér við Mývatn. Fyrir þá
sem vilja skella sér í sund er annað-
hvort að fara í útisundlaugina í
Reykjahlíð eða innilaugina á Skútu-
stöðum. Hér er 6 holu mjög skemmti-
legur golfvöllur og hægt er að leigja
sér árabát og róa út á vatnið. 27. júní
verður Mývatns-maraþon haldið í
fjórða sinn og í þetta skiptið er ætl-
unin að vera með miðnæturhlaup.
Við fáum mjög mikið af útlendum
ferðamönnum til Mývatns, spurning-
in er bara hversu lengi við getum
fengið þá til að stoppa hjá okkur. Þeir
sem koma til íslands með Norrænu
stoppa allir í Mývatnssveit og erlend-
ir hópar sem eru á hringferð um
landið koma allir við héma. Hingað
kemur líka töluvert af íslendingum
og reynum við að koma til móts við
þarfir landans af fremsta megni. ís-
lenskir ellilífeyrisþegar fá helmings-
afslátt af skoðunarferðunum hjá okk-
ur og einnig erum við með sérstakt
tilboð á gistingu ef pantað er með
minna en sólarhringsfyrirvara." -me