Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998 UV
Tolstoj lagði drög að skáldsög-
unni Stríð og friður meðan hann
arkaði um snjóskaílana á landar-
eign sinni, Jónas Hallgrímsson
samdi ljóð á gönguferðum sínum
um landið og Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi ráðherra, setti saman
þingræður á harðahlaupum um ís-
lensk fjöll og fimindi. Margt bendir
til þess að íslendingar séu loksins
að uppgötva þá nautn, upplyftingu
andans og lífshamingju, svo ekki sé
minnst á líkamsræktina sem fylgir
því að taka poka sinn, prik og skó
og skeiða út í buskann.
Hvernig gönguskó?
Um vaxandi áhuga íslendinga á
göngum vitnar ekki síst stóraukin
sala á gönguskóm. Ein stærsta
verslun landsins með útivistarvör-
ur hefúr selt hvorki fleiri né færri
en 5000 pör af gönguskóm á síðustu
fimm árum.
Gönguskómir hafa forgang; það
er alveg klárt. En hvemig göngu-
skór? Úrvalið er svo mikið að byrj-
andann rekur í rogastans. Sá sem
þetta skrifar er að eðlisfari kyrr-
setumaður sem hefúr um tíu ára
skeið fundið sig knúinn til göngu-
ferða kvölds og morgna, svo og um
helgar, auk þess sem hann fer í
nokkrar bakpokaferðir að sumar-
lagi. Trúlega á hann sér marga lags-
bræður meðal íslenskra göngu-
manna. Það er eiginlega fyrir þá
sem þessi pistill er ritaður, og ekki
síst þeim til upplýsingar sem em í
þann mund að stíga sín fyrstu skref
á langri og skemmtilegri leið.
Fyrir þremur árum eða svo ákvað
undirritaður að taka nokkur pör af
gönguskóm til skipulegs brúks og
reyna á þá til hins ýtrasta við allar
aðstæður. Frá þeim tíma hefur
hann verið með fimm pör af ólíkum
gönguskóm í takinu. Á hverjum
skóm gekk hann allt frá 30 kílómetr-
um og upp í 500 kílómetra saman-
lagt. Heilsubótargöngur um Reykja-
vík og nágrenni, í urð og grjóti upp
til fjalla, í klofháum snjó og á gler-
hálum skriðjöklum við Vatnajökul,
í vestfirsku mýrlendi, í skóglendi á
Norður-írlandi, í Klettafjöllum
Kanada, á háfjallastígum í Noregi
og jafnvel á asfaltinu á Manhattan-
eyju.
Þessi reynsla varð honum tilefni
til eftirfarandi athugasemda og heil-
ræða:
Ekki kaupa ódýra gönguskó.
Vertu tilbúinn að greiða fyrir þá
15-20.000 krónur. Þá ertu líka með
fótabúnað sem endist þér í mörg ár.
Kauptu þér leðurskó, helst meö
heilu yfirleðri og eins fáum saum-
um og kostur er. Gott leður vemdar
þig betur og andar betur en önnur
efni, auk þess sem auðvelt er að
regnverja það. Allir saumar þurfa
að vera tvöfaldir, helst þrefaldir,
með fi-am tungu og reimum og í
kringum hælinn.
Inni í öllum hetri gönguskóm er
síðan vatnsheld himna, þetta marg-
fræga Gore-Tex eða Sympatex. Þeg-
ar við bætast þrefaldir saumar og
gúmmivöm, er þá ekki gönguhrólf-
urinn í góðum málum? Óekki. Stað-
reyndin er nefhilega sú að þeir
gönguskór em ekki til sem þola
verulega vond íslensk veður nema
þeir séu kirfilega varðir með si-
líkoni eða bývaxi fyrir hverja ferð.
Fáðu þér uppháa gönguskó með
hálfstífúm sóla. Flestir betri göngu-
skór em með Vibram-sóla sem ekki
þarf að hafa áhyggjur af. Margir
gönguskór em aukinheldur með
sérstakt lag milli ytri-og innri sóla,
svonefnt fjöðrunarlag, sem er tví-
mælalaust mikill kostur. Sólinn og
bólstmð upphækkunin styður við
ökklann og ver fætuma fyrir
hnjaski. Það tekur stimdum dágóð-
an tíma að ganga til „heila“ og upp-
háa leðurskó, en þegar á reynir
þreytist göngumaðurinn ekki eins
mikið í slíkum skóm og í léttum.
Úttekt á gönguskóm
Stjömugjöf er miðuð við aðhliða
notkun á skónum allt árið um
kring. Mest em veittar fimm stjöm-
ur.
La Sportiva Cervino, þyngd
1000 g, verð kr. 15.900, 66°N,
gengnir um 500 km.
La Sportiva er ekki þekkt merki
hér á landi en Norðmenn kaupa
þessa skó grimmt. Hér er um að
ræða þunga skó með heilt og „mót-
að“ yfirleður sem rennur saman við
tvöfalda tungu. Það tekur langan
tíma að ganga til skó af þessu tagi;
ökklapúðar og tunga mættu vera
eftirgefanlegri. Skómir era því tæp-
lega fyrir byijendur. En fyrir þá
hyggjast stunda fjallaklifur í fúlustu
alvöm þá styðja þessir skór ágæt-
lega við ökklann og þverrákóttur
sólinn „liggur" vel í urð og grjóti.
Þeir hljóta því að teljast góður kost-
ur, sérstaklega miðað við verð. Eft-
ir 400 kílómetra sér talsvert á tá-
hettunni, eins og iðulega gerist með
stifa skó. Annað bjátar ekki á. Ekki
sér á þeim fáu saumum sem á skón-
um era og ekki hefúr enn þurft að
vatnsverja þá.
La Sportíva Cervino
Stjömugjöf ★★★
Meindl - Makalu Pro, þyngd
900 g, verð kr. 19.500, Útilíf,
Glæsibæ, gengnir um 500 km.
Skómir frá Meindl njóta meiri
virðingar en flestir aðrir skór hér á
landi. Af einskærri sérvisku valdi
ég mér ekki vinsælustu gönguskóna
frá umboðinu, heldur skó með frem-
ur hörðum sóla og gúmmíhettu yfir
tána, en þeir höfða sérstaklega til
veiðimanna sem hyggja á dagsferð-
ir. Þeir hafa til að bera alla helstu
kosti Meindl-skónna, saumar em
tvöfaldir eða þrefaldir, stuðningur
við hæl og ökkla er frábærlega góð-
ur og framan á vel fóðraðri tung-
unni er hanki sem kemur í veg fyr-
ir að reimar losni til fúllnustu. Það
tók nokkra daga að ganga skóna til
og venjast hörðum sólunum. Ég
gerði líka mikið að því að vaða í
þeim, aðallega til að prófa gúmmí-
vömina, sem virkaöi í 400 kíió-
metra. Upplagðir skór fyrir vel fjáða
veiöimenn, aðrir ættu að fá sér
Meindl-skó með meiri fiöðrun eða
athuga ódýrari valkosti.
Meindl - Makalu Pro
Stjömugjöf ★★★★
Scarpa Ladakh, þyngd 900 g,
verð kr. 19.480, Skátabúðin,
gengnir um 500 km.
Helstu keppinautar Meindl hér á
landi era að sjálfsögðu Scarpa-
skómir. Yfirleðrið á Ladakh, í
þessu tilfelli rúskinn, er heillegt
með 2 cm gúmmírönd, saumar era
tvöfaldir og þrefaldir, stuðningur
við hæl og ökkla er til fyrirmyndar,
sérstaklega púðamir efst. Nokkra
daga tók að ganga skóna til, en það
var ljúf kvöð vegna fjöðrunarlagsins
undir innri sóla sem er með því al-
besta sem ég hef kynnst í skófatn-
aði. Ég hugsa að ég hafi lagt meira
á þessa gönguskó á stuttum tíma en
nokkra aðra; m.a. tíðar göngur i
snjó og krapa, um Reykjanesiö endi-
langt og Ódáðahraun, oft með tals-
verðar byrðar á bakinu. Stóðust
skómir hverja þolraun með sóma.
Stöku sinnum blotnaði í þeim, en
þeir þomuðu fljótt, allir saumar
héldu og lítið sér á gúmmíi. Stykki
rifiiaði upp úr fóðringu að innan,
það var allt og sumt. Ladakh era
ekki ódýrir skór en gæðin réttlæta
verðið.
Scarpa Ladakh
Spmugjöf ★★★★★
Trezeta Pamir, þyngd 800 g,
verð kr. 15.400 kr., Seglagerðin
Ægir, gengnir 40 km.
Hér era skór sem ég kynntist
ekki náið fyrr en nýlega og komu
mér verulega á óvart. Yfirleðrið er
úr heillegu rúskixmi eins og á
Ladakh, meira að segja öllu heil-
legra, því það rennur saman við
tunguna, en auk þess era saumar
tvöfaldir og þrefaldir á réttum stöð-
um og fjöðrun er góð. Stuðningur
við ökkla virðist nægjanlegur. Einn
helsti kostur Pamir, fyrir utan hag-
stætt verð og þyngd, er að ekki þarf
að ganga þá tU. Ágætur kostur fyrir
byrjendur sem hyggja á lengri ferð-
ir.
Trezeta Pamir
Stjömugjöf ★★★★
Brasher Master Boot, þyngd
750 g, verð kr. 15.700, Essó-búð-
in, gengnir 30 km.
Markmið Chris Brasher er að búa
til létta gönguskó til alhliða nota,
meira að segja til langferða við
verstu aðstæður. Master Boot er ör-
ugglega með fafiegustu gönguskóm
sem hér fást, gerðir úr brúnu og
gljáandi kálfskinni. Sólinn er sér á
parti, með fáum tökkum, en háum
og breiðum, auk þess sem á honum
er bunga undir táberginu svo að
skórinn hallast fram á við, raggar,
við hvert fótspor. Þetta skapar sér-
kennilega fiöðrun, sem ásamt
mjúku leðrinu gerir skóna ótrúlega
þægilega við fyrstu kynni. Ánægjan
minnkaði ekki hætishót við stuttar
ferðir um Heiðmörk. En eftir að
hafa gengið í þeim 10 km með 10 kg
á bakinu fann ég fyrir þreytu i fót-
um. Ég er því ekki sannfærður um
að þessir skór dugi til svaðilfara
uppi á íslenskum öræfúm. En vifii
menn fá sér skó til styttri ferða þá
er Master Boot góður kostur auk
þess sem verðið hlýtur að tefiast
hagstætt.
Brasher Master Boot
Stjömugjöf ★★★
Viðhald á göngu-
skóm
Ejarlægðu rgimar og innlegg
eftir hveija gongu. Hreinsaðu
skóna vandlega með því að úða
á þá vatni, farðu síðan yfir þá,
utan og innan, með svampi eða
bursta.
Láttu þá standa og þoma und-
ir beru lofti eða þar sem loft-
ræsting er góð, alls ekki úti í
sólinni, nálægt ofni, eldstó eða í
heitu farangursrými á bíl. Ef
dagblöð era við höndina má
troða þeim ofan í skóna.
Þegar skómir era þurrir
skaltu bera á þá vax eða silíkon
og gera sérstaklega vel við
sauma og samskeyti. Þessi efni
vatnsveija bæði gönguskóna og
mýkja þá. Ágætt er að bera eilít-
ið vaselín á reimagöt og lykkjur.
Þægileg leið til að skoða söfnin í Reykjavík.
Safnarútan ekur alla daga vikunnar, nema
mánudaga (20. júní -31. ágúst).
Farið frá Lækjartorgi fjórum sinnum á dag kl.
13,14,15 og 16. Ekið á miili safnanna og geta
farþegar farið í og úr rútunni að vild.
Aðgöngumiðinn í rútuna kostar 300 krónur og
veitir afslátt að söfnunum. Frekari upplýsingar
er að fá í bæklingi um Safnarútuna sem liggur
frammi á llpplýsingamiðstöð ferðamála,
Upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavikur, í
söfnum bornarinnar ou víðar.